Morgunblaðið - 09.09.1982, Síða 46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1982
46
• Guðmundur Þorbjörnsson á fullri ferö meö bolUnn upp kantinn i landsleiknum í gærkvöldi. i.jósm. köe.
íslenska liðið óheppió
að skora ekki mark
Sagt eftir
leikinn
Pétur Pétursson:
— Það er alltaf mjög gaman að
koma heim og spila landsleiki. Að
þessu sinni fannst mér ég ekki
komast alveg nógu vel inn í leik-
inn. En mér fannst frammistaða
okkar alveg þolanleg. Þetta var
sterkt lið sem við lékum gegn. Það
var slæmt að skora ekki 1—2
mörk.
Marteinn Geirsson fyrirliði
— Við lékum skynsamlega og
lengst af nokkuð vel. Við náðum
að skapa okkur góð tækifæri og
það var synd að við skyldum ekki
skora mark. Við vorum jafn mikið
með boltann og þeir en undir lok
leiksins var þreytan farin að gera
vart við sig. Eg er sársvekktur yfir
því að það skuli ekki fleiri áhorf-
endur koma á völlinn að styðja við
bakið á okkur. Frammistaða
okkar á heimavelli hefur nefnilega
verið mjög góð.
- ÞR.
• Ragnar Margeirsson átti mjög
góðan leik með islenska landsliðinu
i gærkvöldi.
Lið Vals:
Brynjar Guðmundsson 6
íllfar Hróarsson 7
Grímur Sæmundsen 6
Dýri Guðmundsson 7
Magni Pétursson 6
Þorgrímur Þraínsson 6
Ingi Björn AlberLsson 8
Hilmar Sighvatsson 7
Valur Valsson 7
Guðmundur Þorbjörnsson 7
Njáll Eiðsson 6
Þorvaldur Þorvaldsson lék of stutt.
Lið UBK:
Guðmundur Asgeirsson 7
Þórarinn Þórhallsson 5
Helgi Helgason 4
Valdemar Valdemarsson 5
Olafur Björnsson 6
Vignir Baldursson 4
Jóhann Grétarsson 6
Hákon Gunnarsson 4
Sigurjón Kristjánsson 5
Þorsteinn Hilmarsson 5
Helgi Bentsson 5
Sævar Geir Gunnleifsson vm. 6
Björn Þór Kglsson. vm. lék of stutt.
„ÉG ER ánægður með allt nema úr-
slit leiksins. Strákarnir léku vel,
sköpuðu sér tækifæri og allan tím-
ann var skynsemi í leik þeirra. Þetta
var spurning um að nýta tækifærin
sem gáfust. Lið Austur-Þjóðverja er
gott og mjög vel skipulagt, en við
getum vel við unað,“ sagði Jóhannes
Atlason landsliðsþjálfari að loknum
vináttulandsleik íslands og
A—Þýskalands í gærkvöldi, sem
lauk með sigri Þjóðverja 1—0. Þetta
er fyrsti tapleikur íslenska landsliðs-
ins í knattspyrnu á heimavelli síðan
3. sept 1980, en þá tapaði ísland
fyrir Rússlandi 2—1. Verður það að
teljast mjög góður árangur og þegar
litið er á þennan góða árangur knatt-
spyrnumanna okkar er með öllu
óskiljanlegt af hverju ekki koma
fleiri en 2.217 áhorfendur á völlinn
eins og raunin varð á í gærkvöldi.
íslensku áhugamennirnir stóðu sig
með miklum sóma i gærkvöldi og
voru langtímum saman ekkert síðri
en austur-þýsku atvinnumennirnir.
Var í raun mikil synd að islenska
liðið skyldi ekki skora í leiknum því
að það fékk til þess mjög góð tæki-
færi.
Róleg byrjun
Leikur liðanna í gærkvöldi fór ró-
lega af stað og íslensku piltarnir
voru nokkurn tíma að finna réttan
takt í leik sinn. Þjóðverjarnir voru
meira með boltann úti á vellinum
en náðu ekki að skapa sér nein
tækifæri.
Fyrsta dauðafærið í leiknum
kom á áttundu mínútu leiksins.
Pétur Pétursson átti gullfallega
sendingu fram völlinn á Sigurð
Grétarsson sem vann mjög vel úr
henni, lék laglega á varnarmann
qg gaf mjög vel fyrir markið á
Ómar Torfason, sem var einn og
óvaldaður á markteig. Ómar hafði
góðan tíma, lagði boltann vel fyrir
sig og náði að skjóta en beint á
markvörðinn. Þarna rann hreint
ótrúlega gott marktækifæri út í
sandinn. Það er ekki á hverjum
ísland — 0:1
A-Þýskaland
degi í landsleik sem svona færi
gefast á að skora.
Er Iíða tók á leikinn átti ís-
lenska liðið góða spretti og náði
betur og betur saman. Á 25. mín-
útu náðu Pétur og Ragnar Mar-
geirsson góðri sókn sem skapaði
hættu.
Ódýrt mark
Á 29. mínútu leiksins skora
Þjóðverjar. Dæmd var auka-
spyrna á íslenska liðið rétt utan
við miðjan vítateiginn. íslensku
leikmennirnir stilltu sér upp í
varnarvegg og gáfu eftir annað
hornið, en Þorsteinn markvörður
svaf á verðinum og fast skot Joa-
chim Streich fór alveg út við
stöngina og í netið. Eftir leikinn
sagði Þorsteinn markvörður að
hann hefði ekki verið rétt stað-
settur og hefði verið bak við vegg-
inn. Var þetta í eina skiptið sem
Þorsteinn var ekki á réttum stað í
leiknum. Hann stóð sig eins og
hetja og varði hvað eftir annað
meistaralega vel. Þetta var því
mikið slysamark sem íslenska lið-
ið fékk á sig.
íslcnska liðið átti nokkrar ágæt-
ar sóknarlotur eftir markið en
vantaði herslumuninn á að binda
á þær endahnútinn. Ómar Torfa-
son átti góða tilraun er hann
framkvæmdi hjólhestaspyrnu á
39. mínútu en skot hans fór fram-
hjá.
Góöur síðari hálfleikur
Besti kafli íslenska liðsins í
leiknum var í upphafi síðari hálf-
leiksins, þá lék íslenska liðið mjög
vel og var mun meira með boltann.
Náði góðum tökum á miðju vallar-
ins og átti hættulegar sóknir.
Strax á upphafsmínútu hálfleiks-
ins braust Pétur Pétursson mjög
laglega upp kantinn og í gegn af
harðfylgi. Gaf vel fyrir markið,
þar náði Guðmundur Þorbjörns-
son að skjóta úr erfiðri aðstöðu en
skot hans fór rétt fyrir þverslána.
Ómar Torfason átti gott skot á 48.
mínútu rétt fram hjá. Þegar líða
tók á síðari halfleikinn fór að
gæta þreytu hjá íslensku leik-
mönnunum og þeir þýsku fóru að
sýna tennurnar. Á 21. mínútu var
heppnin með íslenska liðinu er
hörkuskalli frá Hans Riediger fór
innan á stöngina og hrökk þaðan
út. Sókn A-Þjóðverja var þung í
lokin en Þorsteinn Bjarnason
varði hvað eftir annað góð skot
þeirra eða bjargaði með góðum út-
hlaupum á réttum augnablikum.
Þá var vörnin nokkuð sterk og
barðist vel.
Islenska llöld
Eins og áður sagði kom íslenska
liðið vel frá leiknum. Þorsteinn
átti stórleik í markinu, og var með
góða vörn fyrir framan sig. Þar
stóð Viðar Halldórsson best.
Ódrepandi baráttujaxl með mikla
reynslu. Leikmaður sem gefur
aldrei eftir og hefur enga minni-
máttarkennd. Ragnar Margeirs-
son lék mjög vel á miðjunni og var
hann besti útileikmaðurinn. Hvað
eftir annað ógnaði hann með
hraða sínum og leikni. Þeir eru
fáir leikmennirnir sem halda bolt-
anum jafn vel og hann gerir.
Ragnar kom inná á 13. mínútu
fyrir Gunnar Gíslason og stóð svo
sannarlega fyrir sínu. Þeir Árni
Sveinsson og Guðmundur Þor-
björnsson áttu báðir góða spretti í
leiknum. Pétur Pétursson vann vel
og gerði margt mjög laglegt, sama
má segja um Sigurð Grétarsson.
Og þegar á það er litið að liðið
hafði enga samæfingu er útkoman
góð.
Lið A-Þýskalands var allgott,
vel skipulagt og greinilega með
mjög gott úthald. Liðið var jafnt
að getu og erfitt að gera upp á
milli leikmanna.
Lið íslands var þannig skipað:
Þorsteinn Bjarnason, Trausti
Haraldsson, Viðar Halldórsson,
Marteinn Geirsson, Sigurður
Lárusson, Ómar Torfason, Gunnar
Gíslason, Guðmundur Þorbjörns-
son, Árni Sveinsson, Sigurður
Grétarsson, Pétur Pétursson.
Gunnar Gíslason meiddist á 13.
mínútu og varð að yfirgefa leik-
völlinn. í hans stað kom Ragnar
Margeirsson. Trausti Haraldsson
fór út af í hálfleik og Ólafur
Björnsson tók hans stöðu. Sigur-
jón Kristjánsson skipti svo við
Guðmund Þorbjörnsson á 75. mín-
útu. Áhorfendur á leiknum voru
2.217.
- ÞR.
Badminton
Vetrarstarf badmintondeildar Vals er aö hefjast.
Leigjum út tíma fyrir badminton.
Upplýsingar í síma 82831 eftir kl. 18.00.