Morgunblaðið - 11.01.1983, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1983
um til hvers myndu að líkindum
leiða.
Jónína móðir Ásdísar hafði átt
við mikil og löng veikindi að stríða
áður en hún lést og kom það því
löngum í hlut föður hennar og
þeirra systranna að annast og sjá
um heimilið, að ógleymdum afa og
ömmu, sem bjuggu þar í sama
húsi. Andstreymi og erfiðleikar
höfðu því ekki gengið fram hjá
garði fjölskyldu Asdísar. Hún
hafði orðið að sjá á bak systur
sinni langt um aldur fram og önn-
ur systir hennar hafði veikst al-
varlega og lamast svo af völdum
sjúkdóms síns, að nú er hún bund-
in við hjólastól. Sorgin hefur því
oft verið óvæginn gestur í fjöl-
skyldu Ásdísar.
En hljóðlát og dul tókst hún á
við sjúkdóm sinn, hélt í vonina svo
lengi sem hægt var og æðraðist
hvergi. Mánuðum saman barðist
hún við sjúkdóminn og skiptust
þar á skin og skúrir. Að síðustu
fékk hún langþráða hvíld. Vinir
hennar og vandamenn eru þakk-
látir fyrir, að stríð hennar er nú á
enda og kveðja hana með góðar
minningar og þökk í huga.
Eiginmanni hennar og dóttur,
föður hennar og systrum, tengda-
foreldrum, aðstandendum hennar
öðrum og ástvinum sendum við
samúðarkveðjur og vonum og biðj-
um, að sá sem öllu lífi ræður verði
þeim líkn í nauð.
Veri hún sæl. Starfsfólkið í
Víðistaðaskóla þakkar henni góð-
ar samverustundir, samstarf og
vináttu. Hlýr hugur og hjartans
þökk okkar allra fylgir henni yfir
landamærin miklu.
„Himinn yfir. Iiugga.s( þú sem grætur,
sljörnur (indra, geislar guðs,
gegnum vetrarnætur.
Vetrarnóttin varla mun oss saka,
fvrst Ijósin ofan aó
yfir mönnum vaka."
(Stefán frá Hvítadal)
Hörður Zóphaniasson
+
Eiginkona mín og móöir okkar,
LAUFEY HELGADÓTTIR,
Laugarnesvegi 114, Reykjavík, /
veröur jarösungin frá Laugarneskirkju, miövikudaginn 12. janúar
kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag ís-
lands.
Siguröur Hermann Magnússon,
Siguröur Guðni Sigurösson,
Helgi Ingi Sigurösson.
t
Eiginkona min, móðir, dóttir og tengdadóttir,
ASDÍS STEINUNN LEIFSDÓTTIR,
kennari,
Sævangi 7, Hafnarfiröi,
sem lést í Landspítalanum 4. janúar sl., veröur jarösungin frá
Hafnarfjaröarkirkju í dag, þriöjudaginn 11. janúar kl. 13.30.
Guöfinnur G. Þórðarson,
Eyrún Björg Guöfinnsdóttir,
Leifur Steinarson,
Ingibjörg Bjarnadóttir, Þóröur Gíslason.
t
Þökkum innilega öllum þeim sem auösýndu okkur samúö og vin-
arhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móöur okkar, tengda-
móöur, ömmu og langömmu,
KRISTENSU MÖRTU STEINSEN,
Hjálmholti 3, Reykjavík.
Guö gefi ykkur öllum gleöilegt ár.
Vilhelm Steinsen,
Garöar Steinsen, Ásthildur G. Steinsen,
Örn Steinsen, Erna Franklín,
börn og barnabarn.
t
Utför fööur míns,
VIGGÓS BJÖRNS BJARNASONAR,
Suóurhólum 16,
fer fram frá Fossvogskapellu, miövikudaginn 12. janúar kl. 13.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Ragnheióur Ösp Viggósdóttir.
t
HÓLMFRÍÐUR JÓNA INGVARSDÓTTIR,
veröur jarösungin frá Dómkirkjunni í dag, þriöjudaginn 11. janúar
kl. 15.00.
Haraldur Sæmundsson,
dætur, tengdasynir,
börn og barnabarn.
t
Þökkum innilega öllum þeim sem auösýndu okkur samúö og vin-
arhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móöur, tengdamóöur
og ömmu,
JÓNU SIGRÚNAR SIGURJÓNSDÓTTUR,
Berghyl, Hrunamannahreppi.
Eiríkur Jónsson,
Guörún G. Eiríksdóttir, Arnar Bjarnason,
Svanlaug Eiríksdóttir, Höröur Hansson,
Aslaug Eiríksdóttir, Eiríkur Kristófersson,
Jón G. Eiríksson, Anna María Siguröardóttir,
og barnabörn.
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn-
ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í
minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður.
Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frum-
ort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera
vélrituð og með góðu línubili.
Gerið
svo
vel
að
líta
inn
Útsölu-
markaöur
í Kjörgarði (kjallara)
Góðar vörur á lágu
verði
Fatnaður fyrir alla
fjölskylduna
Barnaúlpur verö frá kr. 390.
Dömuúlpur verö frá kr. 490.
Herraúlpur verö frá kr. 490.
Flauelsbuxur verö frá kr. 195 stæröir 2—12
Flauelsbuxur stæröir 26—40 kr. 295.
Barnapeysur frá kr. 90.
Fulloröinspeysur frá kr. 150.
Vynilstígvél verö frá kr. 295—395.
Sokkar — vetlingar — húfur
og margt margt fleira.
Sendum í póstkröfu
sími 28640
Útsölumarkaðurinn
í kjallara Kjörgarös