Morgunblaðið - 25.11.1982, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 25.11.1982, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1982 25 Geir Hallgrímsson við vantraustsumræður í fyrrakvöld: Óheilindi í stjórnmálabaráttu verða að víkja en ábyrgð og heilindi að ríkja í umræðum um vantrauststillögu Alþýðuflokksins á ríkis- stjórnina í fyrrakvöld, flutti Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ræðu, þar sem hann gerði m.a. grein fyrir því, hvers vegna Sjalfstæðisflokkurinn hefði ekki flutt slíka tillögu á Alþingi. Ennfremur gerði formaður Sjálfstæðis- flokksins grein fyrir afstöðu flokksins til bráðabirgðalaganna og fjallaði um kjördæmamálið. Hér fara á eftir kaflar úr ræðu Geirs Hallgrímssonar, en í upphafí ræðu sinnar vék hann að nokkrum sjónarmiðum, sem fram höfðu komið hjá forsætis- ráðherra skömmu áður: Síðasta ræðumanni var tíðrætt um þau áföll, sem við höfðum orð- ið fyrir á yfirstandandi ári, ég geri ekki lítið úr þeim en minni á að verðmæti sjávarafla á yfirstand- andi ári er eitthvert það mesta, sem við höfum öðlast, Islendingar, jafnvel þriðja eða fjórða besta ár. Síðasti ræðumaður minntist heldur ekkert á að árið 1980 og 1981 voru al bestu ár í verðmæti sjávarafurða, sem við íslendingar höfum notið. Hvar er afraksturinn eftir þessi ár? Hann er horfinn í eyðsluhít núverandi ríkisstjórnaí- í ráðleysi hennar, Stefnuleysi og getuleysi. Síðasti ræðumaður minntist ekki á það, að ríkisstjórn hans á Islandsmet í verðbólgu og nú er jafnvel verið að lýsa verð- bólgunni með þriggja stafa tölu. Síðasti ræðumaður minntist heldur ekkert á það, að ríkisstjórn hans hefur fellt gengi íslensku krónunnar hraðar, oftar og meira en nokkur ríkisstjórn önnur á ís- landi og ég verð að játa að þá er langt til jafnað. Síðasti ræðu- maður hrósaði sér af því, að hér væri full atvinna, en hann gat ekki um það, að hér er leynt atvinnu- leysi og hann gat ekki um það, að samkvæmt umsögn Seðlabankans, byggist full atvinna hér á landi meðal annars á því, að við höfum safnað erlendum skuldum svo mjög, að við skuldum 50% af ár- legri þjóðarframleiðslu í erlendum bönkum og lánastofnunum og þurfum að borga þriðju hverja krónu, sem við öðlumst í gjaldeyr- istekjur í afborganir og vexti. Þetta er sá arfur sem ríkisstjórn síðasta ræðumanns skilur eftir sig. Hvers vegna fluttu sjálf- stæðismenn ekki vantraust? Núverandi ríkisstjórn er að renna skeið sitt á enda. Engum sem til upphafsins þekkir kemur á óvart, að endalokin verða með þeim hætti, sem nú blasir við. Við sjálfstæðismenn höfum hinsvegar ekki flutt vantraust, einfaldlega vegna þess, að það hef- ur ekki verið ástæða til að ætla að það nái fram að ganga. Við mun- um hins vegar greiða vantrausttil- lögu Alþýðuflokks atkvæði, og vissulega má segja, að þessi van- trauststillaga þjóni þó þeim til- gangi að undirstrika ömurlega stöðu ríkisstjórnarinnar. Heyrst hefur að það sé trausts- yfirlýsing á núverandi ríkisstjórn þó hún skrimti eftir atkvæða- greiðslu um vantraustið en það er mikill misskilningur. Vitað er, að margir stjórnarsinnar vilja í raun ríkisstjórnina feiga og vildu gjarnan greiða vantrauststillög- unni atkvæði. í þeim efnum er nærtækast að leiða formenn Framsóknarflokks og Alþýðu- bandalags til vitnis. Er unnt að tala mæðulegar um frammistöðu ríkisstjórnarinnar en Steingrímur Hermannsson, sem harmar á flokksþingi Framsóknarflokks að á þremur árum hafi aðeins tvisvar náðst samstaða um raunhæfar að- gerðir til hjöðnunar verðbólgu. Er hægt að sýna ríkisstjórninni meira vantraust en Svavar Gests- son formaður Alþýðubandalags á nýafstöðnum flokksráðsfundi þess, hann sagði: „Það sem blasir við íslenskum stjórnmálum um þessar mundir er upplausn. Á sama tíma æðir verðbólgan áfram, verðhækkanir eru hrikalegar, verðlagsstjórn úr böndum, pen- ingamálastjórnin í landinu er ekki sem skyldi, viðskiptahallinn hefur aukið erlendar skuldir gífurlega á þessu ári, og þannig mætti lengi telja.“ Þetta voru orð Svavars Gestssonar. Er til gleggra dæmi um afleiðingar fjögurra ára stjórnarsetu kommúnista en ályktun þeirra sjálfra um nauðsyn fjögurra ára neyðaráætlunar í efnahags- og atvinnumálum? Hollenskt fyrirtæki vill kaupa íslenzka „kjötfjalliðu — Vilja semja framvegis um kaup á kjötinu niðurskornu og pökkuðu STÆRSTA kjötsölufyrirtæki Hol- lands er reiðubúið til að kaupa tvö til þrjú þúsund tonn af íslenzku dilkakjöti, eða allt það magn sem við getum látið. Áætlað hefur verið að útflutningsþörfin í ár væri um þrjú þúsund tonn, en hluta af því hefur þegar verið ráöstafað, þannig að ekki er liklegt að hægt verði að selja til Hollands meira en tvö þúsund tonn. Fyrirtækið hefur boðið 1.400 dollara fyrir tonnið af kjötinu, kom- ið í skip í íslenzkri höfn, en það er heimsmarkaðsverðið í dag. Verð það sem fyrirtækið býður er ívið lægra en fengizt hefur fyrir kjötið að undanförnu, en á móti kemur að hollenzka fyrirtækið er reiðubúið að að kaupa kjötið í des- ember og janúar nk. og leggst því minni geymslu- og vaxtakostnað- ur á kjötið og vegur það eitthvað upp á móti lægra verði. Pálmi Jónsson landbúnaðar- ráðherra sagði í samtali við Mbl., að næstu daga yrði tekin ákvörðun um þessa sölu og yrði ^ð hafa í huga þegar hún væri ákveðin að nægjanlegt kjöt væri eftir fyrir innanlandsmarkað og einnig að aðrir söluaðilar, sem hugsanlega gætu fengið betra verð, hefðu nóg fyrir sig. Pálmi sagði að kjötið yrði selt í heilum skrokkum í grisjupokum, en fulltrúi fyrirtæk- isins sem hér var nýlega á ferð hefði sagt að engin framtíð væri í að flytja kjötið þannig út og ef af Hvers vegna erum við and- vígir bráða- birgðalögum? Við sjálfstæðismenn erum and- vígir bráðabirgðalögunum. Þau eru ekki liður í samræmdum efna- hagsaðgerðum og þar af leiðandi nær verðbótaskerðing launa ekki tilgangi sínum til hjöðnunar verð- bólgu. Skattahækkun ofan á aukn- ar skattbyrðir vinstri stjórna síð- ustu fjögur árin kyndir undir verðbólgunni. Til þess hefur verið vitnað, að sjálfstæðismenn hafi staðið að samsvarandi ráðstöfun- um, með febrúarlögunum 1978, en þar var ólíku saman að jafna. Þá voru verðbætur greiddar sam- kvæmt framfærsluvísitölu að frá- dregnum launalið búvöru og verði áfengis og tóbaks, en því til við- bótar var þá í fullu gildi svokall- aður verðbótaviðauki, sem bætti launþegum þá töf, sem varð á því, að verðhækkanir vöru og þjónustu kæmu fram í framfærsluvísitölu á þriggja mánaða verðbótatímabili. Nú er enginn verðbótaauki og í gildi eru skerðingarákvæði Ólafs- laga auk verðbótaskerðingar sem núverandi stjórn hefur staðið að. Þá var ekki um neina verðbóta- skerðingu að ræða hjá þeim, sem frekari viðskiptum yrði óskuðu þeir eftir að fá það niðurskorið og pakkað í lofttæmdar umbúðir. Að- spurður um aðdraganda þessa til- boðs frá hollenzka fyrirtækinu sagði Pálmi að *hann hefði haft samband við ýmsa aðila í viðskiptalífinu og beðið þá að at- huga með sölu á kjöti erlendis, m.a. Árna Kristjánsson ræð- ismann Hollands á Islandi og fyrir hans tilstilli hefðu þessi sambönd komizt á. Það vekur athygli hversu mikið kjöt Hollendingarnir eru tilbúnir til að kaupa hér þrátt fyrir það að kjötkvóti íslands hjá Efnahags- bandalaginu sé aðeins 600 tonn. Líklega kemur fyrirtækið til með höfðu tekjur er svöruðu til Dagsbrúnarlauna í dagvinnu og full helmingsskerðing á verðbætur og verðbótaauka kom ekki fram fyrr en við tvöföld Dagsbrúnar- laun í dagvinnu. Nú er láglauna- fólki ekki sinnt með öðru en sparðatíningi, svokölluðum lág- launabótum, sem enn hafa ekki fengist upplýsingar um, hvernig háttað verður, þegar vika er til mánaðarmóta og sjálfur fjármála- ráðherra gefur í skyn að láglauna- bæturnar verði teknar upp í skatta til ríkissjóðs. Þá voru ákveðnar hækkaðar barnabætur og tekjutryggingar, sem ekki er gerð grein fyrir í þessum ráðstöf- unum með sama hætti. Þá voru skattar lækkaðir eins og vöru- gjaldið, nú er vörugjaldið hækkað og skattar þyngdir. Þá voru ríkis- útgjöld lækkuð, en nú eru ríkis- útgjöld aukin, 1978 voru áfanga- hækkanir launa sem vógu upp á móti verðbótaskerðingunni, en því er ekki með sama hætti til að dreifa nú. 1978 hafði verðbóta- skerðingin- ekki í för með sér kaupmáttarrýrnun miðað við árið áður, en boðað er 6% kaupmáttar- rýrnun á næsta ári í kjölfar bráðabirgðalaganna. Þannig vat að öllu leyti ólíku saman að jafna 1978 og nú. Þess vegna er Sjálf- stæðisflokkurinn samkvæmur sjálfum sér, þegar hann er á móti þessum bráðabirgðalögum og bendir á, að þau eru skýrt dæmi um vinstri stjórnarstefnu. Kjördæmamálið Næstu Alþingiskosningar hljóta að snúast um atvinnu- og efna- hagsmál öðru fremur, slíkar blik- ur, sem eru á lofti í þeim efnum. En áður en til kosninga er gengið er ljóst, að það er þjóðarkrafa að jafnað verði vægi atkvæða eftir kjördæmum og tryggt að þing- mannatala flokka verði í samræmi við fylgi kjósenda. Þegar rætt er um vægi atkvæða eftir kjördæm- um eru tvö meginsjónarmið uppi; sumir segja, að sérhver kjóseandi eigi að hafa sama atkvæðisrétt, það sé hið eina og sanna lýðræði. Um það verður út af fyrir sig ekki deilt. Hitt er ljóst, að því marki höfum við aldrei náð. Aðrir segja, að áhrif íbúa strjálbýlis á stjórn landsins og löggjafarsamkomu séu minni en þéttbýli§búa, sem nær búa og það réttlæti misvægi at- kvæða. Samkomulag þarf að tak- ast á milli talsmanna þessara að fylla kvótann hjá Efnahags- bandalaginu sem er mikilvægt fyrir okkur vegna hugsanlegrar hækkunar hans síðar meir og þau 1.000 til 1.500 tonn sem þá verða eftir verður fyrirtækið að selja eitthvert annað. Ekki er ólíklegt að það fari í einhverjum mæli í kost á hollenzka kaupskipaflot- ann. Verðið sem hollenzka fyrirtækið er tilbúið til að greiða er eins og áður sagði 1.400 dollarar á tonnið, komið í skip hér heima, en það er nálægt heimsmarkaðsverðinu þeg- ar tekið hefur verið tillit til flutn- ingskostnaðar. Eins og Mbl. skýrði nýverið frá hefur að undanförnu orðið 25 til 30% verðlækkun á heimsmarkaðsverði kindakjöts. Verðið er um 22 kr. íslenzkar fyrir hvert kíló og er það um 30% af óniðurgreiddu heildsöluverði lambakjöts hér heima. Því er ljóst að lækkun heimsmarkaðsverðsins hefur náð hingað til lands og að ekki er hægt að gera ráð fyrir að hægt sé að flytja út kjöt á fram- leiðsluverði á næstunni. tveggja meginsjónarmiða, svo að þeir sætti sig við. Hið fullkomna lýðræði dugar okkur skammt, ef það verður til þess að sundra þjóð- inni í tvær andstæðar fylkingar, þeirra, sem búa í þéttbýli á suð- vesturhorninu og hinna, sem búa í hinum dreifðari byggðum, einmitt þegar okkur er svo mikill vandi á höndum. En jafnljóst er, að Al- þingi er ekki fært um að takast á við vanda þjóðarbúsins, ef það endurspeglar ekki með viðunandi hætti vilja þjóðarinnar. Það er að mínu mati ekki ofmælt, að um- bætur á þessu sviði séu forsenda þess, að við getum brotið blað í efnahags- og atvinnumálum með svipuðum hætti og gerðist eftir kjördæmabreytinguna 1959 með viðreisninni. Jardvegur til átaka í efna- hagsmálum Ég hef trú á því, að nú sé betri jarðvegur til átaka í efnahagsmál- um okkar meðal alls almennings og meiri skilningur á þörf slíkra ráðstafana en verið hefur um langt skeið, en því ber ekki að neita, að mikill vandi er fólginn í því pólitíska sundurlyndi og al- mennri þjóðfélagslegri upplausn, sem því miður er fylgjandi í óða- verðbólgu. Sjálfstæðisflokkurinn hvatti til þjóðarsamstöðu við stjórnarmyndun fyrir þremur ár- um. Því miður var þeirri hvatn- ingu ekki sinnt. Framsóknarflokk- ur og Alþýðubandalag kusu þá heldur að gera tilraun til að kljúfa Sjálfstæðisflokkinn. Þessir flokk- ar hafa uppskorið eins og þeir hafa sáð, með vaxandi ágreiningi og átökum innan eigin flokka. Al- varlegur ágreiningur er kominn upp í Alþýðuflokki. Óheilindi í stjórnmálabaráttu verða að víkja, en ábyrgð og heilindi að ríkja. Sjálfstæðismenn hafa á þessum þremur árum sýnt, að þeir hafa staðið af sér klofningsstarfsemi annarra flokka. Það sýndi lands- fundur fyrir ári og sigurinn í sveitarstjórnakosningunum. Sjálfstæðisflokkurinn er enn sem fyrr kjölfesta og frumkvæðisafl, sem þjóðinni er nauðsynlegt til að tryKgja frelsi sitt, lýðræði og ör- yggi, efnahagslegt sjálfstæði og framfarir, félagslegt öryggi og mannúð í samskiptum manna og stjórnvalda. Ríkisstjórnin: 10 þús. dollarar til afganskra flóttamanna Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum nýverið að leggja fram tíu þúsund dollara til Flóttamanna- stofnunar Sameinuðu þjóðanna vegna liðveizlu hennar til afg- anskra flóttamanna í Pakistan. Hér er um sérframlag að ræða en stjórnvöldum hafði borist hjálparbeiðni frá Paul Hartling forstöðumann Flóttamanna- hjálparinnar til afgönsku flótta- mannanna, en eitthvað á þriðju milljón flóttamanna frá Afgan- istan eru nú í Pakistan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.