Morgunblaðið - 21.01.1983, Page 1

Morgunblaðið - 21.01.1983, Page 1
56 SÍÐUR 16. tbl. 70. árg. FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins Irland: Yfirmaður lögregl- unnar segir af sér Ifyflinni, 20. janúar. AP. YFIRMAÐUR írsku lögreglunnar, Patrick McLaughlin, og einn að- stoðarmaður hans, Joseph Ains- worth, hafa sagt upp störfum í kjölfar rannsóknar sem stjórn- völd létu fram fara á hugsanleg- um símahlerunum í ráðherratíð Charles Haughey, fyrrverandi forsætisráðherra, segir í tilkynn- ingu stjórnarinnar í kvöld. Afsögn yfirmannanna tveggja tekur gildi þann 1. febrúar næstkomandi sem „af- leiðing nokkurra þversagna sem rannsóknin leiddi í ljós“, segir í tilkynningunni. Afsagnir þessar koma einum Samkomulag víðs fjarri - eftir viðræður Reagans og Nakasone W a.shinglon, 20. janúar. AP. o*MnARlKJAMENN virðast litlu _samkomulagi við Japani eftir heimsókn Yashuhiro Nakasone for- sætisráðherra Japan til Bandarikj- anna sem lauk í dag. Viðræður milli Reagan Banda- ríkjaforseta og Nakasone snerust um þá kröfu Bandaríkjamanna að fá fram tilslakanir á verndartoll- um og innflutningshöftum og til- raun Japana til að fá Bandaríkja- menn ofan af innflutningshöftum á japönskum vörutegundum. Japanski forsætisráðherrann sagði við brottförina frá Wash- ington í dag að stefna hans hafi sætt mikilli gagnrýni hjá banda- rískum yfirmönnum meðan á heimsókn hans stóð og hafi hann verið undir stöðugu „gagnrýnis- regni.“ Yfirmaður í Hvíta húsinu sem ekki vildi láta nafns síns getið sagði að ekki hefði verið um að ræða neinar afdrifaríkar niður- stöður varðandi málefni sem lúta að Bandaríkjunum í þessum ný- afstöðnu viðræðum, en talið er að þeim verði fram haldið í Tókýó í næsta mánuði þegar George P. Shultz utanrikisráðherra Banda- rikjanna fer í opinbera heimsókn til Japan. Charles Haughey, fyrrverandi for- sætisráðherra. sólarhring eftir að Michael Noonan, dómsmálaráðherra landsins, tilkynnti að nýjar sannanir væru fyrir því að Charles Haughey, fyrrverandi forsætisráðherra, hefði látið hlera síma pólitískra andstæð- inga sinna og blaðamanna. Kampakátir leidtogar Franski forsetinn, Francois Mitterrand, og Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, spjalla saman í Bonn i dag, en Mitterrand ávarpaði þingið í tilefni tuttugu ára afmælis vináttusamnings Frakka og Þjóðverja. Sjá nánar bls. 14. Eldflaugum komið fyrir í V-Evrópu eftir áætlun - sagði Reagan Bandaríkjaforseti í dag Washington, 20. janúar. AP. RONALD Reagan Bandaríkjaforseti sagði í dag að Bandaríkjastjórn væri staðráðin í að framfylgja áætlunum um að koma upp meðal- drægum eldflaugum í Vestur-Evrópu fyrir árslok 1983. Reagan sagði að Sovétmenn hefðu í hyggju að hafa nægilega margar eldflaugar til að geta grandað öllum helstu byggðum í Evrópu og koma í veg fyrir að þeim stafi hætta af kjarnorku- mætti Bandaríkjamanna. „Við erum ákveðnir í að fram- fylgja áætlunum um að koma fyrir Pershing II meðaldrægum eldflaugum og stýrieldflaugum í Vestur-Evrópu fyrir lok þessa árs“, sagði hann og bætti því við að stjórn hans myndi halda áfram að leita leiða til að ná fram samn- ingum um „0-lausnina“, sem felst í því að Bandaríkjamenn hætti við að koma upp meðaldrægum eld- flaugum í Vestur-Evrópu gegn því að Sovétstjórnin fjarlægi allar meðaldrægar flaugar sínar sem hafa Vestur-Evrópu fyrir skot- mark. Reagan sagði að Bandaríkin muni halda áfram að taka þátt í afvopnunarviðræðunum í Genf og sagði að mikilvægasti þátturinn í sérhverju samkomulagi væri sá, að um væri að ræða „réttsýni" á báða bóga. Áhrifamikill yfirmaður í Hvíta húsinu sagði í dag að Sovétmenn hefðu hótað því á síðastliðnu ári að hætta viðræðum um niður- skurð á langdrægum kjarnorku- vopnum, en hefðu skipt um skoðun og væru nú reiðubúnir til samn- inga í þeim tilgangi að reyna að koma í veg fyrir að Bandaríkja- menn komi upp meðaldrægum eld- flaugum í Vestur-Evrópu. „Afstaða Sovétmanna í þessum málum nú er sú, að meðan enn fara fram samningaviðræður um afvopnunarmál þá verði Banda- ríkjamenn að fresta uppsetningu eldflauganna í Vestur-Evrópu", sagði yfirmaðurinn sem óskaði nafnleyndar. Samningaviðræðurnar sem fram fara í Genf og kallaðar hafa verið Start-viðræðurnar, hófust í júní síðastliðnum og lýkur 3. febrúar næstkomandi. Walesa og þrettán aðrir leiðtogar Samstöðu hafa sent stjórnvöldum bréf: Mótmæla fang- elsun samherja Sérkennileg eignaskipting: Skipti húsinu með keðjusög Ontral ('ily, Kcntucky, 20. janúar. AP. MAÐUR nokkur, Virgil M. Ever- hart, sem stendur í skilnaðarmáli um þessar mundir, ákvað að hefja sjálfur skiptingu á eignum þeirra hjóna og byrjaði á því að saga ein- býlishús þeirra í tvennt með keðju- sög. Þegar hann tók sér hvíld í gær hafði hann sagað að mestu sund- ur gólf hússins, en varð að staldra við þar sem starfsmenn sjónvarpsins voru ekki komnir til að taka sjónvarpsvira úr sam- bandi á þaki. Samkvæmt fregn- um vina hans er u.þ.b. fjörutíu sentimetra breið rauf eftir öllu gólfi hússins og veggjum, en sög- in vann ekki á baðinu og það stendur því uppi heilt. Everhart kveðst síðan ætla að búa í sínum hluta hússins, en sagðist ekki viss um ráðagerðir konunnar og barnanna. Varsjá, 20. janúar. AP. LECIl Walesa, leiðtogi óháðu verka- lýðsfélaganna, Samstöðu, sem nú eru bönnuð, og þrettán aðrir verkalýðsleiðtogar sendu í dag frá sér mótmæli vegna handtöku sjö samherja þeirra, segir í bréfi sem afhent var vestrænum frétta- mönnum í dag. „Ákæra á hendur þeim er ná- kvæmlega það sama og ákæra á hendur óháðu verkalýðsfélögunum og þeirra réttarhöld yrðu réttar- höld yfir Samstöðu," segir í bréf- inu og bent er á að samherjarnir sjö hafi verið í varðhaldi frá því herlög gengu í gildi, þann þrett- ánda desember 1981. I bréfinu, sem er dagsett 19. janúar og stílað á pólska þingið, er farið fram á lausn þessara fanga sem og annarra sem sitja í fang- elsi vegna stuðnings við óháðu verkalýðsfélögin og þess krafist að hætt verði að beita hvers kyns kúgun. Flestir þeirra sem bréfið undir- rituðu voru látnir lausir úr fang- elsi fyrir tveimur mánuðum. Yfirmaður stjórnvalda, sem sér um málefni sem lúta að óháðu verkalýðsfélögunum í Gdansk sagði síðan í dag, að hann myndi ekki reyna að koma í veg fyrir að Lech Walesa fengi starf sitt í Lenín-skipasmíðatöðvunum að nýju. Honum var sem kunnugt er meinað að ganga til sinna fyrri starfa síðastliðinn föstudag, á þeim forsendum að hann þyrfti opinber skilríki frá yfirmanninum Napieraj, sem sanna eiga að hann hafi ekki starfað annars staðar frá því hann hætti þar, og einnig þyrfti hann að sýna pappíra um að mál hans gagnvart Samstöðu hefðu verið afgreidd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.