Morgunblaðið - 21.11.1982, Síða 35

Morgunblaðið - 21.11.1982, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1982 83 Vasinn eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal, elsti íslenski gripurinn á listiðnaðarsýningunni í Cooper- Hewitt-safninu i New York, gerður 1937. Þessi sami vasi var einnig sýn- ingargripur á heimssýningunni í New York 1939. Stóll eftir Svein Kjarval er einn af íslenzku sýningargripunum í New York, en þar eru 20 munir eftir 15 íslenzka listamenn. Keramikskál eftir Gest og Rúnu á listiðnaðarsýningunni í New York. Hvað um það, við erum með í myndinni og höfum orðið vör við vilja annarra Norðurlandabúa til að hafa okkur með.“ — Hinir eiga lengri sögu, sem hefur ugglaust komið fram. „Það er rétt. Þegar þeirra listið- naður fer að þróast skipulega í Svíþjóð 1845 og í Finnlandi 1875, má segja að hér hafi verið kominn afturkippur t.d. í heimilisiðnaði. Það sem gerist í þessum málum fyrir aldamót í Skandinavíu, verð- ur ekki hjá okkur fyrr en eftir seinni heimsstyrjöldina. Þá fyrst koma fram menntaðir listiðnað- armenn, sem fara að hanna hluti og forma umhverfi og sinna því sem aðalstarfi. Áður höfðu komið fram einstakir frumherjar, sem voru á undan sínum tíma og liðu kannski fyrir það. Má þar nefna Guðmund Einarsson frá Miðdal, sem setti á stofn fyrsta leirmuna- verkstæðið á árinu 1927. Elsti hluturinn frá Islandi á sýningunni í New York var einmitt vasi, sem hann gerði 1937—1939. Sá vasi var sýndur á heimssýningunni í New York 1939.“ Varðveizla list- muna brýn — Er eitthvað til af slíkum munum enn og hvar finnið þið þá? Lampi, sem bæði má nota í loft og á veggi. Hönnuður Stefán Snæ- björnsson. hvernig ýmiskonar hönnun kemur við sögu öryggisbúnaðar, og hönn- un almenningssvæða. Á þessu málþingi voru flutt tvö erindi frá Islandi: Andrés Svanbjörnsson verkfræðingur hélt erindi um nýt- ingu jarðvarmans og á hvern hátt nýting hans hefur áhrif á nánasta umhverfi manna á íslandi. Sjálfur fjallaði ég svo mjög almennt um hönnun hér eða öllu heldur hvers konar verkefni íslenzkir hönnuðir ættu við að glíma. Reyndi að leiða líkur að því að vandamálin eru í raun hin sömu og hjá öðrum, sem jafnvel búa við mildari ytri að- stæður, Munurinn er fyrst og fremst í stærðargráðu eða ein- ingafjölda. Þetta málþing stóð í 3 daga, fyrst voru flutt söguleg erindi, þar sem framsögu höfðu tveir fyrirle- sarar frá hverju Norðurlanda. En á lokadegi fóru svo fram hring- borðsumræður undir kjörorðun- um: „Design in Public Interest", sem kalla má „Hönnun í almenn- ingsþágu", en Bandaríkjamenn mega ekki heyra nefnt „Social Design“ sem skandínavar kalla það, en það er í raun það sama. Fimm Bandaríkjamenn og 5 Norð- urlandabúar tóku þátt í þessum hringborðsumræðum og var ég einn af þeim. Erindin byggðust öll upp á litskyggnum og undirtektir voru mjög góðar.“ Ein kúrfan vísar upp — Svo við lítum okkur nær, Stefán. Hvað ert þú sjálfur að gera núna, þegar þessum áfanga er að ljúka? „Nánast ekki neitt, eftir svona spennu er úr manni allt loft. Að vísu er þessu ekki lokið af minni hálfu, því ég hefi verið beðinn um að halda erindi um íslenzkan list- iðnað í sambandi við opnun sýn- ingarinnar í Washington. Sem betur fer er heilmikið að gerast á þessu sviði," heldur Stef- án áfram, „og ánægjulegt að fylgj- ast með því. Það sem ég held að sé einna mikilvægast er að yfirvinna einhvern meðfæddan minnimátt- arkomplex. Minnimáttarkomplex sem sýnir sig m.a. í því að allt sé gott sem kemur frá útlöndum, og að þess vegna sé betra að fjárfesta í erlendri hönnun fyrir okkar iðn- að, en að styðja við bakið á þeirri íslenzku. Hér má ekki gleyma því sem vel er gert og hvetjandi á þessu sviði, t.d. eins og samkeppni Sparisjóðs Reykjavíkur nú nýver- ið um iðnhönnun. En ég saknaði þess t.d. að ekki skyldi leitað til starfandi íslenskra hönnuða við mótun samkeppninnar eða í dóm- nefnd og ég held að þó að þetta frumkvæði Sparisjóðsins sé með merkilegri tímamótum á sinn hátt, þá hafi útboð samkeppninn- ar verið „ubegriplig" fyrir flesta SJÁNÆSTU SÍÐU. Unnið sð uppsetningu Ijósabúnaðar i Hótel Borgarnesi, en þar befúr Stefán Snæbjarnarson hannað innréttingar í samvinnu við Sigurð Thoroddsen, arkitekt hússins. Félag húsgagna- og innanhússarkitekta hefur síðan 1%5 verið aðili að alþjóðasamtökum innanhússarkitekt IFI, og jafnframt tekið þátt i samstarfi félaga innanhússarkitekta á Norðurlöndum, sem árlega hafa sameiginlegan fund um málefni stéttarinnar. Stefán hefur oft verið fulltrúi félags síns á slíkum fundum, hér í Helsinki 1981. Á myndinni má sjá meðal annarra prófessor Athi Taskinen, Stefán, Agnetu Liljedal sem er formaður alþjóðasambandsins og Christjan Enevoldsen frá Danmörku. „Varðveizla á slíkum gripum er stórmál og því miður tilviljunum háð hvað varðveitist," segir Stef- án. „Við leituðum í þessu tilfelli til ekkju Guðmundar, sem hefur varðveitt nokkra góða muni, sem hún lánaði okkur góðfúslega. Það er í rauninni orðið fráleitt að eng- inn skuli taka sig til og varðveita slíkt. Það er orðið fyllilega tíma- bært að koma upp listiðnaðarsafni og oft verið á það bent. Þetta hef- ur maður rekið sig á í sambandi við val muna á sýningar." — Það er þá ekki auðhlaupið að því að finna sýningarmuni? „Það gefur auga leið að undir- búningur okkar við að velja þá fáu muni, sem eru á sýningunni í New York, var miklu erfiðari og meiri en annarra Norðurlandamanna, sem geta sótt alla sína sýningar- muni á söfn. Við þurfum að semja við einstaklinga og listiðnaðar- fólk, sem í mörgum tilfellum veit ekkert hvað orðið hefur af gripum sínum. Það er heldur ekki þakk- látt verk að gefa fólki til kynna möguleika á vali, sem síðan renna út í sandinn." — Þú nefnir fáa muni frá ís- landi. Var hlutur okkar mjög lít- ill? „Vissulega heyrist sagt um hin- ar ýmsu sýningar í sambandi við kynninguna „Scandinavia Today“ að okkar hlutur væri ekki sem skyldi. Það fer eftir því hvert mat við leggjum á það. En ég held að á þessari sýningu megupi við mjög vel við una. Bendi á að þeir munir, sem sýndir eru þar frá Islandi, eru allir að undanteknum nefndum vasa, gerðir eftir 1953. Við eigum þarna um 20 sýningarmuni eftir 15 listamenn. Ef miðað er við heildartölu sýningarmuna, sem ná yfir 100 ára sögu, þá held ég að við séum allvel kynnt á þessum sein- ustu áratugum. Þessir sýningar- munir okkar ná til allra sviða list- iðnaðar. Þar er keramik og postu- lín, gler, vefnaður, húsgögn, ljósa- búnaður og skartgripir, en mjög lítið um mjög tæknilega hönnun. Ég er semsagt mjög ánægður með útkomuna, fyrir utan sýningar- tæknilega fyrirvara vegna hússins sjálfs, sem ég nefndi áðan. Ég held að ég verði að koma her að þeirri staðreynd að val þessara 20 muna á sýninguna var ekki framkvæmt á einum degi og alls ekki þannig að mér verði þakkað eða kennt um,“ skýtur Stefán inní. „Það er Ijóst að undirbúningurinn hefur kostað nokkuð fé og það má gjarnan koma fram að það var ið- naðarráðuneytið, sem beitti sér fyrir fjármögnun undirbúnings- ins. Eins að valinkunnir menn í forystuliði iðnaðarins tóku þátt í undirbúningi þessarar sýningar og að útflutningsmiðstöðin annað- ist fyrirgreiðslu og aðstoð í þessu sambandi." — Og hvernig voru undirtektir? „Það er látið vel af aðsókn. Starfsmenn safnsins í New York segja að um 2.000 manns skoði sýninguna um hverja helgi og nokkur hundruð manns komi þar virka daga.“ Vegleg bók og málþing Auk þess sem mikill fjöldi Bandaríkjamanna kynnist nor- rænni listiðn með því að koma á sýningarnar þrjár, í New York, St. Paul í Minnesota og Washington, þá hefur fylgt sýningunum ýmis- konar önnur kynning. M.a. bók um norræna listiðn í 100 ár, sem er veglegt verk og mik- ið myndskreytt. Við biðjum Stefán að segja okkur nánar frá henni: N „Auk sýningarskrár hefur verið gefin út mjög vegleg bók, sem telj- ast verður miklu fremur söguleg heimild en sýningarskrá. David McFadden hefur ritsýrt bókinni, en ýmsir listfræðingar og safn- menn á Norðurlöndum hafa skrif- að í hana veigamiklar greinar, sem spanna hin ýmsu tímabil í þróun listiðnaðar. Ég var beðinn um að skrifa grein í greinaflokk sem fjallar um viðhorf hverrar þjóðar í nútímanum til listiðnað- ar. Þessi bók er stór, nær 300 bls. og mikið myndskreytt. Mynd af hverjum hlut sem er á sýningunni og kynning á höfundum. Þetta er vönduð og vegleg bók og það sem eftir stendur eftir þessa sýningu, þegar upp er staðið.“ — Sýningin vpr líka tilefni um- ræðna, var það ekki? „Sem fyrr segir var þessi sýning sögulegs eðlis. En til þess að koma nútímanum að, gekkst Cooper- Hewitt-safnið fyrir málþingi í Guggenheim Auditorium undir kjörorðunum „Scandinavian De- sign Now“. Þar var, auk þess sem rætt var um sýninguna, fjallað um afmarkaða þætti, svo sem hönnun á samgöngukerfum, hönnun fyrir hreyfihamlaða, öryggismál og

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.