Morgunblaðið - 04.06.1982, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ1982
31
Aðeins 46 mörk skoruð í
20 leikjum 1. deildarinnar
NÚ, þegar fjórar umferdir eru búnar
í íslandsmótinu í knattspyrnu, er
fróðlegt að skoða ýmislegt varðandi
mótið. Fimm leikir eru í hverri um-
ferð og verður að segjast eins og er,
að markaskorun hefur ekki verið
sterkasta hlið íslensku knattspyrnu-
mannanna. Samtals hafa 46 mörk
verið skoruð í leikjunum 20, eða
broti yfír 2 mörk í leik að meðaltali.
Þó hafa 0—0-jafnteflin aðeins verið
þrjú til þessa. { fyrstu umferðinni
voru skoruð 13 mörk, aðeins tíu í
annarri og þriðju og aftur 13 í fjórðu
umferðinni.
Þeir Ómar Jóhannsson t.v. og Sig-
urður Grétarsson eru meðal þeirra
leikmanna sem skorað hafa tvö
mörk.
Þá er athyglisvert hversu gífur-
lega mörkin dreifast á leikmenn,
enginn virðist ætla að skera sig úr
í markakóngskapphlaupinu.
Markhæstu mennirnir hafa aðeins
skorað 2 mörk og alls hafa 35
leikmenn 1. deildarinnar komist á
blað í leikjunum tuttugu. Þeir sem
skorað hafa 2 mörk eru Jóhann
Georgsson ÍBV, Ómar Jóhannsson
ÍBV, Njáll Eiðsson Val, Ásbjörn
Björnsson KA, Sigurður Grétars-
son UBK, Sigþór Ómarsson ÍA,
Ólafur Hafsteinsson Fram, Hall-
dór Arason Fram, Heimir Karls-
son Víkingi, Guðmundur Jó-
hannsson IBÍ og Gústaf Bald-
vinsson ÍBÍ.
Eftirtaldir leikmenn hafa skor-
að eitt mark: Kristinn Kristjáns-
son ÍBÍ, Erling Aðalsteinsson KR,
Willum Þórsson KR, Valur Vals-
son Val, Trausti Ómarsson UBK,
Sverrir Herbertsson Víkingi,
Helgi Helgason Víkingi, Ólafur
Björnsson UBK, Hákon Gunnars-
son UBK, Guðbjörn Tryggvason
IA, Jóhann Þorvarðarson Víkingi,
Jón Oddsson ÍBÍ, Birgir Teitsson
UBK, Sigurjón Kristjánsson UBK,
Eyjólfur Ágústsson KA, Gunnar
Gíslason KA, Örnólfur Oddsson
ÍBÍ, Gunnar Pétursson ÍBÍ, Sigur-
lás Þorleifsson ÍBV, Valþór Sig-
þórsson ÍBV, Ómar Torfason Vík-
ingi, Óli Þór Magnússon ÍBK,
Daníel Einarsson IBK og Þor-
grímur Þráinsson Val.
(KnaHspyrna1
Hrýtur
ÞÝSKI knattspyrnumaðurinn
sterki, Hans Peter Briegel, hefur
komist að því að ósiðir borga sig
stundum. Þannig er mál vexti, að
Briegel er eini vestur-þýski lands-
liðsmaðurinn sem fékk einkaher-
bergi á hvíldargistiheimilinu, sem
þýska liðið hefur dvalið á í Svarta-
skógi að undanfornu, en þangað
fór hópurinn gagngert til að kasta
of hátt!
mæðinni og slaka á. Astæðan fyrir
því að Briegel fékk sérherbergi, er
sú, að hann hrýtur svo hátt að ekki
er svefnsamt fyrir aðra í sama her-
bergi! Briegel leikur með Kaisers-
lautern. Á ferðalögum með félagi
sínu dvelur kappinn ævinlega í
einkaherbergjum á meðan að fé-
lagar hans skipta sér niður tveir og
tveir.
Fjorir alþjóðlegir
fimleikadómarar
Fimleikasamband íslands státar
nú af fjórum dómurum sem staðist
hafa alþjóðlegt dómarapróf. í vor
var haldið námskeið i tengslum við
Stjarnan
Framhaldsaðalfundur Stjörn-
unnar í Garðabæ fer fram 10. júní
í Garðaskóla og hefst kl. 20.00.
Norðurlandamótið sem haldið var
hér á landi og þreyttu 19 manns
próf. Fjórar konur stóðust alþjóðlega
prófíð, Margrét Bjarnadóttir, Anna
Kristín Jóhannesdóttir, Berglind
Pétursdóttir, sem er aðeins 18 ára
og Áslaug Oskarsdóttir, sem er að-
eins 16 ára. Þess má geta til gam-
ans, að Danir eiga aðeins tvo dóm-
ara með sambærileg réttindi, Finnar
þrjá.
Draumamörk Guö-
geirs þau fyrstu
á öldungamótinu
Guðgeir Leifsson skoraði tvívegis.
GUÐGEIR Leifsson skoraði fyrstu
tvö mörkin í íslandsmóti „öldunga",
en á þriðjudaginn léku Víkingur og
FH fyrsta leik mótsins. Vikingar
sigruðu örugglega 6—0. Alls taka 13
lið þátt í mótinu og er leikið í tveim-
ur riðlum. Leikmenn þurfa að hafa
náð 30 ára aldri. Næsti leikur í mót-
inu verður í kvöld, en þá mætir KR
liði Þróttar á KR-velli og á morgun
leika ÍBA og Breiðablik.
Leikur Víkings og FH á þriðju-
daginn var hinn líflegasti og
skemmtilegur samleikur sást til
beggja liða. Víkingar voru þó
áberandi sterkari og mörk Guð-
geirs sannkölluð draumamörk.
Rush skoraði sigurmark
Wales gegn Frakklandi
WALES sigraði Frakkland 1—0 í
vináttulandsleik í knattspyrnu sem
fram fór í Toulouse í Frakklandi í
fyrrakvöld, leikurinn var liður i und-
irbúningi Frakka fyrir lokaátökin á
HM. Ian Rush skoraði sigurmark
Wales á 55. mínútu leiksins, en
Frakkar höfðu lengst af nokkra yfir-
burði. En þeir virkuðu þreyttir, enda
nýkomnir úr þrekæfíngabúðum í
Andorrafjöllunum. Platini, Six og
Tresör fengu allir tækifæri til að
skora, en Wales-búar vörðust fræki-
lega. Almenningur í Frakklandi er
ails ekki sáttur við frammistöðu
landsiiðsins i síðustu leikjum, en
Frakkar hafa nú tapað tveimur leikj-
um í röð, áður 0—1 á heimavelli
fyrir Perú.
Ian Rush bætti marki í safnið.
Knattspyrnuskóli Víkings
Englendingar léku
sér að Finnum
KNATTSPYRNUSKÓLI Víkings
verður starfræktur í sumar með svip-
uöu sniði og undanfarin ár. Hvert
námskeið stendur í tvær vikur og
skiptist í tvo hópa, fyrir og eftir há-
degi. í hverjum hópi verða 20—24
drengir og stúlkur og verður reynt
að hafa börn á svipuðu reki í hverj-
um hópi.
Námskeið verða: 1. námskeiðið
7. júní til 18. júní, 2. námskeiðið
21. júní til 2. júií, 3. námskeiðið 5.
júlí til 16. júlí, 4. námskeiðið 19.
júlí til 30. júlí, 5. námskeiðið 3.
ágúst tii 13. ágúst, 6. námskeiðið
16. ágúst til 27. ágúst.
Leiðbeinandi verður Stefán
Konráðsson, íþróttakennari, en
Youri Sedov, þjálfari meistara-
flokks mun gefa góð ráð. Þá munu
kunnir knattspyrnumenn koma í
heimsókn; þeirra á meðal Lárus
Guðmundsson, atvinnumaður í
Belgíu og Ómar Torfason, lands-
liðsmaður og fyrirliði Víkings, og
fleiri kunnir kappar.
Farið verður í undirstöðuatriði
knattspyrnunnar, og reynt verður
að leggja grunn að skilningi á
leiknum og leikni með knöttinn.
Þá verður ýmislegt til skemmtun-
ar, svo sem myndbandasýningar
og keppni við knattspyrnuskóla í
öðrum félögum. í lok hvers nám-
skeiðs verða þátttakendum veitt
viðurkenningarskjöl.
Þátttökugjald á námskeiði er
250 krónur og greiðist við innrit-
un, sem hefst þriðjudaginn 1. júní
í félagsheimili Víkings frá klukk-
an 15-17.
Paul Mariner fagnar marki. Hann
| skoraði tvívegis gegn Finnum í gær.
ENSKA knattspyrnulandsliðið vann
öruggan stórsigur gegn fínnska
landsliðinu í Helsinki í gær, 4—1
urðu lokatölur leiksins og segja þær
lítið um yfírburði enska liðsins sem
þarna vann sjötta sigur sinn i röð.
Leikurinn var liður í undirbúningi
Englands fyrir HM á Spáni, en fyrir
Finna var hann liður i hátíðahöldum,
því knattspyrnusambandið þar í
landi varð 75 ára á þessu ári. Meðal
21.500 áhorfenda voru Koiovisto
Finnlandsforseti og Joao Havelange
forseti FIFA.
Englendingarnir réðu lögum og
lofum á vellinum og Paul Mariner
hóf markaregnið er hann skoraði
fyrsta markið á 14. mínútu. Bryan
Robson bætti öðru marki við á 26.
mínútu og hann var aftur á ferð-
inni á 59. mínútu er hann skoraði
þriðja mark Englands. Mariner
hafði heldur ekki sagt sitt síðasta
orð, hann skoraði fjórða markið
aðeins fjórum mínútum síðar.
Eina mark Finna skoraði Kai
Haaskivi úr vítaspyrnu á 82. mín-
útu leiksins. Haaskivi leikur ann-
ars með Edmonton Drillers í
Kanada. Ef vítið er frádregið, átti
finnska liðið aðeins tvö alvöru
markskot. Annað þeirra, á 38.
mínútu leiksins, varði Ray Clem-
ence meistaralega.
GOOGOOPLEX
2 plötur x 45 snúningar
á verói einnar.
PURRKUR
Útg.
gramm
stainorh#
PILLNIKK
ní)