Morgunblaðið - 25.09.1982, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1982
5
Ung Nordisk
Musik Festival
Sinfóníutón-
leikar og kamm-
ertónleikar
TVENNIR tónleikar verða á vegum
UNM hátíðarinnar í dag. Sinfóníu-
hljómsveit íslands leikur undir
stjórn Guðmundar Emilssonar í Há-
skólabíói og hefjast tónleikarnir
klukkan 14.00. Þau verk sem eru á
dagskrá tónleikanna eru: Configur-
ations, eftir Edward Reichel, Str&k,
eftir Karin Rehnqvist, Konsertþáttur
fyrir litla trommu og hljómsveit, eft-
ir Áskel Másson, Slits, eftir Hans
GeforSj Giro, eftir Esa-Pekka Salon-
en og Era, eftir Jan Sandström.
Hinir tónleikarnir eru kamm-
ertónleikar í Norræna húsinu og
hefjast þeir klukkan 20.30. Þessi
verk eru á dagskrá: Counter Force,
fyrir píanó og tónband, eftir
Kristian Evensen, Landet som
icke ár (excerpt), fyrir sópran og
píanó, eftir Sten Melin, Nú, fyrir
flautu, eftir Lilju Ósk Ulfarsdótt-
ur, Sambúðarsundurþykkja, fyrir
horn, harpsíkord og tónband, eftir
Lárus H. Grímsson, Deux études
pour synclavier, eftir Otto Roman-
owski og ... de tartuffe, je
crois ..., eftir Magnus Lindberg.
Hvöt:
Félagsfundur
um borgarmál
HVÖT, félag Sjálfstæðiskvenna í
Reykjavik, heldur félagsfund um
borgarmál nk. mánudagskvöld.
Frummælandi á fundinum verður
Davíð Oddsson, borgarstjóri.
Sjálfstæðisflokkurinn vann
mikinn sigur í borgarstjórnar-
kosningunum í vor og er mikill
hluti kosningaloforða meirihlut-
ans þegar efndur, svo sem ákvörð-
un um fækkun borgarfulltrúa í 15
menn á ný 1986 og fleiri ákvarð-
anir sem leiða munu til sparnaðar
í borgarkerfinu.
Fundarstjóri verður Erna
Hauksdóttir, viðskiptafræðinemi,
og fundarritari Anna K. Jónsdótt-
ir, varaborgarfulltrúi. Fundurinn
hefst kl. 8.30 og er hann öllum
opinn.
LITGREINING MEÐ
CROSFIELD
540
LASER
LYKILLINN AÐ VANDAORI
LITPRENTUN
MYNDAMÓT HF
Frá afhendingu heiðursskjalsins. Taldir frá vinstri: Gunnar Þormar, formaður
Tannlæknafélags fslands, Einar Ragnarsson, varaformaður, og hinn nýkjörni
heiðursfélagi, dr. Pálmi Möller.
Sjöundi heiðursfélagi
Tannlæknafélagsins
TANNLÆKNAFÉLAG íslands hefur
nýlega kjörið dr. Pálma Möller, pró-
fessor við háskólann í Birmingham,
Alabama, heiðursfélaga sinn.
TFÍ hefur um þessar mundir
starfað í 55 ár. Dr. Pálmi er sjöundi
heiðursfélaginn, sem félagið hefur
kjörið á þessu timabili.
Pálmi Möller er fyrsti íslenski
tannlæknirinn, sem hefur helgað
rannsóknar- og vísindastörfum
mestan hluta starfsævi sinnar.
Hann varð fyrstur íslenskra tann-
lækna til að ljúka doktorsprófi frá
Háskóla íslands. Rannsóknarverk-
efni sín hefur dr. Pálmi ætíð sótt til
íslands.
Pálmi Möller verður sextugur 4.
nóvember næstkomandi.
Dr. Pálma Möller var afhent heið-
ursskjal Tannlæknafélags íslands
við hátíðlega athöfn i húsakynnum
félagsins, að viöstöddum fjölda
gesta.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Þrátt fyrir
gengis-
breytingu
þá eru allar gerðir af Mazda 929
ennþá á hagstæðu verði:
Verð: Mazda 929 Sedan Super
Deluxe kr. 174.000.-
Verð: Mazda 929 Station
Deluxe kr. 179.500.-
Verð: Mazda 929 Hardtop
m/öllu Limited kr. 197.500.-
Tryggið ykkur því bíl strax meðan
þetta lága verð helst.