Morgunblaðið - 25.09.1982, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1982
19
Laker í samkrull
með Pan Am?
SIR FREDDY Lakcr mun innan tíðar hefja umsvif á sviði leiguflugs í
samkrulli með Pan American-flugfélaginu, að sögn Lundúnablaðsins
Observer.
Sir Freddy hyggst selja
Bandaríkjamönnum hópferðir
til Evrópu og þannig slást um
farþega á Atlantshafsflugleið-
inni, en flugfélag hans, Laker-
Airways, var brautryðjandi
ódýrra fargjalda á þeirri flug-
leið.
Þar kom hins vegar að því að
Laker Airways beið lægri hlut í
samkeppninni á Atlantshafs-
flugleiðinni og skyldi eftir sig
270 milljón punda skuldahala.
Háttsettur maður hjá Pan Am
staðfesti að Sir Freddy og Ed
Acker forstjóri Pan Am, sem eru
miklir mátar, hafi átt viðræður
um samstarf.
Pan Am á við mikla fjárhags-
örðugleika að etja í harðri sam-
keppni. í síðustu viku tilkynnti
félagið að það þyrfti að segja
upp fimm þúsund starfsmönnum
til viðbótar, en það nemur 15%
starfsmanna fyrirtækisins, til
þess að eiga möguleika á þátt-
töku í harðri samkeppni flugfé-
laganna.
Hefur Pan Am vegnað vel í
leiguflugi á Atlantshafsflugleið-
inni frá því Laker og Braniff
lögðu upp laupana.
„Sir Freddy er ennþá hetja í
augum Bandaríkjamanna," sagði
aðstoðarforstjóri hjá Pan Am.
„Það var hann sem gerði fólki
kleift að fljúga til Lundúna og
annarra staða í Evrópu fyrir
lágt verð. Gjaldþrot er bara viss
játning, hún er hluti af leiknum,
og að að henni gerðri er bara að
byrja aftur. Sr Freddy er snjall
sölumaður og hann á eftir að
spjara sig á ný.“
Þótt búið sé að selja ferða-
skrifstofu Lakers, Laker Holi-
days, er við því búist að hin nýju
umsvif verði kennd við nafn
hans.
Sir Freddy Laker
Kasparov öruggur sigurvegari á millisvæöamótinu:
Slagurinn stendur
enn um annað sætið
Moskvu, 24. aeptember. AP.
GARRY KASPAROV, aöeins 19 ára gamall og yngsti stór-
mcistari heims, varð hinn öruggi sigurvegari á millisvæöa-
mótinu í skák, sem lauk í Moskvu í dag. Kasparov vann
Velimirovic frá Júgóslavíu í lokaumferðinni og tryggði sér þar
með 10 vinninga úr 13 umferðum.
Enda þótt sigur hans hafi ver-
ið öruggúr er óvissa um hver
hlýtur 2. sætið og þar með
réttinn til að komast áfram.
Andersson frá Svíþjóð og Tal,
fyrrum heimsmeistari frá
Sovétríkjunum, eru sem
stendur í öðru sæti með 8
vinninga.
Þeir eru þó ekki öruggir um
að fá að kljást í aukakeppni
um 2. sætið. Belyavski gæti
komist upp fyrir þá báða og
náð 8V£ vinning með því að
vinna biðskák sína gegn
Gheorghiu, sem tefld verður í
dag, laugardag.
Urslit í öðrum skákum urðu
þau, að Rodriguez vann
Garcia, sem hefur misst flugið
gersamlega í síðari hluta
mótsins, Van der Wiel og
Christiansen gerðu jafntefli,
Sax vann Geller og skák
Quinteros og Murey fór í bið.
Tal og Andersson gerðu jafn-
tefli og Andersson gerði að
auki jafntefli í biðskák sem
hann átti.
Lokastaða mótsins varð því
þessi: Kasparov hlaut 10 vinn-
inga, Anderson og Tal 8, Bely-
avski er með 7 xk og biðskák,
Garcia og Geller hlutu lxh,
Christiansen og Sax 6 vinn-
inga hvor, Murey 5 xk og bið-
skák, Velimirovic 5V6,
Gheorghiu 5 og biðskák, Van
der Wiel 5, Rodriguez 4% og
Quinteros 3 og biðskák.
V-Þjóðverji dæmdur
fyrir njósnir í A-Berlín
Berlín, 24. sept. AP.
AUSTUR-þýzkur dómstóll hefur
dæmt Vestur-Þjóðverja í tíu ára
fangelsi fyrir að hafa stundað njósn-
ir, er voru ógnun við öryggi Austur-
Þýzkalands, að því er ADN, frétta-
stofa Austur-Þýzkalands, skýrði frá í
dag.
Maður þessi, Frank Ortlepp, var
handtekinn fyrir rúmu ári, er
Veður
víða um heim
Akureyri 6 skýjaó
Amsterdam 15 heióskírt
Aþena 29 haióskirt
Barcelona 26 léttskýjað
Berlín 20 heiðakírt
BrOssel 17 akýjaó
Færeyjar 10 skýjaó
Chicago 19 skýjaö
Dyflinni 15 rígning
Feneyjar 21 akýjaó
Frankfurt 16 skýjaó
Genf 16 skýjað
Helsinki 15 heiöakfrt
Hong Kong 29 akýjaó
Jerúsalem 27 haiðakfrt
Jóhannesarborg 21 heióskfrt
Kairó 33 heiðakfrt
Kaupmannahöfn 15 heióskírt
Las Palmas 25 léttskýjaó
Lissabon 21 haióskirt
London 18 skýjaó
Los Angeles 36 skýjað
Madrid 24 heióskfrt
Malaga 28 lóttskýjaó
Mallorca 27 lóttskýjaö
Mexíkóborg vantar
Miami 29 rigning
Moskva 20 haióskirt
Nýja Delhí 33 heióskírt
New York vantar
Osló 12 haiöskirt
Perís 20 skýjaó
Peking 30 heiðskirt
Perth 17 haiðskirt
Rio de Janeiro 28 skýjaó
Reykjavík 7 skýjaó
Rómaborg 27 heióskfrt
San Francisco 18 rigning
Stokkhólmur 14 heióskirt
Sydney 21 heióskírl
Tel Aviv 29 haíðskirt
Tókýó 22 skýjaó
Vancouver 19 skýjaó
Vínarborg 18 rigning
hann kom til Austur-Þýzkalands
frá Tékkóslóvakíu. Hann hafði þá
í fórum sínum ljósmyndabúnað
sem ADN sagði að hann hefði átt
að nota til að safna upplýsingum
sem hefðu stefnt öryggi landsins í
hættu. ADN sagði að Ortlepp
hefði einnig haft sambönd við
stjórnmálaflokka í Vestur-Þýzka-
landi og þekktur vestur-þýzkur
sjónvarpsmaður, Gerhard Lowen-
thal, hefði þar einnig komið við
sögu. Þá var klykkt út með því að
Ortlepp hefði áður en hann var
tekinn, haft heldur óþrifalegt
sakavottorð, því að hann hefði áð-
ur hlotið dóma fyrir stuld á skjöl-
um og skjalafals.
Átök! Ósló við
sendiráð ísraels
Osló, 24. september. AP.
TIL ÁTAKA kom milli lögreglu og
um 200 mótmælaseggja fyrir utan
sendiráð ísraels í Osló á fimmtu-
dagskvöld og varð lögreglan að
dreifa mannfjöldanum með táragasi.
Sjö ungmenni voru handtekin fyrir
grjótkast.
Einn lögreglumaður slasaðist er
hann fékk grjót í andlitið, en alls
tóku 40 lögregluþjónar þátt í því
að bæla niður uppþotið. Mótmæla-
seggirnir klufu sig frá friðsam-
legum mótmælafundi á Youngs-
torget.
Þota ferst
Boostedt, 24. september. AP.
ORRUSTUÞOTA úr fjórðu
landgönguliðsherdeildinni
hrapaði í Eystrasalt, þar
sem hún var við æfingar
með sveitum frá ríkjum
Atlantshafsbandalagsins.
Að sögn formælenda banda-
ríska hersins er óljóst hvað fór úr-
skeiðis, en þotan hafði bækistöð á
landgönguskipinu Nassau. Þotan
var stökkþota af gerðinni AV/8A
Harrier.
Sama herdeild missti CH-53 Sea
Stallion-þyrlu með fimm mönnum
innanborðs við strendur Dan-
merkur 14. september sl. Áhöfn
þyrlunnar og yfirmaður í sjóhern-
um fórust með þyrlunni.
Þotan, sem fórst í dag, fórst
fimm mílur austur af Slésvík-
Holstein, nyrst í Vestur-Þýzka-
landi.
ÚRVALS
innihurðir
Allar hurðir enn á gamla verðinu
______ef pantað er strax.
LÆGSTA VERÐ Á LANDINU.
Útsölustaðir í Reykjavík og Kópavogi:
Iðnverk, Nóatúni 17, sími: 25945
Axel Eyjólfsson, Smiðjuvegi 9, sími: 43577
TRÉSMÐJA ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR Iðavöllum 6 Keflavík SÍMI: 92-3320
OCTAV012.02