Morgunblaðið - 25.11.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1982
3
Tónverk Jóns Nordal vekur mikla athygli í Washington:
„Stórkostlegt að
lifa þennan atburð“
— segir Jón um frumflutning Symphony Orchestra á verk-
inu undir stjórn Rostropovich í Kennedy Center
„ÞAÐ VAR alveg stórkostlegt að
lifa þennan atburð. Vcrkiö var sér-
staklega vel spilað, flutningurinn
hreint stórkostlegur," sagði Jón
Nordal tónskáld í samtali við Mbl.
í gær, en hljómsveitarverk hans
„Choralis for orchestra" í flutningi
National Symphony Orchestra
undir stjórn Rostropovich í
Kennedy Center i Washington í
fyrrakvöld hefur vakið mikla at-
hygli og fengið mjög góða dóma í
Washington. Húsfyllir var við
flutninginn, en auk tónverks Jóns
voru á dagskrá verk eftir Grieg,
Arne Nordheim og Carl Nielsen.
Öll helstu dagblöðin í Washington
sögðu frá tónleikunum í gær og
fékk verk Jóns og flutningur þess
mjög góða dóma.
Rostropovich
Jón sagðist aðspurður er Mbl.
ræddi við hann símleiðis í Wash-
ington í gær hafa samið þetta
verk að beiðni Rostropovich sér-
staklega til flutnings á þessum
hljómleikum sem væru tilkomn-
ir vegna norrænu menningar-
kynningarinnar Scandinavia To-
day. Hann sagði Rostropovich
hafa haft samband við sig i
fyrra, og að hann hefði síðan
samið verkið í sumar og haust,
en það var frumflutt á tónleik-
unum í fyrrakvöld. Þá verður
verkið flutt á þremur öðrum tón-
leikum í Washington, einnig
verður það flutt 1. desember nk.
í Carnegie Hall í New York. Þá
sagði Jón að í undirbúningi væri
sérstök útvarpsdagskrá þar sem
Jón Nordal
verkið væri á dagskrá.
Aðspurður sagði Jón tónverkið
sambland af íslenzkri þjóðlaga-
tónlist og nútímatónlist. Rostro-
povich er heimskunnur tónlist-
armaður og stjórnandi. Jón
sagði að við lægi að hann væri
dýrkaður af tónlistaráhuga-
mönnum i Washington. „Menn
vilja allt fyrir hann gera og eru
mjög stoltir af að hafa hann hér.
Hann hefur verið að byggja
þessa hljómsveit, „National
Symphony", upp undanfarin ár
og er hún að verða ein af beztu
hljómsveitum Bandaríkjanna,"
sagði hann.
Jón var spurður hvernig hon-
um hefði liðið að hlusta á frum-
flutning verks síns. Hann svar-
aði: „Þetta var alveg stórkostleg-
ur flutningur og lífsreynsla að
hlusta á. Rostropovich var mjög
ánægður með þetta og sagði
flutninginn hafa tekist sérstak-
lega vel. Þá er alveg sérstök
stemmning i kringum þetta og
móttökurnar af hálfu National
Symphony eru slíkar að ég hef
aldrei kynnst öðru eins. Eftir
tónleikana í gærkvöldi var boð
þar sem saman komu allir þekk-
ustu og virtustu tónlistarmenn
hér um slóðir og var mjög
skemmtilegt að hitta það fólk.“
Norrænu tónlistarmennirnir
Arne Nordheim og Carl Nielsen
voru einnig viðstaddir flutning-
inn, en verk Nordheim var einn-
ig frumflutt í Kennedy Center
eins og tónverk Jóns.
Níræður og enn við vinnu
Hannes Jónsson iðnverkamaður í Trésmiðjunni Víði varð 90 ára í gær. Hann
vinnur enn í Trésmiðjunni Viði, þótt kominn sé á tíræðisaldur og í gærmorg-
un færði Guðmundur Guðmundsson forstjóri honum gjöf í tilefni dagsins.
Ennfremur komu fleiri i kaffi í Víði í gær, eins og t.d. Bjarni Jakobsson,
formaður Iðju, stéttarfélags Hannesar. Á myndinni er Guðmundur Guð-
mundsson að afhenda Hannesi afmælisgjöfina. Ljósm.: Kmiiía.
Galdrakarlar
leika fyrir dansi betri en
nokkru sinni og
Gísli Sveinn stjórnar^
diskótekinu JBk
FERÐAKYNNING
KANARÍEYJAR
SALTZBURY STEIK
LAUKSÚPA
Allt fyrir aöeins kr. 95.-
JOLAGLOGG (níutíu og fimm)
Missið ekki af hlægilega ódýrri skemmtun
Pantið borð strax í dag í síma 77500
Kenýa-farþegar Útsýnar eru
boðnir velkomnir til landsins
í dag og á Broadway sunnudag
Magnús
og Þorgeir
skemmta
af sinni
atkunnu
snilld
dönsku
dömurnar dansa
og skemmta gestum
á allsérstæöan hátt
TfíUd
Feröaskrifstofan Útsýn og
Flugleiðir efna til kynningar á
hinum vinsælu Kanaríeyjaferö-
um á
BICiOAID
WAY
næstkomandi sunnudagskvöld
28. nóvember kl. 19.00.
BINGÓ
spilaðar verða 3 umferðir og vinningar eru
sólarlandaferðir mei
og
FLUGLEIÐIR