Morgunblaðið - 11.01.1983, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1983
45
„Álverið í Straumsvík er rekið með tapi. Þetta sér hver maöur, þótt ágrein-
ingur geti verið um það, hve miklu. Menn loka ekki álveri fyrr en í fulla
hnefana. Þau, sem lokað hefir verið, hafa því tapað miklu fé áður en til
lokunarinnar kemur. Alusuis.se lokar ekki hér fyrr en allt er fullreynt, þar
sem félagið verður að greiða megnið af orkunni, hvort sem það notar hana
eða ekki. íslendingar hafa hins vegar allt sitt á þurru, eins og áður segir.“
fyrirtæki seinustU 13 árin, eins
mikinn og af þeim tveimur, sem
grundvölluð eru á samningnum
við Alusuisse, Búrfellsstöðinni og
álverinu. Allt tal um niðurgreiðsl-
ur rafmagns til ÍSAL er þvætting-
ur, sem afskræmir staðreyndir
framleiðslu og viðskipta, rennu-
steinsrökfræði. Eltingaleikur
Hjörleifs nú minnir mest á elt-
ingarleikinn við Vatnsmýrargullið
á sínum tíma.
Hann Hjörleifur
Þar sem ekkert er að hafa, þar
hefir konungurinn misst sinn rétt,
segja Svíar. Enskumælandi þjóðir
tala um að verið sé að berja dautt
hross, þar sem tilgangsleysið blas-
ir við. Hin válega aðstaða áliðnað-
arins um allan heim, og hið mikla
tap ÍSALs, gerir það að verkum,
að með hliðsjón af fullgildum
samningi, þá getur enginn maður
vænst með sanngirni, að Hjörleif-
ur geti sýnt árangur í viðskiptum
sínum við Alusuisse. Hins vegar
hefir málflutningur hans verið
fáránlegur, enda ekki byggður á
staðreyndum málsins heldur á
fáránlegum hugmyndum hins
austantjaldsmenntaða manns, og
ótrúlegri vanþekkingu. Hann hefir
reynt að berja Alusuisse til þægð-
ar, ef ekki til ásta, með mjög
takmörkuðum mannasiðum en
auðmýkjandi árangursleysi. Hinar
almennu yfirlýsingar hans í upp-
hafi málsins hefðu átt að vera rík-
isstjórn og Alþingi aðvörun. Hann
sagði að ódýrasta virkjunin væri
sú, að loka álverinu. Hann sagði,
að frá þessu fyrirtæki kæmi eng-
inn erlendur gjaldeyrir, þótt fyrir-
tækið hafi engan eyri til að greiða
neitt með, og því hvorki vinnulaun
né rafmagn, nema þann sem feng-
inn er erlendis frá: andvirði álsins
eða erlent lánsfé. Þessar staðhæf-
ingar Hjörleifs, og fleira svipað, er
ekki hægt að bera á borð fyrir
nokkurn mann.
Kommúnískt hugarfar
Það er ekkert leyndarmál, hver
sé orkugjafi Hjörleifs. Hann er
einn af SIA-mönnunum. Um hann
og félaga hans má fræðast í SIA-
skýrslunum, er birzt hafa í bók-
arformi hér á landi. Hann og fé-
lagar hans hafa étið og drukkið
lygi fyrir austan járntjald, og það
í nokkur ár, um mannlíf og þjóð-
félag. Þessari fæðu hafa þeir
hvorki selt upp, né látið hana hina
leiðina. Hjá þeim leitar hún því
stöðugt til höfuðsins. Samkvæmt
skoðun þeirra græða öll stór félög,
sem fást við atvinnurekstur —
„auðfélögin“. Hér á landi velta
þeir sér í ræðum sínum og skrifum
upp úr „gróða“ Flugleiða, Járn-
blendifélagsins, og svona fyrir-
tækja eins og Sementsverksmiðju,
Áburðarverksmiðju og náttúrlega
hins mikla orkujötuns, Lands-
virkjunar, já, og Hitaveitu
Reykjavíkur. Og hvar væru þeir
staddir án „gróða“ Alusuisse?
Erlendis flýtur heimurinn í
„gróða" þessara stóru „auðfélaga".
Þau maka krókinn á gjaldþrotum
sínum, eins og t.d. Rolls Royce og
Lockheed. Stærsta iðnfyrirtæki
Bandaríkjanna, General Motors,
rambaði á barmi gjaldþrots fyrir
fáum árum. Og aldrei þessu vant
tók Congress að sér að bjarga
Chrysler frá gjaldþroti. AEG?
Laker-félagið? Nei, ég hætti. Það
er náttúrlega erfitt að eltast við
forheipiskunaráróður kommanna,
sem hreiðrað hafa um sig í Al-
þýðubandalaginu og vilja frelsið
feigt. Þetta verður samt að gera.
Er ekki nóg komið?
Lettland, Litháen, Eistland,
Ungverjaland, Pólland, Afghan-
istan — þarf íslenzk alþýða virki-
lega enn eina lexíuna? Enn er ver-
ið að hossa gömlu lygurunum,
Einari og Brynjólfi, á mannfund-
um og í fjölmiðlum. Er ekki nóg
komið?
Getur það virkilega verið
draumur íslenzkrar æsku, að fá að
ganga í gegnum hreinsunareld
austantjalds-þjóðanna? En það
býr hún sig einmitt undir með því
að fela Alþýðubandalaginu forsjá
sinna mála. Það er varla hægt að
kalla Alþýðubandalagið sauðar-
gæru, því alls staðar skín í úlfinn,
sem við nánari athugun raunar
sést vera langtum stærri skepna,
með þungan hramm og blóðugan."
Finnst oft veð-
urhæðin meiri
en vindmælingar
segja til um
L.V. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Mig langar til að
biðja Veðurstofuna um að upplýsa
mig um lítilræði, að gefnu tilefni:
Hvar er staðsettur vindmælir sá
sem mælir veðurhæð á Reykjavík-
ursvæðinu? Eða eru þeir margir
og gefið upp meðaltal? Þegar
fyrsta óveðurshrinan gekk yfir
hér nýlega, voru sögð, að mig
minnir 8 vindstig í borginni. Þá
geisaði slíkt fárviðri í Breiðholti
(að ég minnist ekki á Seltjarnar-
nes), að ég hefði frekar reiknað
með að þar væru um 12 vindstig,
sem er það mesta sem talið er í
vindstigum. Þá varð mér að orði
heima hjá mér: Mikið held ég að
fólkið úti á landi finnist broslegar
þessar lýsingar á veðrinu á
Reykjavíkursvæðinu. Það kom
líka á daginn, að í forystugrein
eins dagblaðanna í morgun
(föstud.) var haft eftir manni á
Húsavík, að hann hefði hlegið hátt
að ástandinu í höfuðborginni, því
að þeir Húsvíkingar væru nú van-
ir öðru verra og tilbúnir að mæta
svona vanda. Þó að þarna hafi nú
ekki verið tekið tillit til bílafjölda,
fjarlægða innan borgarmarkanna
o.fl. atriða, þá er það önnur saga.
En hvernig stendur á því, að
manni finnst veðurhæðin hér oft
vera meiri en vindmælingar Veð-
urstofunnar segja til um? Á sama
veg er reynsla mín af furðulegum
mismun á uppgefnum vindmæl-
ingum á Hellu og í Vestmannaeyj-
um, en ég hef töluvert fylgst með
því, af því að ég á sumarbústað í
Grímsnesinu. Hefur það oft flogið
í hug mér, að mælirinn á Hellu
hljóti að vera staðsettur niðri í
laut eða lægð, eða í skjóli af
mannvirkjum. Getur það átt sér
stað?
Eg sá það í
vitþjófinum
H.T. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Menn eru mikið
að vandræðast með orðið vídeó og
vilja gjarna kalla það „vitþjóf" og
hafa það hvort sem væri karlkyns
eða hvorugkyns: Ég sá þessa eða
hina myndina í vitþjófinum (vit-
þjófinu). Er þetta ekki vel við
hæfi?
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Jón virðist grannur, þegar hann er borinn saman
við Pál.
Rétt væri:... þegar þeir Páll eru bornir saman.
Hvar eru stelp-
urnar þarna?
Steinka skrifar 7. janúar:
„Jæja, Bjarni F. Nú er nóg komið.
í íþróttaþættinum á mánudaginn
var sagðir þú frá úrslitum í öllum
flokkum Reykjavíkurmótsins sem
búið var að keppa í, nema kvenna-
flokknum. Af hverju? Það lítur út
fyrir að þú hafir engan áhuga á
stelpum í fótbolta né í handbolta.
Þetta er ekki búið enn. í einu
DB-blaðanna fyrir jólin sagðir þú að
strákar á aldrinum 8—88 ára gætu
horft á fótbolta á aðfangadag. Hvar
eru stelpurnar þarna? Þær eru bara
ekki með í dæminu. Þær eiga senni-
lega bara að vera í eldhúsinu. Þarna
hefðir þú getað sagt: Knattspyrnu-
áhugamenn geta horft á fótboltann!
Þú gætir tekið aðstoðarmann þinn
þér til fyrirmyndar, en hann sýndi
úr handboltaleik Vals — Víkings í
kvennahandbolta.
Reyndu nú að sýna meiri áhuga á
kvennaíþróttum."
Dagatal
fylgiblaðanna
ALLTAF Á ÞRIÐJUDÖGUM
□
IÞROTTA.
ALLTAFÁ FIMMTUDÖGUM
Alltaf á fóstudögum
ALLTAF A LAUGARDÖGUM
ALLTAF Á SUNNUDÖGUM
OG EFNISMEIRA BLAÐ!
Fimm sinnum í viku fylgir
auka fródleikur og skemmtun
Mogganum þínum!