Morgunblaðið - 04.06.1982, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1982
AtvinnumiÖlun námsmanna:
Mun fleiri atvinnulausir
en á sama tíma á síðasta ári
HJÁ atvinnumiðlun framhalds-
skólanema, sem samanstendur af
Stúdentaráði Háskóla íslands,
Bandalagi íslenskra sérskóla-
nema, Landssambandi mennta- og
fjölbrautaskólanema og Sambandi
íslenskra námsmanna erlendis,
eru nú um 600 manns á skrá, en
aðeins berast um 10 atvinnutilboð
á dag og virðist svo sem atvinnu-
rekendur séu hræddir við að ráða
namsmenn i vinnu vegna ovissu i
verkfallsmálum.
Núna eru jafnmargir náms-
menn búnir að láta skrá sig hjá
atvinnumiðluninni og voru til 1.
júlí í fyrra. Það sem einnig hrjáir
atvinnumiðlunina er óvissa í
fjárhagsmálum. Atvinnumiðlun-
in er fjármögnuð með ríkisstyrk
og hefur gengið illa að útvega
VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS
STOFNAÐUR 1905
Innritun næsta skolaár
Verzlunarskóli Islands tekur inn nemendur af öllu landinu og úr
öllum hverfum Reykjavíkur, án tillits til búsetu.
Umsóknir skal senda til Verzlunarskóla íslands, Grundarstíg
24,101 Reykjavík. Skrifstofa skólans er opin alla virka daga kl.
9—12 og 1—3.
Verslunardeild
Nemendur eru teknir inn í 3. bekk.
Inntökuskilyröi er grunnskólapróf.
Reynist ekki unnt aö taka inn alla sem sækja um skólavist,
veröur höfö hliösjón af aldri nemenda og árangri þeirra á
grunnskólaprófi.
Umsóknarfrestur er til 4. júní og skulu umsóknir þá hafa borist
skrifstofu skólans, en æskilegt er aö umsóknir berist sem fyrst
eftir aö grunnskólaprófum er lokiö, ásamt afriti af prófskírteini
en ekki Ijósriti.
Lærdómsdeild
Nemendur eru teknir inn í 5. bekk, sem skiptist í hagfræöideild
og máladeild.
Inntökuskilyröi er einkunnin 6,50 á verslunarprófi.
Umsóknareyöublöö fást á skrifstofu skólans.
Umsóknarfrestur er til 4. júní.
NÁMSSKRÁ Fjöldi k.nn.lu.tunda á vlku
Ver.lunardeild Lj.rdó(nsd.ild
3. be 4. b« 5. bekkur 9. bskkur
Hd. Md. Hd. Md.
Islenska 4 4 4 4 4 4
Enska 5 5 5 5 5 5
Þýska 4 4 4 4 3 3
Danska 4 4
Franska 4 6
Latma 6 6
Stærðfræði 4 4 8 4 7 3
Bókfærsla 5 5 3
Hagfraaói 3 3 5 5
LögfraBÖi 3
Saga 3 2 2 2 2
Líffr.-Efnafr. 5 5 5 5
Vélritun 3 3
Tölvufræöi 3 3
Leikfimi 2 2 2 2 2 2
Valgrein 3 3 3 3
Samtals 40 40 38 39 39 39
Fulloröinsfræösla
Haldin veröa námskeiö í hagnýtum verslunargreinum fyrir fólk
eldra en 18 ára mánuöina sept.-nóvember 1982. Hvert nám-
skeið stendur yfir í 60 tíma og veröur kennt tvo tíma í einu
annan hvern dag kl. 17—18.30 eða kl. 18.30—20.
Eftirtaldar námsgreiöar veröa kenndar og getur hver þátttak-
andi aðeins innritaö sig í tvö námskeiö. Tímatafla veröur tilbúin
eftir skólasetningu 10. sept.
Ensk verslunarbréf
Þýsk verslunarbréf
Bókfærsla I
Rekstrarhagfræði
Verslunarréttur
Vélritun I
Tölvufræöi
Námskeiöunum lýkur meö prófi og fá þátttakendur afhent
skírteini.
Innritunarfrestur er til 1. sept. 1982.
Fjöldi þátttakenda er takmarkaöur í hverju námskeiöi og munu
þeir sem fyrstir senda inn umsókn ganga fyrir ef fleiri sækja um
en komast aö. Umsóknareyöublöö og nánari upplýsingar er aö
fá á skrifstofu skólans.
VERZLUNARSKÓL! ÍSLANDS
EFÞAÐERFRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AUGLYSINGA-
SÍMINN KR-
22480
þennan styrk í ár. Takist ekki að
útvega þessa peninga í bráð er
augljóst að loka verður atvinnu-
miðluninni um miðjan júní í stað
1. júlí eins og ráðgert hafði verið.
tt
„Húsbyggjandinn
fyrir þá er huga
að húsbyggingum
ÚT ER komið ársritið Húsbyggjand-
inn hjá Blaða- og fréttaþjónustunni í
Reykjavík. Ritið er gefið út sem
fræðslurit fyrir þá sem á næstunni
huga að húsbyggingum hér á landi,
auk þess sem í ritinu er viðskipta-
skrá til að létta byggjendum að kom-
ast í samband við rétta aðila á hin-
um ýmsu sviðum húsbyggingarinnar.
Húsbyggjandinn ’82 er gefinn út
í samvinnu við Teiknistofuna
Kvarða, og eru teikningar að hús-
um Kvarða í ritinu. Húsbyggjand-
inn er 136 bls. og vandaður í allri
gerð. Forsíðu ritsins prýðir teikn-
ing eftir teiknarann Brian Pilk-
ington.
Bjarni Reynisson, Valtýr Sigurbjarnason og Guðrún Jónsdóttir.
V erslunarkönnun 1 Reykjavik 1981:
Sérverslanir verði í
Mjóddinni og fjöldi stór-
markaða takmarkaður
„VERSLUNARKONNUN í Reykja-
vík 1981“, nefnist skýrsla, sem ný-
lega var gefin út að tiistuðlan skipu-
lagsmálanefndar Reykjavikurborg-
ar. Landfræðingarnir dr. Bjarni
Reynisson og Valtýr Sigurbjarnason
unnu að gerð skýrslunnar.
í „Verslunarkönnun í Reykjavík
1981“ er meðal annars bent á nauð-
syn þess að gera samantekt um
ástand verslunarmála jafnhliða
þróun nýs miðbæjar í Mjóddinni
svokölluðu í Reykjavík til að móta
framtíðarstefnu í þessum málum.
I skýrslunni er lagt til að
stærsti hluti sérverslana, sem leit-
að hafa í miðbæinn, verði í Mjódd-
inni, og að aukning og uppbygging
slíkrar starfsemi verði vestan
Pósthússtrætis, í Kvosinni og
austan Elliðavoga. Einnig kemur
fram, að nýjum stórmörkuðum í
borginni skuli fundinn staður utan
íbúðarhverfa og eldri hluta nýs
miðbæjar og þá með nægilegt
landrými undir bílastæði í huga.
Ennfremur er tillaga um endur-
skoðun á skipulagi 1. áfanga nýs
miðbæjar og að þar verði tryggt
rými fyrir skrifstofur, stofnanir
og heildverslanir, þar sem mögu-
leikar fyrir aukna þjónustu- og
verslunarstarfsemi yrði fyrir
hendi, svo og íbúðarbyggð.
Jafnframt segir í skýrslunni, að
æskilegt sé talið að settar verði
takmarkanir á stærð og fjölda
stórmarkaða.
I lokin kemur fram, að ekki hafi
verið hægt að halda áfram skipu-
lagsákvörðunum frá 1967 vegna of
mikils kostnaðar við uppbyggingu
og að fyrirtæki almennt hafi ekki
haft bolmagn til að standa við þær
skuldbindingar sem þeim var gert
að taka á sig.
Fjölbreyttur markaður,
en spurningin er um verð
— segir Björn Dagbjartsson um möguleika á auknum útflutningi sjávarafurða til Japan
„ÞAÐ ER Ijóst, að markaöur fyrir
sjávarafurðir í Japan er ótrúlega
fjölbreyttur,“ sagði Björn Dag-
bjartsson, forstjóri Rannsókna-
stofnunar fiskiðnaðarins, í samtali
við blaðamann, en Björn var fyrir
nokkru á ferð í Japan og kynnti sér
þá meðal annars neyzluvenjur Jap-
ana á fiski. Japan hefur verið dýr-
mætur markaður fyrir íslendinga
hvað varðar frysta loðnu og loðnu-
hrogn, en í vetur er leið var nánast
ekkert selt af þessum afurðum til
Japan vegna brests á loðnuveiðum.
„Það var reyndar svolítið erfitt að
útskýra fyrir Japönum, að ekkert
væri eftir af loðnu til frystingar eða
hrognatöku, þar sem búið væri að
bræða stóran hluta stofnsins, en
það er annað mál,“ sagði Björn.
Hann var spurður hvort Japan
gæti orðið mikilvægur markaður
fyrir aörar sjávarafurðir heldur en
loðnu og hvalkjöt, sem selt hefur
verið þangað í miklum mæli á und-
anförnum árum.
»Ég er nú enginn markaðssér-
fræðingur, en á Japönunum var
ekki annað að heyra, en þeir vildu
kaupa héðan flestar þær afurðir,
sem þeir geta fengið, ef verðið er
ekki of hátt. Svo dæmi séu tekin þá
spurðu þeir mikið um lýsi, einkum
hákarlalýsi. Þá hafa þeir keypt
hrefnu- og stórhvalakjöt af okkur
og þar sem framboð á þessum vör-
um fer minnkandi í heiminum vilja
þeir reyna að tryggja sér þetta kjöt
frá þeim þjóðum, sem enn veiða
hval.
Japanir gera mjög góðan mat úr
alls konar fiski. Ein framleiðsluteg-
undin hjá þeim er svonefnt „kam-
aboko", það er búðingur eða fisk-
deig, sem er litaður og notaður í alls
konar rétti, líkara smákökum eða
rúllutertum heldur en fiskréttum.
Þetta er unnið úr frekar smáum
fiski af þorskfiskaætt, en fiskurinn
er flakaður og síðan marinn. Þeir
hafa prófað kolmunnann og komist
að þeirri niðurstöðu, að hægt væri
að nota hann í þetta, en ennþá er
hann ekki samkeppnisfær vegna
kostnaðar við vinnsluna. Það væri
vissulega spennandi ef okkur tækist
að nýta kolmunnann þannig, að við
gætum selt Japönum kolmunna-
marning á samkeppnishæfu verði.
Þeir voru mjög áhugasamir og
báðu um sýnishorn af ýmsum af-
urðum, meðal annars höfum við
sent þeim sýnishorn af fiskkrafti,
það er súpukrafti, sem við höfum
unnið úr humar, og ætlunin er að
vinna fyrir þá hörpudiskkraft. í
Japan er mikill markaður, en við
stöndum alltaf frammi fyrir sömu
spurningunni, hvað getum við
framleitt á samkeppnisfæru verði,"
sagði Björn Dagbjartsson að lokum.
Hreppsnefnd Stykkishólms:
Oddviti og sveitarstjóri endurkjörnir
Stykkishólmi, 2. júni.
FYR.STI fundur nýkjörinnar hrepps-
nefndar Stykkishólmshrepps var hald-
inn í gærkvöldi, en svo sem kunnugt er
skipa hana 5 fulltrúar sjálfstæð-
ismanna og óháðra og einn fulltrúi Al-
þýðuflokks oe einn fulltrúi samvinnu
og félagshyggjufólks.
Oddviti var endurkjörinn Ellert
Kristinsson, framkvæmdastjóri, og
til vara Finnur Jónsson. I hreppsráð
voru kjörin: Gissur Tryggvason,
Kristín Björnsdóttir og Guðmundur
Lárusson. Sveitarstjóri var endur-
kjörinn næstu fjögur ár, Sturla
Böðvarsson með atkvæðum allra
hreppsnefndarmanna.
Fréttaritari