Morgunblaðið - 21.11.1982, Page 28
76
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1982
3AYERN MUNCHEN
12. maí 1976 var dagsetning úr-
slitaleiks Evrópubikarkeppni
meistaraliða milli Bayern Mún-
chen og „Saint-Etienne“ og skyldi
hann háður í Glasgow. Vestur-
Þjóðverjarnir lögðu upp til skosku
Norðursjávarsíðunnar þar sem
þeir áttu möguleika á að ná 1. sæti
í keppninni þriðja árið í röð.
Tvær Rolls Royce-bifreiðir við
innganginn gáfu til kynna að fleiri
tignir gestir væru á hótelinu. Jú,
eigendurnir voru engir aðrir en
meðlimir hinnar frægu hljóm-
sveitar Roiling Stones og meðal
áhorfenda á síðustu æfingum
hljómsveitarinnar fyrir hljómleik-
ana voru Franz Beckenbauer og
Gerd Muller.
„Þið vinnið þennan leik piltar,"
voru kveðjuorð Mick Jaggers til
heiðursgesta sinna. Hann hafði
rétt fyrir sér. Hins vegar, eftir á
að hyggja, hefði verið vel við hæfi
að hljómsveitin hefði hyllt bik-
armeistarana með einu af sínum
vinsælu lögum, „The Last Time“.
Með sigrinum, 1—0, á Hamp-
den-leikvelli urðu Bayern Mún-
chen Evrópumeistarar í þriðja
skiptið á þremur árum. Sú þrenna
er reyndar það eina sem liðið get-
ur státað af á hnignunarskeiði því,
sem hafði hrjáð félagið allt frá
sumrinu 1974.
Þrátt fyrir að hin' forna frægð
fylgdi þeim ekki lengur, lifði þó
enn goðsögnin um að „Bayern
Múnchen tapar aldrei úrsiitaleik".
Þegar þessi holskefla erfiðleika
herjaði á félagið duldist þó engum
aö uppúr gnæfði risi tengdur
mörgum stórsigrum, meistaratitl-
um, vonbrigðum og erfiðleikum.
Þrátt fyrir fórnir og skrámur og
misjafna stjórnun félagsins er
óiíklegt að nokkurn tíma verði lit-
ið á Bayern Múnchen öðru vísi en
sem stórstjörnu á sviði vestur-
þýskrar og evrópskrar knatt-
spyrnu.
N ýgræðingur inn
Það er því dálítið mótsagna-
kennt að einmitt í Munchen er lið-
ið kailað nýgræðingurinn saman-
borðið við erkifjendurna „1860
Múnchen“. Og þrátt fyrir þá stað-
reynd að Bayern Múnchen hefur
síðustu fimmtán árin staðið óvin-
unum, sem rokkar á milli 1. og 2.
deildar, mun framar á knatt-
spyrnusviðinu, hefur „1860
Múnchen“ — almennt kallað ljón-
in — enn þann dag í dag mun
fleiri áhorfendur á leikjum sínum
en Bayern Múnchen.
Þetta stafar af sögulegum
ástæðum: „1860 Múnchen" hefur
frá alda öðli verið talið hið sanna
Munchenarlið, sem hefur á að
skipa mörgum leikmönnum frá
verkamannahverfinu Giesing.
Á hinn bóginn varö Bayern
Múnchen til í Latínuhverfinu
Schwabing sem tilheyrði þá — ár-
ið 1900 — ekki borginni sjálfri
heldur var það í besta falli talið
úthverfi. Bayern Múnchen höfðaði
því aðallega til listamanna,
námsmanna og lærðra utanað-
komandi manna.
Enginn á meiri hlutdeild í vel-
gengni Bayern Múnchen hin
seinni ár en Franz Bechenbauer.
„Bayern hefur alltaf haft orð á
sér fyrir að vera skipað snjöllum
og virtum knattspyrnumönnum,"
segir hann. „Félagið kom frá
Schwabing; hverfi sem við strák-
arnir áttum ekki heima í, sem var
þekkt fyrir krár, veitingahús og
sérstakt götulíf," segir Franz
ennféemur.
Árið 1932, löngu áður en nokkur
var farinn að hugsa um Franz
Beckenbauer, varð Bayern Mún-
chen í frysta skipti þýskur meist-
ari. En þá kom til kasta nasist-
anna og þeir eyðilögðu það sem
búið var að byggja upp, m.a. þar
sem hinn vinsæli forseti félagsins,
Kurt Landauer, varð að flýja til
Sviss árið 1933. Hann kom ekki til
baka fyrr en 14 árum seinna.
Svo margir úr hópnum voru
kallaðir í herinn á stríðsárunum
að Bayern Múnchen þurfti að slást
Hinn glæsilegi Ólympíuleikvangur i Miinchen er heimavöllur liðsins. Þar hefur lidið marga hildi háð i gegnum árin.
„Ókeypis bjór
handa ölhun“
Beckenbauer og félagar unnu sína stærstu sigra á alþjóðavettvangi
einmitt þegar mikil ólga og deilur geisuðu undir yfirborðinu.
„Skítafélag“ kallaði Paul Breitner það þegar hann fór til „Real
Madrid“ árið 1974; nú er hann fyrirliði og sterkur liðsmaður í
Bayern Munchen, þar sem í dag ríkir góður andi og útlit er fyrir
bjarta framtíð á knattspyrnubrautinni.
í hóp með tveimur minni liðum til
að halda velli.
Eftir striðið tókst þeim að ná
saman á ný f>g eflast og 1948 fékk
liðið sína eigin aðstöðu, þótt ekki
væri hún tilkomumikil, í útjaðri
borgarinnar, og árið 1971 vígði fé-
lagið viðbyggingu, sem þeir eru
enn mjög hreyknir af. Heimavöll-
ur þeirra — einnig heimavöllur
„1860 Múnchen" — var leikvang-
urinn við Grunwaldergötu.
Árið 1963 fékk Bayern Múnchen
afsvar við beiðni sinni um inn-
göngu í hina nýju þýsku knatt-
spyrnudeild „Bundesliguna", m.a.
vegna þess að „1860 Múnchen" var
þar sjálfkjörið sem suður-þýskur
meistari og ekki þótti við hæfi að
taka tvö lið frá sömu borg inní
deildina. Seinna neyddist deildin
til að endurskoða þá afstöðu sína.
Wilhelm Neudecker, hinn ný-
kjörni forseti Bayern Múnchen,
lagði grunninn að því stórveldi
sem liðið átti eftir að verða. En þá
þurfti að finna þjálfara fyrir hina
snjöllu og hæfileikamiklu leik-
menn. Fyrir valinu varð hinn
þrekvaxni Júgóslavi, Tschik
Cajkoski, en vaxtarlag hans bar
síður en svo vott um að hann, tæp-
um tíu árum áður, hafi sjálfur
verið í eldlínunni; átti 56 lands- <
leiki að baki og þátttöku í heims-
meistarakeppni.
Um svipað leyti hafnaði ungur
piltur að nafni Franz Beckenbauer
í úrvalsliði Bayern Múnchen.
í leik milli „1906 Múnchen", sem
Franz Beckenbauer lék í sem
drengur, og „1860 Múnchen" veitti
miðherjinn í liði andstæðinganna
hinum unga Beckenbauer löðrung.
Það varð til þess að hann lagði
niður öll áform um að ganga í lið
með „1860 Múnchen", en valdi þess
í stað FC Bayern Múnchen.
Hálmstrá og rjómi
„Við hlógum, við grétum af
hlátri að þessum skemmtilega
manni, sem bjó yfir svo mikilli
kímnigáfu." Cajkovski var okkur
sem faðir og var á þessum árum
miðdepillinn í óþvinguðu and-
rúmslofti, bæði í leikjum og á æf-
ingum,“ segir Franz Beckenbauer.
Á sinni bjöguðu þýsku lýsti Caj-
kovski Beckenbauer þannig: „Eng-
inn baráttumaður, en hálmstrá,
rjómi í stað steinsteypu."
En hann átti við önnur vanda-
mál að stríða í sambandi við Ger-
hard Múller, þrælsterkan mið-
herja frá „Nördlingen“ í norður-
hluta Bæjaralands. „Hverju á ég
að stilla upp með þessum lyft-
ingamanni?" sagði Cajkovski, sem
setti Gerd Múller á megrunarkúr
án þess að það kæmi nokkuð niður
á þreki „kraftajötunsins".
Múller missti 12 kg og skipaði
fljótt háan sess í sögu knattspyrn-
unnar sem markakóngur.
í markinu stóð ungur snillingur,
Josef Maier, kallaður Sepp, sem
reyndist ekki einungis snjall
markmaður heldur einnig hinn
besti skemmtikraftur af Guðs náð.
í annarri tilraun Bayern
Múnchen árið 1965 tókst þeim að
komst í „Bundesliguna", ásamt
með öðru liði sem átti eftir að gera
garðinn frægan í vestur-þýskri
knattspyrnu „Borussia Mönch-
engladbach".
Þátttakendur í
Evrópukeppni
Bayern Munchen hóf feril sinn í
deildinni með því að tapa, 1—0,
fyrir „1860 Múnchen". Tíu mánuð-
um síðar höfnuðu þeir í 3. sæti, en
borgarbörnin hrepptu meistara-
titilinn.
I sárabætur urðu Beckenbauer
og félagar verðlaunabikarhafar og
áunnu sér þar með rétt til þátt-
töku í alþjóðakeppni.
Bak við tjöldin var einnig margt
að gerast hjá Bayern Múnchen og
vakti það athygli er liðið réði til
sín sinn fyrsta framkvæmda-