Morgunblaðið - 14.10.1982, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1982
23
Alva Myrdal fær friðar-
verðlaun í fimmta sinn
Stokkhólmi, 13. október. AP.
ÞETTA er ekki í fyrsta sinn sem
Alva Mvrdal hlýtur friðarverðlaun.
Hún hefur um langt skeið beitt sér
mjög fyrir afvopnun og fjórum
sinnum áður hefur hún hlotið verð-
laun fyrir þetta starf. Hún er átt-
ræð að aldri, listfræðingur að
mennt, en lif sitt hefur hún helgað
stjórnmálum og baráttu fyrir friði
og afvopnun. Hún gegndi embætti
ráðherra afvopnunarmála í sænsku
stjórninni um sjö ára skeið, en af
slíkum málum hafði hún haft mikil
kynni, m.a. á meðan hún veitti for-
stöðu félagsmáladeild Sameinuðu
þjóðanna og á meðan hún gegndi
embætti forstjóra félagsvísinda-
deildar UNESCO.
Alva Myrdal hefur verið talin
brautryðjandi í baráttunni fyrir
jafnrétti kynjanna, en þau mál
lét hún til sín taka löngu áður en
þau komust í tízku. M.a. varð
hún formaður hins sænska fé-
lags kvenna á framabraut, síðar
formaður alþjóðasamtaka þeirr-
ar hreyfingar á árunum
1935-1942.
Árið 1955 var hún skipuð
sendiherra lands síns í Indlandi
og var fyrsta sænska konan sem
gegndi slíku embætti. Hún
tengdist þáverandi forsætis-
ráðherra Indlands, Jawaharla!
Nehru, miklum vináttuböndum.
Við heimkomuna til Svíþjóðar
1961 varð Alva Myrdal þingmað-
ur Jafnaðarflokksins og skömmu
síðar formaður sænsku sendi-
nefndarinnar á afvopnunar-
ráðstefnu SÞ í Genf. Þar flutti
hún skorinorða ræðu þar sem
hún krafðist þess að gerður yrði
samningur um bann við kjarn-
orkutilraunum, en ræða þessi
vakti mikla athygli á konunni og
málstaðnum á alþjóðavettvangi.
Alva Myrdal hefur verið nefnd
í sambandi við veitingu friðar-
verðlauna Nóbels undanfarin ár.
Síðan hún lét af ráðherraemb-
ætti 1973 hefur hún helgað sig
algjörlega baráttunni fyrir friði
í heiminum og enn er engan bil-
bug á henni að finna enda þótt
hún sé áttræð að aldri. Maður
hennar er hagfræðingurinn
heimskunni, Gunnar Myrdal, en
hann hlaut Nóbelsverðlaun í
hagfræði árið 1974.
Alva Myrdal á heimili sínu í Stokkhólmi eftir að kunngert var um friðar-
verðlaunahafa Nóbels árið 1982.
Garcia Robles - mexi-
kanskur diplómat og sér-
fræðingur í alþjóðalögum
Mexíkóborg, 13. október. Al*.
ALFONSO Garcia Kobles sem nú
hlýtur friðarverðlaun Nóbels er
fyrrverandi utanríkisráðherra
Mexíkó og þaulvanur diplómat.
Margir eru þeirrar skoðunar að fá-
ir þekki jafn vel innviði Samein-
uðu þjóðanna og Garcia Robles, en
hann hefur verið aðalfulltrúi sendi-
nefndar Mexíkó á afvopnunarráð-
stefnunni i Genf frá 1966 og fasta-
fulltrúi frá 1977. Garcia Robles er
kunnur fyrir ritstörf og hefur skrif-
að 26 bækur og á fjórða hundrað
greinar um afvopnunarmál.
Garcia Robles er 71 árs að
aldri, lögfræðingur að mennt.
Fræði sín nam hann í París og
Haag, en störf í utanríkisþjón-
ustu Mexíkó hóf hann fyrir ald-
arfjórðungi. Árið 1971 varð hann
fastafulltrúi lands síns hjá Sam-
einuðu þjóðunum og árið 1975
var hann gerður að utanríkis-
ráðherra. Hann hefur verið full-
trúi lands síns á yfir 100 alþjóð-
legum ráðstefnum, m.a.í San
Francisco 1945 þar sem drög
voru lögð að sáttmála hinna
Sameinuðu þjóða.
Þegar Garcia Robles tók við
utanríkisráðherraembætti var
eftir honum haft: „Ég bið blaða-
menn og lesendur að hafa í huga
að alþjóðastjórnmál eru afar
viðkvæm mál og í því sambandi
er ekkert verra en að taka skjót-
ar ákvarðanir."
Nóbelsverðlaunahafinn hefur
verið virkur í alþjóðasamtökum
lögfræðinga og heiðursforseti í
Samtökum um alþjóðamál við
háskólann í París.
Þetta er í fyrsta skipti sem
Mexíkani hlýtur Nóbelsverðiaun.
I Mexíkó hefur fregnin um frið-
arverðlaunin vakið nokkra undr-
un en einnig fögnuð.
Nýr forseti í Bólivíu
Nýr forseti, Hernan Siles (til hægri á myndinni) tók fvrir skemmstu við
völdum í Suður-Ameríkuríkinu Bólivíu. Með honum á myndinni er nýr
forseti landsins, Jaime Paz Zamora. Mynd þessi var tekin við embættistöku
þeirra.
Baptistakirkjan í
Jerúsalem brennd
BAPTISTAKIRKJAN í Jerúsalem
var brennd til grunna fyrir skömmu,
en þar hafa kristnir menn og píla-
grímar komið saman til helgihalds.
MargsinnLs hafa skemmdarverk verið
unnin á kirkjunni og lögregla i Jerú-
salem segir, að það sé engum vafa
undirorpið, að um íkveikju hafi verið
að ræða, því að verksummerki voru
þannig. Kirkjan er í gyðingahverfinu
í Jerúsalem. Hún var reist árið 1933.
Dr. Robert Lindsey, prestur kirkj-
unnar, sagði, að það myndi kosta að
minnsta kosti eina milljón dollara
að endurbyggja kirkjuna.
Begin forsætisráðherra og
Teddy Kollek, borgarstjóri í Jerú-
salem, fordæmdu báðir þessa
gjörð í dag. Kollek sagði, að líkja
mætti þessu óþverraverki við
skemmdarverk sem hafa verið
unnin á bænahúsum gyðinga og
jafnan vakið mikla reiði.
Ekki er að svo stöddu ljóst
hverjir gætu borið ábyrgð á brun-
anum, en hin herskáa Kach-
hreyfing er undir grun. Hún er
undir forystu Meir Kahane rabbía,
sem oftsinnis hefur komið við
sögu þegar strangtrúaðir gyðingar
hafa látið að sér kveða. Einnig er
talið að annar hópur strangtrú-
Colorado:
Sýra finnst í
(■rand Junrtion, ('olorado, 13. október. Al*.
EINHVER, er virðist hafa verið að
reyna að leika eftir morðin af völd-
um blásýrunnar er komið hafði verið
fyrir í verkjatöflum af tylenol-gerð,
hefur nú sett annars konar sýru í
augndropa nokkra og því hefur sölu
þeirra verið hætt uns mál þetta verð-
ur upplýst, segir í fréttum frá lög-
reglunni.
Nokkrir munu hafa brennst illa
á augum vegna notkunar augn-
dropa þessarra, en lögreglan telur
aðra gyðinga sem býr í Mea She-
arim-hverfinu í Jerúsalem kunni
að vera viðriðnir málið. Kahane
rabbíi sagðist aðspurður ekkert
hafa um málið að segja og sér
væri ekki ljóst af hverju eftir
svari hans væri leitað.
Áframhaldandi
vaxtalækkanir!
Bandaríkjunum
New Vork, 13. október. AP.
ENN fleiri bandarískir bankar
urðu til þess í dag að lækka vexti
sína niður í 12% og tvær meiri
háttar lánastofnanir í Kaliforniu
lækkuðu vexti sína á veðskulda-
bréfum. Er talið að þetta verði til
þess að flýta fyrir því enn frekar,
að vextir lækki almennt i Banda-
ríkjunum á næstunni.
Mikil viðskipti áttu sér stað
á bandaríska verðbréfamark-
aðnum í dag og Dow Jones
Average hækkaði um 30 stig
upp í 1.014,81 sem er það
hæsta, sem orðið hefur á 17
mánuðum.
augndropum
að þetta mál sé ekki í samhengi
við blásýrumorðin að öðru leyti en
því, að hugmyndin sé þaðan kom-
in. Þá létust sjö manns er höfðu
tekið inn sérstaklega sterk verkja-
lyf af tylenol-gerð í Illinois, sem
einhver hafði blandað blásýru
saman við.
Morðin í Illinois eru enn óupp-
lýst og svo er einnig um þetta
sýrumál í Colorado, en stöðugt er
unnið að lausn beggja málanna.
S.A.O.
STÓRBINGO
S.A.O.
, , SigtúnMÍnunuidaginn 14. oMóber kl. opnaö
Glsesilegir vinningar OiyiTlpO
3 utanlandsferöir frá feröaskrifstofunm
Skíöanámskeiö í Kerlingarfjöllum. Úrval heimilistækja, svo sem kaffivél • hrærivél • þeytivinda • djúpsteikingarpottur
• og margt fleira.
S.A.O. Fjölmennið og styrkið gott málefni.
SAMTOK GEGN ASTMA OG OFNÆMI
S.A.O.