Morgunblaðið - 14.08.1982, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1982
Hilmar Þórisson forstöðumaður Byggingarsjóös ríkisins:
Reiknað var med meiri
kaupum lífeyrissjóðanna
„SAMKVÆMT lánsfjaráætlun áttu
lífeyrissjórtírnir að kaupa skuldabréf
af Hyggingarsjóói rikisins fyrir 187
milljónir og af Byggingarsjóði verka-
manna fyrir 110 milljónir. Gftir
fyrstu 7 mánuði ársins hafa þeir
keypt af Byggingarsjóði ríkisins fyrir
75.7 milljónir, sem er rúm 40% af
því sem þeir eiga að kaupa, og af
Byggingarsjóði verkamanna fyrir
32.8 milljónir, sem eru tæp 30% af
því sem þeir eiga að kaupa fyrir,“
sagði Hilmar hórisson forstöðumað-
ur Byggingarsjóðs rikisins í samtali
við Morgunblaðið í gær þegar hann
var spurður að því hvað lífeyrissjóð-
irnir hefðu keypt mikið minna af
skuldabréfum Byggingarsjóðs en
gert var ráð fyrir í áætlunum.
Hilmar sagði einnig í svari sínu:
„Það er því augljóst að sjóðirnir
koma ekki til með að kaupa það
sem reiknað var með. Seðlabank-
inn hafði samband við alla
stærstu lífeyrissjóðina og gerði
greiðsluáætlun eftir þeim viðræð-
um. Samkvæmt henni áttu lífeyr-
issjóðirnir að kaupa fyrir ákveðna
upphæð í júní og júlí en það gerðu
þeir ekki.
Þó að í lánsfjárlögum komi
fram að lífeyrissjóðirnir eigi að
kaupa skuldabréf fyrir 40% af
ráðstöfunarfé stnu og auk þess
20% af skuldabréfum Bygg-
ingarsjóðs ríkisins er ekki hægt að
framfylgja þeim, til þess vantar
viðurlög."
— Eru áætlanir Seðlabankans
byggðar á of mikilli bjartsýni?
„Ætli þeir reyni ekki að fara
eins hátt og þeir þora. í fyrra
stóðst áætlunin að nokkru leyti.
Þeir keyptu fyrir 40% af ráðstöf-
unarfé sínu, en hluti af því var af
sjóðum sem ekki voru nefndir í
lánsfjáráætlun t.d. Verslunar-
lánasjóði og SÍS-sjóðunum. Eins
gæti þetta orðið núna, þó ekki skili
sér í þá sjóði sem nefndir eru í
lánsfjáráætlun."
— Hvernig bregst Byggingar-
sjóðurinn við þeim vanda sem við
er að eiga?
„Engin ákvörðun hefur verið
tekin um það. Þetta skýrist í
haust. Það er ekki búið að taka
ákvörðun um þær lánveitingar
sem nú eru á döfinni, t.d. hjá þeim
húsbyggjendum sem gera fokhelt í
ágúst og september. Ákvörðun um
lán til þessa fólks verður ekki tek-
in fyrr en í október eða nóvember
og þá sjáum við hver staðan verð-
ur. Ef við fáum þá ekkert fjár-
magn getur komið upp sú staða að
fresta verði afgreiðslu lánsum-
sóknanna fram yfir áramót.
Aftur á móti er komin hefð á
þessar lánveitingar, fólk er farið
að reikna með þeim og það verður
þá sjálfsagt uppi fótur og fit í
þjóðfélaginu ef til þessa þarf að
koma. Eg held að ekkert verði
skorið niður, heldur verði að velta
vandanum fram yfir áramót."
Pétur Blöndal forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna:
Minni möguleikar
aö kaupa skuldabréf
„LÁNSFjÁRÁÆTLUN byggir á
áætlun Seðlabankans um ráðstöfun-
arfé lifeyrissjóðanna og þær áætlan-
ir hafa verið mjög rausnarlegar.
Ljóst er að eftir að lífeyrissjóðirnir
tóku upp verðtryggingu á lánura
minnkaði greiðslubyrði lántakend-
anna niður i 'A af því sem áður var
og minnkaði þá peningastreymið til
lífeyrissjóðanna að sama skapi. Fjár-
magnið sem til ráðstöfunar hefur
vcrið hefur því ekki vaxið eins mikið
og áætlað var. Þetta er ástæða þess
að sjóðirnir hafa ekki keypt eins
mikið af skuldabréfum Byggingar-
sjóðs." Þetta var svar Péturs Blönd-
al, forstjóra Lífeyrissjóðs verslunar-
manna, þegar hann var spurður af
hverju lífeyrissjóðir almennt keyptu
ekki eins mikið af skuldabréfum
Byggingasjóðs ríkisins og lög gera
ráð fyrir.
Málefni Byggingarsjóðs ríkisins
hafa verið nokkuð til umræðu að
undanförnu og sagði Svavar
Gestsson félagsmálaráðherra að
ástæðan fyrir vanda Byggingar-
sjóðsins væri sú að lífeyrissjóðirn-
ir hefðu ekki staðið við skuldbind-
ingar sínar og ábyrgð á þessum
vanda væri ekki síst hjá þeim.
Pétur Blöndal sagði einnig í
svari sínu: „Einnig kemur það til
að bankar eru núna lokaðir ein-
staklingum og leita þeir því með
auknum þrýstingi til lífeyrissjóða
sinna með lán. Lífeyrissjóðunum
er því ekki mögulegt að kaupa eins
mikið af skuldabréfum Bygg-
ingarsjóðs.
Hvað varðar Lífeyrissjóð versl-
unarmanna hefur hann ekki keypt
minna af Byggingarsjóði ríkissins
en á síðasta ári, þannig að sökin er
ekki þar.
Að lokum má benda á að fram-
lög ríkisins til Byggingarsjóðs
hafa verið skert verulega og er það
meðal annars ástæðan fyrir þess-
um vandræðum sjóðsins."
— Kaupir Lífeyrissjóður versl-
unarmanna það sem honum ber
skylda til samkvæmt lögum?
„Lífeyrissjóður verslunarmanna
keypti í fyrra fyrir 7,4% af Bygg-
ingarsjóði ríkisins og fyrir 8,4%
það sem af er þessu ári og kaupir
fyrir eina milljón á mánuði og hef-
ur þannig aukið kaup sín á þessu
ári.
Tvenn lög gera ráð fyrir lánveit-
ingum lífeyrissjóða til hins opin-
bera. í fyrsta lagi eru lög sem
skylda þá til að kaupa skuldabréf
fyrir 40% af ráðstöfunarfé sínu af
obinberum sjóðum og ýmsum öðr-
um stofnlánasjóðum. L.V. hefur
keypt fyrir 40% af ráðstöfunarfé
sínu af þessum sjóðum. í öðru lagi
eru lög sem skylda lífeyrissjóðina
á samningssviði ASÍ til að kaupa
fyrir 20% af ráðstöfunarfénu af
Byggingarsjóði einum. Þessum
lögum var mótmælt á sínum tíma
af Lífeyrissjóði verslunarmanna
og hefur sjóðurinn ekki keypt í
samræmi við þau lög.
Þess má að lokum geta að bæði
Landssamband lífeyrissjóða og
Samband almennra lífeyrissjóða
hafa mótmælt þeim lögum sem
gera ráð fyrir skyldukaupum líf-
eyrissjóðanna á skuldabréfum
obinberra sjóða."
Harður árckstur varð á mótum Kringlumýrarbrautar og
Suðurlandsbrautar í gærmorgun. Rákust þar á strætisvagn
og Lada-fólksbíll. Ökumaður Lada-bílsins slasaðist nokk-
uð og er bifreiðin talin gjörónýt. i.^smynd im s«t„.re
Dagskrá furstahjónanna
breytist vegna seinkunar
FRANSKA skemmtiferða-
skipið Mermoz, sem er á leið
hingað til lands frá Noregi og
Jan Mayen, varð að fresta
áætluöum komutíma sínum
til Reykjavíkur, vegna íss
fyrir vestan land. Furstahjón-
in af Monaco ásamt tveimur
börnum sínum eru í för með
skipinu.
Var ákveðið að skipið færi aust-
ur fyrir land og þá leiðina til
Reykjavíkur, í stað þess að fara
vesturleiðina eins og í upphafi var
gert ráð fyrir og er það orsök
seinkunar skipsins. Áður hafði
verið gert ráð fyrir að skipið kæmi
til Reykjavíkur að morgni dagsins
í dag, en nú er séð að það verður
sennilega ekki fyrr en milli klukk-
an 14.00 og 15.00. Við þetta styttist
dvöl skipsins hér á landi, vegna
þess að brottfarartími þess er
óbreyttur, en áætlað er að það fari
héðan klukkan 18.00 á sunnudag-
inn. Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið hefur aflað sér,
verður vegna þessarar seinkunar
sú breyting á ferðaáætiun fursta-
hjónanna, að þau hætta við fyrir-
hugað Grænlandsflug sitt, en það
hafði verið áætlað fyrripart í dag.
Aðrir farþegar af skemmtiferða-
skipinu munu hins vegar fara í
Grænlandsflug. Þá hefur fursta-
hjónunum verið boðið til kvöld-
verðar að Bessastöðum að kvöldi
laugardagsins.
Jóhann Hjart-
arson tapaði
JOHANN Hjartarson tapaöi fyrir Ný-
Sjálendingnum Loyd í fyrstu umferö á
heimsmeistaramóti unglinga, sem
hófst í Kaupamannahöfn í gær. Jóhann
haföi nokkuð góöa stöðu framan af, en
missti síðan tökin á skákinni og tapaði.
Athugasemd frá Morgunblaöinu vegna
yfirlýsingar Guðrúnar Helgadóttur
GUÐRÚN Helgadóttir, alþm.
Alþýðubandalagsins, mótmælti í
fréttum Ríkisútvarpsins í gær
frétt Morgunblaðsins í gær um
afstöðu hennar til efnahagsað-
gerða ríkisstjórnarinnar og í
Dagblaðinu og Vísi síðdegis í
gær segir hún orðrétt: „Þetta er
hreinn tilbúningur að frétt,
þvættingur og úr lausu lofti
gripið."
Af þessu tilefni vill Morgunblað-
ið taka fram, að blaöið stendur í
einu og öilu við fréttina og hefur
fyrir henni svo óyggjandi heimild-
ir, aö ekki verða bornar brigður á
þær. Jafnframt mótmælir Morgun-
blaðið harðlega ásökunum Guð-
rúnar Helgadóttur um að frétt
þessi sé „tilbúningur" eða „úr
lau.su lofti gripin“.
Fegrunarnefnd Kópa-
vogs veitir viður-
kenningu fyrir lóðir
Síðdegis í gær veitti Fegrunarnefnd Kópavogs verðlaun og
viðurkenningar fyrir garða og lóðir fyrir árið 1982. Forseti
bæjarstjórnar Kópavogs, frú Rannveig (iuðmundsdóttir,
veitti verðlaunin og viðurkenningarnar og að því loknu bauð
Fegrunarnefnd Kópavogs gestum i ökuferð um bæinn, á þá
staði sem hlutu viðurkenningu.
Alls hlutu 12 lóðir viður-
kenningu. Lóðirnar að Sel-
brekku 20, 22, 24 og 26 hlutu
viðurkenningu fyrir samstillt
átak og frumlega uppbygg-
ingu lóða. Fyrir samræmdan
heildarsvip og snyrtilegan
frágang lóða hlutu raðhúsa-
lóðirnar að Selbrekku 1, 3, 5,
7, 9 og 11. Verðlaun Rotary-
og Lions-klúbba Kópavogs
fyrir snyrtilegan garð og sér-
stæðar vegghleðslur hlutu
lóðirnar að Hvannhólma 2 og
Hjallabrekku 25.
Fegrunarnefnd Kópavogs
var kosin af bæjarráði Kópa-
vogs og sátu í henni í ár þeir
Sigurður Grétar Guðmunds-
son, formaður nefndarinnar,
Vilhjálmur Einarsson, Sig-
urður Bragi Sigurðsson og
Einar Sigurðsson. Ennfremur
störfuðu með nefndinni full-
trúi frá Rotary-klúbb Kópa-
vogs, Jón R. Björgvinsson og
frá Lionsklúbbi Kópavogs
Pétur Sveinsson.
Lilja og Björn i garði sínum. í baksýn má ajá hinar sérkennilegu grjóthleðslur i garðinum.
„Álagasteininn vildum við ekki hreyfa“
„Við byi’uðum í fyrrasumar á lóð-
inni og klár >ðum hana núna i sumar,“
sögðu hjónii Lilja Guðmundsdóttir og
Björn Jóhai lesson til heimilis að
Seljabrekku . 0, en sú lóð var ein af
lóðunum við telbrekku sem hlaut
viðurkenningu fyrir samstillt átak og
frumlega uppbyggingu lóða.
„Við höfðum vissar hugmyndir
um, hvernig við vildum hafa Ióðina,
en fengum til liðs við okkur Hörð
Ragnarsson, til að skipuleggja hana
með okkur. Það vaf mikið af grjóti
hérna í lóðinni, sem við notuðum til
að hlaða þessar grjóthleðslur. Þetta
var mikið verk og við hleösluna
fengum við stærsta krana sem völ
var á. Við gróðursettum trjáplöntur
svo í þessum hleðslum, sem virðast
ætla að dafna vel. Að vísu var einn
steinn sem við þorðum ekki að
hreyfa, því við höfum þá trú á hon-
um, að þar búi huldufólk. Þetta er
einskonar álagasteinn, en hann fer
prýðilega þar sem hann er. Við
hjónin höfum alltaf haft mjög gam-
an af því að rækta blóm og alltaf
langað til að hafa fallegan garð.
Hins vegar er mikið verk að halda
þessu hreinu og fínu, það fer t.d.
mikill tími í að vökva, reyta arfa og
slá. Við dútlum í þessum á næstum
hverju kvöldi. Og við erum mjög
ánægð með það sem komið er, sér-
staklega trjáplönturnar, sem hafa
dafnað alveg skínandi vel, t.d. hefur
Alaskavíðirinn vaxið um 80 sm í
sumar. Hins vegar er mikið verk
óunnið í lóðinni og næg verkefni
fyrir næsta sumar."