Morgunblaðið - 14.08.1982, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1982
33
Þessir hringdu . . .
Þá væri ég ekki
til frásagnar hér
Kristján Kristjánsson hringdi og
haföi eftirfarandi að segja:
— Pyrir nokkrum árum átti ég
heima á Karlagötu. Eitt sinn lagði
ég bílnum mínum uppi á Snorra-
braut, við umferðareyjuna, en þetta
var meðan enn var vinstrihandar-
akstur hér á landi. Þegar ég svo
þurfti að bregða mér bæjarleið,
gekk ég upp á Snorrabraut og settist
inn í bílinn. Ég setti í gang og ætlaði
að fara að þoka mér af stað, þegar
gríðarstór vöruflutningabíll, sem
var nokkuð fyrir framan mig, setur
á fullt aftur á bak, og það er sem við
manninn mælt, að ég get með naum-
indum velt mér yfir í farþegasætið í
mínum bíl og komist út þeim megin,
því að ferlíkið lenti á framhurðinni
bílstjóramegin og gekk langt inn í
vagninn. Ég hef oft hugsað til þessa
atburðar, þegar ég er að rekast á
áróðursgreinar fyrir notkun örygg-
isbelta. Hefði ég þarna verið bund-
inn niður með slíkum útbúnaði, væri
ég ekki til frásagnar hér. Og ég get
bætt því við, að þetta er ekki í eina
skiptið sem ég hef sannreynt það, að
notkun öryggisbelta hefði tvimæla-
laust haft örlagaríkar og stórháska-
legar afleiðingar í för með sér.
Blá taska tapað-
ist í Húsafelli
Hringt var til Velvakanda fyrir
bandaríska stúlku sem var svo
óheppin að tapa blárri tösku méð
drapplitum röndum á, þegar hún
dvaldist í Húsafelli um verslunar-
mannahelgina. Stúlkan ætlaði að
ferðast um landið, en missti þarna
ökuskírteini sitt og eitthvað af föt-
um, auk fleiri persónulegra muna.
Finnendur tðskunnar eru vinsam-
Iegast beðnir um að hringja í síma
42737.
Eimskip á
klukkuna
Starfsmaður í Hafnarhúsinu
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja:
— Það var minnst á klukkurnar
hér við höfnina í dálkunum hjá þér
nýlega og kvartað yfir því að þær
vaeru stopp. Ég fór að kanna þetta
hjá húsvörðunum okkar, af því að ég
hélt að Hafnarsjóður hefði með
klukkuna á Hafnarhúsinu að gera.
Mér var tjáð að Éimskip ætti klukk-
una, en félagið hafði mikið geymslu-
pláss hér um tíma. Og klukkan var
upphaflega sett upp vegna skipanna
sem þá áttu hér viðlegu í gömlu
höfninni öll með tölu, þó að nú séu
þau komin inn í Sundahöfn. Stóra
klukkan hér er búin að vera fjögur í
fimm ár, var mér sagt. Mér finnst
að Éimskip ætti að gera annað
hvort, að taka klukkuna niður eða
láta lagfæra það sem að er. Annars
er þetta furðulegt fyrirbæri með
klukkur á almannafæri í Reykjavík,
það er undantekning, ef þær eru í
lagi, og verst er ástandið hjá úr-
smiðunum. Ég man ekki eftir einni í
lagi hjá þeim. Manst þú eftir nokk-
urri?
Þakkir til
„hvítu englanna“
J.Á. hringdi og hafði eftirfarandi
að segja:
— Mig langar svo mikið til að
koma á framfæri þakklæti til
manna sem urðu mér að liði. Mér
urðu á mistök í umferðinni, af því að
ég var eitthvað annars hugar. Ég
var staddur á Hverfisgötu, kominn
að umferðarljósunum við Snorra-
braut, á akreininni sem er lengst til
vinstri, af því að ég ætlaði að beygja
norður Snorrabraut í áttina að
Skúlagötu og Borgartúni. Og þarna
hef ég oft átt leið um. Allt í einu er
flautað á mig og nú kemur að ævin-
týrinu: í fátinu tek ég of krappa
vinstri beygju og ek nú niður vinstri
helming Snorrabrautarinnar.
Fljótlega uppgötvaði ég hvað farið
hafði úrskeiðis, en var svo lúshepp-
inn að engin umferð kom á móti mér
á þessum fjölfarna stað. Hins vegar
mætti ég tveimur hvítum englum,
ungum piltum í málningargöllum
(sennilega starfsmenn Hörpu) og
bentu þeir mér brosandi á, að ekki
væri allt með felldu. Þetta létu þeir
þó ekki nægja, heldur gengu á und-
an mér niður að hringtorginu,
stöðvuðu umferðina eitt augnablik,
meðan ég skaut mér inn í bílastroll-
una, og var borgið. Ég vil koma á
framfæri þakklæti mínu til piltanna
fyrir Ijúfmennsku þeirra og hjálp-
semi og ég bið Guð að blessa lífs-
göngu þeirra.
Hvað er svona
hlægilegt?
Kristbjörg hringdi og hafði eftir-
farandi að segja:
— Það fer óskaplega í taugarnar
á mér að sjá þessa ráðherra okkar
alltaf hlæjandi eða skælbrosandi á
sjónvarpsskerminum, hlaupandi
upp stjórnarráðströppurnar, eins og
stráka í bófahasar, þegar verið er að
sýna þá á leið til funda þar sem ráða
á ráðum lands og þjóðar. Það
varla hægt að bera traust til manna
sem haga sér svona. Ekki virðist
dökkt útlit í málefnum þjóðarinnar
hryggja þá. Þó er ábyrgð þeirra
þung í þeim efnum. Og hvað er
svona hlægilegt? Ég tek undir þær
raddir sem hafa krafist þess að
ráðherrum og alþingismönnum
verði fækkað til muna. Þar má
sannarlega skera niður að skað-
lausu.
Borgin kaupi
Borgina
Halldór Briem hringdi og hafði
eftirfarandi að segja:
— Ég legg eindregið til að
Reykjavíkurborg kaupi húsakynni
Hótel Borgar, og þar verði sett niður
innheimtustofnun rafmagns- og
hitaveitu, svo og gagnavinnsla, og
rekin sem sérfyrirtæki er heyri
beint undir borgarstjóra og borg-
arráð. Éinnig mætti koma Gjald-
heimtunni fyrir í þessu húsnæði.
Hundahald og rottueitur
Reykvíkingur (6779-3935) skrifar:
„Miðvikudaginn 11. ágúst er
flennt yfir forsíðu Tímans mynd
af stúlku með hund og fylgir frétt
þar sem fjargviðrast er yfir því, að
rottueitri hafi verið dreift við Æg-
issíðu og minnstu hafi munað, að
hundurinn hafi étið af því og eins
geti bömum stafað hætta af
þessu.
Nú er hundahald ólöglegt í
Reykjavík og margir hafa af því
ónæði. Verður manni því á að
spyrja, hvort dagblaðið Tíminn
ætli sér að nota lögbrjóta gegn
rottueitrinu á þessum stöðum.
Hundahaldinu fylgir einnig sóða-
skapur, eins og sjá má stundum í
sandkössum á barnaleikvöllum, en
í áðurnefndri frétt er einmitt rætt
um barnaleikvöll við Ægissíðu.
Að lokum: Á meindýraeyðir
borgarinnar að sitja undir því, að
lögbrjótar setji sig á háan hest
gagnvart störfum hans?“
GÆTUM TUNGUNNAR
Heyrst hefur: Báðir málstaðirnir eru góðir.
Rétt væri: Hvortveggi málstaðurinn er góður. (Ath.: Mál-
staður er ekki til í fleirtölu. Þess vegna ekki: tveir málstaðir,
heldur tvennur málstaður; ekki margir málstaðir, heldur
margur málstaður.)
ALLTAF A SUNNUDÖGUM
OG EFNISMEIRA BLAÐ!
rnmm
HULDUFOLK
I MINNINGU HENRY
FONDA
VIÐTAL
VIÐ ÖNNU CRONIN
GRAHAM GREENE
EKKI ALLUR ÞAR SEM HANN
ERSÉÐUR
MEÐ
GUÐMUNDI JÓNASSYNI
YFIR SPRENGISAND
KIRKJUR I SIGLUFIRÐI
OKKAR I MILLI
SÖGUR UM FORD
OG VATNA-BRAND
VISNALEIKUR
POTTARIM
. '
Sunnudagurinn byrjar á síðum Moggans