Morgunblaðið - 11.01.1983, Síða 26
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1983
Qlympíuskákmótið, 5. umferð:
Kínverjarnir stálu senunni
Skák
Margeir Pétursson
KÍNVERJAR eru orðnir alræmdir
senuþjófar á Ólympíumótunum í
skák með því að leggja stigaháar
sveitir að velli hvað eftir annað.
Inn á milli fá þeir að vísu oft
slæma skelli, en slíkt fellur í
gleymslu er þeir ná árangri eins og
þeir unnu Rúmena 3—1 í fimmtu
umferðinni. Kínverjarnir unnu
tvær skákir en tveimur lyktaði
með jafntefli, en sú ótrúlega tilvilj-
un átti sér stað, að í háðum vinn-
ingsskákunum tryggðu þeir sér
sigur með því að fórna drottning-
unni fyrir mát í næsta leik. Og
ekki nóg með það, í báðum skák-
unum var drottningunni fórnað á
sama reitnum, gl! og þar með hafa
þeir Liu Wenzhe og Li Zunian
tryggt sér öruggt sæti á blöðum
skáksögunnar.
Þetta var þó ekki það eina
sögulega sem gerðist í fimmtu
umferðinni. Fyrstur til að sigra
liðsmann sovézku sveitarinnar
varð hinn ungi og stórefnilegi
tékkneski stórmeistari Lubomir
Ftacknik sem lagði Polugajevsky
að velli í glæsilegri sóknarskák.
Þetta afrek hans dugði þó ekki
einu sinni til þess að Tékkar
héldu jöfnu gegn Rússum því
Karpov lagði Vladistimil Hort
enn einu sinni að velli og á
fjórða borðinu vann nýliðinn
Jusupov skák sína til Plachetka
á mjög snyrtilegan hátt eins og
hans er vandi og vísa. I fjórðu
skákinni samdi Kasparov stutt
jafntefli með svörtu gegn Smejk-
al, sem gætti þess að halda öllu
sínu á hreinu gegn ungstirninu
grimma.
Þar með trónuðu Rússar einir
á toppnum, en aðeins hálfum
vinningi á eftir þeim kom öflug
sveit Hollendinga sem vann
stóran og auðveldan sigur á
Austurríkismönnum, 3'k — 'k.
íslenska sveitin átti nú mjög
góðan dag er við lögðum gamla
kunningja, Búlgara, að velli.
Viðureignir okkar við þá hafa
verið mjög stormasamar á und-
anförnum mótum. I Buenos Air-
es unnum við þá óvænt 3—1, en á
Möltu biðum við herfilegt af-
hroð, 'k — 3'k. Sigurinn nú var
því ákaflega kærkominn og lof-
aði góðu um framhaldið, en því
miður fór það svo, rétt eins og á
mótinu í Buenos Aires að sigur-
inn yfir Búlgurunum varð okkar
bezti sigur á mótinu í Luzern.
Búlgaría — ísland l'k—2'/2
Radulov — Guðmundur 'k — 'k
Velikov — Helgi 'k — 'k
Inkiov — Margeir 'k — 'k
Donchev — Jóhann 0—1
Guðmundur var í engum vand-
ræðum með að jafna taflið og
stóð lengst af betur, en ákvað að
semja jafntefli þegar tímahrak
vofði yfir. Helgi fékk örlítið
betri stöðu með hvítu, en staðan
var of einföld til þess að hægt
væri að komast neitt áleiðis. „Eg
varð að fórna peði eftir byrjun-
ina til að ná mótspili, sem þó
virtist ekki fullnægjandi. And-
stæðingur minn var hins vegar
svo vinsamlegur að þvinga fram
jafntefli er staðan var að verða
flókin og líklega verri á svart."
Jóhann Hjartarson sýndi nú
loksins sitt rétta andlit eftir að
hafa átt í brösum í upphafi
mótsins. Hann hafði allan tím-
ann yfirhöndina í stöðunni og
hagnýtti sér síðan fífldirfsku
andstæðingsins í tímahraki til
að tryggja sér öruggan sigur.
Búlgarar hafa nú endurnýjað
sveit sína að miklu leyti og gefið
mörgum gömlu kempanna frí, en
tekið yngri menn í staðinn. þeir
Velikov og Inkiov voru t.d. báðir
útnefndir stórmeistarar á FIDE-
-þinginu í Luzern.
Staðan eftir 5 umferðir:
1. Sovétríkin 15‘k v.
2. Holland 15 v.
3.—4. Tékkóslóvakía og V-Þýzka-
land 14'/2 v.
5. Argentína 14 v.
6.—9. Bandaríkin, England, ís-
land og Kúba 13'/2 v.
Þótt sigurskákir Kínverja gegn
Rúmenum hafi verið líkar hvað
lokastefið varðaði áttu þær þó fátt
annað sameiginlegt. Á fyrsta borð-
inu varð Gheorghiu fyrir hroða-
legri skákblindu er honum sást
yfir mát i tveimur leikjum með
unnið tafl, en í hinni skákinni
vann Kinverjinn glæsilegan sigur i
heilsteyptri sóknarskák. Berum
saman kínverskan heppnissigur og
kínverskt meistaraverk:
Hvítt: Gheorghiu (Rúmeníu)
Svart: Liu Wenzhe (Kína)
Ben-Oni byrjun
I. d4 — Rf6, 2. c4 — c5, 3. d5 —
e6, 4. Rc3 — exd5, 5. cxd5 — d6, 6.
RH — g6, 7. Rd2 — Rbd7, 8. e4 —
Bg7, 9. Be2 — 0-0, 10. 0-0 — He8,
II. a4 — Re5,12. Hel — a6, 13. f4
Reg4, 14. Bf3 — h5, 15. Rc4 —
Rxe4!, 16. Hxe4
Ekki 16. Rxe4? — Bd4+, 17.
Khl — Hxe4 og svartur vinnur.
16. — Bd4+, 17. Hxd4 — cxd4, 18.
Re4 — Dh4, 19. Rcxd6
Lakara var 19. h3 — f5 og
svartur hefur mjög sterka sókn.
19. — Bf5, 20. Rxf5 gxf5?
Hér hefði svartur betur leikið
20. — Dxh2+, 21. Kfl — Hxe4! og
staðan er mjög tvísýn. Nú fær
hvítur unnið tafl:
21. RI2! — Dxh2+, 22. Kfl — d3,
23. Dxd3 — h4
24. Dxf5?? — Dgl+I! og
Gheorghiu gafst upp, því hann
er óverjandi mát.
Hvítt: Stoica (Rúmeníu)
Svart: Li Zunian (Kína)
1. e4 — c5, 2. Rf3 — e6, 3. d4 —
cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 —
Rc6, 6. Rdb5 — d6, 7. Bf4 — e5, 8.
Bg5 — a6, 9. Ra3 — b5
Það var greinilegt af tafl-
mennsku kínversku sveitarinnar
í Luzern að á tveimur síðustu
árum hafa þeir tekið stórt stökk
fram á við hvað byrjanaþekk-
ingu varðar. Li Zunian velur sér
hið hvassa Lasker-afbrigði og
teflir framhaldið eftir öllum
kúnstarinnar reglum.
10. Bxf6 - gxf6, 11. Rd5 — f5, 12.
Bd3 — Be6, 13. Dh5 — Bg7, 14.
0-0 — f4, 15. c4 — bxc4, 16. Bxc4
— 0-0, 17. Hacl — Kh8, 18. Hc3
— Rd4, 19. Hfcl?! — Hb8, 20. b3
— f3!
Á þennan hátt notfærir svart-
ur sér klaufalega staðsetningu
hvítu hrókanna og nær öruggu
frumkvæði.
21. gxf3 — Bxd5, 22. exd5 — Df6,
23. Khl — Bh6, 24. Bd3 — Hg8,
25. Hdl?
Betra var 25. Hfl.
25. — e4!, 26. Bxe4 — Re2, 27.
Hc7
27. - Dd4!, 28. Hccl — Dxf2, 29.
f4 — Rxcl, 30. Dxh6 — Hg7, 31.
Rc2 — Rd3!, 32. Dxd6 — Dgl+!
og hvítur gafst upp.
Hvítt: Polugajevsky (Sovét)
Svart: Ftacnik (Tékkóslóvakíu)
Enski leikurinn
1. Rf3 — Rf6, 2. c4 — c5, 3. Rc3 —
Lubomir Ftacnik, 25 ára gamall
tékkneskur stórmeistari, sigraði
Polugajevsky á glæsilegan hátt.
Skákmaður sem vert er að fylgjast
með í framtíðinni.
e6, 4. g3 — b6, 5. Bg2 — Bb7, 6.
0-0 — Be7, 7. d4 — cxd4, 8. Dxd4
— d6, 9. Hdl — a6, 10. b3 —
Rbd7, 11. e4 — Db8, 12. Bb2 —
0-0, 13. Rd2!?
Uppáhaldsleikaðferð Polugaj-
evskys gegn broddgaltarupp-
byggingu svarts, sem dregur
nafn sitt af því að öll' peð hans
eru á sjöundu og sjöttu reitaröð-
unum.
13. — Hd8, 14. a4 — Dc7, 15. De3
— Hac8, 16. De2 — Re5, 17. h3 —
h5!, 18. f4 — Rg6, 19. Rf3 — d5!,
20. cxd5 — h4!, 21. Rxh4 — Rxh4,
22. gxh4 — I)xf4, 23. dxe6 — fxe6,
24. e5
Svartur hótaði 24. — Bd6.
24. — Bc5+, 25. Khl
25. — Rh5!, 26. Dxh5 — Dg3, 27.
Rd5 — Ilxd5, 28. Hfl — Dxg2+!!,
29. Kxg2 — Hd2++ og hvítur
gafst upp, vegna 30. Kg3 —
Hg2+, 31. Kf4 — Hf8+ og mátið
blasir við.
Nýja brúin á Svartá hjá Gilhaga. Gilhagi er efst til Brúin á Hrútá í Vesturdal. Hrútá var áður óbrúuð og
vinstri á myndinni. . þurfti, áður en hún kom, að fara ydr Hrútá á vaði þegar
farið var heim að Giljum, fremsta bæ í Vesturdal. Einn-
ig er hún á fjölfarinni Sprengisandsleið.
Lýtingsstaðahreppur í Skagafirði:
Fjórar nýjar brýr byggðar
I SIJMAR og haust voru byggðar fjór-
ar brýr í fremstu dölum Skagafjarðar.
Eru þær mesta samgöngubót á þessum
slóðum í langan tíma og koma í stað-
inn fyrir brýr sem orðnar voru ónýtar
eða þar sem alls engar biýr voru fyrir.
Brú var byggð á Jökulsá vestari
við Goðdali í Vesturdal og önnur á
Hrútá í Vesturdal. Hrútá var
óbrúuð og þurfti að fara á vaði yfir
ána til að komast heima að Giljum,
fremsta bæ í Vesturdal. Báðar þess-
ar brýr eru á fjölfarinni Sprengi-
sandsleið og koma þannig að miklu
gagni, auk þess sem þær eru mikil
samgöngubót fyrir íbúa sveitarinn-
ar. Yfir Svartá hjá Gilhaga var
byggð ný brú og yfir Mælifellsá, við
bæinn Mælifell, var fjórða brúin
byggð í sumar. Hún er „Blöndubrú",
þ.e. kostuð af Blönduvirkjun.
HBj.
MorgunblaðiA/Hllj.
Séð fram Vesturdal, nýja brúin á Jökulsá vestari hjá Goðdölum er fjær, en
gamla brúin nær á myndinni.
Loðdýraræktin
— eftir Skúla
Skúlason
Athugasemd við skrif Jóns R.
Björnssonar, milligöngumanns á ís-
landi fyrir Danska uppboðshúsið í
Kaupmannahöfn, í Morgunblaðinu
þann 14.12. sl. undir heitinu Loð-
dýrarækt.
Tilefni skrifa Jóns er grein mín
í Morgunblaðinu þann 24.11. sl.,
þar sem undirritaður drepur á
ýmis atriði varðandi flokkun blá-
refs. Þar á meðal kynnti undirrit-
aður tvö sjónarmið í stefnunni í
undaneldismálunum varðandi
litaafbrigði innan blárefsins, en
þau eru í höfuðatriðum fimm til
sex.
Til að forðast allan frekari mis-
skilning, þá vil ég geta þess strax,
að það er stefna Hudson’s Bay
London að fylgja eftir markaðn-
um, og ráðleggja og leiðbeina
mönnum samkvæmt því. Þar af
leiðandi ráðleggur starfsfólk og
flokkunarmenn Hudson’s Bay
London bændum að lýsa blárefinn
þar eð meiri afurðapeningur fáist
fyrir ljósari skinnin.
Hins vegar kynnti ég viðhorf
Blake Mundels, sem hefur búið
loðdýrabúskap á Skotlandi sl.
25—30 ár með miklum myndar-
brag og hefur því mikla reynslu og
þekkingu á þessum málum og
verður ekki litið á hann sem neinn
„leikmann" og það er alveg óhætt
að taka tillit til þess sem hann
hefur að miðla af sinni þekkingu
og reynslu.
Hann hefur ávallt varað við því
Skúli Skúlason
að of langt sé gengið í því að lýsa
blárefaskinnin, því það leiði til
grámu í feldinum og að skinnin
missi blámann, sem þau bera nafn
sitt af. Einnig að tízkan eigi eftir
að breytast til dekkri afbrigðanna
aftur.
Ég álít það rétt að þessi viðhorf
séu kynnt fyrir íslenzkum blárefa-
bændum, það er síðan þeirra
sjálfra að velja og hafna, eftir því
hvað þeim finnst skynsamlegast.
Að öðru leyti sé ég ekki frekari
ástæðu til andsvara við skrifum
Jóns og vona að málið sé nú að
fullu upplýst í hugarheimi hans.
6.1. 1983,
Skúli Skúlason, Kópavogi,
fyrir Hudson’s Bay London.