Morgunblaðið - 10.11.1982, Síða 4
52
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1982
Datsun Nissan Sunny „Wagon“
Nýi Datsun Nissan Sunny-
bíllinn kominn hingað
Straumlínulagaðri og rúmbetri en forveri hans,
auk þess sem innréttingin er mun íburðarmeiri
Bílar
Sighvatur Blöndahl
SÁ nýjasti frá Datsun heitir
Nissan Sunny, en þar er á ferð-
inni nýr endurhannaður bíll,
sem i engu svipar til forvera
síns, nema nafnið. Um er að
ræða meðalstóran fjölskyldubíl,
sem er fáanlegur annað hvort í
„Saloon“ útfærslu, eða „Wag-
on“ útfærslu, en hægt er að fá
bílinn tvennra eða fernra dyra.
Auk þessa er svo hægt að fá bíl-
inn í „Coupe" útfærslu, tvennra
dyra. Wagon-bíllinn og Coupe-
bíllinn eru síðan með tiltölulega
stórri skuthurð.
Nýi Sunny-bíllinn er
straumlínulagaðri en forveri
hans, hefur vindstuðulinn á
bilinu 0,34—0,39 Cw, en sam-
kvæmt upplýsingum framleið-
enda minnkar þessi aukna
straumlínulögun benzíneyðslu
bílsins um 10—15%, en auk
þess er bíllinn með nýrri vél,
svokallaðri E-vél, sem er um
15% eyðslugrennri en sú
gamla.
Mælar eru óvenjulega stórir
Datsun Nissan Sunny „Saloon“
í bílinn hefur verið hannað
nýtt mælaborð, sem er mjög
frábrugðið því gamla. Stjórn-
tæki eru betur innan seilingar
fyrir ökumann, sem er mikill
kostur, auk þess sem mæla-
borðið hefur mun nýtízkulegra
yfirbragð en það gamla. Mæl-
ar eru tiltölulega stórir, þann-
ig að gott er að lesa af þeim.
Þá er sú nýjung í bílnum, að
hægt er að fá hann með vökva-
stýri, en beygjuradíus bílsins
er 4,5 metrar.
Sunny kemur fjögurra gíra
„Standard", en síðan er boðið
upp á fimm gíra kassa og
þriggja gíra sjálfskiptingu.
Bíllinn er framdrifinn.
Innrétting Sunny-bílsins er
annars mun íburðarmeiri en í
forvera hans. Hönnuð hafa
verið ný vandaðri sæti, sem
eru klædd skemmtilegu pluss-
áklæði. Lögð hefur verið
áherzla á að stuðningur sæt-
anna sé meiri en í eldri bíln-
um.
Úrvaliö er frá
Nú eru fyrirliggjandi hjá hjólbaróasölum um land allt Bridgestone
diagonal (ekki radial) vetrarhjólbaróar.
25 ára reynsla Bridgestone á islandi sannar öryggi og endingu.
Gerió samanburó á verói og gæöum.
á Islandi
BILABORG HF
Smiðshöfða 23, sími 812 99.
Hlöðubruni á
Skógarströnd
Siykkisholmi, 5. nóvember.
SÍÐDEGIS í gær kom upp eldur í
hlöóu á bænum Straumi á Skógar-
strönd. Fljótlega tókst að ráða niður-
lögum eldsins, en heyið er ónýtt og
hlaðan mikið skemmd.
Á Straumi er einbúi og var hann
ekki heima er eldurinn kom upp.
Vegfarendur, sem leið áttu hjá um
klukkan 17, urðu varir við að reyk
lagði upp úr hlöðunni. Gerðu þeir
slökkviliðinu í Stykkishólmi þegar
viðvart og brá það hart við og kom
þegar á staðinn. Tókst því að ráða
niðurlögum eldsins á milli klukk-
an 19 og 20, en tii að komast að
eldinum varð að rjúfa þak hlöð-
unnar. Allt heyið, um 50 til 60
hestar, mun ónýtt og hlaðan, sem
er gömul, mikið skemmd.
Bæði hlaða og hey voru óvá-
tryggð og er því tjón bóndans til-
finnanlegt. —Árni
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa sem lága!