Morgunblaðið - 11.01.1983, Page 10

Morgunblaðið - 11.01.1983, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1983 Eskifjörður: Bryggjum með áföstu sjóhúsi fækkar Kskifirdi, 4. janúar. ÞAÐ tíðkaðist hér áður fyrr á Eski- firði, að hver útgerð átti sína eigin bryggju með áfostu sjóhúsi. Þar sem mikil útgerð var og margir bátar, voru að sjálfsogðu margar bryggjur, og hér á Eskifirði var bryggja við bryggju meðfram öllum firðinum á árum áður. En með timanum og Granaskjól Fokhelt 214 tm eínbýli, hæð + rishæð. Innb. bílskúr. Teikn. á skrifstofu. Möguleg skipti á sérhæð. Verð 1600 þús. Hólahverfi — raðhús Höfum 2, ca. 165 fm raðhús, sem afh. tilb. að utan en fok- held að innan. Teikn. og uppl. á skrifstofunni. Álfaskeið — sérhæð 114 fm 4ra herb. efri sérhæð í tvíbýli. Sér inng. S.-svalir. Bíl- skúrsréttur. Verð 1250 þús. Framnesvegur 137 fm sérhæð 4ra—5 herb. Mikiö útsýni. Verð 1350 þús. Álfaskeið Góð 4ra herb. endaib. á 4. hæð. Góöur bílskúr. Háaleitisbraut Rúmg. 4—5 herb. ib. á 4. hæö. Bílskúrsréttur. Verð 1350 þús. Flúðasel 3ja herb. íb. á jarðhæð í tvíbýli. Verð 880 þús. Ásvallagata 2ja herb. ósam.þ. kjallaríb. Verð 470 þús. LAUFÁS SÍÐUMÚLA 17 Magnús Axelsson breyttum útgerðarháttum hefur þetta lagst af. Bryggjunum hefur fækkað um leið og skipunum, sem jafnframt hafa stækkað. Hafnar- garðar og dokkir hafa því komið i staðinn fyrir bryggjurnar. Samt eru nokkrar bryggjur eftir og minna á gamla tíð. Myndin sýnir eina þeirra — sem er bryggja Sæþórs SU 175 og er í eigu bræðranna Stefáns og Ingv- ars Guðmundssona. Þeir hafa stundað útgerð á smábátum um árabil. Ævar Vaganyan sigraðií Hastings Ha.stint»s, 10. janúar. Al'. SOVÉZKI stórmeistarinn Rafael Vaganyan varð sigurvegari í skák- mótinu í Hastings að þessu sinni með auðveldum sigri yfir Banda- ríkjamanninum Dmitri Gurevich á sunnudag. Þá voru enn eftir tvær umferðir á mótinu, en Vaganyan var þá kominn með 9'A vinning eftir 11 umferöir og útilokað, að nokkur annar þátttakandi gæti orðið hærri en hann. Nigel Short, 17 ára gamall Eng- lendingur, sigraði hinn sovézka þátttakandann í þessari umferð, en það var Vladimir Tukmakov og varð skák þeirra ekki nema 33 leikir. Yako Murey frá ísrael er nú tal- inn líklegastur keppenda til þess að ná öðru sæti í mótinu á eftir Vaganyan. Cterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamióill! V esturbær Vorum aö fá í sölu afar vandaða 5 herbergja ca. 120 fm íbúö á 2. hæö í frekar nýlegu húsi viö Fálkagötu. íbúðin er m.a. 2 rúmgóöar stofur og 3 svefnherbergi, öll með skápum og eldhús með borðkrók. Parket og teppi á gólfum og viöarklæöningar í lofti í stofum. Laus eftir samkomulagi. Iðnaðar- og landbúnaðarframleiðsla Kínverja fram til 1985: Stjórnvöld reikna með um 4% aukningu árlega — Spá vöruskiptahalla upp á 2,5 milljarða dollara 1985 KÍNVERJAR reikna með um 4% framlciösluaukningu í iðnaði og landbúnaöi á ári fram til ársins 1985 í nýútkominni fimm ára áætlun stjórnvalda. Þar er ennfremur gert ráð fyrir því, að innflutningur verði heldur meiri en útflutn- ingur. Áætlunin, sem hefur tafizt í tæplega 2 ár, er fyrir árin 1981—1985. Talsmaður kínversku stjórnarinnar sagði ástæðuna fyrir þessum drætti ýmsar breyt- ingar á stjórnkerfi Kínverja. Heildarverðmæti iðnaðar- og landbúnaðarframleiðslu er talið hafa verið um 435,5 milljarðar dollara á árinu 1981, sem er um 21,7% verðmætaaukning frá árinu á undan. Kínverjar gera ráð fyrir, að kornuppskeran þar í landi verði um 350 milljónir tonna árið 1985, samanborið við 320 milljónir tonna á árinu 1981. Þá er' gert ráð fyrir, að kola- framleiðslan muni aukast úr 620 milljónum tonna á árinu 1980 upp í um 700 milljónir tonna á árinu 1985. Stálframleiðsla mun aukast um í námunda við 5% á árabilinu 1981—1985 og verða um 39 millj- ónir tonna í lok tímabilsins. Áætlunin gerir ráð fyrir, að út- flutningur verði að verðmæti um 20,1 milljarður dollara, en inn- flutningsverðmæti verði hins veg- ar um 22,6 milljarðar á árinu 1985, sem þýðir vöruskiptahalla upp á 2,5 milljarða dollara. Heiidarvöru- skipti eru talin munu aukast um liðlega 21% á árabilinu 1981 — 1985. Verulegur samdráttur hjá Capitol-flugfélaginu bandaríska: Helzti keppinautur Flug- leiða segir upp starfs- fólki og fækkar ferðum CAPITOL-flugfélagið bandaríska, sem hefur verið einn helzti keppinautur Flugleiöa í Norður-Atlantshafsfluginu siðustu árin, tilkynnti í liðinni viku, að félagið myndi fækka ferðura, bæði innan Bandaríkjanna og á Atlantshafinu, vegna minnkandi flutninga og verðstríðsins. Vegna samdráttar í þjónustu neyðist félagið til að segja upp fjölmörgum starfsmönnum og sagði talsmaður félagsins, að væntanlega myndu 20—25% starfsmanna þess lenda í niður- skurði fyrir mánaðarlok. Capitol skilaði nýlega fimm flugvélum af gerðinni DC-8-61 til Eastern-flugfélagsins bandaríska, en Capitol gat ekki staðið í skilum með leigugreiðslur af vélunum. Talsmaður félagsins sagði reynd- ar, að þrjár DC-8 vélar yrðu tekn- ar á leigu hjá bandaríska flugfé- laginu World Airways, auk þess sem ein DC-10 vél yrði tekin á leigu frá International Air Lease Inc. Vegna þess er vert að rifja upp, að flutningar Flugleiða á Norður- Atlantshafinu, jukust gríðarlega á liðnu ári. Má í því sambandi nefna, að flutningar frá Banda- ríkjunum jukust um tæplega 70% á fyrstu tíu mánuðunum, en heild- araukningin í Norður-Atlants- hafsfluginu er vel fyrir ofan 30% markið. „Hvernig þjónar lánamark- aðurinn atvinnulífinu?“ — er yfirskrift ráðstefnu Verzlunarráðs íslands VERZLUNARRÁÐ fslands gengst fyrir ráðstefnu um lánamarkaðinn og þjónustu lánastofnana við atvinnulífið í Kristalsal Hótels Loftleiða fimmtu- daginn 13. janúar nk. og hefst hún klukkan 14.00. Heiti ráðstefnunnar er „Hvernig þjónar lánamarkaðurinn atvinnulífinu?", og er hún opin öllum áhugamönnum um málefnið. í frétt Verzlunarráðs íslands segir, að umræða um þjónustu lánastofnana hafi legið í láginni um nokkurt skeið og sé tímabært að taka hana upp að nýju. „Hafa framfarir orðið á undanförnum árum í þjónustunni eða hefur samræming komið í veg fyrir eðli- lega samkeppni og aukna þjónustu við atvinnulífið? Hindrar fyrir- komulagið eðlilegan sveigjanleika eða er lánakerfið opið fyrir nýj- ungum? Þessum spurningum og fleirum verður reynt að svara í framsöguerindum á ráðstefn- unni," segir ennfremur. Ráðstefnan hefst með setn- ingarræðu Ragnars S. Halldórs- sonar, formanns VÍ. Fjórir menn flytja framsöguerindi, Ragnar Ön- undarson, aðstoðarbankastjóri Iðnaðarbankans, sem fjalla mun um hlutverk lánastofnana í efna- hagsþróun landsins. Árni Árna- son, framkvæmdastjóri Verzlun- arráðsins, mun fjalla um innlend- an lánamarkað með tilliti til spurningarinnar: „Er skipulagið hemill á hagvöxt?". Þórður Magnússon, fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs Eim- skips, mun fjalla um utanríkis- viðskipti og erlenda gjaldeyris- markaði, sérstaklega með tilliti til spurningacjnnar: „Fylgjumst við með kröfum tímans?". Ármann Örn Ármannsson, framkvæmdastjóri Ármannsfells mun fjalla um fjármögnun íbúð- arhúsnæðis, sérstaklega með til- liti til þess sem hann kallar „Þjóð- arsport íslendinga í vanda“. Eftir hverju erindi verða flutt stutt álit, en þeir sem það gera eru Guðmundur Arnaldsson, hagfræð- ingur Verzlunarráðsins, Tryggvi Pálsson, hagfræðingur Lands- banka íslands, Agnar Friðriksson, framkvæmdastjóri Arnarflugs, Þráinn Þorvaldsson, fram- kvæmdastjóri Hildu hf. og Þor- steinn Steingrímsson, fram- kvæmdastjóri Fasteignaþjónust- unnar. Fyrirspurnir og umræður verða í lok ráðstefnunnar frá klukkan 17.00-18.00. Ráðstefnustjóri verður Hörður Sigurgestsson, for- stjóri Einiskips.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.