Morgunblaðið - 11.01.1983, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 11.01.1983, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1983 JlliOruMimMítfotfo Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 150 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 12 kr. eintakiö. Fargjöld í London og Reykjavík Frá vinstri: Ragnar, Hrönn, Valgerður og Guðlaugur. Mynd Mbl./KE. Á förum til kristniboðs TIL KRISTNIBOÐS í Afríku fara á næstunni tvenn ung hjón og dveljast þar við störf í 4 ár til að byrja með. ýmiss konar hjálp og aðhlynn- ing. Til Eþíópíu fara þau Guðlaug- ur Gunnarsson og Valgerður Gísladóttir, ásamt tæplega árs- gamalli dóttur sinni. Hann er guðfræðingur að mennt og hún hjúkrunarkona, þau eru bæði 25 ára gömul. Að líkindum munu þau starfa á kristniboðsstöð sem rekin er af íslenska og norska kristniboðssambandinu og fara fyrstu mánuðirnir í að læra ríkismálið. Síðan mun Guðlaug- ur starfa að prédikun og fræðslu og Valgerður við kvennastörf svokölluð, en undir þau flokkast Kristniboðið í Eþíópíu hófst af hálfu íslands 1953. Hefur aðal- lega verið starfað í Konsó og er söfnuðurinn þar orðinn milli 11 og 13 þúsund manns. Þarna er starfræktur skóli og sjúkraskýli sem hefur aðeins 20 rúm en um 40.000 sjúklingar fá aðhlynningu þar á ári. Til Kenýa fer bróðir Guðlaugs, Ragnar Gunnarsson, ásamt konu sinni Hrönn Sigurðardóttur. Einnig hún er hjúkrunarkona en hann er kennari, sonur þeirra níu mánaða gamall fer með þeim. Cheparería-kristniboðs- stöðin í vesturhluta landsins mun verða dvalarstaður þeirra, en 1978 hóf íslenska kristniboðs- sambandið þar starf meðal Poko-þjóðflokksins sem telur um 250 þúsund manns, þar af eru um 30 þúsund við þessa stöð. Þau byrja á að læra ríkismál Kenýa. Þá mun Ragnar starfa að boðun og uppfræðslu. Fjalllendi er mi%ið á þessum slóðum og þarf því að fara fótgangandi milli staða við kristniboð og hjálpar- starf. Hrönn mun verða við kvennastörf, en þarna byggjast þau m.a. á fræðslu um meðferð ungbarna til að fyrirbyggja ungbarnadauða. Við Cheparería er skóli og var hann byggður fyrir íslenskt fé sem safnað var af Hjálparstofnun kirkjunnar jólin ’81. Tannviðgerðir á kindum vegna flúoreitrunar: Borgar Símonarson bóndi á Goðdölum í Skagafirði ásamt Smára syni sínum að sverfa tennur kinda sinna. Maður veit ekkert u segir Borgar Símonarson bóndi í Goðdölum í Skagafirði Vinstrimenn með jafn- réttishugsjónir fara með völd á höfuðborgarsvæðinu í London. Þeir ákváðu fyrir nokkrum misserum, að allan umferðarvanda miðborgar- innar og fjárhagsvanda hinna verst stöddu mætti leysa með því að Iækka far- gjöld með strætisvögnum og neðanjarðarlestum. Engu skipti þótt halli á rekstri þessara borgarfyrirtækja væri stóraukinn, þeir með breiðu bökin yrðu að axla hann meðal annars með því að greiða hærri fasteigna- gjöld. En íbúar í einu hverfi í London ákváðu að sætta sig ekki við þetta og höfðuðu mál á hendur vinstri meiri- hlutanum í borgarstjórninni á þeim forsendum að það væri óréttlátt að þeir þyrftu að greiða strætisvagnagjöld fyrir aðra með fasteigna- sköttum eða öðrum sköttum. Einn virtasti dómari Breta, Lord Denning, sem síðan hefur látið af störfum fyrir aldurs sakir, dæmdi í þessu máli og var niðurstaða hans í stuttu máli sú, að það væri ólögmætt að lækka fargjöld- in og kippa þar með rekstr- argrundvellinum undan þeim fyrirtækjum borgar- innar sem reka almennings- farartæki í skjóli þess að aðrir en þeir sem þjónustu þessara fyrirtækja njóta myndu borga brúsann. Vinstrimenn með alkunn- ar jafnréttishugmyndir fara nú með fjármál íslenska ríkisins og deila meðal ann- ars út láglaunabótum í þeim anda, að nú skuli þeim hjálp- að sem minnst mega sín — hefur sú dæmalausa útdeil- ing þeirra leitt til hneyksl- unar um landið þvert og endilangt eins og við var að búast. Þessír íslensku vinstrimenn ætla að nota skattfé alls almennings í landinu til að stofna til málaferla gegn borgarstjórn Reykjavíkur, af því að þar hefur verið tekin ákvörðun um hækkun strætisvagna- gjalda til að lækka fyrir- sjáanlegan halla á rekstri fyrirtækisins á nýbyrjuðu ári. Svo mikið er óðagot vinstrimannanna í fjármála- ráðuneytinu í þessu máli, að Ragnar Arnalds, fjármála- ráðherra, lýsti því yfir í Þjóðviljanum á laugardag, að auðvitað mundi hann snara út því fé sem kannski dugar til að stöðva allar strætisvagnaferðir í Reykja- vík — en ráðherrann bætti því að vísu við, að sér hefði „ekki gefist tími til að skoða málið til hlítar." (!) Vinstrimenn í London skoðuðu ekki heldur málið til hlítar, áður en þeir ákváðu að aðrir en þeir sem stræt- isvagna nota ættu að bera meginþunga kostnaðarins við rekstur þeirra. í nafni laga og réttar var haft vit fyrir þeim. Hér á landi ætla vinstrimenn í nafni laga og réttar að kippa rekstrar- grundvellinum undan Stræt- isvögnum Reykjavíkur með aðstoð dómstóla. Svo mikið er ofríki þeirra og offors gagnvart Reykvíkingum eft- ir sársaukafulla útreið í kosningunum á liðnu vori, að öllum ráðum er beitt til að koma höggi á meirihluta borgarstjórnar. Raunar má spyrja til hvers verið sé að efna til kosninga í höfuð- borginni ef verðlagsstjóri og fjármálaráðherra eiga í raun að hafa það í hendi sér að stöðva framgang þeirra ákvarðana sem skipta sköp- um um það, hvort rekstur borgarinnar gangi bærilega og sæmilegt réttlæti og jöfn- uður ríki meðal borgarbúa. Skreiðarsalan • • Oll framleiðsla síðasta árs af skreið er enn óseld og er verðmæti hennar talið nema um 7% af allri fram- leiðslu sjávarafurða á árinu 1982, svo að mikið er i húfi að hinar miklu birgðir seljist á viðunandi verði. Astæðan fyrir því að skreiðin hefur safnast fyrir í landinu er sú, að markaðurinn í Nígeríu hefur verið lokaður vegna innflutningshafta þar í landi. Hafa Nígeríumenn gripið til haftanna vegna stórminnkandi tekna af olíu- sölu og horfur hjá þeim eru síður en svo góðar, eins og fram kemur hjá Stefáni Gunnlaugssyni, verslunar- fulltrúa við íslenska sendi- ráðið í London, sem annast samskiptin við Nígeríu. Þrátt fyrir þetta segir Stef- án Gunnlaugsson að búast megi við aukinni „hreyfingu á sölu skreiðar til Nígeríu" nú á nýbyrjuðu ári. Væri óskandi að þessi spádómur sendifulltrúans reyndist réttur, en því miður dugar óskhyggjan ekki til að brjóta skreiðinni leið inn um hafta- múrinn í Nígeríu og hann hefur ekki tekist að rjúfa allt síðasta ár. „MÉR líst illa á þetta verk. Þó ég sé lítið byrjaður á þessu ennþá, þá sé ég að þetta er bæði vont verk og leiðin- legt; leiðinlegt vegna þess að maður veit ekkert hvort þetta ber nokkurn árangur til frambúðar, þetta er svo mikil tilraunastarfsemi." Þetta sagði Borgar Símonarson bóndi í Goðdölum í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði, í samtali við blaðamann Mbl. þegar hann heimsótti Borgar nýlega og fékk að fylgjast með þegar hann ásamt Smára syni sínura var að byrja á að sverfa tennur þcirra kinda sinna sem fengið höfðu flúoreitrun vegna ösku- falls af völdum Ileklugoss 1980. Nokkrir bændur í fremstu dölum Skagafjarðar urðu varir við flúor- eitrunina í vetur eins og frá hefur verið skýrt í Mbl., og voru slátur- húsin á Sauðárkróki opnuð eftir að sláturtíð lauk í vetur til að slátra því fé sem var orðið það illa farið af flúoreitruninni, að ekki borgaði sig að fóðra það í vetur. Flúoreitrunin lýsir sér þannig að gaddur kemur í tennurnar á yngra fénu, þeim kind-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.