Morgunblaðið - 04.06.1982, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1982
23
Tommi fyrir utan nýja staðinn.
Tommi í Tommaborgurum:
Stofnar nýjan skemmti-
stað fyrir unglinga
HINN 8. júlí næstkomandi mun Tóm-
as Tómasson, eigandi Tommaham-
borgara, opna nýjan skemmtistað fyrir
unglinga 16 ára og eldri. Hinn nýi
skemmtistaður er að Skúlagötu 54, i
húsi því er Jón Þorláksson og Norð-
mann höfðu aðstöðu áður. Húsnæði
það er Tommi hefur til umráða mun
rúma 400—500 manns og er hugmynd-
in sú að þar verði til skiptis hljómsveit-
ir og diskótek.
Tommi fór nú fyrir stuttu til
Bandaríkjanna að kynna sér diskó-
tek. Þar skoðaði hann meðal annars
diskótekin Xenon og Studio 54 og
fékk þar hugmyndir að þessum
skemmtistað sínum.
Hinn nýi skemmtistaður mun all-
ur verða hinn vandaðasti og hefur
m.a. verið fjárfest fyrir 1 milljón
krónur í ljósaútbúnaði og hljóm-
flutningstækjum. Dansgólfið verður
úr kopar sem mun vera nýjung hér-
lendis. Aðspurður kvaðst Tommi
stefna að því að ráða til sín þær
hljómsveitir sem vinsælastar eru á
hverjum tíma og ætlar hann með því
móti að höfða til sem flestra. Þær
veitingar sem verða á boðstólum eru
gosdrykkir, hamborgarar og fransk-
ar kartöflur.
Eitt prósent af veltu skemmtistað-
arins hyggst Tommi láta renna til
góðgerðarstarfsemi og hefur Tommi
staðfest að upptökuheimilið í Kópa-
vogi muni hjóta þessara peninga.
Valur RE strand-
aði við Engey
VALUR KE 7 strandaði við Engeyj-
arvita um klukkan 3 aðfaranótt mið-
vikudagsins. Áhöfn var aldrei i
hættu, enda veður stillt og gott.
Skipverjar reyndu að ná bátn-
um út með eigin vélarafli hans, en
það tókst ekki. Þá náðist samband
við hafnsögumenn í Reykjavík-
urhöfn, sem fóru út á hafnsögu-
bátnum Haka og drógu Val á flot.
Val, sem er um 50 lesta nýr bát-
ur, var síðan siglt til hafnar og
mun hann hafa skemmst nokkuð.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Hárgreiðslusveinn
óskast strax. Uppl í sima 36054.
Einbýli — Keflavík
Höfum til sölu glæsilegt einbýl-
ishús á horni Tjarnargötu og
Lyngholts.
Bíó — Keflavík
Til sölu er kvikmyndahús í fullum
rekstri ásamt dansstaö.
Fasteignapjónusta Suöurnesja.
Simi 3722 og 1733. Lögmenn
Garöar og Vilhjálmur, Keflavík.
I húsnæöi :
tðs/casí^j
Húsnœði óskast
4ra manna fjölsk. sem er aö
ftytja heim frá Þýskalandi óskar
eftir aö taka á leigu 4ra herb.
íbúö frá 1. sept. eða fyrr. Æski-
leg staösetning i eöa nálaagt
miöbænum. Fyrirframgreiösla.
Uppl. í síma 95-1963.
Fíladelfía
Almenn samkoma kl. 20.30.
Samkomustjóri Sam Glad.
■QE€VEHNOAIVtLAQ ISLANOS*
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR 11798 og 19533.
Helgarferðir FÍ
4.—6. júní
1. Söguslóöir Sturlungu i Borg-
arfiröi og Dölum. Gist í svefn-
pokaplássi. Fararstjóri: Ari
Gíslason.
2. Þórsmörk. Gönguferöir viö
allra hæfi i fallegu umhverfi.
Allar upplýsingar og farmiöasala
á skrifstofunni, Öldugötu 3.
Feröafélag islands.
UTIVISTARFERÐIR
Föstudagur 4. júní:
Tindfjöll. Gengiö verður á Ými
og Ymu. Gott skíöafæri. Gist í
húsi. Uppl. og farseölar á skrifst.
Lækjargötú 6a, s. 14606.
Dagsferðir sunnudag-
inn 6. júní:
1. Fljótshlíð. Brottför kl. 10.30.
2. Leggjabrjótur — Botnsdalur.
Gengiö veröur frá Þingvöllum í
Botnsdal. Brottför kl. 10.30.
3. Botnsdalur — Glymur, hasti
foss landsins. Brottför kl. 13.00.
Verö á dagsferöunum er kr. 150.
Lagt veröur af staö frá BSÍ aö
vestanveröu. Frítt f. börn í fylgd
fulloröinna. Sjáumst.
Útivlst.
Lappland
Noregur. Svíþjóö og Finnland
15,—23. júní. Einstakt tækifæri
aö feröast ódýrl um. Sama-
byggöir m.a. möguleiki á aö
finna Gull viö inarí-vatn. Rófan í
Emí (Monte Carlo Noröursins 2
dagar) og fleiri merkir staöir.
Verö frá 2.000. örfá sæti laus.
Norrænaféiag Grindavíkur,
sími 8410.
Y FERDAFÉLAG
ÍSLANDS
■$S8£4'' ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR 11798 oa 19533.
Dagsferðir
Feröafélagsins:
1. Laugardaga 5. júní gönguferö
á Esju kl. 13. Sjöunda feröin af
níu í tiletni af 55 ára afmælis Fi.
Allir þátttakendur sjálfkrafa meö
i happdrætti og er vlnnlngur
helgarferö aö eigin vali. Fariö frá
Umferöarmiöstööinni, austan-
megin. farmiöar viö bíl. Verö kr.
50.
2. Sunnudag 6. júní, kl. 10.
gengiö frá Kolviöarhóli milli
hrauns og hlíöa i Grafning
(Hrómundartindur). Verö kr.
100.
3. Sunnudag 6. júni kl. 13,
Nesjaveilir og nágrenni. Verö kr.
100.
Fariö frá Umferöarmiöstööinni
austanmegin. Farmiöar viö bil.
Fritt fyrir börn i fylgd fulloröinna.
Feröafélag islands
Samkoma veröur í kvöld kl.
20.30 aö Hverfisgötu 44, sal
Söngskólans. Daniel Óskarsson
og félagar ur Hjálpræöishernum,
hafa samkomuna.
Allir velkomnir.
Samhjálp
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar
Aðalfundur Heimdallar
Heimdallur SUS í Reykjavík, heldur aöalfund sinn 6. júni nk. í Valhöll
kl. 14.00.
Dagskrá: 1. Venjuleg aóalfundarstörf.
2. önnur mál. Stjórnin.
Kópavogur Kópavogur
Kosningahátíð
Kosningahátíö D-listans i Kópavogi veröur i Sjálfstæöishúsinu,
Hamraborg 1, i kvöld kl. 21.
Fjölmenniö.
Stjómin.
vinnuvélar
Dráttarvél
Til sölu International 384, 45 hestöfl árgerð
1980. Verð 90 þús. Mjög lítið notaður.
Uppl. í síma 95-1551.
-
rl A l JT' \ '■> \ r ) nnr;
U_r_A U J_r alla miðvikudaga u —y UJ A U Hafóu samband EIMSKIP *
82.06 Slrnl 27100