Morgunblaðið - 04.06.1982, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ1982
Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
JÓHANNA BJARNADOTTIR,
Grænukinn 18, Hafnarfiröi,
lóst á sjúkradeild Hrafnistu aö kvöldi 1. júní.
Ólafur Helgaaon,
Jósep Helgason,
Hulda Helgadóttir,
Símonía Helgadóttir,
María Helgadóttir,
Sigríöur Helgadóttir,
Vera Pétursdóttir,
Þuríöur Gísladóttir,
Björn Björnsson,
Guöjón Sveinbjörnsson,
Höröur Þórarinsson,
Baldvin Kristjénsson,
Jóna Björg Jósepsdóttir, Ulfar Sigmarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
JÓNÍNA H. EGGERTSDÓTTIR,
Deildartúni 4, Akranesi,
sem lést í Sjúkrahúsi Akraness aöfaranótt 30. maí, veröur jarö-
sungin frá Akraneskirkju laugardaginn 5. júní kl. 14.30. Þeim sem
vilja minnast hennar er bent á Sjúkrahús Akraness.
Nanna Siguröardóttir, Sverre Valtýsson,
Anna Siguröardóttir, Leó Júlíusson,
Vigfús Sigurösson,
Eggert Sigurösson,
Þorvaldur Sigurðsson, Guörún Magnúsdóttir,
Guömundur Sigurðsson, Helga R. Höskuldsdóttir,
Siguróur Sigurósson, Regína Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför
LÁRU BJARNADÓTTUR,
Hjaröarholti, Ólafavík,
veröur gerö frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 5. júní kl. 2.
Börn og tengdabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóöir, amma og systir,
AGNES H. KRISTJÁNSDÓTTIR POULSEN,
Noröurvör 13, Grindavik,
er lóst aöfaranótt 26. maí, veröur jarösungin frá Grindavíkurkirkju
4. júní kl. 2.30.
Lena Poulsen, Péll Kristjénsson,
Sigurrós Poulsen, Gíslína Kristjéns,
Magnús Kristjénsson, Matthías Kristjéns,
Gestur Kristjéns,
Sigurrós Kristjéns,
Markús Kristjéns,
og barnabörn.
t
Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
ELÍN JÓNSDÓTTIR,
Valshamri, Álftaneshreppi,
veröur jarösungin frá Langholtskirkju laugardaginn 5. júní kl.
10.30.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
SIGURDUR BJÖRGVIN ÞORSTEINSSON,
sjómaöur, fré Aöalbóli, Jökuldal,
Fannborg 1,
lést 21. maí. Jaröarförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hins
látna.
Aöstandendur.
Pálína Kristíana
Scheving — Minning
Fædd 29. nóvember 1890
Dáin 27. maí 1982
í dag fer fram frá Fríkirkjunni í
Reykjavík útför Pálínu K. Schev-
ing, Skeggjagötu 15. Hún andaðist
að Hrafnistu 27. maí sl. eftir fárra
daga legu, en á Hrafnistu hafði
hún þá dvalið nokkra mánuði.
Pálína var fædd að Vilborgar-
stöðum í Vestmannaeyjum 29.
nóvember 1890. Dóttir hjónanna
Friðrikku Sighvatsdóttur úr Eyj-
um og Vigfúsar Pálssonar Schev-
ing frá Norður-Hvammi í Mýrdal,
og var hún næstyngsta barn
þeirra hjóna. Bræður hennar voru
þrír og eru þeir allir látnir. Elstur
var Ágúst, sjómaður og skipstjóri
eins vélbátanna, sem komu til
Eyja á fyrstu árum vélbátanna
þar. Hann lést á besta aldri, varð
bráð hvítadauðans. Annar var
Sigfús, líka skipstjóri, sem um
mörg ár hélt sjómannanámskeið í
Eyjum og kenndi þar ungum
mönnum sjómannafræði, sem
veitti þeim að námi loknu réttindi
til skipstjórnar fiskibáta. Var það
undanfari Sjómannaskólans í Eyj-
um. Þriðji bróðirinn og yngstur
systkinanna var Jóhann Sveinn.
Hann var líka sjómaður, vélstjóri
og skipstjóri á fiskibátum. Pálína
átti líka hálfsystur, sem Sigríður
hét, frá fyrra hjónabandi móður
sinnar.
Pálína ólst upp í glöðum systk-
inahópi hjá foreldrum sínum, en
snemma varð hún fyrir lífs-
reynslu, er hún um eða innan við
fermingu missti móður sína. Upp
úr því fluttist hún frá Vilborgar-
stöðum að Búastöðum í Eyjum, til
móðurfrændfólks síns, og þar átti
hún heima í nokkur ár. Pálína var
í engu eftirbátur sinna systkina.
Hún varð snemma að taka til
hendi og vandist iðjusemi og
vandvirkni. Sumaratvinna var þá
oft meiri annars staðar en í Eyj-
um og fór þá oft margt fólk yfir
sumarið til Norður- eða Austur-
lands, þar á meðal systkinin frá
Vilborgarstöðum, Pálína og Jó-
hann.
Ég minnist Pálínu sem mjög
glæsilegrar ungrar stúlku, sem
var svo innilega góð við litla
frænda sinn. Ég minnist hennar
líka sem fulltíða, starfandi við
framleiðslustörfin, akandi fiski á
handvagni af bryggju í fiskað-
gerðahúsið. Þá voru engin tæki til
staðar, sem nú létta undir með
mannshöndinni.
Frá Búastöðum fór Pálína til
Reykjavíkur og réði sig þar við
innanhússstörf. Var það hennar
húsmæðraskóli. Hafði hún orð á,
hve heppin hún hefði verið með
húsbændur. Sérstaklega minntist
hún með þakklæti heimilis Ástríð-
ar og Péturs Thorsteinson frá
Bíldudal, en hjá þeim hjónum var
hún í nokkur ár. Ékki síður minnt-
ist hún þeirra góða sonar, Guð-
mundar (Muggs), sem hún ávallt
minntist með kærleika og virð-
ingu. Hún vann einnig á þekktri
matstofu, Uppsölum, en þar borð-
uðu þá margir þekktir og verðandi
frammámenn þjóðarinnar, sem
hún kynntist þar og minntist oft.
Og árin líða með gleði og sorg-
um, mótlæti og ánægju og margt
drífur á hennar daga.
1928 giftist Pálína Gunnlaugi
Bárðarsyni frá Króki í Ásahreppi.
Hann var sonur hjónanna Bárðar
Gunnlaugssonar og konu hans
Guðrúnar Jónsdóttur, sem þar
bjuggu. En þegar Gunnlaugur var
aðeins 4 ára leystist heimilið upp
sakir veikinda föður og fyrirvinnu
heimilisins og annarra erfiðleika.
Flyst þá Gunnlaugur að Hrafna-
tóftum í Djúpárhreppi til hjón-
anna Þorsteins Jónssonar og fyrri
konu hans, Sigríðar Pálsdóttur,
sem reyndust honum eins og bestu
foreldrar alla tíð síðan, eins og
einnig seinni kona Þorsteins, Guð-
ný Vigfúsdóttir. Enda taldi hann
sig eiga þeim mikið upp að unna
og var viðloðandi þetta heimili allt
til 26 ára aldurs. 1918 flytur
Gunnlaugur til Reykjavíkur og að
áeggjan bróður síns hefur hann
nám í sútunariðn hjá Bergi Ein-
arssyni, sútara og vinnur að námi
loknu hjá meistara sínum, allt þar
til að sú iðn lagðist niður af völd-
um kreppuáranna, árið 1938. Á
þeim árum var hér þröngt á
vinnumarkaðinum og vann Gunn-
laugur þá allt sem gafst, m.a.
byggingarvinnu. Árið 1942 gerðist
Gunnlaugur fastur starfsmaður
hjá Reykjavíkurborg, fyrst sem
flokksstjóri en síðan verkstjóri við
t
Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaöir, afi og langafi,
KRISTBJÖRN GUDLAUGSSON,
Eiríksbúö, Arnarstapa,
Snæfellsnasi,
veröur jarösunginn aö Hellnakirkju, laugardaginn 5. júní kl. 14.
Athöfnin hefst meö húskveöju aö heimili hins látna kl. 13.00.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á Slysavarnadeildina
Hafbjörg, Breiöuvíkurhreppi.
Guörún Wormsdóttir,
Gullý Kristbjörnsdóttir, Ágúst Kornelíusson,
Sigurborg Kristbjörnsdóttír, Guöbjartur Karlsson,
Kristín Kristbjörnsdóttir, Sveinn Sigurjónsson,
Anna Kristbjörnsdóttir, Ómar Kristjánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginkona mín og móðir okkar,
SIGRÍÐUR HALLDÓRSDÓTTIR
fré Sauöholti,
Melgeröi 5, Kópavogi.
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, föstudaginn 4. júní kl. 13.30.
Helgi Jónsson,
Sigrún Bairdain,
Guöný Andrésdóttir,
Þórdís Andrésdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og jaröarför
móöur okkar, tengdamóöur og ömmu,
KRISTÍNAR ÁRNADÓTTUR,
Mjölnisholti 6.
Árni Waag Hjélmarsson, Ragnheiöur Helgadóttir,
Karin Waag Hjélmarsdóttir, Hannes Jónsson,
Hjélmar Waag Hannesson, Anna Birgis
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir færum viö fyrir auösýnda samúö viö andlát og
jaröarför
HANSÍNU INGIBJARGAR BENEDIKTSDÓTTUR,
Austurgötu 29, Hafnarfiröi.
Sórstakar þakkir færum viö Ólafi Jónssyni, póstmanni, Hafnarfiröi,
fyrir alla hans hjálp og kærleika okkur auösýnda.
Einar Hilmar, dætur, tengdasynir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
fööur okkar,
DANÍELS KRISTJÁNSSONAR
fré Hreöavatni.
Guömundur Daníelsson,
Kristjén Danfelsson,
Ragnar Danielsson.
vegalagnir og eru þær ófáar göt-
urnar hér í borg, þar sem hann
hefur lagt hendur á fyrsta stein-
inn. Við þessi störf vann hann allt
fram til 1970, er hann varð að
hætta fyrir aldurs sakir.
Hjónaband þeirra Pálínu og
Gunnlaugs var mjög farsælt. Þar
bar aldrei skugga á. Þau eignuðust
eina dóttur, Hrefnu, sem gift er
Trausta Frímannssyni, vélvirkja.
Ég minnist Pálínu, er ég heim-
sótti hana ásamt ungri eiginkonu
minni að heimili þeirra að Týs-
götu 1, hvað hún tók vel á móti
okkur. Þá var dóttirin Hrefna
ungbarn, en líka var á heimilinu
sonur hennar, Hermann Stein-
grímsson, þá á fermingaraldri,
sem hún átti áður en hún giftist.
Hermann var mikill efnispiltur,
en veiktist í menntaskóla og and-
aðist tæpra 17 ára, árið 1935.
Pálína átti líka tvö önnur börn
áður en hún giftist, sem hún kom í
fóstur hjá góðu fólki. Hún hafði
ávallt gott samband við þau bæði,
en þau eru Friðrik Jörgensen,
stórkaupmaður, kvæntur Þórunni
Þorsteinsdóttur, og Ásta Stein-
grímsdóttir, húsmóðir, gift Einari
Jónssyni, nú búsett á Akureyri.
Þau Pálína og Gunnlaugur voru
mjög samhent hjón, sem gott var
að heimsækja. Lengst af áttu þau
heima i húsi sínu að Skeggjagötu
15, og þar bjuggu líka Friðrik og
Þórunn sín fyrstu 7 búskaparár.
Þegar Þórunn kom á heimilið, þá
ung stúlka, urðu þær Pálína strax
mjög samrýndar og hefur það
haldist alla tíð. Hrefna, dóttir
hennar, stofnaði líka sitt heimili
þar, þegar hún giftist. Gunnlaug-
ur Traustason, dóttursonur þeirra,
var einnig hjá þeim frá fyrstu tíð,
allt þar til hann stofnaði sitt eigið
heimili, og ber honum og Sigríði
Thorarensen sérstakar þakkir
fyrir mikla umhyggju og vináttu
við ömmu og afa til hinstu stundar
þeirra beggja.
Að lokum minnist ég, er ég
heimsótti þau Gunnlaug og Pálínu
á níræðisafmæli hennar 29. nóv-
ember 1980. Það mátti segja, að
hún héldi að mestu reisn sinni og
glæsibrag, bæði andlega og lík-
amlega, allt til þess tíma.
Hún var þakklát Guði fyrir allt,
fyrir sín góðu börn, barnabörn og
eiginmann, fyrir umhyggju þeirra
og ræktarsemi. Hún var þakklát
fyrir að hafa fengið að starfa með
safnaðarfélögum sínum í Frí-
kirkjusöfnuðinum, ásamt manni
sínum, sem lengi var hringjari
safnaðarins, og hún var þakklát
fyrir alla vinsemd, sem hún hafði
notið, vinsemd barna sinna allra
og tengdafólks, vinsemd vanda-
lausra, þar á meðal Sigríðar og
séra Jakobs í Holti, barna þeirra
og annarra Eyfellinga, sem á einn
eða annan hátt greiddu götu henn-
ar og barna hennar.
En nú leið að þáttaskilum. Fyrir
áramótin 1980—1981 veiktist
Gunnlaugur og andaðist 7. janúar
1981. Pálína bjó áfram á Skeggja-
götu 15 í nálægð barna sinna og
hafði ágæta konu sér til daglegrar
hjálpar, þar til að hún á sl. sumri
dvaldi um tíma á Hrafnistu í
Hafnarfirði og svo á Hrafnistu í
Reykjavík, þar sem hún andaðist
27. maí sl.
Langri ævi er lokið.
Innilegar þakkir og Guð blessi
frænku mína.
Páll Scheving