Morgunblaðið - 11.01.1983, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1983
Heildarútflutningur dróst saman um 15% janúar—nóvember 1982:
fyrstu ellefu mánuði síðasta árs.
Samtals voru flutt út 1.521,6 tonn,
borið saman við 1.018,6 tonn á
sama tíma í fyrra. Verðmætaaukn-
ingin milli ára var um 96%, en
heildarverðmætið í fyrra var um
43,5 milljónir króna, borið saman
við um 22,1 milljón króna á sama
tíma árið 1981.
Niðurlagöar sjávarafurðir
Útflutningur á niðurlögðum
sjávarafurðum jókst um 44% í
magni talið, fyrstu ellefu mánuðina
í fyrra, en samtals voru flutt út um
2.242,4 tonn, smanborið við 1.559,5
tonn á sama tíma árið 1981. Verð-
mætaaukningin milli ára er um
153%. Heildarverðmæti útflutn-
ingsins í fyrra var um 139,7 millj-
ónir króna, borið saman við 55,3
milljónir króna á sama tíma árið
1981.
Kísilgúr
Útflutningur á kísilgúr jókst um
23%, í magni talið, fyrstu ellefu
mánuði sl. árs, en samtals voru
flutt út 22.300,4 tonn í fyrra, borið
saman við 18.182,4 tonn á sama
tíma árið 1981. Verðmætaaukning-
in milli ára er um 95%. Heildar-
verðmæti í fyrra var um 60 millj-
ónir króna, samanborið við um 30,7
milljónir á sama tíma árið 1981.
Utflutningur iðnaðar-
vara dróst saman um 8%
— Verðmætaaukning langt undir almennum verðlags- og gengisbreytingum
Málning og lakk
Útflutningur á málningu og
lakki dróst saman um 80%, í magni
talið fyrstu ellefu mánuðina í
fyrra, en samtals voru flutt út um
404 tonn, borið saman við 2.008,8
tonn á sama tíma árið 1981. Verð-
mætasamdrátturinn milli ára er
um 67%, en heildarútflutnings-
11
verðmætið í fyrra var um 6,8 millj-
ónir króna, samanborið við 21
milljón króna á sama tíma i fyrra.
Vikur
Vikurútflutningur dróst saman
um 50%, í magni talið, fyrstu ellefu
mánuði síðasta árs, en samtals
voru flutt út um 16.392,2 tonn í
fyrra, borið saman við 32.825,3
tonn á sama tíma árið 1981. Verð-
mætasamdrátturinn milli ára er
um 15%, en heildarútflutnings-
verðmætið í fyrra var um 4,8 millj-
ónir króna, borið saman við tæp-
lega 5,6 milljónir króna á sama
tíma árið 1981.
l’angmjöl
Útflutningur á þangmjöli dróst
saman um 5%, í magni talið, fyrstu
ellefu mánuðina í fyrra, en samtals
voru flutt út um 2.131,2 tonn í
fyrra, borið saman við um 2.251,7
tonn á sama tíma árið 1981. Verð-
mætaaukningin milli ára var að-
eins um 10%, en heildarverðmætið
í fyrra var tæplega 6,7 milljónir
króna, borið saman við 6,1 milljón
króna á sama tíma árið 1981.
Brotajárn
Útflutningur á brotajárni jókst
um 8%, í magni talið, fyrstu ellefu
mánuði sl. árs, en samtals voru
flutt út 3.846,6 tonn, borið saman
við um 3.567,3 tonn á sama tíma í
fyrra. Verðmætaaukningin milli
ára var um 39%, en heildarverð-
mæti útflutningsins í fyrra var um
5,2 milljónir króna, borið saman
við liðlega 3,7 milljónir króna á
sama tíma árið 1981.
HEILDARÚTFLUTNINGUR landsmanna dróst saman um 15% fyrstu ellefu
mánuði ársins í fyrra, ef litið er á magntölur. Alls voru flutt út 485.794,7 tonn
fyrstu ellefu mánuðina í fyrra, samanborið við 570.187,8 tonn á sama tíma árið
1981, samkvæmt upplýsingum í samantekt Útflutningsmiðstöðvar iðnaðarins.
IBM eignast um 12%
hlutafjár í Intel
IBM OG INTEL, stórfyrirtækin bandarísku, tilkynntu nýlega, að samningar
hefðu tekizt með þeim um að IBM keypti hlut í Intel, en samkvæmt samkomu-
laginu kaupir IBM 6.250.000 nýútgefin hlutabréf á 40 dollara stykkið, eða
samtals 250 milljónir dollara, sem staðgreiðast.
Verðmætaaukning milli ára er
aðeins um 28% á sama tíma og al-
mennt verðlag hefur hækkað um í
námunda við 60%. Heildarverð-
mæti útflutnings fyrstu ellefu
mánuði ársins voru liðlega 7.254,3
milljónir króna, borið saman við
liðlega 5.655,6 milljónir króna á
sama tíma árið 1981.
Iðnaðarvörur
Á sama tíma dróst útflutningur
iðnaðarvara saman um í námunda
við 8%, í magni talið, en fyrstu ell-
efu mánuðina í fyrra voru flutt út
samtals 140.640,5 tonn, borið sam-
an við 152,611,3 tonn á sama tíma
árið 1981. Verðmætaaukning milli
ára var um 42%, en heildarverð-
mæti iðnaðarvöruútflutnings
fyrstu ellefu mánuðina í fyrra var
um 1.634,5 milljónir króna, sam-
anborið við 1.150,0 milljónir á sama
tíma árið 1981.
Ál og álmelmi
Útflutningur á áli og álmelmi
dróst saman um 10% í magni talið
fyrstu ellefu mánuði sl. árs, en
samtals voru flutt út 53.090,6 tonn í
fyrra, borið saman við 58.801,1
tonn á sama tíma árið 1981. Verð-
mætaaukning milli ára var hins
vegar aðeins um 20%, sem er um
þriðjungur af verðlagsbreytingum í
landinu á þessum tíma.
Kísiljárn
Kísiljárnútflutningurinn jókst
hins vegar um 25% fyrstu ellefu
mánuði sl. árs, en samtals voru
flutt út 36.429,1 tonn, borið saman
við 29.067,3 tonn á sama tíma í
fyrra. Verðmætaaukningin milli
ára var um 84%, en heildarverð-
mætið í fyrra var um 207,9 milljón-
ir króna, borið saman við 112,9
milljónir króna árið 1981.
Ullarvöruútflutningur
Ullarvöruútflutningurinn dróst
saman um 4%, í magni talið, fyrstu
ellefu mánuðina í fyrra, en samtals
voru flutt út 1.360,4 tonn í fyrra,
borið saman við 1.410,7 tonn á
sama tíma árið 1981. Verðmæta-
aukningin milli ára var hins vegar
um 59%, eða nær því sama hlutfall
BMW sækir á í
Bandaríkjunum
BMW hefur átt velgengni að fagna á
undanförnum árum, sérstaklega hef-
ur fyrirtækið komið ár sinni vel fyrir
borð í Bandarikjunum, en á liðnu ári
flutti „Don ('arlos", sérstakt bíla-
flutningaskip, liðlega 52 þúsund bíla
yfir hafið.
í fréttabréfi BMW segir, að á
árabilinu 1960—1970 hafi verið
seldir að meðaltali 1.000 bílar á
ári, síðan hafi það vaxið í um
10.000 bíla á árabilinu 1970-1975,
þegar salan tók mikinn kipp upp á
við í um 20.000 bíla. Árið 1980 voru
seldir um 35.000 bílar til Banda-
ríkjanna og liðlega 40.000 á árinu
1981.
BMW þakkar þennan árangur
aðallega tvennu, aukinni mark-
aðssókn almennt og svo því, að
umboðsmönnum hefur verið fjölg-
að úr 300 í 400 á liðnum árum í
Bandaríkjunum.
og almennar verðbreytingar í land-
inu, en nokkuð undir breytingum á
verði hinna ýmsu gjaldmiðla. Mest-
ur varð samdrátturinn í útflutningi
á prjónavörum úr ull, eða um 12% í
magni talið. Flutt voru út 411,8
tonn fyrstu ellefu mánuðina í
fyrra, borið saman við 468,5 tonn á
sama tíma í fyrra. Verðmætaaukn-
ing varð eigi að síður upp á um
49%, en heildarverðmætið í fyrra
var um 230,7 milljónir króna, borið
saman við um 154,8 milljónir króna
á sama tíma árið 1981.
Útflutningur ullarteppa jókst
um 24% í magni talið, fyrstu ellefu
mánuði síðasta ár, en alls voru
flutt út 119,1 tonn, samanborið við
96.3 tonn á sama tíma árið 1981.
Verðmætaaukningin milli ára var
um 106%, en heildarverðmætið í
fyrra var um 17,6 milljónir króna
samanborið við 8,5 milljónir króna
á sama tíma árið 1981.
Útflutningur á svokölluðum „ytri
fatnaði, án prjónafatnaðar" jókst
um 212%, í magni talið, en í fyrra
voru flutt út samtals um 20,0 tonn,
borið saman við 6,4 tonn á sama
tíma á árinu 1981.
Skinnavara
Útflutningur á skinnavöru dróst
saman um 10%, í magni talið,
fyrstu ellefu mánuðina í fyrra, en
samtals voru flutt út 437,1 tonn,
borið saman við 486,5 tonn sama
tíma árið 1981. Verðmætaaukning-
in milli ára er hins vegar aðeins um
21%, en heildarverðmætið í fyrra
var liðlega 88,6 milljónir króna,
borið saman við tæplega 73,4 millj-
ónir króna á sama tíma árið 1981.
Útflutningur á almennum vörum
úr loðskinnum dróst saman um
60%, í magni talið, fyrstu ellefu
mánuðina í fyrra, en alls voru flutt
út um 13,4 tonn, samanborið við
33.4 tonn á sama tíma árið 1981.
Samdrátturinn í verðmætum var
um 4% á milli ára, en heildarverð-
mætið í fyrra var um 15,2 milljónir
króna á móti tæplega 15,8 milljón-
um króna á sama tima árið 1981.
Samdrátturinn í útflutningi á
loðsútuðum skinnum og húðum
fyrstu ellefu mánuðina í fyrra var
um 6%, í magni talið, en samtals
voru flutt út um 423,7 tonn í fyrra,
borið saman við 453,1 tonn á sama
tíma árið 1981. Verðmætaaukning-
in milli ára var um 27%,'heiidar-
verðmæti útflutningsins í fyrra var
um 73,4 milljónir króna borið sam-
an við 57,6 milljónir króna á sama
tíma árið 1981.
Vörur til sjávarútvegs
Útflutningur á vörum til sjávar-
útvegs jókst um 50%, í magni talið.
Þá gerðu fyrirtækin með sér
samning, sem heimilar IBM að
auka hlutafé sitt í Intel, en aðeins
upp að 30% markinu. Þá segir í
samkomulaginu, að Intel skuli
mæla með einum forstjóra, sam-
kvæmt tilnefningu IBM, þegar kos-
ið er til stjórnar fyrirtækisins.
Gordon E. Moore, aðalforstjóri
Intel, sagði vegna samningsins, að
hann fagnaði honum. „Samningur-
inn gerir okkur kleift, að halda
áfram á þeirri braut, að auka fjár-
festingar í rannsóknum og auka
framleiðsluna, sem er nauðsynlegt
ef við ætlum að halda forystuhlut-
verki okkar í „microelectronic"",
Heildarfarþegafjöldi félagsins á
liðnu ári var 3.276.000, en það eru
um 2,7% fleiri farþegar heldur en á
árinu 1981, þegar þeir voru samtals
3.190.000. Þetta gerist á sama tíma
og velflest flugfélög heimsins eiga í
umtalsverðum erfiðleikum.
Fjöldi „farþegakílómetra" á Atl-
antshafsleiðum félagsins var um
6,5% meiri, en árið 1981, á sama
tíma og meðaltal flugfélaga var um
1% undir fyrra ári. í þessu sam-
bandi má skjóta að, að aukningin
sagði Gordon E. Moore.
John R. Opel, aðalforstjóri IBM,
sagði hlutabréfakaupin aðeins vera
fjárfestingu af hálfu fyrirtækisins.
„Við munum ekki skipta okkur af
daglegum rekstri Intel. Við teljum
hins vegar, að tengslin muni
styrkja okkur í framleiðslunni, því
Intel framleiðir ýmsa þá hluti, sem
við notum síðan í okkar fram-
leiðslu. Það verður hins vegar engin
breyting á því, að við munum eftir
sem áður verzla í miklum mæli við
önnur fyrirtæki á markaðnum,"
sagði John R. Opel.
Eftir hlutabréfakaupin á IBM um
12% hlutafjár í Intel.
hjá Flugleiðum á Norður-Atl-
antshafinu er mun meiri en þetta,
eða á bilinu 30—35%, samkvæmt
bráðabirgðatölum.
Flugfloti Finnair samanstendur
af þremur DC-10 þotum, einni DC-8
þotu, 25 DC-9 þotum, þremur „Sup-
er Caravella" og þremur Fokker
Friendship-skrúfþotum. Reyndar
má geta þess, að Flugleiðir sjá um
viðhald fyrir Finnair á Fokker-
vélunum.
VIÐSKIPTI
VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF
— umsjón Sighvatur Blöndahl
Hagnaður hjá
Finnair 1982
— Farþegaflutningar jukust um 2,7%
FINNAIR, ríkisflugfélagið finnska, tilkvnnti nýverið, að hagnaður hefði orðið af
rekstri fyrirtækisins á liðnu ári, en endanlegar tölur þar að lútandi liggja þó enn
ekki fyrir.