Morgunblaðið - 10.11.1982, Qupperneq 22
70
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1982
Járnsíðan heimsækir stórstjörnur bárujárnsrokksins:
„Þú myndir
aldrei
spyrja
Pétur Pan
að aldri“
ekki svo stórt um sig og viö
reynum auövitaö aö ná til sem
flestra. Viö erum með gríöarlega
mikinn sviösbúnaö meö okkur,
Ijós og annað, þannig aö viö get-
um hreinlega ekki leikiö í hvaöa
húsi sem er. Viö komum hér eitt
sinn og vorum þá harkalega
gagnrýndir fyrir aö skila ekki því
frá okkur, sem viö haföi veriö
búist. Viö uröum aö skera niöur
Ijósa- og hljómburöartækin aö
verulegu leyti til aö komast fyrir í
sumum húsanna. Þá var fólk
óánægt og sagöi sem svo, aö
Angus Young og Brian Johnson í AC/DC
teknir tali á Holiday Inn-hótelinu í Glasgow
„Viö erum búnir að bíða eftir ykkur í meira en
klukkutíma,“ sagði lan Jeffery, tónleikaferða-
lagsstjóri (tour manager), þegar Brian John-
son, söngvari AC/DC, drattaðist loks á Holiday
Inn-hótelið í Glasgow ásamt bassaleikaranum,
Cliff Williams. Þeir Phil Rudd, trommuleikari,
og Malcolm Young, gítarleikari, voru hins veg-
ar hvergi sjáanlegir. Voru þó ekki nema rúmir
tveir tímar þar til þeir áttu aö fara á svið.
Þaö sannaöist rétt eina ferö-
ina, aö popþtónlistarmenn eru
ekki þeir stundvísustu í heimin-
um fremur en blaöamennirnir.
Ég var á nálum um aö missa
hreinlega af viðtalinu viö þá
kappa eftir aö koma klukku-
stund á eftir boöuöum tíma til
Glasgow. Þaö kom hreint ekki
aö sök þvi Angus Young var þá
sá eini í hljómsveitinni, sem látiö
haföi sjá sig. Eftir 80 mínútna biö
til viðbótar áöurnefndum
klukkutíma gat viötaliö loks haf-
ist.
Gengid vel
„Þetta hefur gengiö fínt hjá
okkur, aðdáendurnir hafa verið
frábærir,“ var þaö fyrsta, sem
Angus Young, höfuöpaur
AC/DC, sagöi er Járnsíðan
ræddi viö hann og söngvara
hljómsveitarinnar, Brian John-
son, á hótelherbergi þeirra á
hinu glænýja Holiday Inn-gisti-
húsi i Glasgow.
Fyrri tónleikar sveitarinnar í
Glasgow á hljómleikaferöalagi
hennar um Bretland áttu aö hefj-
ast eftir rúma tvo klukkutíma, en
samt var engan asa aö sjá á
þeim kumpánum. Þeir gáfu sér
góðan tíma til aö spjalla og þaö
var ekki fyrr en leiðinlegur og
frekur umboösmaður þeirra
benti á aö tími væri kominn til aö
henda blaðamanninum út, að
þeir létu deigan síga. Áður en til
þess kom haföi spurningaflóöiö
duniö á þeim kumpánum og
svörin fara hér á eftir.
Þiö hafið verið gagnrýndir í
blöðum fyrir að leika á færri
stööum en áður og jafnframt í
stærri húsum. Fólk hefur það á
orði, að þið séuð orðnir svo
merkilegir með ykkur að þið
nenniö ekki aö leggja leið ykkar
á smærri staðina, en viljiö bara
græða sem mesta peninga á
sem skemmstum tíma.
segið þið um þetta?
Osanngjörn gagnrýni
„Ég hef ekki lesiö þessi blöö,“
svarar Angus strax og hlær.
Hann bætir síðan viö ögn alvar-
legri í bragöi: „Þaö er erfitt aö
segja til um þetta. Ég held aö
þetta sé ekki rétt. Bretland er
Hvaö
Angus Young
eins og hann
kemur klæddur
til dyranna.
þaö heföi veriö svikiö. Viö hefö-
um ekki staöiö okkur í stykkinu.
Nú þegar viö reynum aö koma
betur til móts viö þaö er þaö líka
óánægt. Hvernig eigum viö aö
gera þessu liöi til geðs,“ segir
hann og hlær.
„Málið er bara þaö, aö viö er-
um aö reyna aö ná til fleira fólks
en síöast. Fólki hættir til aö
gleyma þessu þegar upp er staö-
iö,“ bætir Brian Johnson inn í.
„Sjáöu bara til, viö leikum hér í
Appollo-leikhúsinu. Þetta er ekki
stór staöur. Viö lékum líka í
Newcastle City Hall þrjú kvöld í
röö. Viö heföum svo vel getaö
sagt, aö eitt kvöld nægöi þeim,
en viö gerðum þaö ekki. Viö höf-
um núna líka leikið í borgum eins
og Edinborg og Leeds. Viö höf-
um t.d. aldrei leikiö þar áöur,
a.m.k. ekki í Leeds. Kannski í
Edinborg fyrir mína tíö í AC/DC.
Viö tókum líka írland meö í
reikninginn og þaö eru sko ekki
margar hljómsveitir, sem muna
eftir írlandi þegar þær koma
hingaö.“
Óbreytt viðhorf
Þaö er þá ekki um þaö aö
ræöa aö frægðin hafi breytt
viðhorfum ykkar til aðdáend-
anna, eins og svo oft vill verða?
„Nei, alls ekki, því fer fjarri. Þú
getur fengiö okkur til aö leika
fyrir 14 manns ef út í þaö er far-
iö. Það er nú kannski ekki alveg
rétt, en viö leikum stundum dá-
litiö viö okkur sjálfa. Nei, hann
var annars nokkuö dónalegur
þessi, var þaö ekki? Nei, í alvöru
talaö, þessi gagnrýni á okkur er
ekki réttmæt. Annars er þetta
alls ekki rétt, aö við leikum bara
á stóru stöðunum.“
Veröiö þið aldrei þreyttir á
þessum sífelldu ferðalögum?
„Nei, ekki svo mjög. Þetta er
alls ekki slæmt hérna í Englandi.
Landiö er ekki svo stórt. í
Bandaríkjunum getur þaö tekiö
heila sex mánuöi aö fara um allt
og leika. Þaö er svo rosalega
stórt land.“
Fólk hefur velt því mikiö fyrir
sér hvað þaö er í rauninni, sem
heldur ykkur gangandi á þess-
ari keyrslu allan þennan tíma.
Neyðist þið ekki til aö taka ein-
hver örvandi lyf, t.d. amfeta-
mín, til að hreinlega hafa orku í
hverja tónleikana á fætur öör-
um?
Peningar, maður,
peningar
„Hvaö heldur okkur gang-
andi? Peningar, maður, pen-
ingar,“ segir Angus og hlær.
„Nei, ég treysti ekki á slíkt,“
segir Brian Johnson. „En mér
finnst gott aö fá mér í glas. Þaö
kann ég aö meta og yröi fyrsti
maöur til aö viðurkenna. Þaö er
ekkert eins gott og aö fá sér í
glas, t.d. rétt fyrir tónleika. Ég er
alltaf drullunervös. Maöur slapp-
ar vel af viö aö fá sér smádreitil."
Vissuö þið, að við á íslandi
búum við algert bjórleysi?
„Ha, hvaö segiröu, maöur,"
segir Brian.
„Ég myndi kunna fínt viö mig
þar. Ég drekk ekki einu sinni
bjór,“ segir Angus. „Mér nægir
alveg að fá te.“
„ísland," segja þeir samtímis
og skellihlæja svo. „Heyröu, þaö
væri nær aö viö spyröum þig
eitthvaö um island. Viö höfum
aldrei komiö þangaö."
„Ég veit eitthvað um ísland,"
segir Angus. „Þaö er eitthvaö af
óvirkum eldfjöllum þar. Heitir
ekki eitt þeirra Snæfells? Nú, var
þaö Snæfellsjökull. Þetta er svo
langt og erfitt nafn aö muna. Ég
las um þaö í bók Jules Verne
„Journey to center of the earth“.
Ég var vanur aö liggja í bóka-
safninu í skólanum. Ég man aö
ég leitaði uppi bækur um ísland
eftir aö ég las þessa bók. Ég var
algert kortafrík á þeim árum og
teiknaði fjársjóöskort allan liö-
langan daginn.“
Vitiö þiö þá nokkuð hversu
margír íbúar búa þar?
„Neibb, ekki hugmynd. Hvaö
segiröu! Ekki nema 230.000
manns. Svakalega hlýtur aö vera
kalt hjá ykkur,“ segir Brian John-
son skelkaður í meira lagi. .
Með víkingablóð
í æðum
„Þú mátt ekki gleyma því,
Brian, aö þetta er harögert fólk.
Þetta er allt meö víkingablóö í
æðum og þaö voru þeir sem
fundu Ameríku.“
Þaö var engu líkara en Brian
Það er eins gott aö vera ekki fyrir Angus Young, þegar hann tekur á rás...
... þegar best lætur tekur hann
nokkra hringi á bakinu og sleppir
aldrei úr takti.