Morgunblaðið - 09.09.1982, Síða 30

Morgunblaðið - 09.09.1982, Síða 30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1982 30 Ég heilsa þér ís- land, föðurland mitt eftir Sigurjón Sigurðsson Fyrirhuguft er sýning á verkum Alberts Thorvaldsens hér í Reykjavík á Kjarvalsstöðum nú á árinu 1982. Albert Thorvaldsen er íslend- ingur og hafði íslenska menningu að leiðarljósi sínu í föðurgarði; hann fæddist á íslandi árið 1770 eftir því sem ísl. heimildir benda til og lést í Danmörku árið 1844. Hann ólst upp á heimili foreldra sinna í Kaupmannahöfn, hjá föður sínum sem þar dvaldi um áraraðir og rak þar tréútskurðar- og myndhöggvaraverkstæði. Þar tók Albert sín fyrstu spor á lista- brautinni. Albert Thorvaldsen var stoltur af því að vera íslendingur og bera íslenskt nafn, það sýnir skírnar- fontur sá er hann hjó með eigin hendi í Rómaborg árið 1827 og ætlaði föðurlandi sínu íslandi í ræktarskyni, eins og hann orðar það. Á milli lína má lesa boðskap hans, mitt nafn, mín þjóð, mitt land — Island. Verk mín, kórónu lífs míns, mitt himnaríki, sendi ég þér, mitt ástkæra land. Um afdrif þessa drifhvíta marmaraskírnar- fontar Alberts Thorvaldsens er það að segja, að hann er enn ókominn til Islands, hann hefur numið staðar með torkennilegum hætti í Heilagsanda-kirkju í Kaupmannahöfn, um stundarsak- ir vonandi. Myndhöggvarinn Albert Thor- valdsen ætlaði Miklabæjarkirkju í Skagafirði grip þennan (heimild Jónas Hallgrímsson í Fjölni), enda er Skagafjörður ættbyggð lista- mannsins og fæðingarstaður hans, sem skóp stórbrotin örlög hans, allt frá Miðjarðarhafi að norður- hveli jarðar. Danir hafa ekki ennþá komið því í verk, að senda gjöf þessa til ættlands Alberts, þar sem skírn- arfonturinn á heima, samkvæmt eigin áletrun, ósk og gjöf lista- mannsins sjálfs, þeim hlýtur þó að vera áhugamál að bæta fyrir mis- tök sín. Þetta listaverk er íslend- ingum alveg sérstaklega hjart- fólgið vegna þess, að það er stað- festing á hinu íslenska nafni Al- berts Thorvaldsens, meitlað með eigin hendi listamannsins, til að lýsa yfir á ótvíræðan hátt og taka af allan vafa um uppruna hans og lífsstíl, af hvaða bergi hann er brotinn og af hvaða rótum hann er runninn. Vegna þessa verður dýrmæti gjafar hans aldrei metið til fjár. Við íslendingar vitum hvar frumsmíðin er niðurkomin, þakkað sé Sigurði Ólasyni. Við höfum nægar heimildir og gögn til að krefjast hennar, enda gekk listamaðurinn þannig frá henni, að það er eiginlega alveg ómögu- legt að óheiðarlegir menn geti haldið henni nema um stundar- sakir. Þetta ættu Danir og forráðamenn Heilagsanda-kirkju í Kaupmannahöfn að gera sér ljóst vegna áletrunarinnar, sem á skírnarfontinum er, það breytir engu hér um þó eftirmynd af gripnum hafi verið send hingað til Reykjavíkur árið 1839 og sett upp í Dómkirkjunni, áletrunin er það greinileg á skírnarfontinum í Heilagsandakirkju, frumsmíðinni, að hún ber greinilega með sér hverjum gripurinn var ætlaður og hver er eigandi hans. Sama er að segja um arfleiðslu- skrá Alberts Thorvaldsens. Hún er þannig fengin hjá Dönum, að enginn maður með réttu ráði tek- ur fullt mark á henni, enda er hún að hálfu leyti danskur ránsfengur, eins og með fleiri íslenska gripi. Með þessari fyrirhuguðu list- sýningu á verkum Alberts Thor- valdsens á Kjarvalsstöðum fá Danir enn eitt tækifæri til að skila einhverju af ránsfeng sínum til baka til íslensku þjóðarinnar. Væri ekki tilvalið fyrir Dani að byrja á að skila til dæmis skírn- arfontinum úr Heilagsanda- kirkju? Sterk íslensk litaráhrif Gott- skálks og Alberts sköpuðu smá þjóðfélagsaðstöðu úr lífsbaráttu þeirra feðga við höfnina þarna í Kaupmannahöfn. Tamning Gottskálks á Albert á æskuárun- um var mjög þýðingarmikil og fylgdu handbrögð þau sem Gott- skálk kenndi honum í bernsku Al- bert alla ævi. Starf Gottskálks myndhöggv- ara, föður Alberts, hvarf og gleymdist eftir langan og strang- an starfsdag hans, eins og svo margra annarra listamanna í ár- anna rás á þessum tíma, en áður en svo varð, hafði Gottskálk lengi verið kóngur í ríki sínu á verk- stæði sínu við hafið og gert mörg fræg stafnlíkön, eða meðan kraft- arnir leyfðu og hann gat beitt listrænum hæfileikum sínum til fulls, þar til elli og slit hinnar miklu örlagasögu hans tóku af honum völdin, en áður en svo varð hafði Albert, sonur hans, tekið við merkinu af föður sínum. Vonandi fáum við að sjá ávöxt þess á kom- andi listsýningu hér á Kjarvals- stöðum í verkum Alberts Thorvaldsens. Menningarþættir íslensku þjóð- arinnar hafa legið vítt og breitt um Evrópu, enda er menning okkar nátengd Evrópuþjóðunum og menningu þeirra. Okkar norræna menningar- munstur er ofið í asískum, ger- mönskum, keltneskum, rómversk- um stíl, vængjað og fléttað saman úr baráttusögu lands okkar og þjóðar. Verk Alberts Thorvald- sens eru dreifð um alla Evrópu, eins og sólir og tungl um himin- hvolfið. Huginn og Muninn fljúga um heim allan, Glaður og Gyllir standa vörð við dyrnar í safni hans. Urð og Verðandi koma til hvers barns, sem borið er, að skapa aldur þess. Sjá, allt þetta hefur borið ríkulegan ávöxt í lífi og starfi íslensku þjóðarinnar vítt og breitt um heiminn. Nú þegar þessi sýning á verkum Alberts Thorvaldsens stendur fyrir dyrum hér á Kjarvalsstöð- um, vil ég biðja allra náðarsam- legast alla fjölmiðla á íslandi að gæta þess, að ekki gangi á þrykk gælunafn Dana á Albert Thor- valdsen, heldur verði hann í ísl. sýningarskrám og öllum blöðum, sjónvarpi og útvarpi, nefndur sínu rétta íslenska nafni, Albert Thorvaldsen. Því leitt er til þess að vita, að þjóð hans skuli ekki ætíð geta haft nafn hans rétt, samkvæmt skírn- arsáttmála þeim, sem hann sendi þjóð sinni að gjöf árið 1827, með ákveðinni áletrun og fyrirmælum. Sigurjón Sigurðsson 7970-3079 Aths.: Vegna mistaka hefur birting þessarar greinar dregizt úr hófi, en eins og fram kemur, var hún skrifuð áður en sýning á verkum Thorvaldsens var opnuð. Er beðizt velvirðingar á þessu. Blaöburðarfólk óskast! Austurbær Laugavegur neöri Lindargata Skólavöröustígur Hverfisgata 63—120 Þingholtsstræti Vesturbær Tjarnarstígur Kópavogur Fagrabrekka Uthverfi Síöumúli Drekavogur Karfavogur 35408 bmifo Upplýsingar í síma raöauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar tilkynningar Frá Öskjuhlíðarskóla Dvalarheimili óskast fyrir unglinga utan af landi, skólaveturinn 1982—1983. Upplýsingar í símum 17776 eöa 23040. Njarðvíkingar Innritun í Tónlistarskóla Njarövíkur fer fram í skólanum í dag, fimmtudag 9. sept., og á morgun, föstudaginn 10. sept., frá kl. 13—18 báöa dagana. Skólastjóri. Fríkirkjusöfnuðurinn f Reykjavík auglýsir safnaöarfund strax aö lokinni messu sunnudaginn 12. sept. Dagskrá: Væntanleg prestskosning. Kosning kjörstjórnar. Safnaðarstjórn. Badminton íþróttahús Fellaskóla Nokkrir tímar lausir á þriöjudögum, fimmtu- dögum og sunnudögum. Uppl. í síma 72359 kl. 18.30—21 næstu kvöld. íþróttafélagið Leiknir. Nauðungaruppboð Eflir kröfu tollstjórans i Reykjavík, Gjaldhelmtunnar i Reykjavík, skiptaréttar Reykjavikur, ýmissa lögmanna, banka, stofnana og Vöku hf.. fer fram opinbert uppboö á bifrelöum, vinnuvélum o.fl. aö Smiös- höföa 1, (Vöku hf.) fimmtudaginn 9. september kl. 18.00. Seldar veröa væntanlega eftirtaldar bifreiöar: R-12442, R-14921, R-22163, R-24378, R-24394, R-26771, R-28902, R-31246, R-34126, R-35258, R-50562, R-56231, R-56734, R-59046, R-59267,, R-63070, R-68109, R-70137, R-72449, R-72556, R-73250, A-6263, G-15898, S-1688, Y-6761, Y-10322, X-4171, X-4927, Ö-6549, Ö-7151, G-11515. Eftir kröfu Vöku hf.: R-19240, R-23416, R-28840, R-23416, R-28840, R-54172, R-56734, R-59046, R-64613, R-65681, R-69161, R-70004, R-70137, R-70901, A-3973, E-2097, E-2449, G-1281, G-4435, G-4613, G-15656, K-986, Y-2874, Y-4002, Y-9176, X-1395, X-2246, X-3719, Ö-4666. Auk þess veröa væntanlega seldar fleiri bifreiöar og vinnuvélar. Avísanir ekki teknar gildar sem greiösla nema meö samþykki upp- boöshaldara eöa gjaldkera. Greiösla viö hamarshögg. Uppboðshaldarinn I Reykjavík Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna i tilefni af 45 ára afmæli Hvatar kemur út afmælisrit félagsins f lok október. Söfnun afmælisáskrifta stendur nú yflr. Þeir sem hafa áhuga á þvi aö gerast áskrifendur vinsamlega hafi samband i sima 82900 og 82779. Sllórnin. Akurnesingar Fundur um bæjarmálefni veröur haldinn i Sjálfstæöishúsinu, sunnu- daginn 12. september, kl. 10.30. Áformaö er aö slikir fundir veröi haldnir annan og fjóröa hvern sunnudag hvers mánaöar á sama tima á komandi vetri Bæjarfulltrúar Sjálfstæöisflokksins munu koma á þessa fundi. Allt sjálfstæöisfólk er hvatt til þess aö koma á fundina og fá sér morgunkaffi. Sjállstæöislélögin Akranesi. Fulltrúaráö sjálfstæöisfélganna í Reykjavík: Kosning kjörnefndar Fulltrúaráösmeölimir eru minntir á kjörnefndarkosningu Fulltrúaráös- ins vegna skipunar á framboösllsta Sjálfstæöisflokksins vlö næstu alþingiskosningar Koeningu lýkur kl. 19.00 fimmtudaginn 9. september og skulu full- trúar skila atkvæöaseöli sínum pereónulega (samkvæmt ákvæöi í reglugerö um kjörnefndarkosningu) í innsiglaöan kjörkassa á skrifstofu Fulltrúaráösíns í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Skrifstofa Fulltrúaráösins er opln á venjulegum skrlfstoiutima. Opiö veröur til kl. 19.00 fimmtudaginn 19. september. Hamli veikindi fulltrúaráösmanni aö skila atkvæöaseöli sínum, per- sónulega, er trúnaöarmanni kosningastjórnar heimilt aö sjá um aö seöillinn veröi sótlur til viökomandi. Ber fulltrúum í slíku tilvlki aö hafa samband viö skrifstofu Fulltrúaráösins í Valhöll, Háaleillsbraut 1, síml 82963 og 82900. Stjórn Fulltrúaráðsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.