Morgunblaðið - 04.06.1982, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1982
29
Sigríður Halldórs-
dóttir — Minning
Fædd 5. október 1905
Dáin 25. maí 1982
í dag er til moldar borin Sigríð-
ur Halldórsdóttir frá Sauðholti.
Hún fæddist þar 5. okt. 1905 og
ólst upp í foreldra húsum. Bærinn
Sauðhoit stóð á eystri bakka
Þjórsár, en er nú í eyði.
Fyrir þá, sem leggja mikið upp
úr ættfræði, skal þess getið að
Sigríður var af Víkingslækjarætt.
Hún var 29 ára, er hún giftist
Andrési Sigurðssyni og eignaðist
með honum dæturnar Guðnýju,
sem er gift Gunnlaugi Hjálmars-
syni handboltahetju og Þórdísi,
gift Birni Nielsen loftskeytasnill-
ing. Fyrir átti hún dótturina Sig-
rúnu, sem giftist William Bain-
drain og býr vestan hafs. Andrés
dó 1965.
Árið 1967 giftist hún öðru sinni
og lifir maður hennar hana, Helgi
Jónsson blikksmíðameistari.
Sigríður lagði gjörva hönd á
margt var m.a. í kaupavinnu t.d. á
Ásólfsstöðum og átti hún ljúfar
minningar frá þeim fagra stað.
Ekki verður æviferill Sigríðar
rakinn frekar hér, en um hana má
segja, að hún var eins og klippt út
úr Njálssögu eða Sturlungu, for-
vitri, römm í lund, þjóðleg í orðs-
ins bestu merkingu, sem m.a. kom
best í ljós í því, hvernig hún var
eins í viðmóti við alla, hvort held-
ur það voru ráðherrar eða sendlar.
Kjarnmikið tungutak hennar
vakti fyrst athygli mína, er hún
hóf vinnu í mötuneytinu í Arn-
arhvoli fyrir rúmum tveimur ára-
tugum, en þá um árabil mataðist
ég þar nærri daglega og ailtaf við
og við undanfarin ár. Það gat eng-
um dulist að þarna var óvenjuleg
kona á ferð; giaðvært hispursleysi
hennar hlaut að gleðja þá, sem
það kunnu að meta. Þetta var
kona sem hafði reynt talsvert og
gat miðiað af reynslu sinni og
velvilja.
Ást hennar á lífinu gat ekki
leynst neinum, — til skamms tíma
gat maður rekist á hana í tjaldi í
útilegu í Þjórsárdal eða Þórsmörk
eða í orkan stuði á réttarballi, í
lopapeysu á gailabuxum og stíg-
vélum með fleyg í rassvasa —
enda kunni hún að fara með guð-
aveigar. Þá einnig uppábúna í
mannfagnaði. Það var eitthvað í
fasi hennar sem gat rekið drung-
ann úr sinni hinna þunglyndustu.
Mæðutón átti hún ekki til. Það að
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hliðst-
ætt með greinar aðra daga.
Greinar mega ekki vera í sendi-
bréfsformi. Þess skal einnig get-
ið, af marggefnu tilefni, að frum-
ort Ijóð um hinn látna eru ekki
birt á minningarorðasíðum
Morgunblaðsins. Handrit þurfa
að vera vélrituð og með góðu
línubili.
Rannsaka
heyrn
Norðlendinga
EINAR Sindrason háls-, nef- og
eyrnalæknir ásamt öðru starfs-
fóiki Heyrnar- og talmeinastöðvar
íslands verða á ferð á Norðurlandi
vestra dagana 21.—25. júní nk.
Rannsökuð verður heyrn og tal
og útveguð heyrnartæki. Farið
verður á eftirtalda staði: Ólafs-
fjörð 21. júní, Siglufjörð 22. júní,
Sauðárkrók 23. júní, Blönduós 24.
júní og Hvammstanga 25. júní.
hún valdi sér að maka mann, sem
var nærri 17 árum yngri en hún
talar sínu máli, um persónu þess-
arar fágætu alþýðukonu, sem unni
íslenskri menningu í hvívetna og
náttúru landsins. Siíkar mann-
eskjur eru ómetanlegar á hverjum
stað og undirritaður veit að hann
talar fyrir munn hinna mörgu,
sem notið hafa málsverðar eða
hressingar í mötuneyti stjórnar-
ráðsins í Arnarhvoli, þegar ást-
vinum Sigríðar Halldórsdóttur er
vottuð samúð og þakkað ánægju-
legt og hlýtt viðmót. — Mér er
kunnugt að vandamenn Sigríðar
meta mikils hve Helgi Jónsson
reyndist eiginkonu sinni vel í öllu
þeirra hjónabandi og ekki hvað
síst í helstríði hennar.
Blessuð sé minning hennar.
Gunnlaugur Þórðarson.
ÞÚ ERT ÖRUCCUR Á
G O ODpÝEA R
í dag er til moidar borin, virt
kona úr verkamannastétt. I dag
þegar aðeins er innt eftir mennt-
un, en ekki vinnusemi, stundvísi
eða trúmennsku, vilja þeir gleym-
ast sem skilað hafa lífsstarfi sínu
án eigingirni og sjálfselsku.
Sigríður Halldórsdóttir sem við
kveðjum í dag var ein af þessum
gamla skóla, þjóðarheill var henni
ofar í huga en eigin hagur. Við
sem höfum átt því láni að fagna,
að vera samferðamenn hennar hin
síðari ár, neitum því ekki að áhrif
hennar á lífsskoðanir okkar eru
varanleg. Þessi áhrif verðum við
ávallt þakklátir fyrir. Megi okkur
auðnast að tileinka okkur ást
hennar á landi og þjóð.
Nú þegar leiðir skilja um sinn
eigum við þá ósk heitasta að henn-
ar hinsta för verði jafn friðsöm og
líf hennar allt. Einhver spekingur
sagði: „Besti predikarinn er hjarta
þitt, besti kennarinn tíminn en
besti vinur þinn er Guð.“ Þetta
voru líka einkunnarorð þeirrar
heiðurskonu sem við nú kveðjum.
Aldrei fáum við fullþakkað
samfylgdina. Megi hugsjónir
hennar og trú þroskast í hjörtum
okkar.
„Ef þú átt vin hvaða not hefur þú
þá fyrir lyf?“
(Bhartrihare.)
Tengdasynir
Verkamanna-
félagið
Dagsbrún
Félagsmenn eru hvattir til aö koma á fundinn og sýna
júní kl. 2 e.h.
Dagskrá:
Samningamálin.
Félagsmenn eru hvattir til aö koma á fundinn og sýni
skírteini viö innganginn. Stjórnin.
Hefurðu gert þér greln fyrlr því
að milll bíls og vegar eru aðeins
fjórir lófastórir fletlr.
Aktu því aðeins
á viðurkenndum hjólbörðum.
HUGSIÐ UM EIGIÐ ÖRYGGI
OG ANNARRA
HEKLAHF
Laugaveg.170 172 Sími 21240
Radial með Superfiller
Bridgestone Radial hjólbaröar
með sérstyrktum hlióum veita auk-
ió öryggi vió akstur á malarvegum.
Hjólbaröakaupendur....
Þegar þió kaupiö radial hjólabaróa,
þá athugió hvort þeir eru merktir
S/F, því það táknar aó þeir eru meó
Superfiller styrkingu íhliðunum .
á Islandi
BILABORG HF
Smiöshöföa 23, sími 812 99.