Morgunblaðið - 04.06.1982, Qupperneq 32
Síminn á afgreiðslunni er
83033
Jttor0imíjlaíiií>
Sími á ritstjórn og skrifstofu:
10100
FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1982
700 krónur
fyrir hvern
drepinn
útsel
HKINGOKMANEFD greiðir nú há
verðlaun til allra þeirra, sem drepa
útsel eða landsel við landið, en
menn fá verðlaunin með því að
senda kjálka selsins til nefndarinn-
ar. Fyrir hvern drepinn útsel eru
greiddar 700 krónur, 500 krónur
fyrir landsel, 250 krónur fyrir út-
seiskóp «g 100 krónur fyrir lands-
selskóp. I>að eru hin ýmsu sölusam-
tök fiskvinnslunnar í landinu, sem
standa straum að greiðslum til
þeirra sem drepa selina.
Það hefur lengi verið vitað að sel-
urinn er mikill skaðvaldur á fiski-
slóðum við landið, bæði er selurinn
hýsill fyrir hringorm, og síðan étur
hann kynstrin öll af fiski. Til dæm-
is er talið að útselurinn einn éti
25—30 þúsund tonn af nytjafiski
árlega.
Nú er talið, að 20 til 30 þúsund
landselir séu við landið, um útsela-
stofninn er ekki eins mikið vitað, en
talið er að minnsta kosti 5000 útsel-
ir séu við landið.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins, þá hafa ýmsir óttast að
selahræ verði skilin eftir, þar sem
selurinn hefur verið fleginn. Síðan
fari fuglar eins og örninn í hræin og
geti drepist. Nú hafa öll frystihús
landsins verið beðin um að taka
selsskrokka til geymslu gegn mjög
vægu gjaldi.Talið er að selsskrokk-
arnir séu mjög góðir í loðdýrafóður
og hafa loðdýraræktendur í landinu
sýnt því mikinn áhuga að fá
skrokkana í fóður.
MoripinblmAiö/Guðjón.
Sex stúlkur í Fegurðarsamkeppni íslands
Fyrri hluti Fegurðarsamkeppni íslands 1982 var haldinn í Broadway í
gærkvöldi. Þá voni kynntar þer sex stúlkur, sem taka þátt í keppninni.
Urslit verða kynnt og fegurðardrottning íslands krýnd í Broadway nk.
sunnudagskvöld. Mvndin var tekin þegar verið var að snyrta stúlkurnar
fyrir kynninguna í gærkvöldi. Stúlkurnar eru, talið frá vinstri: Guðrún
Margrét Sólonsdóttir, Fanndís Steinsdóttir, Hildigunnur Hilmarsdóttir,
Guðrún Möller, Maria Björk Steinsdóttir og Kolbrún Anna Jónsdóttir.
Með á myndinni eru Heiðar Jónsson snyrtir og Sigurður Benónýsson
hárgreiðslumeistari.
Boranir hafnar að nýju við Kröflu:
Stefnuborað
í
Harmonikkuleikarar af öllu landinu hafa safnast saman i Reykjavík, þar
sem fyrsta landsmót Landssambands harmonikkuleikara verður háð um
helgina. Harmonikkuleikararnir ætla að bregða á leik á Lækjartorgi
klukkan 16 i dag af þessu tilefni ef veður leyfir. Hér má sjá þá æfa sig
fyrir útihljómleikana.
Með hliðsjón af þeirri
óvissu, er nú ríkir ákveður
sambandsstjórnin að koma
saman til fundar á ný eigi síð-
ar en fimmtudaginn 10. þessa
mánaðar."
Morgunblaðið hafði sam-
band við Þorstein Pálsson,
framkvæmdastjóra VSÍ vegna
þessa og sagði hann, að verk-
bannsboðun af hálfu VSI væri
aðeins varnarráðstöfun. Hins
vegar óttaðist hann það, að ef
ekki fyndist samkomulags-
grundvöllur áður en til þessara
vinnustöðvana kemur, yrðu
þær langvinnar.
SAMBANDSSTJÓRN Vinnuveitendasambands Islands sam-
þykkti á fundi sínum í gær að boða til verkbanns frá og með
18. júní gagnvart öllum þeim verkalýðsfélögum, sem boða
verkfall frá og með þeim tíma, hafi samningar þá ekki tekizt.
Fer samþykkt sambandsstjórnarinnar hér á eftir:
„Vegna áskorunar Alþýðu-
sambands íslands og ákvörð-
unar einstakra verkalýðsfé-
laga um boðun allsherjarverk-
sumar í
falls samþykkir sambands-
stjórn Vinnuveitendasam-
bands íslands að boða verk-
bann frá og með 18. júní 1982
gagnvart öllum þeim verka-
lýðsfélögum sem boða verkfall
frá þeim tíma, hafi samningar
þá ekki tekist. Framkvæmda-
stjórn er falið að sjá um fram-
kvæmd þessarar verkbanns-
boðunar.
VSI boðar verkbann
frá og með 18. júní
fyrsta sinn hér
„NÚ ER byrjað á bonin fyrstu holu
þt'ssa árs, holu 19, við Kröflu. Dýpt
hennar er orðin tæplega 900 metrar
og lokið var við að steypa fóðringar í
byrjun þessarar viku. Allt hefur
gengið vel hingað til. Þá er búizt við
því að hægt verði að hefja borun
næstu holu í kringum 20. þessa mán-
aðar og verður það fyrsta holan hér
á landi, sem verður stefnuboruð, það
er til norðurs inn undir Kröflufjall
og henni er ætlað að skera tvö mis-
gengi, sem liggja þar í austur og
vestur. Vitað er að þau hafa opnazt á
óróatímabili síðustu ára, því á þeim
myndazt hver. Við erum að reyna að
skera þessi misgengi og auka þannig
afköst á holu,“ sagði Einar Tjörvi
Elíasson, verkfræðingur Kröfluvirkj-
unar er Morgunblaðið innti hann
eftir gangi mála við Kröflu.
—Hvernig er borað með hinni
nýju tækni?
„Fyrst verður borað beint niður í
um 200 metra og síðan verður
stefnuborað í þá átt, sem taka á.
Gert er ráð fynr því að stefnubor-
unin sjálf hefjist nálægt næstu
mánaðamótum og verður þá stefnu-
borað í um 300 metra. Síðan verður
borað beint í ákveðnu stefnuna í
2.000 metra og vonast er til að hitta
á misgengin og fá góða holu
Þessi tækni er ekki alveg ný af
nálinni, um 10 ára gómul. Þá er
notaður mótor milli borstanga og
á landi
krónu, sem drifinn er af skolvatninu
og snýr krónunni og þá hægt að
sveigja borunina í hvaða stefnu sem
er. Til þess að mæla stefnuna verður
í fyrsta sinn hér á landi notaður
gyróáttaviti niðri í holunni til að
forðast segulskekkju. Með þessari
tækni er hægt að breyta gömlum
holum og stefnubora þær og slakar
holur án þess að bora þurfi nýjar,
eins og áður var,“ sagði Einar
Tjörvi.
í fjárveitingu til borana í ár
eru 63 milljónir og er reiknað með
að sú upphæð dugi og allt gangi
samkvæmt áætlun, þó gætu verkföll
sett strik í reikninginn, en eins og er
er borað samkvæmt áætlun.
Fiskverð í dag?
NÍJ ER jafnvel gert ráð fyrir að
nýtt fiskverð verði ákveðið á fundi
yfirnefndar Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins, sem hefst klukkan 10
árdegis í dag. í gær voru tveir
fundir í yfirnefndinni án þess að
nokkuð sérstakt gerðist.
Morgunblaðinu er kunnugt um
að stjórnvöld þrýsta nú á full-
trúa kaupenda í yfirnefndinni
um að þeir samþykki nýtt fisk-
verð ásamt oddamanni. Ljóst er
að fulltrúar seljenda í nefndinni
munu greiða atkvæði gegn nýju
fiskverði. Útgerðarmenn og sjó-
menn geta ekki sætt sig við þá
hækkun, sem rætt er um, kring-
um 12%. Ástæðan er einfaldlega
hin mikla tekjurýrnun, sem út-
gerðarmenn og sjómenn hafa
orðið fyrir á árinu. Þá munu sjó-
menn nú vilja að nýtt fiskverð
verði ákveðið samhliða nýjum
kjarasamningum í landi, enda
ekkert eðlilegra. Benda þeir á, að
ef samið verður við landverka-
fólk nú, skömmu eftir að fisk-
verð er ákveðið, þá verði hlutur
sjómanna ekki leiðréttur fyrr en
í október.