Morgunblaðið - 09.09.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1982
15
armálin í útvarpsþætti 18. júlí sl.
og nýskeð ræddi ég við forvígis-
menn stjórnmálaflokkanna og hjá
þeim öllum fann ég mjög jákvæð
viðhorf og eindreginn vilja til
samstarfs við kirkjuna um frið-
armálin. — Það er hvergi hægt að
finna það í friðarályktun presta-
stefnunnar, að prestar ætli að
„grípa til klerkdóms síns til að
koma stjórnmálaskoðunum sínum
á framfæri við landslýð", eins og
greinarhöfundur orðar það.
Kristin kirkja er kölluð til þess
að boða frið á jörð. „Því að það var
Guð, sem í Kristi sætti heiminn
við sig.“ (2. Kor. 5,19.) Guðs friður
leiðir til friðar og sáttargjörðar
bæði við Guð og menn. íslenzka
kirkjan og þjónar hennar vilja
eiga þátt í þeirri alheims friðar-
hreyfingu, sem byggist á þessum
boðskap. Að því marki stefnir
hinn sameiginlegi friðar- og þakk-
argjörðardagur kirkjunnar á
sunnudaginn. Við eigum Guði líka
margt að þakka.
Mér finnst það smekkleysa
greinarhöfundar, svo ekki sé
meira sagt, að hvetja presta til
varfærni við að flytja friðarboð-
skap, sem þeir eru vígðir til að
predika, og hafa lýst í ályktun
sinni á prestastefnunni.
Sú er mest gæfa hinnar íslensku
þjóðar að mega tjá skoðanir sínar
og fylgja eftir áhugamálum sín-
um. Það er náðargjöf, sem hlýtur
að ná til presta og leikmanna við
boðun orðsins á sunnudaginn, sem
aðra daga.
Pétur Sigurgeirsson
Þéttsetin fangelsi
Þar sem sá einn getur farið út
fyrir sitt „heimaland" sem fengið
hefur atvinnu utan þess, er mikið
um brot á vegabréfslögunum. Ger-
ast um 200.000 manns brotlegir
við þau árlega. Fangelsi Suður-
Afríku eru því þéttsetin. Hvergi í
heiminum er hærra hlutfall lands-
manna undir lás og slá.
ANC
Frelsishreyfingin African Nat-
ional Congress, ANC, var stofnuð
1912. Var hún bönnuð 1960 og
vinnur siðan neðanjarðar. Innan
ANC vinna bæði hvítir og svartir
að því að brjóta niður þá kúgun
sem bundin er í kynþáttaaðskiln-
aðarlögunum. Stefnir ANC að
jöfnum rétti allra þjóðfélagsþegn-
anna. Á undanförnum árum hefur
andstaðan gegn apartheid aukist
mjög. Fjöldi pólitískra réttar-
halda fer vaxandi og fjöldi með-
lima ANC hafa verið dæmdir til
dauða. Margir eru í útlegð.
Tímasprengja
Hinn hvíti minnihluti Suður-
Afríku hervæðist. Útgjöld til her-
mála jukust til dæmis um 46%
1980—81. Er það álit ýmissa að
Suður-Afríka hafi með hjálp vest-
rænnar samvinnu náð tökum á
framleiðslu kjarnorkuvopna.
Suður-Afríka er því sem tíma-
sprengja sem getur sprungið
hvenær sem er.
Góða ferd
Það er tími til kominn að við
íslendingar förum að kynna okkur
mannlíf þessa fjarlæga lands.
Vonandi skyggnast væntanlegir
ferðlangar bak við tjöldin. Stríðs-
söngur Zulumanna sem boðið er
upp á, opnar kannski augu þeirra
fyrir því að svartir í Suður-Áfríku
munu ekki mikið lengur sætta sig
við að vera meðhöndlaðir sem út-
lendingar í eigin landi.
Já, Suður-Afríka er svo sannarl-
ega „heill heimur í einu landi“.
Mun fararstjóri ferðarinnar, Jón
Ármanna Héðinsson, vafalítið
verða hjálplegur að veita fróð-
leiksfúsum ferðamönnum upplýs-
ingar um fjölbreytileika mannlífs-
ins. Er ferðalangar skoða híbýli
innfæddra, gerð úr leir og stráum,
mun hann væntanlega geta þess
að samkvæmt söguskilningi hvíta
minnihlutans voru engir innfædd-
ir í landinum þegar forfeður
þeirra námu þar land. Á þeirri
söguskýringu byggist síðan hinn
ótakmarkaði réttur hvíta manns-
ins til allra náttúruauðlinda þessa
ríka lands.
Það er full ástæða til þess að
óska ferðalöngunum góðrar ferð-
ar.
Guinea-Bissau 1. ágúst 1982.
Jónína Einarsdóttir.
Stundar þú líkamsrækt?
Ertu í megrun?
Ef svo er, þá er „BBF Spot Reducing Discovery“-kremiö eitthvaö
fyrir þig.
BBF-kremiö er frábær uppfinning fyrir aila þá sem stunda lík-
amsrækt, en ná ekki aö losna viö þá aukafitu sem oft safnast á
vissa hluta líkamans, svo sem maga, læri og mjaömir.
Meö því aö nota BBF-kremiö á æfingum, eykst útstreymi svita og
annarra úrgangsefna líkamans til mikilla muna.
BBF hæfir viö alla líkamsrækt, gefur þægilegan ilm og gljáandi
hörund. Þaö er einnig mjög gott fyrir þá sem stunda gufuböö og
þá sérstaklega fyrir þá sem eiga erfitt meö aö svitna.
BBF hefur reynst mjög árangursríkt gegn staöbundinni fitu (cellu-
lite).
Verdur til sölu í flestum
líkamsræktarstöðvum landsins
HEILDSÖLUBIRGÐIR: f MFf f ff
Piz Buin-umboöiö. Sími 37442. f f f^f
Álfheimum 74, Reykjavík. S. 82922391.
Allar búðimar fullar
afnÝjumvönun
Verslanir í Reykjavík eru í Skeifunni 15, Lækjargötu
og Kjörgarði og á Akureyri að Norðurgötu 62.
Sími póstverslunar er 30980.
. 0piðíkvöldtilkl.8 j
HAGKAUP