Morgunblaðið - 25.11.1982, Qupperneq 1
56 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
264. tbl. 69. árg. FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1982________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Haughey spáð
tapi á íriandi
Oydinni, 24. nóvember. AP.
GARRET Fitzgerald, leiðtogi stjórnarandstöðuflokksins Fine Gael, var
talinn sigurstranglegri en Charles Haughey forsætisráðherra, leiðtogi
Fianna Fail, þegar írar gengu að kjörborðinu í dag. Ef Fitzgerald sigrar
mun hann mynda samsteypustjórn með Verkamannaflokknum.
En margir óttast að hvorugur
flokkurinn fái hreinan meirihluta
og smáflokkar vinstrisinna komist
í oddaaðstöðu í þriðja skipti síðan
Begin fær
viðvörun
Jenísalem, 24. nóvember. AP.
Rannsóknarnefndin, sem skipuð
var til að kanna aðdraganda fjölda-
morðanna í Beirút, varaði í dag Beg-
in og átta aðra háttsetta menn við og
sagði þá mega búast við ásökunum
um skeytingarleysi með því að leyfa
kristnum hægrimönnum að fara inn
í flóttamannabúðir Palestínumanna.
Nefndin sagði, að níumenning-
arnir hefðu hálfan mánuð til að
fara yfir málskjölin, koma aftur
fyrir nefndina, endurspyrja vitni
og leita sér lögfræðilegrar aðstoð-
ar. Sagt var, að Begin, Sharon
varnarmálaráðherra og Shamir
utanríkisráðherra kynnu að verða
fundnir sekir um framferði, sem
jafngilti því „að bregðast skyldu
sinni".
Shamir kom fyrir nefndina í
dag og var þá spurður um þær við-
varanir, sem honum bárust um
framferði falangista í Beirút. „Ég
gerði mér enga rellu út af því,“
svaraði hann og sagðist ekki hafa
skeytt því frekar.
Tillaga Verkamannaflokksins
um vantraust á stjórn Begins var
felld í dag með 59 atkvæðum gegn
50. Tillagan var borin fram vegna
ásakana ríkisstjórnarinnar um að
Verkamannaflokkurinn reyndi að
fella stjórnina með því að fá
Bandaríkjamenn til að skera niður
aðstoðina við Israel.
júní 1981, en það hefði í för með
sér áframhaldandi sjálfheldu og
óvissu á sama tíma og írar glíma
við mesta efnahagsvanda sinn frá
stofnun lýðveldisins.
Kjörsókn var dræm framan af,
en þó er spáð 75% kjörsókn. End-
anleg úrslit verða ekki kunn fyrr
en seint á föstudag. Á síðasta
þingi hafði Fianna Fail 81 þing-
sæti, Fine Gael 64, Verkamanna-
flokkurinn 14 og óháðir vinstri-
sinnar sex. Þingforsetinn er óháð-
ur.
Kosningabaráttan var hörð og
óvægin og einkenndist af gagn-
kvæmum ásökunum um rógsher-
ferðir. Fitzgerald neitaði að heilsa
Haughey með handabandi fyrir
sjónvarpsupptöku á mánudaginn.
Haughey sakaði Fitzgerald um
að vinna á laun með Bretum að
lausn deilumálanna á Norður-
írlandi, en flestir kjósenda virtust
hafa mestan áhuga á efnahags-
málum.
Gunnar Ásgeirsson skipatjóri i Þinganesl kemur með fullfermi af síld til Hafnar í Hornafirði fyrir nokkru. Á
laugardag lýkur reknetavertíð slldarbáta. I gær var búið að veiða 13.800 tonn í reknet, en kvóti I reknet er
14.000 tonn. Þá var I gær aðeins eftir að veiða um 2 þúsund tonn upp í kvóta hringnótabáta.
Ljósm. Snorri Snorrason
Charles Haughey
Herlögunum aflétt í
Póllandi bráðlega?
Vftrk'iá OA nÁvnmher A1®
Varsjá, 24. nóvember. AP.
GREINILEG, ný vísbending um að yfirvöld í Póllandi hyggist aflétta herlög-
um fyrir 13.desember kom fram í dag þegar hin opinberu PRON-samtök
skoruðu á þingið að aflétta neyðarástandinu hið allra fyrsta. Fréttir hafa ekki
áður borizt um slíka áskorun síðan herlög voru sett.
PRON eru samtök mennta- I og þeim var komið á fót til að afla
manna, rithöfunda, leikara, yfirvöldum stuðnings eftir setn-
íþróttamanna, embættismanna, ingu herlaganna.
Samkvæmt góðum heimildum
fær Noel að fara úr landi þegar
hann hefur greitt sektina. Hann
er fyrsti útlendingurinn sem hefur
verið leiddur fyrir rétt fyrir að
hjálpa Samstöðu.
verkamanna, hermanna og bænda
Nýr leiðtogi Japana
heitir styrkri stiórn
Tokyo, 24. nóvember. AP.
YASUHIRO NAKASONE, íhaldsmaður þekktur fyrir baráttu fyrir efl-
ingu landvarna, verður opinberlega valinn forseti Frjálslynda flokksins í
Japan á morgun og þingið mun kjósa hann forsætisráðherra á föstudag-
inn í stað Zenko Suzuki.
Nakasone, sem er 64 ára gam-
all, hefur stefnt að því að verða
forsætisráðherra í tíu ár. Búizt
er við því að hann muni auka
áhrif Japana í heiminum, en
ekki hvika frá þeirri megin-
stefnu að viðhalda nánum
tengslum við Bandaríkin og
vinsamlegum samskiptum við
vestræn ríki yfirleitt.
Þótt Bandaríkjamenn fagni
stuðningi Nakasone við eflingu
landvarna kann afstaða hans að
valda áhyggjum í grannríkjum
Japans í Ásíu, sem hafa varað
við endurvakningu japanskrar
hernaðarstefnu.
Nakasone hefur hvatt til
endurskoðunar á ákvæðum
stjórnarskrár Japans gegn stríði
og verulegrar aukningar her-
útgjalda, en mildaði orðalag sitt
í baráttunni um stöðu eftir-
manns Suzuki og kvaðst ekki
hvetja til endurvígbúnaðar. Eina
markmið sitt væri að Japanir
gætu varið lofthelgi sína og sigl-
ingaleiðir og það markmið
styðja Bandaríkjamenn.
Tæp ein milljón félaga-Frjáls-
lynda flokksins tók þátt í kosn-
ingunni um eftirmann Suzuki og
Nakasone sigraði með yfirburð-
um. Hann hlaut 559,673 atkvæði,
eða 58%. Toshio Komoto, for-
stöðumaður fjárhagsráðs, hlaut
265,078 atkvæði, Shintaro Abe
viðskipta- og iðnaðarráðherra
80,443 atkvæði og Ichiro Nakag-
awa, forstöðumaður vísinda- og
tæknistofnunarinnar, 66,041 at-
kvæði.
Keppinautar Nakasone hvöttu
til umbóta í flokknum til að
draga úr áhrifum Kakuei
Tanaka fv. forsætisráðherra,
sem á yfir höfði sér ákærur fyrir
mútur í Lockheed-réttarhöldun-
um. Stærsti armur flokksins er
skipaður stuðningsmönnum
Tanaka og þar hefur Nakasone
fengið mest fylgi.
I hópi stuðningsmanna Naka-
sone eru aðeins 40 þingmenn af
421. Nakasone hefur oft verið
kallaður „vindhani", þar sem
hann hefur ekki þótt við eina
fjölina felldur í innanflokksdeil-
um.
Háttsettur embættismaður
sagði völdum hópi fréttamanna í
dag að „öll sólarmerki" bentu til
þess að herlög yrðu afnumin fyrir
13. desember, en hann taldi að
nokkrar reglur yrðu sennilega
áfram í gildi.
Samstöðu-leiðtoginn Wladyslaw
Frasyniuk var í dag dæmdur í sex
ára fangelsi og til fjögurra ára
sviptingar mannréttinda fyrir að
halda áfram verklýðsstarfsemi
eftir setningu herlaga.
Dómarinn sagði að dómurinn
væri vægur og tillit hefði verið
tekið til þess að Frasyniuk væri
ungur, óreyndur og byggi við erf-
iðar heimilisaðstæður.
Þetta voru fyrstu meiriháttar
réttarhöldin gegn leiðtoga Sam-
stöðu. Yfirvöld hafa ekki viljað
gera réttarhöldin að pólitísku
stórmáli og þau gefa til kynna að
yfirvöld vilji gera lítið úr mikil-
vægi Samstöðu.
Herdómstóll dæmdi í dag ungan
belgískan stjórnleysingja, Roger
Noel, til að greiða 11.250 dollara
sekt fyrir að útvega útvarpsstöð
Samstöðu ólöglegan senditækja-
búnað. Noel játaði að hann ætti
senditækið í júlí, en neitaði því að
hann hefði hjálpað leyniútvarps-
stöð Samstöðu og dreift flugmið-
um.
Rússar kusu
ekki forseta
Moskvu, 24.nóvember. AP.
TVEGGJA daga fundi Ertsta ráðs-
ins lauk í dag án þess að Yuri
Andropov væri kosinn forseti í
stað Leonid Brezhnevs eins og bú-
izt hafði verið við.
, Engin opinber skýring var
gefin á þessu, en austur-evrópsk-
ur heimildarmaður sagði að
Andropov virtist ekki vilja að
nýr þjóðhöfðingi yrði tilnefndur
svo fljótt eftir fráfall Brezhnevs.
Bent er á að Æðsta ráðið kemur
aftur saman í desemberlok.
Fyrrverandi ritari forsætis-
nefndarinnar, Mikhail Georg-
adhze, lézt skömmu eftir að
fundur var settur í dag og Tengiz
Menteshashuili, áður flokksleið-
togi í Tiblisi í Grúsíu, var skipað-
ur í hans stað.
Yfirmaður KGB, Vitaly Fedor-
chuk, mælti fyrir lögum sem
voru samþykkt um landamæri
Sovétríkjanna og kvað nauðsyn-
legt að auka árvekni á landa-
mærunum. Hann sagði að vest-
rænar leyniþjónustur reyndu að
smygla hergögnum, sprengiefni,
útvarpsútbúnaði og prentuðum
gögnum til Sovétríkjanna.