Morgunblaðið - 14.08.1982, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1982
9
Umsjónarmaður Gísli Jónsson______________159. þáttur
Sigurður Jónsson á Akureyri
ræddi við mig um nokkur
vandskýrð orð, þeirra á meðal
skrælingi. Verður mér þá fyrir
að fletta upp í Islendingabók
Ara fróða Þorgilssonar. Þar
segir:
„Land þat, es kallat es
Grænland, fannsk ok byggðisk
af Islandi. Eiríkr enn rauði hét
maðr breiðfirzkr, es fór út heð-
an þangat ok nam þar land, es
síðan es kallaðr Eiríksfjörðr.
Hann gaf nafn landinu ok kall-
aði Grænland ok kvað menn
þat myndu fýsa þangat farar,
at landit ætti nafn gótt. Þeir
fundu þar manna vistir bæði
austr og vestr á landi og
keiplabrot og steinsmíði þat es
af því má skilja, at þar hafði
þess konar þjóð farit, es Vín-
land hefir byggt ok Grænlend-
ingar kalla Skrælinga." (staf-
setning Isl. fornrita).
Grænlendingar táknar hér
norræna menn þar í landi, en
Jakob Benediktsson segir (ísl.
fornrit I, bls. 14, neðanmáls-
grein):
„Skrælingar eru frumbyggj-
ar Vínlands hins góða kallaðir
í Grænlendingasögu og Eiríks
sögu rauða, en þar er ekki
minnzt á slíka þjóð á Græn-
landi. I Historia Norwegiæ eru
nefndir Skrælingar á Græn-
landi (... quos §crælinga app-
ellant)."
Af þessu er að ætla að
skrælingar (skrælingjar) hafi
verið bæði indíánar og eskimó-
ar. En hvað merkir orðið og
hver er uppruni þess?
Jan de Vries telur í upp-
runaorðabók sinni, að orðið sé
norrænt og hefur ýmis önnur
orð því til stuðnings. Sameig-
inlegt öllum þessum orðum er
merkingin veiklulegur, rýr,
lélegur. Liggur því beinast við
að ætla að nafngiftin sé til
komin vegna þess hverjum
augum norrænir menn hafa
litið þetta framandi fólk.
Vel kannast ég við þá skýr-
ingu, sem Sigurður Jónsson
hafði á takteinum og tilgreindi
höfund að, sem sé þá, að skræl-
ingi sé dregið af skrá í
merkingunni þurrt skinn. Þá
ætti -lingur að vera smækkun-
arending og skrælingi sam-
kvæmt þessu lítill skinnklædd-
ur maður eða eitthvað þvílíkt.
Eg býst við að skrá sé skylt
orðinu skrælingi, og Jan de
Vries og Alexander Jóhannes-
son minna á skyldleika þess-
ara orða. Mér er næst að halda
að 1-hljóðið þarna tilheyri
fyrri hlutanum og viðskeytið
sé -ingur, sbr. t.d. skrælna og
skrælþurr, ennfremur norsku
skrælen = veikur og skraal = lé-
legt verkfæri. Þá dettur mér í
hug að þetta sé fjarskylt orð-
unum skratti og skröggur.
Niðurstaða: í orðinu skræl-
ingi (skrælingur) er viðskeytið
-ingur fremur en -lingur. Orðið
er myndað í óvirðingarskyni af
framandi þjóð.
Orðið oskimó(i) er úr
indíánamáli og merkir þann
sem étur hrátt (aski = hrár,
mov = hann étur).
Sigurður Jónsson minntist
einnig á forskeytin gal- og gall-
í orðum eins og galvaskur og
gallharður. Prófessor Halldór
Halldórsson kom mér á sporið,
þegar ég fór að rýna í þetta.
Gal- og gall- eru hér herðandi
forskeyti, færð yfir í þessar
samsetningar frá orðum, þar
sem merking þeirra var eðli-
leg. Tökum sem dæmi galopinn.
Einhver hefur munninn svo
mikið opinn að hann getur gal-
að. En svo verður gal- áherslu-
forskeyti í galvaskur og gal-
brattur.
Sama er að segja um gall-.
Það, sem var mjög súrt, hét á
mínu æskuheimili gallsúrt, súrt
eins og gall. Ekkert er eðli-
legra. Einnig er til gallbeiskur.
En svo færðu menn forskeytið
út, og þá verða til samsetn-
ingar eins og gallharður, þótt
gallið sé ekki hart, svo og
gallhraustur og gallhungraður.
Auðvitað er enginn „hraustur
sem gall“ eða „hungraður eins
og eða í gall“. Gall- er hér
augljóslega aðeins til áherslu.
Steinar Pálsson í Hlíð í
Gnúpverjahreppi skrifar mér
svofellt bréf:
„Ég þakka þér fyrir pistilinn
sem þú skrifaðir um þágufall-
ið, nú fyrir nokkru. Ég var feg-
inn að sjá lofsamleg ummæli
þín um þágufallið því að nú er
í mikilli tísku að ganga á snið
við það.
Ég get sagt þér dæmi úr
mínu nágrenni. Selfoss var
landnámsjörð. Þórir sonur Ása
hersis „nam Kallnesingahrepp
allan ok bjó at Selfossi“.
Ég held að þágufallið hafi
lengst af verið látið fylgja
Selfossi. Gömul málvenja var
að tala um að fara að fossi,
hvort heldur var um að ræða
Selfoss eða aðra fossa. „Að
fossum og dimmbláum heið-
um“, stendur í ljóði Stein-
gríms. Ekki mundi bæjar-
stjórnin á Selfossi yrkja betur,
en hún hefir einmitt lagt sitt
lóð á vogarskálina þágufallinu
til óþurftar.
Mér brá í brún þegar ég sá,
nú fyrir nokkrum árum, mjög
myndarleg spjöld, sitt hvoru
megin við kaupstaðinn, sem á
stóð: Velkomin til Selfoss.
Eignarfallið er þarna mjög
stirt. Nú leyfir sér enginn
lengur að nota þágufallið í
sambandi við þennan stað.
Ýmist er nú sagt hið stirð-
busalega „til Selfoss", eða bara
„á Selfoss", kannski að sumu
leyti skárra, en er það ekki
svolítið tilkomulítið og tíkar-
legt?
Opinberir aðilar eiga að fara
varlega, ef þeir vilja hafa áhrif
á þróun málsins. Þið, sem sjáið
um móðurmálsþætti, þurfið að
gera þeim það skiljanlegt.
Nú er búið að kjósa nýja
bæjarstjórn á Selfossi. Ef til
vill tekur hún aðra afstöðu.
Það er engin ástæða fyrir
okkur að leggja niður fallbeyg-
ingarnar, þótt aðrar þjóðir
hafi gert það.“
Ég þakka Steinari þetta
góða bréf og tek undir allt, sem
þar er sagt, og þá allra helst
niðurlagsorðin. Kannski verð-
um við Steinar líka velkomnir
að Selfossi, þegar við komum
næst.
Fóstbræðrakonur halda
kökubasar og flóamarkað
SUNNUDAGINN 15. ágúst kl. 2 e.h., verður haldinn flóamark-
aður og kökubasar í Fóstbræðraheimilinu. Á boðstólum er úrval
muna. Mikið af ónotuðum fatnaði, skór, veski, töskur, húsgögn,
myndir, skrautmunir, eldhúsáhöld og síðan mikið úrval af not-
uðum, hreinum fatnaði.
Sýnir í Djúpinu
KRISTJÁN Valsson opnar
sýningu í Djúpinu í dag. Hann
sýnir þar 30 klippimyndir.
Sýningin verður opin í tvær
vikur.
Kristin boðun
meðal Gyðinga
Á SUNNUDAGINN kemur, 15. ág-
úst, er sameiginlegur dagur kirkna á
Norðurlöndum til að minna á
kristna boðun meðal Gyðinga.
Fyrir fjórum árum var stofnað
félag hér á landi, „Samtök um
kristna boðun meðal Gyðinga".
Tilgangur félagsins er að gera
kristnum mönnum ljósa skuld
þeirra við Gyðinga og styrkja
kristna boðun meðal þeirra.
Biskup íslands hefur sent út til
presta hvatningu, þar sem hann
fer þess á leit við þá, að þessa
verði minnst við guðsþjónustur
téðan sunnudag og sérstaklega
verði beðið fyrir því starfi, sem á
þessum vettvangi sé innt af hendi.
A Woman of Inde-
pendent Means
Jóhanna Kristjónsdóttir
A WOMAN of Independent Me-
ans eftir Elizabeth Forsythe
Hailey er dálítið óvenjuleg bók,
og við fyrstu sýn leizt mér öld-
ungis ekki á hana: hún er bréf
frá söguhetjunni Bess Steed
Garner frá barnsaldri til elliára.
En þegar betur er að gáð er
harla margt fróðlegt í þessum
bréfum Bess. Dást má að því líka
hversu feiknadugleg hún er að
skrifa, einkum eru bréfin til
eiginmanns og fjölskyldumeð-
lima, og smátt og smátt er dreg-
in upp mynd af henni sem er
skýr og skemmtileg, þetta er
elskuleg, hugsandi vera, dálítið
stjórnsöm og einkar trúverðug.
Líf hennar allt, þótt aðeins sé
frá því sagt á þennan hátt og
aðeins frá henni hlið, er áhuga-
vert og inn í almennt snakk
hennar í bréfum blandast einnig
á læsilegan hátt umhverfið og
atburðirnir sem eru að gerast á
hverjum tíma. Hún hefur skrifin
til Rob, vinar síns, þegar hún er
barn að aldri og síðar verður
Rob eiginmaður hennar og hún
skrifar foreldrum og tengdafólki
og það gengur á ýmsu í lífi henn-
ar, þó svo að hún virðist vera
bjartsýn kona að upplagi er lífið
auðvitað ekki bara dans á rósum
og ógnir heimsstyrjalda og
kreppu, auk erfiðleika á heima-
vígstöðvum, skila sér vel í bók-
inni. Hún er á yngri árum fyrst
THEINTERNATIONAL BESTSELLER
Bizabeth Forsythe Hafey
og fremst eiginkona og móðir, en
samt alltaf manneskja með
sjálfstæðar skoðanir — skoðanir
sem hún festist ekki í, heldur
þróast og breytast með árum og
atburðum: og sem öldruð kona
sýnir hún skilning, forvitni og
umburðarlyndi, sem höfundi
tekst ágætlega að koma frá sér.
Þessi bók var um hríð á met-
sölulistum í Bandaríkjunum og
víðar — kom út fyrir tveimur
árum eða svo — og fékk prýði-
lega dóma. Hún á þá ugglaust
skilið, því að uppbygging hennar
er býsna snjöll og bókin í heild
vel skrifuð.
29555 29558
Opið í dag
frá 10—15
SKOÐUM OG METUM
EIGNIR SAMDÆGURS.
2ja herb. íbúöír
Bergþórugata, 60 fm íbúö á 1. hæö,
verö tilboö
Dalaal, 75 fm á 4. hæö. Bilskyli. verö
800 þus
Espigeröi 50 fm jaröhæö fæst i maka-
skiptum fyrir stærri ibúö í sama hverfi.
Hagamelur 50 fm á 3. hæö laus nú
þegar. verö 750 þús.
Hringbraut, 66 fm á jaröhæö, verö 700
þús.
Kaplaskjólsvegur, 45 fm kjallaraibuö
verö 650 þús.
Kriuhólar, 65 fm á 4. hæö, verö 700
þús.
Leifsgata, 50 fm kjallaraibúö, verö 660
þús.
Seljavegur, 45 fm einstaklingsibúö á 1.
hæö, verö 520 þús.
Skúlagata, 65 fm á 3. hæö, verö 630
þús.
3ja herb. íbúöir
Álfheimar, 97 fm á jaröhæö verö 950
þús.
Breióvangur, 97 fm á jaröhæö, verö
980 þús.
Engihjalli, 85 fm á 4 hæö, verö 920
þús.
Gnoóarvogur, 90 fm á jaröhæö verö
960—980 þús.
Hjaröarhagi, 85—90 fm á 4. hæö
Bílskur Verö 1050—1100 þús.
Hólabraut, Hf. 80 fm á 2. hæö, verö
930 þús
Hraunbær, 85 fm á 2. hæö, verö 930
þús.
Kleppsvegur, 75 fm á 1. haaö, verö 870
þús.
Lindargata, 86 fm efri hæö i tvibyli,
verö 750—800 þús.
Orrahólar, 87 fm á 3. hæö, verö 920
þús.
Rauóalækur, 100 fm jaröhæö, verö 850
þús.
Oldugata, Hf. 80 fm j 1 hæö i tvíbýli,
verö 850 þús.
4ra herb. íbúöir
Alfhólsvegur, 86 fm efri hæö i tvíbýli,
40 fm bílskúr, verö 1200 þús.
Asbraut, 110 fm á 2. hæö, verö 1050
þús.
Ásbraut, 100 fm jaröhæö, verö 980
þús.
Engihjalli, 110 fm á 1. hæö, verö 970
þús.
Engihjalli, 110 fm á 4. hæö, verö 1100
þús.
Eyjabakki, 112 fm á 3. haaö, verö 1150
þús.
Fagrabrekka, 120 fm á 2. hæö, verö
1200 þús.
Fagrakinn, 90 fm á 1. hæö i tvibýli,
bilskursréttur, verö 920 þús.
Hjallavegur, 100 fm á 1. hæö i tvibýli,
bilskur, verö 1200 þús.
Krummahólar, 108 fm á 5. hæö, bil-
skúrsréttur, verö 1150 þús.
Laufvangur, 137 fm á 1. hæö, verö
1400 þús.
Melhagi. 120 fm á 2. hæö i fjórbýli, 35
fm bilskúr. verö 1300 þús.
Laugalækur, 130 fm á 2 hæö, bil-
skúrsréttur, verö 1450 þús.
5 herb. íbúðir og stærri
Hverfisgata, glæsileg hæö 173 fm á 3.
hæö i steinhúsi. Getur veriö 2 ibúöir
eöa ibúö og skrifst.húsnæöi, verö 1500
þús.
Austurbrún, 140 fm á 2. hæö i þribyli,
bilskúr, verö 1750 þús.
Blikahólar, 117 fm ibúö. verö 1300 þús.
Breióvangur, 112 fm á 3. hæö, verö
1300 þus.
Drápuhlió, 135 fm sérhæö á 1. hæö.
verö 1450 þús.
Espigerói, 130 fm á 5. hæö, fæst i
skiptum fyrir raöhús eöa einbýli.
Gaukshólar, 191 fm penthouse 30 fm
bilskúr, verö 1700 þús.
Kársnesbraut, 125 fm á 2. hæö, verö
1500 þús.
Kríuhólar, 117 fm a 1. hæö, verö 1100
þús. s
Langholtsvegur, 2x86 fm hæö og ris,
bilskúrsréttur, verö 1300—1350 þús.
Lundarbrekka, 117 fm á 2. hæö, verö
1250 þús.
Laugarnesvegur, ca. 120 fm á 4. hæö.
verö 1100 þús
Lokastigur, 105 fm sérhæö á 1. hæö í
þribýli, bilskur. verö 1250 þus
Vallarbraut, 150 fm sérhæö á 2. hæö i
þribyli, bilskur, verö 1900 þús.
Vallarbraut, 130 fm jaröhæö. verö
1200—1300 þús.
Raðhús — einbýli
Háagerói, 153 fm raöhús. verö tilboö
Laugarnesvegur, 2x100 fm einbýli,
bilskur, verö 2,2 millj.
Látrasel, 2x160 fm einbýli, tilbúiö undir
tréverk, verö tilboö.
Litlahlió, 70 fm einbyli, bilskur. verö
750—790 þús.
Kambasel, 198 fm raöhús, bilskúr, verö
1,9—2 millj.
Snorrabraut, 3x60 fm einbýli, verö 2,2
millj.
Eignanaust Sk,phom 5.
Þorvaldur Lúövíksson hrl. Sími: 29555 og 29558.