Morgunblaðið - 09.09.1982, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 09.09.1982, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1982 Seinni hluti lundi. í tengiálmunni er til húsa stór kjörbúð og milli húsanna, inni í u-inu, eru tvær upphitað- ar sundlaugar, önnur lítil og grunn fyrir börnin. Og fast við laugina er dagvistarpláss og barnagæsla, sem einkum er ætl- uð til afnota fyrir einstæðu mæðurnar. Þegar okkur bar að garði rétt eftir hádegið voru krakkarnir í fjöruferð og svo átti að vinna myndverk úr afl- anum síðdegis. Kostur að hafa bíl til umráða Strætisvagnar ganga til Næstved á klukkustundarfresti til jafnaðar og tekur ferðin svona 15 mínútur. Þar er hægt að skipta um vagn og komast í ýmsar áttir, eða taka lest. Frá Næstved er ríflega klukkutíma lestarferð til Kaupmannahafn- ar. I Karrebæksminde er þægi- legt gönguland og fljótlegt að komast um á hjólum. En það er óneitanlega mikill kostur hér að hafa bíl til umráða; þá opnast ýmsir möguleikar til skoðunar, bæði innan héraðs og lengra frá; skrúðgarðar, hallir og herragarðar, skólar, kirkjur og klaustur, o.fl., o.fl., auk þess sem það er fyrirhafnarlítið að skreppa niður á Men, Falstur og Láland. í fyrri hluta þessarar samantektar, sem birtist í blaðinu í gær, miðvikudag, var m.a. greint frá móttökum í Karlslundi, húsakosti og staðháttum, svo og kynningarfundinum sem haldinn var fyrsta morguninn, á laugardeginum. í seinni hlutanum, sem hér birtist, er skotist til orlofsbyggðarinnar í Karrebæksminde, gluggað í mannlífið í Karlslundi og rabbað við gesti á báðum stöðunum. Loks eru þau Geirþrúður Páls- dóttir, yfirfararstjóri, og Kurt Skaaning, framkvæmdastjóri tekin tali og spurð um starfsemina og íslensku gestina. Á sunnudeginum er glamp- andi sól og næstum heiðskírt. Það er ákveðið að drífa í þv: að sýna okkur orlofsbyggðina í Karrebæksminde. Hún er sunn- arlega á Sjálandi, nánar til tek- ið í Sóreyjarsýslu, um 11 km fyrir sunnan bæinn Næstved. Við ökum í bílnum hans Skaan- ings og með í förinni, auk okkar hjónanna, eru Sigurjón Fjeldsted, Ásdís Árnadóttir, starfsmaður S/L á Akureyri, og Skaaning, sem er við stýrið. Orlofshúsin minna á svertingjakofa Við komum til Karrebæks- minde um kl. 13, eftir klukku- stundar þægilega bílferð. Or- lofsbyggðin stendur í nokkrum aðskildum þyrpingum á lítilli eyju, Eno, sem tengist fasta- landinu með brú. Á eyjunni eru líka fjölmargir sumarbústaðir í einkaeign og eitthvað af heilsárshúsum. Þegar við nálgumst orlofs- byggðina blasir við stór u-laga bygging; það er þjónustumið- stöðin. F’jær eru orlofshúsin og minna á svertingjakofa, séð úr fjarska. Kjeld Hágn-Petersen, veitingamaðurinn á staðnum, tekur á móti okkur og brátt bætist Þóra Kristín Jónsdóttir, fararstjóri, í hópinn. Við göng- um um svæðið í fylgd Þóru og Kjeld, lítum inn í eitt orlofshús- anna og fræðumst um staðinn. Hér eins og í Karlslundi eru vönduð hús, án íburðar og fara vel á staðnum. Það hefur einnig verið hugsað fyrir því, að dval- argestir, börn og fullorðnir, geti ávallt haft eitthvað fyrir stafni. Og ströndin er skammt undan. Föndursalir og tvær sundlaugar Alls eru 85 hús hér í orlofs- byggðinni; 65 þeirra eru einbýl- ishús, en 20 tvíbýlishús, sem Danir ætla einkum efnalitlum einstæðum mæðrum með börn sín. Húsin eru í flestu sambæri- leg að búnaði við íbúðirnar í Karlslundi, en hér eru svefn- herbergin tvö og arinn er í hverri stofu. í þjónustumiðstöðinni er rúmgóður og bjartur veitinga- salur, bar, skrifstofa, fjórir fundar- og samkomusalir, fönd- ursalir fyrir trésmíðar og leður- iðju, aðstaða til borðtennisiðk- unar og fullkomið vélaþvotta- hús. Þar er einnig hægt að taka á leigu útvarps- og sjónvarps- tæki og hjól, eins og í Karls- Það eru fáir heima í orlofs- byggðinni, meðan staldrað er við. Baldur Ólafsson er með hóp í skoðunarferð og þeir sem ekki eru í gönguferðum, hjólandi eða akandi úti um hvippinn og hvappinn, dorma fyrir utan húsin eða flatmaga á ströndinni og láta sólina verma sig. Komið við í Næstved Eftir að hafa notið höfðing- legrar gestrisni þeirra hjón- anna, Keld og Ruthar, er haldið af stað heim til Karlslundar. Komið er við í Næstved. Þetta er vinalegur bær, nýtur þess að hafa fengið nægan tíma til að taka út vöxtinn, segir Skaaning. „Gott og rólegt að dveljast hér“ Meðan staldrað var við í Karre- ba'ksminde bönkuðum við upp á í einu orlofshúsanna, hjá Rúnari Sigmarssyni vcrkfra ðingi og eigin- konu hans, Laufeyju Bjarnason kennara. Þá höfðu þau dvalist þar í vikutíma ásamt börnum sínum tveimur, Árna og Guðrúnu, og móður Rúnars, Cuðlaugu Úlfars- dóttur. „Það var algjör tilviljun að við komumst hingað," sagði Rúnar. nÉg var að leita fyrir mér, af því að mér bauðst skyndilega að taka hálfsmánaðar leyfi, og hringdi af rælni í Samvinnuferð- ir/Landsýn. Þá hafði losnað um eitt húsanna hér í Karre- bæksminde, vegna forfalla, en var fyrir löngu uppselt í hvert einasta pláss. Svo langaði mig til að sýna krökkunum Danmörku, af því að ég lærði hérna á sínum tíma. Við höfum verið með bíla- leigubíl allan tímann og getað hreyft okkur að vild. Það er mjög auðvelt að aka hér á veg- um, greinagóðar merkingar og það má treysta því að Danir fara eftir umferðarreglunum." „Við höfum nú ekki farið neitt víða,“ segir Laufey, „enda kom- Um við fyrst og fremst til að njóta hvíldar og hafa það gott. Við höfum þó talsvert skoðað okkur um hérna í nágrenninu. En hér er ákaflega rólegt og gott að vera og allar nauðsynjar að hafa í kjörbúðinni á staðnum. Engum þarf heldur að leiðast, því að gestunum er boðið upp á svo til daglegar ferðir í allar átt- ir, og við erum ákveðin í að skella okkur í Lególandsferðina á morgun og Þýskalandsferðina á þriðjudaginn." „Það var um 10 þúsund krón- um ódýrara fyrir okkar að fara hingað en til sólarlanda," segir Rúnar. „Við erum að vona að við getum bætt við okkur þriðju vik- unni hérna, en það er víst flugið sem ræður, hvort af því getur orðið." Hér er fjölskyldan samankomin fyrir ntan reröndina. F.v.: Rúnar, Árni, Laufey, Guðrún og Guðlaug.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.