Morgunblaðið - 21.11.1982, Side 46
94
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1982
Hver springur fyrst?
Á KSS-fundi.
Héðan og þaðan ...
Daglega heyrum við fréttir af
hinni islömsku ógnarstjórn í
íran. Á yfirborðinu bendir
margt til þess, að þjóðin sé
ekki alsæl í aðstæðum sínum.
Og undir niðri er óánægja og
leit manna að lífssannindum.
Breskir aðilar hafa staðið fyrir
biblíusendingum þangað aust-
ur. Á stuttum tíma seldust yfir
30.000 eintök af Nýja testa-
mentinu. Er það aðeins lítið
dæmi um vaxandi áhuga Irana
á kristinni trú, því íslamska
byltingin virðist ekki hafa leitt
til þess sem til var ætlast í
upphafi ...
f Sovétríkjunum hefur verið
þrengt að trúuðum kristnum
mönnum með ýmsum hætti
allt frá byltingunni. Leiðtogar
hinnar óskrásettu baptista-
kirkju þar í landi segja, að sl.
hálfa öld hafi meira en
1.000.000 af Biblíum og Nýja
testamentum verið tekið af
meðlimum kirkjunnar og tífalt
meira af öðrum kristilegum
bókum og ritum. Þetta er liður
í trúleysisboðun ríkisvaldsins
í sama riki komst sl. vor upp um
leynilega bókbandsstofu sem
var í þann mund að fara að
binda inn nýprentað upplag
leynilegra prentaðra Biblía.
Eigandi hússins og fimm aðrir
voru handteknir. Verði þeir
sekir fundnir um útgáfu hinn-
ar ólöglegu bókar, eiga þeir
yfir höfði sér a.m.k. þriggja
ára fangelsisvist og líklega
eignamissi í ofanálag. Þrátt
fyrir það halda kristnir menn í
Sovétríkjunum áfram á sömu
braut, og nýir koma í stað
þeirra, sem upp kemst um ...
í llganda hefur starf kristinnar
kirkju blómgast upp á síðkast-
ið og meðlimafjöldi margra
safnaða tvöfaldast á stuttum
tíma. Þetta leiðir til mikillar
eftirspurnar á Biblíum, langt
fram yfir framboð. Margir
skólar hafa óskað þess, að
nemendur hafi hver sína Bibl-
íu, en enn er langt í að Biblíu-
félagið þar í landi hafi bol-
magn til að útvega svo mörg
eintök hennar ...
Þótt þrengt sé að kristnum
mönnum og dreifingu Biblí-
unnar á mörgum stöðum, eru
einnig til góðar fréttir í því
sambandi. T.d. hafa verið felld
úr gildi lög sem bönnuðu inn-
flutning á Biblíum til Malays-
íu. Er þar um að ræða Biblíur á
opinberu máli landsmanna.
Bannið hafði komið til af því,
að í þýðingunni var nafnið
„Allah" notað um Guð, og það
sættu múslímar sig ekki við.
En nú er því aflétt vegna
þrýstings annars staðar frá
meðal þjóðarinnar ...
Meðal kristinna manna í hinum
rangnefnda „þriðja heirni" er
mjög að aukast áhugi á kristni-
boði. Nú eru þar a.m.k. 390
kristniboðsfélög og á vegum
þeirra starfa meira en 15.000
kristniboðar. Þess má geta, að
þessi fjöldi kristniboða er
meira en fjórfaldur sá fjöldi er
starfaði á vegum sömu félaga
fyrir aðeins átta árum ...
Norömenn hafa þegar safnað
einni milljón þarlendra króna
til byggingar kristilegrar mið-
stöðvar í Jerúsalem og ætla að
safna 800.000 kr. í viðbót.
Kristnum mönnum fjölgar í
ísrael og því telja aðstandend-
ur kristniboðs meðal Gyðinga
þörf á miðstöð til uppfræðslu
og uppbyggingar nýkristnum.
Er ætlast til, að fræðslustarfið
nýtist kristnu söfnuðunum
gegnum starfsmenn þeirra, er
sæki námskeið miðstöðvarinn-
ar. Að sjálfsögðu er kennt á
hebresku ...
Lesist af unglingum!
Hæ, Stína. Hann aðstoðar við undirbúning
Ertu með á KSS-íund í kvöld? Já, en Dögg, það er laugardagur og ... móta og almennra funda. Það má
Einmitt, þá er rétti tíminn að fara á fund og hitta alla krakkana. Það verður þv; segja að hann sé stjórn KSS
fræðandi erindi um kristna trú á fundinum og heilmikill söngur og kannski mikið innan handar en hana
eitthvað fleira. Heldurðu að Addi
áhyggilega. I'ú veist að Steini var i
hann okkur með á rúntinn eftir fund
kem til þín. Bless. Bless.
Við skulum forvitnast svolítið
nánar um þetta hjá Dögg.
Heyrðu Dögg. Hvaða fundur er
þetta, KSS sem þú varst aó minnast
á?
KSS merkir Kristileg skóla-
samtök og er félag ætlað 14—20
ára krökkum. Það heldur fundi
alla laugardaga kl. 20:30 í
KFUM-húsinu, Amtmannsstíg 2b,
bak við MR.
Hvers konar félag er KSS?
Eg mundi segja að það væri
gott félag. Nei, í alvöru talað, þá á
þetta félag sér kjörorð: „Æskan
fyrir Krist!" og í því felst allt sem
viðkemur félaginu.
Meginmarkmið þess er þvi að
boða trú á Jesúm Krist sem frelsara
allra manna?
Já, og boða það einkum meðal
skólaæskunnar, á því tímabili sem
flestir krakkar eru að byrja að
spá í lífið og tilveruna og vita
kannski ekki í hvorn fótinn þeir
eiga að stíga.
Hvernig fer starfsemin fram?
Það eru vikulegir fundir all.t ár-
ið á Amtmannsstíg 2b. Þangað
eru fengnir ýmsir menn utan úr
bæ, bæði prestslærðir og aðrir
sem flytja okkur Guðs orð eða
taka fyrir ákveðna málaflokka út
frá kristilegu sjónarhorni. Stund-
um er fjallað um viðkomandi efni
í smærri umræðuhópum og jafn-
vel vinnur hver hópur þannig með
efnið að hann flytur það fyrir
aðra t.d. með leikrænni tjáningu.
Svo er auðvitað heilmikið sungið
af hressilegum söngvum og stund-
um koma fram sönghópar. Á veg-
um félagsins eru starfandi svo-
kallaðir biblíuleshópar, en þátt-
takendur í þeim hittast e.t.v. einu
sinni í viku fyrir utan venjulega
KSS fundi og lesa saman ákveðna
kafla úr Biblíunni og læra þannig
að þekkja boðskap hennar.
tg Steini verði þarna líka? Já, alveg
ð kaupa sér bílskrjóð, kannski býður
Já, við skulum bara drífa okkur, — ég
kynnist mjög vel þegar farið er
svona út fyrir bæinn.
Er það tilfellið að krakkar í KSS
gangi um með einhvern skínandi
englasvip?
Nei, góði besti, sko ... Við er-
um bara ósköp venjulegir krakk-
ar, hvorki betri né verri en aðrir.
Það eina sem ef til vill ber á milli
er, að það hafa margir krakkar
fattað hvað það var sem Jesús
gerði fyrir þá með því að deyja á
krossi, til þess að við gætum átt
Iífssamfélag við hann, bara ef við
trúum á hann. Ég get ekki séð að
það ætti að setja einhvern sér-
stakan helgisvip á einn eða neinn.
Geta allir verið með í KSS sem
það vilja?
Já, og það eru engin félagsgjöld.
Hins vegar geta þeir sem vilja
lagt eitthvað af mörkum í svokall-
aðan starfssjóð, en úr honum eru
greidd laun skólaprests og annar
kostnaður við félagshaldið.
Þú nefndir skólaprest?
Já, KSS ásamt Kristilegu stúd-
entafélagi hafa ráðið til sín prest
og er hann félagsmönnum til
halds og trausts og sér hann einn-
ig um útgáfu á biblíulesefni.
skipa fimm félagsmenn, sem
kosnir eru á aðalfundi ár hvert.
KSS stendur þá ekki fyrir utan
þjóðkirkjuna?
Nei, alls ekki. Félagið er hluti
af kristilegu leikmannahreyfing-
unni innan þjóðkirkjunnar og
starfar í nánum tengslum við
KFUM og K. Félagið leitast einn-
ig við að efla samskipti sín við
æskulýðsfélög kirkjunnar úti á
landi og má t.d. nefna æskulýðsfé-
lagið á ísafirði í því sambandi.
Félagsmenn og skólaprestur hafa
stundum farið út á land til þess að
halda fundi í skólum og í æsku-
lýðsfélögum.
Eitthvað að lokum, Dögg?
Ég vil bara hvetja alla þá
krakka sem vita kannski ekkert
hvað þeir eiga af sér að gera á
laugardagskvöldum (og reyndar
önnur kvöld líka) að kíkja á fund í
KSS og sjá hvað þessi félagsskap-
ur hefur upp á að bjóða. Það eru
nefnilega svo margir sem segja að
ekkert sé fyrir unglinga að gera,
enginn staður fyrir þá að vera á
o.s.frv., en það er svo ótal margt
hægt að gera ef viljinn er fyrir
hendi. KSS vill einmitt að sem
flestir taki þátt í heilbrigðu fé-
lagsstarfi og eignist jafnframt ör-
uggan grundvöll til þess að byggja
líf sitt á, líf með Jesú Kristi.
Hvað með ferðalög og mót?
Tvisvar á ári, að vori og haustið
efnir félagið til svokallaðra skóla-
móta. Þau eru haldin í Vindáshlíð
og Vatnaskógi. Venjulega koma á
þessi mót u.þ.b. 100—150 krakkar.
Mótin eru eiginlega hápunkturinn
á öllu KSS-starfinu og eru æðis-
lega skemmtileg fyrir alla þá sem
taka þátt í þeim. Svo er alltaf far-
ið í helgarferð eitthvert út á land
um miðjan júní. Það er ekki síður
upplifelsi að fara í þessi ferðalög
og það hefur sýnt sig, að fólk
Kökuveisla
Trúin bjargar
Matt. 9.18 — 26
24. sunnudagur
eftir trinitatis
Frásagan af konunni sjúku
er líka í Markúsarguðspjalli,
5. kaflanum. Þar lesum við að
hún hafi leitað margra
lækna, þjáðst mikið en versn-
að frekar en batnað og veik-
indin höfðu kostað hana al-
eiguna. Hver var hún þessi
kona? Hún var vesöl kona,
skrifar biblíuskýrandinn,
sem ég leitaði eftir fróðleik
hjá. Það hefur mér aldrei
fundizt. Hún stendur mér
fyrir hugarsjónum sem kona
vafin í skósítt léreft, kona frá
liðnum öldum. En mér hefur
aldrei fundizt hún vesöl.
Kannski var hún það samt,
ég hef í rauninni ekki hug-
mynd um það. Guðspjöllin
segja ekkert um það. Samt
þykir mér oft gaman að
reyna að draga upp myndir
af fólkinu, sem ég les um þar.
Nú reyni ég að ímynda mér
að þessi kona búi einhvers
staðar nálægt mér, við kaup-
um saman í búðinni. Ein-
hvern daginn hittumst við
kannski í fermingarveizlu
eða afmæli og ég heyri hana
segja frá þessum linnulusu
veikindum sínum. Ég fyllist
meðaumkun, verð ráðþrota.
Eins og ég er vön að heyra
langar sögur um snilli ýmissa
lækna er ég líka þaulvön að
heyra sögu eftir sögu um ráð-
leysi lækna og mistök á spít-
ölum. En trúlega fyllist ég nú
enn meira vonleysi en oft áð-
ur við slíkar sögur. Hugsaðu
þér, hún var búin að vera veik
í tólf ár og ekkert var hægt
að gera, henni versnaði bara
og nú var hún búin að selja
íbúðina og bílinn fyrir kostn-
aði. Að því leyti var hún auð-
vitað vesöl að hún átti
óskaplega bágt. En svo gerði
Jesús kraftaverk í lífi henn-
ar.
Ég veit að Jesús hefur
læknað fólk eins og konuna
sjúku á okkar dögum. Ég trúi
því að hann lækni líka fólk,
með snilli og aðbúnaði hjúkr-
unarfólks, ég trúi því að þeg-
ar lækningin gefst sé það
fyrir kraft Krists. Biðjum í
dag fyrir þeim, sem eru sjúk-
ir og þeim, sem annast þá.
a DRffnmwH
UMSJÓN:
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir
Gunnar Haukur Ingimundarson
Séra Ólafur Jóhannsson