Morgunblaðið - 11.01.1983, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 11.01.1983, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1983 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir GUÐM. HALLDÓRSSON Pershing II O Stýrieldflaugar m Sovétríkin •' uTo'O- • 'í f í ,'í.*** . r ? -iös Vestur- i \3—^Þýzkaland N Drægni Pershing-II og stýrieldflauga Bandaríkjamanna og SS 20- elddauga Rússa sagt að þeir fljúgi 195 sinnum á ári yfir Japan og umhverfis landið, oft í japanskri lofthelgi. Þótt Rússar auki óðum eld- flaugamátt sinn í austri og suðri hafa þeir ekki gleymt Evrópu. New York Times greinir einnig frá því, samkvæmt NATO- heimildum, að Rússar hafi hafizt handa um að endurbæta loft- varnir sínar og auka eldflauga- mátt sinn í Austur-Evrópu. Blaðið segir að Rússar hafi þar Aukin fjölbreytni í skotmörkum Rússa RÚSSAR hafa komið upp bækistöðvum fyrir margar þær eldflaugar sínar, sem draga heimsálfa á milli, í suður- og austurhéruðum Sovétríkjanna í stað þess að koma þessum langdrægu eldflaugum fyrir í norðurhluta landsins, sem er nær Bandaríkjunum. Frá þessu segir í nýútkominni skýrslu, sem unnið hefur verið að í fimm ár á vegum Brookings-stofnun- arinnar í Bandaríkjunum. Ástæðan er ekki aðeins sögð sú að Rússar vilji koma þessum eldflaugum fyrir á stöðum, sem margar af langdrægum Minuteman-eldflaugum Bandaríkjamanna ná ekki til. Ástæðan sé einnig sú að þeir vilji að þær geti hæft skotmörk á ýmsum stöðum, m.a. Suður-Afríku, Brazilíu, bækistöð bandaríska flughersins á Guam og kjarnorkuskotfærastöðvar og flotastöðvar á Guam, Filippscyjum og Ilawaii. Iskýrslunni segir að Rússar hafi fastmótaðar hugmyndir um heimsátök, bæði átök sem ná til fleiri heimsálfa en einnar og átök sem eru bundin við afmörk- uð svæði, og þeir hafi yfir að ráða nægu kjarnorkuliði, sem þeir geti beitt í öðru hvoru til- fellinu. Skotmörk Rússa séu ekki aðeins Bandaríkin, heldur öll Vestur-Evrópa og önnur hugs- anleg óvinaríki og auk þess bandarískar herdeildir og flota- deildir eins og flugvélamóður- skip Bandaríkjamanna á Mið- jarðarhafi og annars staðar í heiminum. Þetta er sögð ein skýringin á því hvers vegna Rússar ráði yfir miklu fleiri eldflaugum en Bandaríkjamenn, sem miði öllum eldflaugum sín- um yfir Norðurpólinn á Sovét- ríkin eingöngu. Vestur-Evrópa hefur verið að- alskotmark Rússa frá byrjun og fyrstu eldflaugar þeirra voru meðaldrægar en ekki langdræg- ar. Enn þann dag í dag eru eld- flaugasveitir Rússa vopnaðar meðaldrægum jafnt sem lang- drægum eldflaugum. Sovézk vopn geta hæft skotmörk hvar sem er í heiminum og til marks um það er á það bent í Brook- ings-skýrslunni að eldflauga- sveitir í Norður-Rússlandi ráði yfir gömlum SS-4 og SS-5 eld- flaugum með fljótandi eldsneyti, sem sé miðað á „skotmörk um alla Skandinavíu og á ísland." (Leturbr. Mbl.) Það kemur heim við skýrsluna að samkvæmt fréttum byggðum á leyniþjónustuheimildum efldu Rússar verulega landher sinn, flugher og sjóher á Vestur- Kyrrahafssvæðinu á síðasta ári. Eins og hermáiafréttaritari New York Times bendir á hafa bandarískir hernaðarsérfræð- ingar Iengi talið þetta svæði mikilvægt Bandaríkjunum og Japan og Kína og vitnar í því sambandi í vitnisburð Maurice F. Werisner aðmíráls, yfirmanns bandaríska heraflans á Kyrra- hafi, fyrir fjórum árum. Hann sagði þingnefnd að sú siglinga- leið, sem hann teldi vera í mestri hættu, væri olíuflutningaleiðin um Suður-Kínahaf og Filipps- eyjahaf. Hann benti einnig á siglingaleiðirnar frá Bandaríkj- unum fram hjá Kamtsjatka- skaga í Sovétríkjunum og Kúril- eyjum, sem Rússar tóku af Jap- önum 1945. Rússar hafa fjölgað í setuliði sínu á Kúrileyjum úr 10.000 fótgönguliðum 1981 í 14.000. Úr aðalstöðvum Rússa á eyjunum er hægt að stjórna aðgerðum nokk- urra herfylkja samkvæmt grein í tímaritinu Military Review. Rússar hafa auk þess sent sveit 12 hljóðfrárra MiG-21 orrustu- sprengjuflugvéla til þess að leysa af hólmi sveit MiG-17 flugvéla á eynni Iturup (Etor- ofu). Skýring Rússa er sú að frá og með 1985 ráðgeri Bandaríkja- menn að koma fyrir 50 F-16 orrustu-sprengjuþotum, sem geta borið kjarnorkuvopn, í Norður-Japan. Vestrænir sér- fræðingar geta sér þess hins veg- ar til að uppbyggingin sé liður í áætlun um að mynda nýja fram- línu, sem sovézkir kafbátar bún- ir kjarnorkuvopnum sem ná til Bandaríkjanna geti athafnað sig á bak við, tiltölulega óhultir. Hvergi hefur flotastyrkur Rússa verið efldur eins mikið og á hafinu í grennd við Víetnam. Sovézkar flotadeildir mætast í Cam Ranh flóa og Danang. Kín- verjar hafa sakað Rússa um að hefja smíði annarrar flota- stöðvar, á eynni Con Son á Suður-Kínahafi, um 130 km suð: austur af Vinh Loi í Víetnam. í Víetnam eru nú 5—8.000 sovézk- ir hernaðarráðunautar, sem gera við vopn, aðallega af sovézkri gerð, þjálfa flugmenn og eld- flaugaskyttur og sjá um rekstur og viðhald ratsjárstöðva á Tan Son Nhut-flugvellinum í Ho Chi Minh-borg (Saigon) og í Danang, Bien Hoa og Cam Ranh-flóa. Hernaðaraðstoð Rússa við Ví- etnam mun nú nema 1,3 millj- örðum dala á ári. Rússar hafa stóraukið eftirlitsflug á suðvest- anverðu Kyrrahafi og i Tókýó er með í fyrsta skipti tekið sér fyrir hendur að efla varnir eldflauga- geymslustöðva sinna utan Sovét- ríkjanna. Loftvarnirnar verða meðal annars efldar með nýjum og fullkomnari ratsjárbúnaði. Ein ástæðan til þess að það er gert er mikið mannfall Sýrlend- inga, sem eru búnir sovézkum vopnum, í innrás ísraelsmanna í Líbanon. Þar við bætist að Rúss- ar munu einnig hafa hafizt handa um að koma fyrir orr- ustu-sprengjuflugvélum af gerð- inni SU-24, hinum fullkomnustu sem þeir eiga, í Austur-Þýzka- landi, Póllandi og Ungverja- landi. Lítt virðist hafa miðað áfram í viðræðum Bandaríkjamanna og Rússa í Genf, annars vegar um fækkun langdrægra eldflauga og sprengjuflugvéla, svokölluðum „START-viðræðum", og hins vegar um meðaldrægar eldflaug- ar í Evrópu, svokölluðum INF- viðræðum. Leyniviðræður hafa einnig farið fram að sögn Eug- ene V. Rostows, eins samninga- manns Bandaríkjastjórnar, um málamiðlunartillögu, bersýni- lega frábrugðna opinberum hugmyndum Ronald Reagans forseta. Þær viðræður munu hafa farið út um þúfur. Síðustu tillögur Andropovs hafa vakið litla hrifningu og í Washington er sagt að með þeim sé opinberlega hafinn mikill darraða- eða „dauðadans", sem Bandaríkjamenn, vestrænir samherjar þeirra og Rússar muni stíga næstu árin. Þótt hljótt hafi farið munu ýmis önn- ur „eldfim" mál valda efasemd- um um hvað það er sem fyrir Rússum vakir, ekki sízt þær spurningar, sem hafa vaknað um það hvort Búlgarar og þar með Rússar hafi gegnt hlutverki í til- ræðinu við Jóhannes Pál páfa II í fyrra, eða vitað um það fyrir- fram. Berglind Bjarna- dóttir Tónlist Egill Friðleifsson Norræna húsið, 9. jan. 1983. Flytjendur: Berglind Bjarnadóttir sópran, Guðrún A. Kristinsdóttir píanó. Efnisskrá: Lög eftir Atla H. Sveinsson, W. Peterson-Berger, W. Stenhammar, J. Sibelius. Berglind Bjarnadóttir sópran- söngkona debuteraði í Norræna húsinu sl. sunnudag. Berglind fór kornung að gefa sig að sönglist- inni og komu þá þegar í ljós ágætir hæfileikar hennar á því sviði, og hún hefur ávaxtað sitt pund vel. Eftir að hafa um árabil sungið í barnakór og síðar í söngtríói hóf hún nám hjá Elísa- betu Erlingsdóttur við Tónlist- arskólann í Kópavogi og lauk þaðan námi vorið 1977. Sl. þrjú ár hefur hún stundað framhalds- nám í Stokkhólmi. Frá því ég heyrði Berglind syngja síðast, en það var er hún útskrifaðist úr Kópavogi ’77, hefur rödd hennar breyst og þroskast mikið. Fram- farirnar leyna sér ekki. Greini- lega hefur hún verið undir leið- sögn hæfra kennara og stundað námið af kappi. Efnisskráin var forvitnileg því þar mátti finna verk, sem sjaldan heyrast hér- lendis, t.d. lög eftir Svíana W. Peterson-Berger og W. Sten- v\ / Berglind Bjarnadóttir hammar. Annars hófust tónleik- arnir á nokkrum nýlegum lögum eftir Atla H. Sveinsson og þeim lauk með þremur perlum eftir J. Sibelius. Berglind hefur margt til brunns að bera sem prýða má söngkonu. Hún hefur fallega rödd og syngur músíkalskt. Framburð- ur Ijóðanna var mjög skýr og hún ætlaði sér ekki um of í vali verk- efna sinna. Framkoma hennar er látlaus og elskuleg. Berglind er enn við nám og á væntanlega eft- ir að vinna ennþá betur úr góðum gáfum sínum. Hún er nú á förum til frekara náms og héðan fylgja henni óskir um gæfu og gengi á grýttri braut listarinnar. Öndirleikari á þessum tónleik- um var Guðrún A. Kristinsdóttir og lék af öryggi og smekkvísi. Húsfyllir var og söngkonunni ungu ágætlega tekið af áheyrend- um. Laurence Albert Tónlist Jón Ásgeirsson Laurence Albert er mjög efni- legur söngvari, hefur fallega rödd, ræður yfir töluverðri tækni og í túlkun hans má greina sterka tilfinningu hans fyrir innihaldi textans. í tveimur fyrstu lögun- um, Piango gemo, eftir Vivaldi, og Empio diro tu sei, eftir Hánd- el, mátti heyra að hann vantaði nokkuð í tækni til að leika létti- lega með þessi lög, einkum i „Da Capo“-hlutanum af Piango gemo og einnig í lagi Handels, sem er mjög erfitt og söngvarinn söng í heild mjög vel. Næstu fimm lög voru eftir Schubert. Næturljóð förumanna var fallega sungið en nokkuð truflaði órólegur undirleikur Mary Dibbern. Krossferðin var ágætlega sungin og sömuleiðis það fræga lag „Stillur" (Meers- stille). í þremur íögum eftir Wolf, við Ijóð eftir Micaelangelo, sýndi Albert frábæra túlkunarhæfi- leika sína. Síðast á efnisskránni voru sex skemmtileg smálög, eft- ir Poulenc, við grínagtug ljóð eft- ir Apollinaire of Danse Macabre, eftir Saint-Saens. Allt flutti söngvarinn mjög fallega og er óhætt að spá þessum unga söngv- ara glæsilegri framtíð. Að lokn- um hljómleikunum söng Albert þrjá negrasálma frábærlega vel. Laurence Albert Nú geta allir fengið Króksborgara NÚ geta allir fengið Króksborgara, segja eigendur Hressingarhússins á Sauðárkróki. Hressingarhúsið er hamborgarastaður, sem opnaði í sumar í nýju húsi við höfnina á Sauðárkróki og hefur þar m.a. á boðstólum Króksborgara fyrir gesti og gangandi. Helena Svavarsdóttir verslunarstjóri að afgreiða viðskiptavin. MbL/HBj.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.