Morgunblaðið - 11.01.1983, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1983
19
Nokkrir fanganna, sem ekki höfðu áhuga á þátttöku í uppþotinu í Ossing-fangelsinu, hafa prílað yfir girðingu og
lögreglumenn taka á móti þeim. símamynd ap.
Uppþot í fangelsi
Ossining, New Vork, 10. janúar. Al*.
SAMNINGAVIÐRÆÐUR stóðu yfir milli uppreisnarfanga og yfirvalda í gær
í fangelsi New York-borgar, sem eitt sinn hét Sing Sing. Hópur fanga í einni
fangelsisálmunni náöi henni á sitt vald á laugardaginn og halda þeir 17
fangavörðum í gíslingu. Ekkert manntjón varð og er talið víst að uppreisnin
hafi verið með öllu óundirbúin. Voru fangarnir í fyrstu ekki vopnaöir öðru en
kústsköftum og spýtum, en voru gráir fyrir járnum er verðirnar höfðu gefist
“PP-
Borgarstjórinn Mario Cuomo
hefur stjórnað aðgerðunum sjálf-
ur og hann sagði að fangarnir
hefðu lagt fram all margar kröfur.
Cuomo lét þó ósagt í hverju þær
kröfur væru fólgnar. „Við munum
engar ákvarðanir taka eða sinna
kröfum af neinu tagi fyrr en gísl-
unum hefur verið sleppt," sagði
Cuomo. Þingmaðurinn Ralph Mar-
ino sagði að fangarnir kvörtuðu
mjög undan þrengslum, en „það er
vitleysa, það fer ágætlega um þá
þarna inni. Áttatíu prósent fang-
anna hafa engan áhuga á þessu
uppþoti, þeir vilja að vörðunum
verði sleppt umyrðalaust og fang-
arnir verði færðir til klefa sinna."
Lou Ganim, einn af talsmönnum
borgaryfirvalda sagði, að uppþotið
stafaði meðal annars af aðgerðar-
leysi fanganna, „þeir sem eru í
umræddri álmu bíða þess að verða
fluttir annað, þeir hafa hreinlega
ekkert við að vera.“ Ganim gat
þess einnig, að þeir harðskeytt-
ustu í hópi fanganna, þeir sem
gættu gíslanna, væru flestir mú-
hameðstrúarmenn.
E1 Salvador:
Oánægður offursti
hvattur til sátta
Sensuniepequo, Kl Salvador, 10. janúar. Al*.
FORINGJAR allra herdeilda
stjórnarhers E1 Salvador, að
tveimur undanskildum, hvöttu í
gær Sigifredo Ochoa offursta til
Dollari
lækkar
Ixindon, 10. janúar. Al*.
Bandaríkjadollari féll í gsr gagn-
vart öllum helstu gjaldmiðlum Vestur-
landa, að sterlingspundinu undan-
skildu. Þetta var sjötta vikan i röð,
sem dollarinn hækkaði gagnvart pund-
inu. Kjármálasérfræðingar sögðu að sú
trú manna, að bandarískir Seðla-
bankavextir myndu lækka á næstunni,
væri ástæðan fyrir því að dollarinn
hefur lækkaó gagnvart nær öllum
helstu gjaldmiðlunum.
þess að láta af uppreisn sem hann
hefur staðið fyrir ásamt hersveit
sinni í Cabanas-héraði að undan-
förnu. llppreisnina hóf hann sem
svar við skipun varnarmálaráð-
herra landsins að senda hann
ásamt herdeildum sínum til Uru-
guay. Var Ochoa lítið um skipun-
ina gefið og einangraði héraðið.
í millitíðinni tilkynnti hin
leynilega útvarpsstöð skæru-
liðahreyfingarinnar, Vencerem-
os, að á næstunni yrði látið til
skarar skríða gegn stjórnar-
hernum. Átök brutust út víða í
E1 Salvador í fyrrakvöld, en
kyrrt hafði verið í viku. Að
minnsta kosti tveir stjórnarher-
menn og 12 óbreyttir borgarar
féllu. Þá bjuggu um 300.000
manns við tímabundið raf-
magnsleysi eftir að skæruliðar
höfðu skemmt spennistöðvar í
þremur héruðum.
George Bush fer til
Evrópu í lok janúar
W ashirijjlon, IO. januar. Al*.
RONALD Reagan Bandaríkjaforseti
hefur tilkynnt, að hann muni senda
George Bush, varaforseta, í ferðalag
til Vestur-Evrópu i lok þessa mánað-
ar, til þess að „leggja áherzlu á hinar
mikilvægu skuldbindingar okkar
varðandi frið og öryggi þar“, eins og
segir í tilkynningu forsetans. Bush
mun heimsækja Vestur-Þýzkaland,
Sviss, Belgíu, Bretland, Ítalíu,'
Krakkland og Holland. Þá mun
Bush einnig hitta Jóhannes Pál II
páfa að máli.
Nýr biskup
í Bergá
Borga, Kinnlandi, 10. janúar.
Krá llarry (iranberg, fréltarilara
Morgunblaósins.
BORGÁ-biskupsdæmi, sem nær yfir
sænsku söfnuðina í Kinnlandi, fékk
á laugardag nýjan biskup.
Gerðist það með þeim hætti, að
Erik Vikström var vígður til emb-
ættis af fyrirrennara sínum og
bróður, John Vikström, sem
skipaður hefur verið erkibiskup.
Þetta mun sennilega vera í fyrsta
sinn, sem tveir bræður gegna bisk-
upsembætti samtímis, en þessir
menn eru synir Edwins Vikström
kennara.
I ræðu, sem Reagan flutti um
helgina, sagði hann, að Sovétríkin
yrðu að sýna meiri hófsemi í að-
gerðum sínum, ef takast ætti að
bæta sambúð þeirra og Bandaríkj-
anna. Að undanförnu hefðu ráða-
menn í Moskvu þó látið frá sér
fara uppörvandi ummæli, sem
bentu til þess, að Sovétmenn hefðu
hug á því að koma fram af meiri
ábyrgð en áður. En slík orð væru
því aðeins sannfærandi, að þeim
væri fylgt eftir í verki. Enn ætti
eftir að koma í ljós, hvort Sovét-
ríkin hefðu í raun og veru áhuga á
að draga úr spennunni á vettvangi
heimsmála.
Charles T. Manatt, einn af
helztu leiðtogum Demókrata-
flokksins, hefur hvatt Reagan for-
seta til þess að eiga hið fyrsta
fund með Yuri Andropov, leiðtoga
sovézka kommúnistaflokksins.
Kvaðst Manatt mjög ánægður með
fyrirhugaða för Bush til Evrópu,
en hér væri hins vegar um málefni
að ræða, sem krefðist forystu
sjálfs forsetans. Tími væri kominn
til þess fyrir forseta Bandaríkj-
anna, að ræða beint við leiðtoga
Sovétríkjanna, augliti til auglitis,
í því skyni að finna sameiginlegan
grundvöll til þess að draga úr hinu
hættulega vígbúnaðarkapphlaupi
stórveldanna.
Four-Wheel Drive
MITSUBISHI
JAPANSKUR BÍLL FYRIR
ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR
SBH:
Tveggja drifa bíll:
Með óvenjulega mlkla veghaeð ifjarlaegð frá vegi
að laegsta punkti undlrvagns), stöðugleika, llpurð
og afl..
Kjörgripur til ferðalaga á slæmum vegum og
vegleysum, pó með pæglndi og hraða f fyrir-
rúml.
Við hönnun pessa bfls hefur víðtæk reynsla
M.M.C. verksm. af smfði fjölhæfra tveggja drifa
bíla verið nýtt til fullnustu og hefur sérstök
áhersla verið lögð á frábæra ökuhæfni og mikla
endlngu. Milllgfrkassi er drlfinn af tannhjóla-
keðju, sem er mun hljóðlátari en hið hefðbundna
'tannhjöladrif.
Þessl bunaður hefur bá kostl aö færri slltfletlr eru á aflrásinni, snúningsvlðnám mlnnkar
og ekkert „slag" myndast við átaksbreytingar.
Afturtijól eru knúin belnt frá úttaksöxll f aðalgfrkassa, sem er sterkan búnaður en venju-
leg útfærsla, auk bess að vera hljóölátarl og orsaka minnl tltrlng.
Skásettlr höggdeyfaraö aftan, asamt brelöum blaðfjöðrum með mikið fjöörunarsvlð,
bó án bess að afturáslnn vlndlst til, begar spymt er eöa hemlað elns og bekkt er á bllum
meö heilum afturás.
Æskileg pungadreyflng meö og án hleöslu, sem stuölar aö fullu öryggl I akstri á veg-
leysum.
Hægt er að velja um bensín eða dleselvél báöar með tltrlngsdeyfum, sem gera ganglnn
afburða hlióðan og bvðann. |
Snerilfjöðrun að framan með tvöföldum
spyrnum, strokk-höggdeyfum og jafnvægls-
stöng.
Snekkjustýrisvél með æskllega undirstýrlngu í|
beygjum.
Aflhemlar með dlskum að framan.
Hreyfillinn framleiðir mikið snúningsvægi út á I
hjölbarðana, sem gefa afar gott grip á hvers-
konar yfirborði vegar. i
Allt betta leiöir af sér undirvagn I sérflokki, sem
er pýður, pægilegur, auðveldur I akstri og fráj
bær til snúninga I torfærum.
INNIFALINN BUNAÐUR:
□ Framdrlfsvislr - □ 7,60-15 hjölbaröar
□ Dráttarkrókur aö aftan
□ Olfuþrýstlngsmælir - u Hallamællr
□ Snúnlngshraöamællr - n Spennumællr
C Tölvuklukka (Ouarts) • C Framdrlfslokur
□ Halogen ðkuljós - □ Mlðstöð afturi
C Aflstýrl - □ vamarhom á vatnskassahlrf
□ Hlifðarplötur undlr framenda, vél,
gírkassa og eldsneytlsgeyml
C Hæglndastólar frami með fjaörandl
undirstööu
□ útlspeglar á báöum huröum
C upphltuð afturrúöa - □ Lltaö gler
□ Þurrka og sprauta á afturrúöu
HELSTU KOSTIR:
□ Mlkll veghæö
□ Hátt hlutfall orku: bunga
O MJög sparneytln 2.6 I. benslnvél,
eöa 2,3 I. dleselvél
C SJálfstæð fjöörun framhjóla
C Skásettlr höggdeyfar aö aftan
□ Fagurt og nýtiskulegt úttlt
□ Innréttlng, sem veltlr pæglndl og
gleöur augaö
MELSTU MAL MMC PAJERO LANO ROVER FORO BRONCO SUZUKI
HJÖLAHAF 2350 2230 2337 2030
HEKDARLfNGO 3920 3620 3863 3420
BREIDO 1680 1690 1755 1460
VEGHÆÐ 235 178 206 240
HÆÐ 1880 1970 1900 1700
ECIN ÞYNGO 1395 1451 1615 855