Morgunblaðið - 10.11.1982, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1982
59
Lækkandi tekjur hafna
í ár vegna aflabrests
YFIRLIT UM AFKOMU HAFNANWA 1974-1983
Allar tekjur m.kr. Rekstur m. kr. Framlegð m.kr. Afb.♦veKtir m.kr. Afgangur m.kr.
’1974i 129.2 (100%) 70,"l (54*. 3%) 59,1 ♦ (45,7%) 77,5 (60,0%) - 18,4 (-14,3%)
1975: 214,1 (100%) 105,3 (49,2%) 108,8 (50,8%) ll5, 7 (54,0%) - 6 ,‘9 (- 3.2»)
1976: 310,0 (100%) 141,6 (45,7%) 168,4 (54,3%) 130,4 (42,1%) 38,0 ( 12,2»)
qkr. ■ 1977: 500.3 (100%) 207,3 (41,4%) 293,0 .(58,6%) 182,8(36,5%) 110,2 ( 22.1»)
1978: 721,0 (100%) 364,2 (50,5%) 356,8 (49>5%) 288,1 (40,0%) 68,7 ( 9.5»)
1979: 1.084,4 (100%) 477,9 (44,3%) 602,5 (55,7%) 377,3 (34,9%) 225,4 (20.8»)
L19B0i 1.672,0 (100%) 827,7 (49,5%) 844,3 (50,5%) 604,8 (36,2%) 239,5 (14,3«)
'1981: 23,43 (100%) 12,41 (53,0%) 11,02 (47,0%) 5,26 (22,4%> 5,76 (24,6»)
nýkr. 1982: á*t lun •31,44 (|pp.%) 19,09 (60,7%) 12,35 (39,3%) 6,21 (19,8%* 6,14 (19,5«)«
1903: vspá 48,Í3 (100%) 29,47 (61,1%) 18,76 (38,9%) 8,54 (17,7%)• 10,22 121,2*)*
AFKOMA hafnanna 15 árið 1981
varð heldur betri en spáð hafði ver-
ið, einkum vegna þess að sjávarafli
varð meiri á því ári. Greiðsluafgang-
ur nam 24,6% af heildartekjum. f ár,
1982, verða hins vegar heildartekjur
hafnanna 15 nokkru lægri en áætlað
var og stafar það af minnkun afla-
magns og fiskafurða. Þessar upplýs-
ingar kom fram í skýrslu um fjárhag
og gjaldskrár hafna árin 1981 og
1982 og spá fyrir árið 1983, sem lögð
var fram á 13. ársfundi Hafnarsam-
bands sveitarfélaga 2.-3. nóvember
sl.
Þá segir, að auk þessa sé sér-
þjónusta hafnanna víða rekin með
töluverðum halla og stafi það af
því að gjaldskráin hafi ekki fylgt
verðlagsþróun á undanförnum ár-
um. Vextir og afborganir af lánum
hafa minnkað hlutfallslega á und-
anförnum árum, en óvíst er hvort
framhald verður á þeirri þróun.
Tekjur Reykjavíkurhafnar árið
1981 voru heldur meiri en áætlað
var, en vöruumferð um höfnina
jókst nokkuð á árinu. Áhrif afla-
minnkunar eru lítil hjá Reykja-
víkurhöfn, þannig að reiknað er
með að tekjur hafnarinnar í ár,
1982, verði hlutfallslega svipaðar
og 1981 að því tilskildu að vöruum-
ferð minnki ekki. Hins vegar hef-
ur lánabyrði aukizt mjög hjá
Reykjavíkurhöfn og lækkar því
greiðsluafgangur hafnarsjóðs úr
yfir 30% 1981, niður í um 14% af
heildartekjum árin 1982 og 1983.
Samkvæmt áætlun er reiknað
með að greiðsluafgangur hafn-
anna 15 verði innan við 20% af
21% 1983, þrátt fyrir að ekki sé
reiknað með dráttarvöxtum og
greiðslum af vanskilaskuldum. I
skýrslu Hafnarsambandssins 1981
var við það miðað að greiðsluaf-
gangur hafnanna yrði ekki lægri
en 25% og hafði verið hækkað úr
20% vegna bættrar afkomu Akur-
eyrarhafnar. Samkvæmt yfirliti
um fjármögnun framkvæmda
veitir ekki af 25% greiðsluafgangi
þegar sjónarmið allra hafna eru
höfð að leiðarljósi.
Þó að gjaldskrá hafna hafi á
undanförnum árum dregizt aftur
úr þróun verðlags til að mynda
byggingarvísitölu, þá er að svo
stöddu ekki reiknað með í þessari
skýrslu, að hafnirnar bæti sér upp
tekjutap af minnkun afla með
hækkun á gjaldskrám umfram
verðlagsþróun. Hins vegar er það
lágmarkskrafa, að almenn gjald-
skrá haldi verðgildi sínu, segir
ennfremur í skýrslunni.
boo 2
ALMEN AFLAG BYGGIN ILDSKRÁ 1.FEB ÐAL AFLAGJALD N GJALDSKRÁ JALD HAFNA 700 ^ r* o C/1 3»
GJ> ME GARVÍSITALA R. 1976= 100 1978 =100 ( —f ... -i > r~
( 2 36.25) =100 J?j rJ r
-ir^ r "Í
S, T rn •100
zov. 35 V. 35V. 11 35% 9V. »V. i'i i »V. «•/. 17% I [ [ i, 15V. 11.68% 12 J% HÆKKANIR
°i1 76 1977 1976 1979 1980 1981 1982 1983 '9»‘ ÁR
Jöfur afhendir fyrsta Chrysler-bílinn. Haraldur Sigurðsson, sölustjóri Jöfurs,
afhendir Jóni Hannessyni Dodge Ramcharger-bíl með tilheyrandi viðhöfn.
Jöfur hf. tekur við
Chrysler-umboðinu
JÖFUR HF., sem flutt hefur inn
Skoda-bílana tékknesku og bíla frá
ítalska fyrirtækinu Alfa Komeo, hef-
ur nú tekið við ('hrysler-umboðinu
af Vökli hf., sem hefur hætt rekstri,
og mun þvi annast alla sölu Chrysl-
er-, Dodge- og IMymouth-bila hér á
landi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Jöfri eru þeir bílar, sem fylgdu
með í yfirtöku umboðsins til af-
greiðslu nú þegar, en þeir eru af
árgerðunum 1980,1981 og 1982.
Að undanförnu hefur fyrst og
fremst verið unnið að endurskipu-
lagningu viðgerða- og varahluta-
þjónustu þeirra bilategunda, sem
nú bætast við hjá Jöfri. Hafa í því
sambandi tekizt samningar um
sérstaka hraðþjónustu allra vara-
hluta.
Chrysler hefur átt velgengni að
fagna undanfarna mánuði, en á
þessu ári hefur verið nokkur
rekstrarhagnaður hjá fyrirtæk-
inu, eftir mikla erfiðleika síðustu
ára, en eins og kunnugt er hefur
bandarískur bilaiðnaður staðið
nokkuð höllum fæti undanfarin
ár. Uppgangur Chrysler að nýju
hófst reyndar árið 1980 með til-
komu hinnar svokölluðu K-línu
fyrirtækisins, sem notið hefur
mikilla vinsælda.
FIAT sækir á í Evrópu
FIAT er í fyrsta sæti evrópskra
bilaframleióenda í sölu á þessu ári,
en fyrstu átta mánuðina seldi
FIAT 811.000 bíla, sem er um
13,9% af heildinni. Til samanburð-
ar var markaðshlutdeild FIAT á
sama tíma í fyrra 13,7%, en þá
seldi fyrirtækið 806.000 bíla.
Söluaukning FIAT í Frakk-
landi fyrstu átta mánuðina var
um 28%, en alls voru seldir lið-
lega 60 þúsund bílar. Markaðs-
hlutdeild FIAT í Frakklandi var
tæplega 5%, samanborið við lið-
lega 4,2% á sama tíma í fyrra.
FIAT jók sölu sína í Vestur-
Þýzkalandi fyrstu átta mánuð-
ina um 3,3% á sama tíma og
bílasala almennt dróst saman
um 5% þar í landi. Alls voru 60
þúsund bílar seldir. Markaðs-
hlutdeild FIAT í Vestur-Þýzka-
landi var um 4,3% fyrstu átta
mánuðina, samanborið við 3,9%
i fyrra.
Söluaukning FIAT í Hollandi
var um 33% fyrstu átta mánuð-
ina.
ASIACO kynnir
nýjan lyftibúnað
ASIACO hf. kynnti á dögunum nýja
tegund af lyftibúnaði, sem fram-
leiddur er af brezka fyrirtækinu
l’ar.sons Chain ('ompany. Þessi bún-
aður er samsettur úr stálkeðjum,
sem eru sérhannaðar til að lyfta með
og eru notaðar í sivaxandi mæli, þar
sem vírstroffur voru áður notaöar.
Að sögn ASIACO-manna sóttu
fulltrúar fjölda fyrirtækja og
stofnana fundinn, en sérstakir
Söluskattur 38%
af tekjum ríkisins
FJÁRLAGAFRUMVARPIÐ fyrir árið
1983 gerir ráð fyrir, að innheimtur
söluskattur verði um 4.840 milljónir
króna og nemur þessi skattheimta
ta-plega 38% af áætluðum heildartekj-
um rikissjóðs það ár.
Áætlaður kostnaður ríkisins af
rekstri heilbrigðis- og trygginga-
ráðuneytisins árið 1983 er 4.892
milljónir króna, þannig að segja má
að lang stærsti tekjustofn ríkisins
hrökkvi rétt til að standa undir
kostnaði þessa eina ráðuneytis.
gestir voru tveir fulltrúar Parsons
Chain Company, sem sýndu
hvernig keðja er framleidd nú á
tímum og hinir ýmsu tengilásar
og krókar fyrir þær. Stálkeðjurn-
ar og tengilásarnir í lyftibúnaðin-
um nefnist Kuplex og úr því er
hægt að setja saman allskonar
lyftibúnað á skömmum tíma.
Allir hlutar Kuplex eru reyndir
í framleiðslu og er búnaðurinn því
afgreiddur með skírteini, sem
staðfestir leyfilegt vinnuálag.
Þá kom það fram, að öryggis-
stuðull Kuplex-kerfisins er *A, en
öryggisstuðull er hlutfall milli
burðarþols og leyfilegs vinnuá-
lags. ASIACO-menn bentu á, að
krafizt er að öryggisstuðull víra til
sömu notkunar sé 5/i eða 6/i.
Eftir kynningarfundinn var
fundarmönnum sýnt verkstæði og
birgðastöð fyrirtækisins á
Hrólfskálamelum á Seltjarnar-
nesi. Þar verður Kuplex-búnaður-
inn settur saman og afgreiddur.
Verkstæðið er búið fullkomnum
tækjum, en auk Kuplex-búnaðar-
ins mun ASIACO ennfremur
framleiða venjulegar vírstroffur.
Verðbólguhraði
5,3% í Svíþjóð
VÍSITALA framfærslukostnaðar
hækkaði um 0,3% í Svíþjóð i septem-
bermánuði, en hún hefur þá hækkað
um 7,3% á síðustu tólf mánuðum.
Verðbólj'uhraðinn á tíinabilinu júlí til
seplember var í kringum 5,3%. í Sví-
þjóð, en var til samanburðar um 4,7%
á sama tíma í fyrra.
Iðnaðarframleiðsla var um 4%
minni í ágústmánuði í Svíþjóð en á
sama tíma í fyrra.
Um 45,7% magn-
söluaukning
hjá Holtakexi
SALA Kexverksmiðjunnar llolts jókst
um 45,7% í magni talið fyrstu níu
mánuði ársins, samkvæmt upplýsing-
um í nýjustu Sambandsfréttum. í ár
er salan frá ársbyrjun til september-
loka 34.606 kassar, samanborið við
24.718 kassa á sama tíma í fyrra.
Þá kemur fram í Sambandsfrétt-
um, að á þessu ári hafi byrjað sala á
Holtakexi til Færeyja, og eru nú
reglulegar afskipanir þangað í
hverjum mánuði. Það sem af er ár-
inu nemur útflutningurinn 1.420
kössum.