Morgunblaðið - 10.11.1982, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1982
51
ur ómetanlegs stuðnings fjöl-
margra, bæði einstaklinga og fé-
iagasamtaka, sem fært hafa hon-
um gjafir á liðnum árum. Eg full-
yrði að án stuðnings væri ekki
rekinn spítali hér í dag, sem því
nafni mætti nefna.
Thorvaldsensfélagið hefur áður
komið hér við sögu. Félagið hefur
m.a. lagt barnadeild spítalans lið
með því að gefa öll sjúkrarúm og
annan útbúnað. Gjöf félagsins nú
gerir okkur kleift að bæta veru-
lega alla starfsaðstöðu á deildinni.
Sá aðili sem gefur stjórnstöð
gjörgæsludeildar hefur einnig
komið við sögu áður. Umrædd
stjórnstöð er sennilega eitt mik-
ilvægasta tækið á spítalanum. Á
gjörgæsludeild liggja að jafnaði
veikustu sjúklingarnir og það seg-
ir sig sjálft hversu mikilvægt er
að geta jafnan fylgst vel með
þeim.
Lionsfélagar hafa komið við
sögu augndeildar áður. Þegar
augndeildin var stofnuð hér, 1970,
ríkti nánast neyðarástand á sviði
augnlækninga vegna skorts á
tækjum og aðstöðu. Lionsfélagar
stóðu þá fyrir landssöfnun og
framlag þeirra lagði grunninn að
þeirri starfsemi, sem hér er rekin
enn í dag. Gjöf þeirra nú gerir
spítalanum kleift að festa kaup á
fullkominni aðgerðarsmásjá og
opnast þannig leið til nýrra og
flókinna aðgerða á augum.
Hafi þessir aðilar, svo og hinir
fjölmörgu sem stutt hafa spítal-
ann á liðnum árum, alúðarþakkir
starfsfólks og sjúklinga.
Spítali er ekki bara hús, álma,
deild, rúm, tæki; spítali er fyrst og
fremst fólk sem beitir þekkingu og
reynslu til hjálpar öðru fólki. Það
hefur verið gæfa þessa spítaia að
hafa á að skipa vel menntuðu og
góðu starfsfólki. Kjarni starfs-
fólksiós í dag vann um árabil með
St. Jósefssystrum. Það er trú mín
að þannig hafi varðveitst nokkuð
af þeirri fórnarlund, dugnaði og
hagsýni sem systurnar voru svo
ríkulega gæddar. Það er von mín
að sá góði starfsandi sem systurn-
ar skópu og varðveist hefur fram á
þennan dag, fái að lifa áfram.
stærra en svo, að salurinn er á
stærð við stofu í stærra einbýl-
ishúsi. En gamla húsið verður
að víkja fyrir nýju, sem verið
er að byggja þar skammt frá.
Hefur, húsið verið notað til
kennslu fyrir börn í Álftafirði.
Undanfarin ár hefur ekki
verið haldinn neinn dansleikur
í þessu húsi. En nú ákvað
stjórn unmennafélagsins Stíg-
anda að haldinn skyldi dans-
leikur í haust. Var það og gert.
Voru boð látin ganga út frá bæ
til bæjar um að nú ætti að fjöl-
menna á harmoníkuball í Stíg-
anda. Dreif fólk að úr sveitinni,
frá Djúpavogi og úr Lóninu.
Þessi litli salur tekur ekki
mjög marga. En þröngt mega
sáttir sitja og komust flestir
að, þar sem menn sitja ekki
sætir og settlegir til lengdar í
sama sætinu, heldur þurfa að
ganga á milli og ræða við kunn-
ingjana um heyskapinn, horfur
á fallþunga dilka, hvort horfið
verði á vertíð í vetur og svo til
að dansa.
Sennilega hefur þetta ball
farið líkt fram og flestir aðrir
dansleikir, hvað varðar tilgang
og markmið. En þessum sér-
staka anda, sem er á stað sem
þessum, er ekki unnt að lýsa
nema menn komi og kynnist
honum af eigin raun. Þarna er
ekki yfirþyrmandi hávaði né
mikill fjöldi fólks eins og menn
upplifa yfirleitt í þessum stóru
samkomuhúsum, þar sem
sveitaböll eru haldin á sumrin.
Enda verða sem flestir að
koma til þess að dansleikurinn
beri sig. Tilkostnaður er svo
mikill.
P.Þ.
' •
Önnur flugvél Flugfélags Austurlands.
urlands hafa lagt kapp á aukið ör-
yggi i flugi. \ því sambandi hefur
yerið tekið upp eftirlits- og æf-
ingakerfi Flugleiða — sem gerir
strangari kröfur til þjálfunar
flugmanna en reglur Loftferðaeft-
irlitsins að sögn Jóhannesar
Fossdal, þjálfunarflugmanns fé-
lagsins. Kemur Jóhannes austur
til eftirlits og þjálfunar flug-
manna nokkrum sinnum á ári. Þá
hefur félagið haft flugvirkja í
þjónustu sinni hér á Egilsstöðum
undanfarin þrjú ár — sem fylgst
hefur grannt með vélakosti þess
— og verður það að teljast mikil-
vægt öryggisatriði.
Áætlunarferðir Flugfélags
Austurlands er mikil samgöngu-
bót í fjórðungnum og ómetanlegt
öryggisatriði að vita af tiltækri
flugvél og flugmanni innan fjórð-
ungsins ef þörf er sjúkraflugs.
— ÓUfur
Helmings farþega-
aukning hjá Flug-
félagi Austurlands
Kgilsstödum, 3. nóvember.
STARFSEMI EJugfélags
Austurlands hefur gengið vel
og áfallalaust að undanförnu.
Lætur nærri að farþegaflutn-
ingar félagsins hafi aukist
um 50% milli ára — auk þess
sem leiguflug hvers konar
hefur aukist verulega.
I vetur mun Flugfélag Austur-
lands fljúga þrisvar í viku til
Vopnafjarðar, Bakkafjarðar, Breið-
dalsvíkur og Hornafjarðar. Tvisv-
ar í viku er flogið til Reykjavíkur
gegnum Breiðdalsvík og Horna-
fjörð. Þá verður flogið fimm daga
vikunnar til Borgarfjarðar eystri.
Allar áætlunarferðir Flugfélags
Austurlands innan fjórðungs eru í
tengslum við áætlunarflug Flug-
leiða til og frá Egilsstöðum.
Forráðamenn Flugfélags Aust-
Talið frá vinstri: Jóhannes Fossdal flugeltirlitsmaður, Kolbeinn Arason flug-
maður og Kúnar Pilsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Austurlands.
Með Ajax þvottaefini
verður misliti þvotturinn alveg
jafii hreinn og suðuþvotturinn.
1. Skjanna-hvítur suðuþvottur
Ajax þvottaefni inniheldur virk efni sem ganga alveg
inn í þvottinn og leysa upp bletti og óhreinindi strax
í forþvottinum. Þannig er óþarft að nota sérstök for-
þvottaefni.
2. Tandurhreinn mislitur þvottur
Ajax þvottaefni sannar einnig ótvíræða kosti sína á
mislitum þvotti, því að hin virku efni vinna jafn vel
þó að þvottatíminn sé stuttur og hitastigið lágt.
Þvotturinn verður tandurhreinn og litirnir skýrast.
3. Gegnumhreinn viðkvæmur þvottur
Viðkvæmi þvotturinn verður alveg gegnumhreinn
því að hin virku efni vinnna jafnvel, þó að hitastig
vatnsins sé lágt. Blettir og óhreinindi leysast því
vandlega upp. Ajax þvottaefni hentar því öllum
■ þvotti jafnveí ...
Effektivt vaskepulver
til alle vaskeprogrammer
Lágfreyðandi Ajax þýðir: gegnumhreinn þvottur með öllum þvottakerfum.