Morgunblaðið - 11.01.1983, Síða 45

Morgunblaðið - 11.01.1983, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1983 25 Lfótmynd Kriatján Einarsson. lilega ofan í körfu Dana. Pétur átti góöa iður vallarins og óttuðust Danir hann ilmaöur íslenska liðsins og veröur því ðinni. Eins og viö sögðum frá telur FIBA, ki löglegur með liðinu. Landsliðsnefnd ■ndi. Landsleikurinn á laugardag: Islendingar löguðu vörnina í síðari hálfleiknum og þá var sigurinn þeirra „Við lékum betur í gær en í dag. Vörnin var hræðileg hjá okkur í fyrri hálfleik, en í heildina var hún góð í þeim seinni. Og síö- ustu 10 mín. lékum viö hreint frábæra vörn,“ sagði Jim Dooley, þjálfari íslenska landsliðsins í körfuknattleík, eftir sigurleikinn gegn Dönum í Laugardalshöll á laugardaginn. ísland sigraði þá Danmörku annan daginn í röð — nú 84:77, en Danir höfðu eitt stig (39:40) yfir í leikhléi. Utan dyra blés vægast sagt ekki byrlega um þaö bil sem leikurinn var að hefjast, en hann taföist reyndar um hálftíma vegna ófærö- ar, og voru áhorfendur í Höllinni því sárgrætilega fáir. Innandyra blés heldur ekki sérlega byrlega fyrir islendinga í fyrri hálfleiknum — vörnin var slök eins og Dooley sagöi eftir leikinn — og nokkurs ráöleysis gætti í sóknarleiknum. Þá var hittni íslensku leikmann- anna ekki góö. Liöið var þó yfir á köflum — og skiptust liöin á aö hafa forystu en munurinn varö aldrei mikill. Danir spiluöu svokalla 1-3-1 svæðisvörn, og gekk íslendingun- um illa aö leika gegn henni. „Okkur haföi veriö sagt að Danir lékju aldrei þannig vörn og því vorum viö ekki undirbúnir undir þetta,“ sagöi Dooley eftir leikinn. Islenska liðið lék maöur á mann, og reyndist þaö ekki vel. Danir voru yfirleitt ekki í miklum vand- ræöum meö aö sleppa úr gæsl- unni. Fengu islendingarnir því dæmdar á sig allt of margar villur er þeir reyndu aö stööva þá, og fékk Símon t.d. sína 4. villu í fyrri hálfleiknum. Vörnin breyttist til hins betra í síöari hálfleik og var þá allt annaö aö sjá til liösins. En í sóknarleiknum voru menn of bráöir i upphafi hálfleiksins, og þaö var ekki fyrr en um hann miöj- an aö þeir fóru verulega í gang. íslenska liðið var búiö aö jafna mjög fljótlega og komst síðan yfir og hélt forystunni allt til loka. Þaö vakti athygli hve gífurlega léleg vítahittni Dananna var í leikn- um, og er mér til efs aö nokkurt landsliö hafi nokkurn tíma nokkurs staöar nýtt vítaköst sín jafn illa og þeir gerðu þarna þó ekki skuli þaö fullyrt. Nýtingin var eitthvaö um 30% og veröur aö teljast býsna lé- leg svo ekki sé meira sagt. Ýmislegt gott kom fram í leik íslenska liösins en mistökin voru líka mörg. Pétur var sterkur bæði í vörn og sókn en einhvern veginn finnst manni aö meira gæti komiö út úr honum. Hann skoraöi aö visu 23 stig og hirti nokkuð mörg frá- köst, en aö ósekju mætti reyna aö spila meira upp á hann í sókninni. Axel Nikulásson baröist af miklum krafti aö vanda og átti góöan leik og sama má segja um félaga hans hjá ÍBK Jón Kr. Gíslason. Þá er vert aö geta hlutar Ríkharös Hrafnkelssonar. Hann kom inn á er langt var liðið á fyrri hálfleikinn og skoraði átta stig — hitti úr öllum sínum skotum og var skrýtiö hve lítiö hann fékk aö spreyta sig. Þá var Kristján Ágústsson drjúgur í lokin er hann skoraöi nokkur stig á mikilvægum augnablikum. Stigin skiptust þannig: ísland: Pétur Guömundsson 23, Axel Nik- ulásson 12, Jón Kr. Gíslason 12, Torfi Magnússon 10, Ríkharöur Hrafnkelsson 10, Símon Ólafsson 6, Kristján Ágústsson 5, Valur Ingi- mundarson 2, Pálmar Sigurösson 2 og Þorvaldur Geirsson 2. — SH. Ljósmynd Kristján Einarsson. Pálmar Sigurðsson sést hér sækja að körfu Dana í leiknum í Haga- skóla á sunnudaginn. Hann hefur leikið mjög vel með Haukum í vetur og sýndi í landsleikjunum að hann á framtíðina fyrir sér en hann er aöeíns 19 ára að aldri. Ljósm. Kristján Einarsson. ikólanum á sunnudaginn. Jón sýndi mjög góða leiki gegn Dönum Jim Dooley, landsliösþjálfari: „Þoli aldrei að tapa en er nokkuð ánægður þegar á heildina er litið" — „verður vonandi gott fyrir Polar Cup í apríl“ „Ég þoli aldrei að tapa í neinu — ekki einu sinni þegar ég spila á spil. Þess vegna er ég ekki ánægöur meö úrslitin í dag, en sé litið á heildina er ég nokkuö ánægöur. Hefðum við aöeins leik- ið einu sinni og tapað, heföi máliö horft allt öðruvísi við,“ sagöi Jim Dooley, landsliðsþjálfari í körfu-' bolta eftir síðasta leik íslands og Danmerkur í íþróttahúsi Haga- skóla á sunnudaginn. „Mér finnst ástæöa til aö hrósa Dönunum fyrir þennan leik. Þaö er gott hjá þjálfurum þeirra aö ná aö rífa þá svona upp eftir tvö töp og leiöa þá til sigurs. Danir eru stórir og mjög sterkir undir körfunni — þannig aö þaö erfitt aö eiga viö þá. Eins og ég sagöi í gær bjuggumst viö viö aö þeir lékju 1-3-1 svæöis- vörn þar sem viö höföum fengiö þær upplýsingar, og ég verö aö segja að ég er mjög hissa að þeir skyldu ekki beita þeirri aöferö all- an leikinn þar sem hún gafst vel.“ „Ég leyföi öllum mínum leik- mönnum aö spila, því ég verö að sjá hvernig þeir standa sig í lands- leikjum áöur en viö förum á Polar Cup í apríl. Eins og ég sagði er ég nokkuð ánægöur meö útkomuna. Pétur Guðmundsson lék t.d. mjög vel í dag aö mínu mati. Viö rædd- um sérstuklega um þaö fyrir leik- inn hvernig hann ætti að leika í sókninni, og ég er mjög ánægöur með þaö hvernig hann kom út. Hann var aö visu óheppinn aö lenda í villuvandræðum. Ertu bjartsýnn á framhaldið í vetur 7 „Já, viö veröum vonandi búnir að laga það sem laga þarf fyrir Polar Cup. Ég er mjög ánægöur meö hópinn, og ég hef trú á því aö okkur takist aö lagfæra leik okkar þegar viö förum aö vera meira saman. Og þegar Jón Sigurösson og Jónas Jóhannsson koma inn í, hann styrkjumst viö enn frekar. En það er eitt sem ég er ekki ánægöur meö í þessum leikjum. Danirnir sóttu sig jafnt og þétt, og viö létum þá alltaf skora meira og meira hjá okkur. Þeir skoruðu 67 stig í fyrsta leiknum, 77 í öðrum og 88 i þeim þriöja. Svo er annað. Þaö var eins og leikmenn mínir slökuöu á í leiknum á laugardaginn. Viö höföum unniö á föstudaginn og það án Péturs. Nú var hann meö og menn héldu aö þetta yröi bara létt. Þaö var engan veginn nógu gott,“ sagöi Dooley. —SH.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.