Morgunblaðið - 25.11.1982, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1982
Ingvar Viktorsson:
„Það vantaði allan
neista í íslenska líóið“
ÞAÐ VAR alveg greinilegt aö
þrátt fyrir að heppnissigur hafi
unnist á Frökkum f gærkvöldí í
landsleiknum voru áhorfendur
ekki ánægöir með frammistöðu
landsliösins. Enda varla von, slík-
ur var leíkur liösins. Viö spjölluö-
um við tvo þeirra eftir leikinn.
Ingvar Viktorsson formaöur
handknattleiksdeildar FH haföi
þetta að segja: — Þetta var léleg-
ur leikur. Þaö vantaöi allan neista í
íslenska liöiö. Leikmenn liösins
tóku alls ekki á í leiknum. Leikur
vannst fyrst og fremst á einstakl-
ingsframtaki Kristjáns Arasonar.
Mér fannst hann ekki leika vel en
samt var hann langbestur í ís-
lenska liöinu. Mér fannst þaö og
ekki gott aö velja Hans Guö-
mundsson FH í sinn fyrsta lands-
leik en láta hann svo sitja á bekkn-
um allan tímann og ekkert aö
koma inná. Slíkt lýsir ekki góöri
stjórnun. Þeir sem eru valdir veröa
að fá tækifæri til aö sýna hvaö i
þeim býr. Og auövelt er aö brjóta
nýliða niöur meö þvi aö láta þá
sitja á bekknum og finna aö þeim
er ekki treyst.
Gunnlaugur Hjálmarsson, fyrr-
um landsliðsmaður í handknattleik
og nú handknattleiksdómari,
sagöi:
— Þetta var alveg afspyrnu-
áhugalaus leikur af hálfu islenska
liðsins. En sjálfsagt skemmtilegur
leikur fyrir áhorfendur þar sem sig-
ur vannst. Þaö var Kristján Arason
sem reif sig upp í síöari hálfleikn-
um og bjargaöi þvi sem bjargaö
varö.
- ÞR.
Hilmar Björnsson:
„Við þurftum á
þessum sigri að halda“
HILMAR Björnsson landsliös-
þjálfari sagði eftir leikinn.
— Ég er nú fyrst og fremst
ánægöur með að sigur skuli hafa
unnist í leiknum. Mér fannst
þetta franska liö vera svipað að
styrkleika og þau lið sem viö höf-
um mætt frá Frakklandi í gegnum
árin. Þeir eru snöggir og léttir og
hafa ágæta boltameðferð.
— islenska landsliöiö var mjög
seint í gang í leiknum, og þaö vant-
aöi allan kraft í þaö framan af. Þaö
stafar hugsanlega af of miklu álagi,
sem veriö hefur á leikmönnum
undanfarna daga.
Hvað meö vítakastiö sem viö
fengum í lok leiksins, var það
ekki gjöf okkur til handa og því
heppni að ná sigri?
— Ég sá ekki betur en aö hrint
væri á bakiö á Jóhannesi á línunni
og dómurinn því alveg réttur. En
hvaö um þaö, þaö var gott aö
vinna sigur og viö þurftum svo
sannarlega á honum aö halda.
— ÞR.
Jóhannes Stefánsson í baráttu við tvo franska leikmenn í gærkvöldi en
hefur misst af knettinum — einkennandi mynd fyrir leikinn.
LjÓHmynd Kri.stján Kinarsson.
„Agalausasta lands
sem ég hef séð
um langt árabil“
- segir formaður HSÍ um íslenska liðið
— ÞETTA er miölungs franskt
handknattleikslið sem á að vera
hægt að sigra með fimm til sex
marka mun á heimavelli. Ég verð
að segja það alveg eins og er að
íslenska landsliðið er þaö aga-
lausasta landslið sem ég hef séð
um langt árabil, hver svo sem
skýringin er, sagði formaður HSÍ,
Júlíus Hafstein, eftir landsleikinn
í gærkvöldi.
— Landsliösmennirnir okkar
leika eins og þeir séu aö leika
miölungs fyrstu deildar leiki. Þeir
taka ekki á og sýna áhugaleysi í
leikjum sínum, þeir spila ekki eins
og þeir séu í landsleik. Þaö fylgir
ekki hugur máli. Og það er þetta
atriði sem veröur aö laga númer
eitt, tvö og þrjú. Hugarfar þeirra er
alls ekki í lagi, sagöi formaöurinn.
— ÞR
• Kristján Arason skorar hér eitt af ellefu mörkum sínum í leiknum með miklu þrumuskoti utan af velli.
Eins og sést á myndinni er hann algerlega óáreittur er hann skýtur, en það var ekki óalgengt aö leikmenn
fengju að komast upp með slíkt í leiknum. T.d. fékk franska skyttan Gaffet, sem skoraði átta mörk í
leiknum, yfirleitt allt of mikinn frið til að athafna sig. Ljóamynd Kristján Einarsaon.
Heppnissigur á miðl-
ungsliði Frakka
— lítið um tilþrif hjá íslenska landsliðinu
KRISTJÁN Arason tryggöi íslend-
ingum sigur gegn Frökkum í
handboltalandsleiknum í Laugar-
dalshöll í gærkvöldi meö marki úr
vítakasti er leiktímanum var lok-
ið. Var það vel viö hæfi að Krist-
ján ræki endahnútinn á leikinn
hjá íslenska liöinu því það var
hann sem með sínu einstaklings-
framtaki tryggöi sigurinn. Hann
skoraði ellefu mörk í leiknum, þar
af sex úr vítum, og var sá eini
sem var nálægt því aö sýna hvaö
f honum bjó, þó oft hafi hann
vissulega leikið betur. ísland
sigraöi 23:22, eftir að Frakkar
höföu verið yfir í hálfleik, 13:10.
Það verður aö segjast eins og er
að leikurinn var afspyrnuslakur
og virtust íslensku leikmennirnir
á köflum ekki hafa mikinn áhuga
á honum. Þaö kann aldrei góöri
lukku að stýra að halda aö leikur
sé unninn fyrirfram, en aö manni
læddíst sá grunur aö landsliðs-
menn okkar heföu verið nokkuö
sigurvissir fyrir þennan leik. Það
kemur vonandi ekki fyrir aftur
enda virðist liðið ekki hafa efni á
slíku. Menn eru vonandi ekki
búnir að gleyma tapinu (15:23)
gegn Frökkum í B-keppninni í
Frakklandi í febrúar í fyrra.
Strax í upphafi var Ijóst aö ekki
væri um neinn stórleik aö ræöa.
Leikmenn geröu sig seka um mikil
mistök bæöi í sókn og vörn, og á
þaö viö um bæði liöin. Mikið var
um hnoö í sókninni og varnirnar
voru ekki sannfærandi. Frakkarnir
léku léttan handbolta og voru
nokkuð frískir, en liöiö er langt frá
því aö vera sterkt.
Jafnt var á öllum tölum upp í
10:10. íslendingar fengu þá tvisvar
sinnum tækifæri til aö komast yfir
en í fyrra skiptiö var dæmd töf á
liðiö en í siöara skiptiö skref.
Frakkarnir tóku þá viö sér og skor-
uöu þrjú mörk í röö og var þá
ísland—Frakkland
23:22
dauöaþögnin slík aö sjálfsagt heföi
mátt heyra saumnál detta. En
staöan var sem sagt 13:10 fyrir
Frakka í hálfleik og mönnum satt
aö segja ekkert fariö aö lítast á
blikuna.
I síðari hálfleiknum skánaöi leik-
urinn heldur hjá íslenska liöinu,
Nicolas skoraöi aö vísu fyrsta
mark hálfleiksins fyrir Frakka, en
síðan komu fjögur tslensk mörk í
röö og staöan skyndilega oröin
14:14. Lóku íslensku strákarnir
reyndar ágætlega þá um tíma og
áhorfendur voru vel meö á nótun-
um og hvöttu liðiö vel. En síöan fór
allt i sama fariö og áöur. Jafnt var
á öllum tölum þar til í lokin aö
Kristján kom íslandi yfir úr víta-
kastinu eins og getiö var um í upp-
hafi.
Þaö er alveg Ijóst aö meö svona
spilamennsku nær íslenska lands-
liöið ekki tilætluöum árangri í
B-keppninni í Hollandi eftir ára-
mótin en aö sjálfsögöu er engin
ástæöa til aö leggja árar í bát.
Þvert á móti verðum viö aö tvíefl-
ast og takast á viö vandann.
Sjálfsagt vilja margir gleyma þess-
um leik sem fyrst en samt ættu
menn aö hugsa gaumgæfilega um
þaö hvaö er aö og kryfja þaö til
mergjar. Öðruvísi veröur leikur
landsliösins ekki lagfæröur.
Mörkin skiptust þannig niöur á
milli leikmanna:
ÍSLAND: Kristján Arason 11 (6 v),
Þorbergur Aðalsteinsson 4, Bjarni
Guðmundsson 4, Páll Ólafsson 2,
Guömundur Guömundsson 1 og
Jóhannes Stefánsson 1.
FRAKKLAND: Bernard Gaffet 8 (3
v), Christophe Esparre 3, Joel
Casagrande 3, Marc-Henri Bern-
ard 3, Dominique Deschamps 2,
Nionel Nicolas 2, Sylvian Nouet 1.
— SH.
Franski þjálfarinn: ~
„Liðin sýndu
ekki mikla tækni"
„ÉG VAR ánægður með mína
menn í leiknum og íslenska liðið
fannst mér mjög gott. Liðin
sýndu reyndar ekki ýkja mikla
tækni en leikurinn var mjög lif-
andi og skemmtilegur," sagöi
þjálfari franska landsliðsins, Jean
Nitar, er blaöamaöur spjallaði við
hann eftir leikinn.
„Islendingar eru mjög sterkir
líkamlega og ég er sannfæröur um
aö þeir eiga eftir aö ná langt í
B-keppninni í Hollandi í vetur.
Hvaö mitt liö varöar þá er þetta
ungt lið sem viö erum aö byggja
upp.“
Hvað heldurðu um möguleika
þíns liðs í B-keppninni?
„Það kemur bara í ljós,“ svaraöi
Nitar stutt og laggott.
— SH.