Morgunblaðið - 25.11.1982, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1982
31
Glampur í l'Jarska
á gullin jiil
l’rás<>títi|i!i‘l 11 r
Minningar-
þættir Borg-
firðings
HÖRPUÚTGÁFAN á Akranesi hef-
ur gefið út bókina Glampar í fjarska
á gullin þil, sem eru frásöguþættir
eftir Þorstein Guömundsson á
Skálpastöðum í Lundarreykjadal.
Hann hefur verið virkur í forustu-
sveit borgfirskra bænda. Hann hef-
ur fengist nokkuð við ritstörf og
kvæði og greinar eftir hann hafa
birst i blöðum og tímaritum.
Þættirnir í þessari bók eru af
sönnum atburðum sem höfundur
hefur upplifað á langri ævi. Þætt-
irnir heita: Gunnar og Kola, Stóri
laxinn, Tveir búferlaflutningar,
Sörli, Mávurinn, Sagan um járn-
klippurnar, Fyrsti laxinn minn,
Tveir smáþættir frá Grafarhyl,
Droplaug og dóttir hennar,
Öræfageigur, Riddarinn á hvíta
hestinum og Glampar í fjarska á
gullin þil.
Bókin er 134 bls. Prentuð og
bundin í Prentverki Akraness hf.
Lionsklúbbur Garöa
og Bessastaðahrepps:
Opinn fund-
ur um eitur-
lyfjamál
LIONSKLÚBBUR Garða og Bessa-
staðahrepps heldur opinn Lionsfund
í Garðaskóla í kvöld, fimmtudag, og
er fundurinn helgaður baráttunni
gegn eiturlyfjum.
A fundinn mæta Alma Þórar-
insdóttir læknir og Jóhanna Stef-
ánsdóttir hjúkrunarfræðingur og
munu þær flytja erindi, sýna
kvikmynd og svara fyrirspurnum.
„Alice", en svo nefnist kvikmynd-
in, er sannsöguleg og fjallar á
áhrifaríkan hátt um 15 ára gamla
stúlku sem ánetjast eiturlyfjum.
Fundur þessi er liður í að fram-
fylgja því markmiði Lionshreyf-
ingarinnar að leggja lið í barátt-
unnni gegn eiturlyfjaógninni.
Lionsfélagar vilja hvetja sem
flesta til þess að mæta á fundinn
og sérstaklega bjóðum við vel-
komna alla unglinga úr Garðabæ
og Bessastaðahreppi.
(KrétUtilkynning)
Lýst eftir
bifreid
AÐFARANÓTT laugardagsins var
bifreið af gerðinni Daihatsu
Charmant, árgerð 1977, stolið frá
Mímisvegi. Bifreiðin ber einkenn-
isstafina R—28556 og er gul að lit.
Þeir sem vita um hvar bifreiðin er
niðurkomin eru vinsamlega beðnir
að snúa sér til lögreglunnar í
Reykjavík.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 28.—29. nóv.
Kosningaskrifstofa aö Suöurlandsbraut 14, 2. hæð.
Sími28636. ,
Opiö frá ki. 17.00—22.00 aiia Kjosandi goöur!
daga. Þitt atkvæöi skiptir máli
— Vertu meö!
Stuöningsmenn Bessíar Jóhannsd.
Sjálfstæöismenn
kjósum
Bessí
Jóhannsdóttir
formann Hvatar á þing
,,Ujtúr
vitanrin
Eyjólfur Konráð
Jónsson
DREIFING
Almeiína'
Bókafélagið
Rökræður
um nýja stefnu
í efnahags-
málum
Morgunhlaðið 14. 8. 1982.
Friðrik Friðrikson.
„Að „patent“-lausninni til lækkunar verðbólgu
slepptri, þá gætir hvarvetna góðrar frjáls-
hyggju. Gert er ráð fyrir léttari skattbyrði,
stærri hluta þjóðarframleiðslu ráðstafað af ein-
staklingum sjálfum. aukinni sjálfsbjargarhvöt.
Eykon cr frjálslyndur maður. En þó togast á
frjálslyndi og eitthvað, sem jafnvel má telja
stjórnlyndi á stöku stað."
Morgunhlaðið 14.8. 1982
Guðmundur Heiðar Frímannsson
„f allri bokinni má glöggt finna óþol athafna-
mannsins, löngun hans til að koma einhvcrju í
verk. Þótt menn vilji ugglaust gera einhvern
ágreining við Eyjólf Konráð um úrræðin gegn
verðbólgunni, þá held ég að flestir frjálslyndir
menn í landinu voni, að hann og aðrir af líku
tæi fái tækifæri á næstunni til að svala óþoli
sínu, stjórna landinu. Þá er að minnsta kosti
ástæða til að standast þá freistingu að trúa
bölsýninni. Heimdallur á þakkir skildar fyrir
það góða framtak að gefa þessa bók út.“
Arni Sigússon. form. Heimdallar
„Af lestri þessa rits vona ég að Ijóst sé, að
hugmyndir Eyjólfs eru hugmyndir meginþorra
sjálfstæðismanna enda er þingflokkur sjálf-
stæðismanna virkur þátttakandi í tillögugerð
hans. Gjörbreytt stefna hefur verið mótuð í
efnahags- og atvinnumálum og henni ber að
fylgja fram til sigurs. Hér er að finna þá upp-
sprettu hugmynda og orku, sem breytt getur
ófremdarástandi þvf sem í þjóðfélagi okkar
ríkir.“
Jónas H. Haralz, 30. nóv. 1979
„Þvi" er ekki að leyna, að þessi þáttur sóknar-
innar gegn verðbólgu er sérstaklcga vandmeð-
farinn. I því sambandi hefur Eyjólfur Kornáð
Jónsson \ grein í Mbl. í október sl. sett fram
athyglisverðar hugmyndir, sem þó hafa verið
lítið ræddar opinbcrlega.“
Helgarpósturinn. I. júlf 1982
Helgi Skúli Kjartansson
„Hver eða hverjir sem að þessu unnu, þá þykir
mér það mcrkilcg hugmynd og ágæt að taka
upp umræður, einnig andmæli gegn aðalhöf-
undi bókarinnar, og hygg ég það lýsi sjálfs-
trausti útgefenda fyrir hönd stjórnmálastefnu
sinnar að vera svo ófcimnir við vissan ágrein-
ing meðal fylgjenda hennar."
Frelsið, 3. he/ti 1980
I umræðum á málþingi Félags frjálshyggju-
manna 5. apríl 1980, sem birtust í I. hefti
þessa árs, lýsti Friedrich A. Hayek í fáum
orðum nýjum tillögum sfnum til lausnar verð-
bólguvandanum, en þær hafa vakið mikla at-
hygli erlendis. Þessar tillögur eru mjög svipað-
ar hugmyndunum, sem Eyjólfur Konráð Jóns-
son alþingimaður kom orðum að í nokkrum
blaðagreinum 1978 og 1979 — áður en Hayek
tók til máls.“
Olafur ísleifsson,
Físi, 27. ágúst 1981
„Skattalækkun sú, sem patentlausn Eykon
snýst um, kynni vissulega að stuðla að tíma-
bundinni lækkun verðlags, en það er álitamál,
hvort hún drægi úr hraða verðbólgunnar og
hversu varanleg áhrif þessarar aðgcrðar yrðu.“
Norðanfari, okt. 1982
Friðrik Sophusson.
„Flestum finnast hugmyndir Eyjólfs Konráðs
ákaflega merkilegar og það sem hann segir er
nokkuð sem menn hafa verið að fjalla um i'
öðrum löndum að undanförnu. Á meðal stjórn-
málamanna og efnahagsstérfræðinga í hinum
vestræna heimi hafa farið fram miklar umræð-
ur um þessi mál á síðustu árum, allt frá þeim
ti'ma er menn áttuðu sig á, að þau hagfræði-
legu lögmál sem starfað hafði verið eftir allt
frá stríðslokum dugðu alls ekki lengur. Það
varð að leita nýrra leiða."
Austurstræsti 18, sími 25544, Skemmuvegi 36, Kópavogi, si'mi 73055.