Morgunblaðið - 11.01.1983, Page 40
^^^skriftar-
síminn er 830 33
ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1983
j^uglýsinga-
síminn er 2 24 80
ÍSAL var sýknað í
„kjúklingamálinii“
í (í/KH var kveðinn upp í Ba-jarþingi Hafnarfjarrtar dómur í máli, sem áhúandi
jaróarinnar Straums höfóaói get;n ÍSAL til greióslu bóta fyrir tjón, sem hann taldi
sig hafa oróió fyrir af völdum mengunar frá álverinu í Straumsvík, sem er í um
900 metra fjarla gð frá Straumi. ÍSAL var sýknað af kröfum stefnanda.
í forsendum dómsins segir m.a. á
þá leiö, að flúorgildi þaö, sem fannst
í beinum kúklinganna, sé ekki hærra
en í heilbrigöum kjúklingum og er
þá m.a. stuðst við beinöskumaelingar
á 84 kjúklingum frá 4 hænsnabúum
fjarri álverinu, svo og erlendar
rannsóknarniöurstöður. Einnig að
allar þær líffræðilegu breytingar eða
frávik, sem dr. Crook, prófessor við
Cornell-háskóla, hafi fundið og
byggi ályktun sína um flúoreitrun á,
séu ósérhæfðar og ekki sé með ör-
uggri vissu hægt að fullyrða hvort
orsök breytinganna sé flúoreitrun,
sýking eða önnur skaðleg áhrif og er
stuðst við álitsgerð rannsóknar-
stofnunar Háskóla íslands í meina-
fræði.
Þá er í forsendum dómsins á það
minnst að kjúklingarnir hafi alltaf
verið á húsi og einskis heimafengins
jarðargróða neytt. Þannig komi
mengun á gróðri umhverfis Straum
ekki til athugunar í máli þessu. Eina
fæðan þeirra hafi verið aðkeypt fóð-
urblanda. Eini möguleikinn á flúor-
upptöku sé um öndunarveg, en sam-
kvæmt mælingum hafi loftmengun
við álverið verið langt undir hættu-
mörkum fyrir langdvalir fólks. Með
tilliti til mældrar mengunar um-
hverfis álverið og veðurfarsað-
stæðna var talið útilokað að loft-
mengunar hefði gætt í þeim mæli, að
hún væri sennileg orsök vanhalda á
kjúklingum, hvorki ein sér né sam-
verkandi með öðrum þáttum. Dóm-
urinn taldi þannig að ekki hefði ver-
ið sýnt fram á með margvíslegum
rannsóknum né öðrum gögnum, sem
fram voru færð, að vanhöld á kjúkl-
ingabúinu hafi verið afleiðing eða
sennileg afleiðing mengunar frá ál-
verinu.
Dóminn kvað upp Már Pétursson
ásamt Jóhanni Axelssyni prófessor
og dr. Þorvaldi Veigari Guðmunds-
syni. Stefnandi hlaut gjafsókn í mál-
inu.
Lögbannskrafan á hendur SVR tekin fyrir í dag:
Borgin hlýtur aö bregöast
við verði málsúrslit neikvæð
— segir Davíð Oddsson
„ÞAÐ er fáránlcgt aó V’erólagsstofnun skuli grípa til þcssara aógcróa, cn vcrói
málsúrslit gcgn vonum manna þá hlýtur borgin að brcgðast vió mcó einhverjum
ha-tti,“ sagói Davíó Oddsson borgarstjóri í samtali vió Morgunblaóió, en scm
kunnugt cr hcfur Vcrólagsstofnun krafist lögbanns á hækkun fargjalda Stradis-
vagna Keykjavíkur.
„Það er ekki hægt að ríkið skuli
taka að sér að þvinga borgina til
þess að reka fyrirtæki með milljóna
tuga halla og niðurgreiða þannig al-
menn laun í landinu. Það er ekki
timabært að segja á þessu stigi máls
hvaða aðgerða verður gripið til, en
þar verða allir kostir skoðaðir,"
sagði Davíð.
„En auðvitað verðum við að gæta
þess að reyna að skaða ekki hags-
muni þeirra sem við eigum að
þjóna," sagði Davíð Oddsson.
Til stóð að lögbannsmálið yrði tek-
ið fyrir í dag, þriðjudag, samkvæmt
upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Ólafi
Sigurgeirssyni, fulltrúa borgarfóg-
eta. Sagði hann að síðan yrði ákveð-
inn lítilsháttar frestur, þannig að
gagnaðili gæti lagt fram greinar-
gerð. Bjóst hann við að málsúrslit
lægju fyrir síðar í þessari viku.
m: - ■
Snjótröll í Eyjum
Þótt snjókoman undanfarna daga hafi valdið mörgum
amstri og erfiðleikum, þá er snjórinn ýmsum kær-
kominn til leikja. Þetta snjótröll gerðu söngvarinn
Guðmundur Rúnar og Lovísa dóttir hans og eins og
sjá má fer tröllið friðsamlega með kyndil og barn á
armi. MorKunblaðið/Sigurgeir
Langt frá
því að þetta
sé einsdæmi
— segir Trausti Jónsson
veðurfræðingur um veðra-
haminn að undanförnu
VEÐRAHAMURINN er langt frá
því að vera einsdæmi, að því er
Trausti Jónsson, veðurfræðingur
sagði í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins í gærkveldi.
Trausti sagði, að ekki þyrfti að
fara nema fjögur ár aftur í tímann
til að minnast mikillar ófærðar og
umhleypinga, og hið sama mætti
segja um árið 1976. Munurinn
væri helst sá að þá leið oftast
lengra á milli hryðjanna. Veturinn
1957 sagði Trausti einnig hafa ver-
ið erfiðan eins og nú.
„Þess eru hins vegar dæmi að
veður eins og þetta standi heilu
veturna," sagði Trausti, „svo sem
1920 er mikill snjór og ófærð var
alveg fram á vor. í samanburði
við þann vetur er langt frá því að
við getum talað um met nú. Það
sem fyrst og fremst gerir
ástandið erfitt þessa dagana er
það, að óvenjumiklum snjó
kyngdi niður á skömmum tíma á
mánudagskvöldið fyrir viku. Það
er sá snjór sem meira og minna
hefur verið að fjúka til og frá
síðan, auk þess sem mjatlast
hefur á hann. í Reykjavík hefðu
menn því varla fundið fyrir
veðrinu ef ekki hefði komið til
þetta fannkyngi á mánudags-
kvöldið og þess má geta að núna
er jafnfallinn snjór í borginni
aðeins talinn um 10 sm en hann
hefur að mestu safnast fyrir í
húsagörðum og við götur og virð-
ist því meiri en hann er.
Á fimmtudag sagði Trausti að
búist væri við hláku, þó ekki
langvinnri, og síðan kæmi ný
lægð í kjölfarið, sem þó væri
vægari og allt annars eðlis, en
þær sem undanfarið hafa gengið
yfir.
Hræðilegt augnablik er
ég litaðist um í bílnum
— segir Tracy Wheelar, sem var í áætlunar-
bíl, sem fauk út af veginum vid Irá
„ÞAÐ var vissulega hræðilegt augnablik, þegar ég litaðist um í
bílnum þar sem hann lá á hliðinni utan vegar og fólkið lá í
hrúgu í bílnum. Ungt barn grét og tvær konur höfðu meiðzt
nokkuð og bílstjórinn skorizt í andíiti. Ég fékk högg á höfuðið
og bakið og vissi varla hvar ég var eða hvað hafði skeð,“ sagði
Tracy Wheelar, enskur tónlistarkennari, sem var meðal far-
þega í áætlunarbil austur um iand á laugardaginn, í samtali við
Morgunblaðið. Bíllinn fauk út af veginum og valt og auk Tracy
meiddust þrír farþegar, sem fluttir voru á sjúkrahús í Reykja-
vík. Tracy marðist nokkuð á baki, ein kona handleggsbrotnaði
og áttræð kona lærbrotnaði og er hún enn á sjúkrahúsi, en
aðrir hafa fengið að halda heim.
Ómar Óskarsson, bílstjóri. Ljósmyndir Mbl. Rax.
Tracy sagðist hafa verið að
koma úr jólafríi frá Englandi og
hefði henni verið um og ó að
halda austur til Kirkjubæjar-
klausturs þar sem hún kennir
tónlist, hún hefði aldrei séð jafn-
mikinn snjó á ævi sinni. Hún
sagði, að farþegarnir hefðu
reiknað með að eitthvað þessu
líkt gerðist, enda hefði bíllinn
fokið einu sinni áður út af vegin-
um á leiðinni, en vel hefði gengið
að komast upp á veginn aftur.
Tracy ætlar í dag að gera aðra
tilraun til að komast austur og
sagðist hún vona, að betur gengi
þá.
„Það var ólýsanleg tilfinning
að horfa yfir fólkið í bílnum eftir
að hann var kominn útaf og á
Tracy Wheelar, farþcgi.
hliðina. Ég trúði því fyrst ekki
að þetta hefði skeð, en óttaðist
síðan að verr færi. Til allrar
hamingju tókst mér að halda ró
minni og það gerðu farþegarnir
einnig," sagði Ómar Óskarsson,
bílstjóri áætlunarbílsins.
Ómar sagði ennfremur, að
ferðinni hefði verið heitið austur
til Hornafjarðar. Lagt hefði ver-
ið af stað frá Reykjavík um
klukkan 8.30 og hefði allt verið í
lagi þar til komið var á Mark-
arfljótsaura um klukkan 11. Þá
hefði verið farið að hvessa mikið
og talsverð snjóblinda og hálka
verið. Þegar hefði verið komið
austur fyrir Hvamm hefði hann
misst bílinn út af en ákveðið að
halda áfram og búizt við að
ástandið batnaði. Er hann hefði
verið kominn austur fyrir Irá
hefði hann stöðvað bílinn og þá
skipti það engum togum að bíll-
inn fauk út af og á hliðina. Hann
sagði, að með hjálp góðra manna
hefði tekizt vel að bjarga fólkinu
þrátt fyrir erfiðar aðstæður og
óskaði að koma á framfæri
þakklæti til fólksins, sem að-
stoðaði ferðalangana. Ómar lét
síðan engan bilbug á sér finna,
fór aftur á slysstaðinn til að ná í
bílinn, ók honum til Hvolsvallar
og hóf aftur akstur í gær.