Morgunblaðið - 04.06.1982, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1982 2 5
SATT ræður
framkvæmda-
stjóra
STJÓRNARFUNDUR var haldinn í
SATT, Sambandi alþýðutónskálda
og tónlistarmanna, miðvikudaginn 2.
júní, og voru þar rædd framtíðar-
verkefni félagsins.
Á döfinni er byggingarhapp-
drætti til styrktar uppbyggingu
félagsheimilis fyrir samtökin og
mun dreifing happdrættismerkja
hefjast næstu daga, en þessi þátt-
ur er í höndum Jóhanns G. Jó-
hannssonar, eins af stjórnar-
mönnum SÁTT.
Stjórnin ákvað að ráða fram-
kvæmdastjóra til starfa sem ann-
ast myndi hina ýmsu framkvæmda
þætti sem stjórn SATT leggur
áherslu á, á hverjum tíma, svo
sem byggingamál, fjáröflunarmál
ásamt félagsmálum.
Til starfsins var ráðinn Eggert
V. Kristinsson, sem í eina tíð var
tengdur popptónlist Bítlatímabils-
ins. Eggert hefur undanfarin tvö
ár stundað nám við Háskóla ís-
lands og lauk þar prófum í vor í
ensku til BA-prófs. Hann hefur
undanfarin sjö ár stundað sjálf-
stæðan atvinnurekstur, en var þar
áður framkvæmdastjóri Blindra-
félagsins og Blindravinnustofunn-
ar, Hamrahlíð 17, í fjögur ár og
sat í stjórn Blindrafélagsins í tvö
ár sem gjaldkeri. Eggert hefur
ennfremur unnið að öðrum félags-
málum, svo sem fyrir NLFR og
NLFÍ, þar sem hann sat í stjórn
þessara samtaka um áraraðir.
Það er vilji og stefna stjórnar
SATT að hleypa nýju og öflugu lífi
í samtökin, með því að ráða sér
framkvæmdastjóra til starfa.
(FrétUtilkynning frá SATT).
ið opnað
EINS og undanfarin tvö sumur verð-
ur tjaldstæðið við sundlaugina á
Sauðárkróki starfandi frá 1. júní
fram í fyrstu viku af september.
Þar er ágætis aðstöðuhús,
vatnssalerni, vaskar og geymsla.
Vaskur til uppþvotta er utan á
húsinu, auk þess sem settur hefur
verið upp bekkur með áföstu mat-
arborði fyrir tjaldgesti.
Fyrir yngstu gestina hefur verið
komið upp rólum, vegasalti og
boltaleikspili.
Verð er krónur 30 fyrir tjaldið
eða krónur 10 fyrir manninn og
krónur 10 fyrir tjaldið. Frítt er
fyrir börn undir tólf ára aldri.
Aftur fló
hjá FEF
FÉLAG einstæðra foreldra heldur
annan flóamarkað í húsi sínu í
Skeljanesi 6 nk. laugardag 5. júní
og hefst hann kl. 2. Verður þar til
sölu glæsilegt úrval af fatnaði,
gömlum og nýjum, skrautmunum,
húsgögnum og fleiru. Allt verður
selt á útsöluprís. Þess má geta að
strætisvagn nr. 5 hefur endastöð
við húsið.
Þdrhlu
Þeir Helgi og
Gunnar bera Morg-
unblaðið á Túngöt-
una,hverfi II.Þeir "
vinna sér inn góðan
vasapening og sjá til
þess að blaðið berist þér í
hendur stundvíslega á hverjum morgni.
Allir blaðberarnir okkar standa fyrir
sínu hvernig sem viðrar og við erum stoltir
af þeim.
Það eigum við reyndar sameiginlegt með
áskrifendum okkar, því í nýlegri könnun
meðal þeirra kom fram að ekki færri en
88,7% segja blaðið berast sér nægjanlega
snemma í hendur.
(Þeir bræður álíta að
11,3% fari of snemma
áfætur ámorgnana).
Þó að við teljum
þetta góð meðmæli, þegar
þess er gætt hve erfitt er
að gera öllum til hæfis í svo vandmeðfarinni
þjónustu, þá ætlum við að halda vöku okkar
og reyna að gera enn betur í framtíðinni.
Markmiðið er að allir séu ánægðir,
við með góða blaðbera, þeir með starfið
og þú með blaðið þitt.
Blaóid sem þú vaknar við!