Morgunblaðið - 25.11.1982, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1982
21
„Þrautgóðir á rauna-
stund“ 14. bindið komið
BÓKAÚTGÁFAN örn og örlygur hf.
hefur gefið út bókina „Þrautgódir á
raunastund — Björgunar- og sjóslysa-
sögu íslands" eftir Steinar J. Lúð-
víksson. Er þetta 14. bindió i þessum
mikla bókaflokki og fjallar bókin um
atburði áranna 1959—1961 að báðum
árum meðtöldum, en 1 fyrri bókum
bókaflokksins befur rerið fjallað um
atburði frá aldamótum 1900 fram til
1958.
í bókinni er getið margra sögu-
legra atburða er urðu á árunum sem
bókin fjallar um. Enn lengsti og
veigamesti kafli bókarinnar fjallar
um svonefnt „Nýfundnalandsveður“
snemma á árinu 1959, en þá lentu
margir íslenskir togarar sem voru
að veiðum á Nýfundnalandsmiðum í
miklum hrakningum í ofsaveðri og
mikilli ísingu og einn togari, bv. Júll
frá Hafnarfirði, fórst með allri
áhöfn í óveðrinu. Eru kápumyndir
bókarinnar teknar um borð í einum
togaranna sem var á Nýfundna-
landsmiðum, b.v. Gerpi frá Nes-
kaupstað, og munu nær einu mynd-
irnar sem teknar voru í óveðrinu.
Sýna þær skipverja á bv. Gerpi
berja ís af skipinu.
Þá er einnig i bókinni sagt frá
leitinni að bv. Úranusi og fleiri at-
burðum.
„Þrautgóðir á raunastund" er
sett, umbrotin, filmuunnin og prent-
uð í Prentstofu G. Benediktssonar,
en bundin hjá Arnarfelli hf. Sem
fyrr segir eru myndir á kápu teknar
af einum skipverjanna á b.v. Gerpi,
Magnúsi Hermannssyni, en Sigur-
þór Jakobsson hannaði kápuna.
Jr
Oskasteinn Armanns
Kr. gefinn út á ný
BÓKAFORLAGIÐ Vaka hefur gepð
út bókina Óskasteinninn eftir Ár-
mann Kr. Einarsson.
Bókin er aukin og endurskoðuð
útgáfa Ármanns af bókinni
óskasteinninn hans óla. Hún kom
út fyrir tveimur áratugum, seldist
þá upp og hefur verið ófáanleg síð-
an. I frétt frá útgáfunni segir m.a.:
„Ármann Kr. Einarsson rithöf-
undur hefur með penna sínum leitt
tugþúsundir íslenzkra barna og
unglinga inn í ævintýraheim, sem
þau hafa notið til hins ýtrasta.
Hann hefur fyrir löngu hlotið við-
urkenningu sem einn fremsti
barna- og unglingabókahöfundur
okkar, og bækur hans hafa verið
þýddar á fjölda tungumála." •
Óskasteinninn er um 100 síður að
stærð, teikningar í bókinni eru eft-
ir Halldór Pétursson, en hún er
sett og búin til prentunar hjá
Korpus hf., en prentun og bókband
annaðist Oddi hf.
Tónleikar
kammermúsík-
klúbbsins
TÓNLEIKAR kammermús-
íkklúbbsins sem fresta varð
vegna veðurs þriðjudaginn 16.
nóvember verða haldnir í kvöld
klukkan 20.30 að Kjarvalsstöð-
um.
Þar leika Árni Kristjáns-
son, Laufey Sigurðardóttir og
Gunnar Kvaran tríó eftir
Tchaikovsky og Brahms.
^?ídag fimmtudag kl. 17-21
Sýnikennsla
ígerö
aóventukransa
Fyrsti sunnudagur í aðventu er n.k.
sunnudag.
Búið sjálf til aðventuskreytingarnar.
Skreytingameistarar Blómavals munu í
dag kl. 17-21 kynna og sýna gerð
mismunandi aðventuskreytinga.
Komið og lærið handbragðið. Eigum allt
efni til aðventu- og jólaskreytinga.
Skreytingaverkstæðið verður opið alla
næstu helgi.
Gróðurhúsinu viö Sigtún: Simar36770-86340
Prófkjör
sjálfstœðismanna
28.-29.
nóvember nk.
„ ■■
lét af -
formaðui
. innfc
so...- m^ra sjáif-i
bands ung ]
ii-ÍmSíV
\ fórust nu' wlSis
;ráfarandi formaður. JOn
I Magnusson logf rieóingur. let nu [
I af storf um ef tir langvinnt starf i |
I roðum ungra sjalf sfjpðismanna
1 Jon hefur þott f r jalslyndur |
j maður. an þess þo að verd frjals
I hvoQjumaður. og tiefur hann I
1 goldið bess frekar en notið i for
| mennsku sinni. Auðvifað ma |
lendalaust deila um einstaka
| personur. en Jon Magnusson a að ]
| sjalf sfæðisstef nu, sem gert hef ur I
Sialfstjeðisf lokkinn að fiolda~
hreyf inqu. Flokk.jrinn hef ur ekki
KJ0SUM BARATTUMANN A ÞING
Stuðningsmenn. —