Morgunblaðið - 21.01.1983, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1983
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins á Reykjanesi:
Samþykkti að
viðhafa prófkjör
TILLAGA um aA ekki færi fram prófkjör hjá Sjálfstæöisflokknum í Keykja-
neskjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar var felld á fundi kjördæmisráðs
í gærkvöldi með 77 atkvæðuin gegn 44. í upphafi fundarins fór fram skoðana-
könnun meðal fundarmanna, sem voru 113, um hvort vilji væri fyrir því að
halda prófkjör. Tímasetning prófkjörsins var ekki ákveðin.
Prófkjör vildu 65, ekki prófkjör þingiskosningum sem í hönd fara
44, 4 seðlar voru auðir í skoðana-
könnuninni. Þá fór fram könnun
um vilja manna um hverjir eigi að
hafa kosningarétt í prófkjöri, ef
ákveðið verður að viðhafa það. I lok
fundarins var tillaga þar að lút-
andi, samhljóða þeirri sem flest at-
kvæði fékk í skoðanakönnuninni,
samþykkt með 89 atkvæðum gegn
36,
í skoðanakönnuninni var spurt
hverjir atkvæðisrétt ættu að hafa í
prófkjöri, ef ákveðið yrði. Gefnar
voru upp þrjár leiðir. Sú fyrsta, og
sú sem langflestir vildu fara, eða
74, hljóðaði svo: „Allir stuðnings-
menn Sjálfstæðisflokksins sem
kosningarétt munu hafa í þeim Al-
og flokksbundnir sjálfstæðismenn
sem eru 16—19 ára prófkjörsdag-
ana.“ önnur leiðin, sem fól í sér að
einnig skyldu þeir stuðningsmenn
flokksins, sem undirrita inntöku-
beiðni fyrir lok kjörfundar og hafa
kosningarétt í Alþingiskosningum,
og þeir sem skrá sig til þátttöku
innan tveggja sólarhringa fyrir
kjörfund hafa atkvæðisrétt, hlaut
12 atkvæði. 19 aðhylltust þá leið, að
auk flokksbundinna mættu þeir
sem undirrituðu inngöngubeiðni í
sjálfstæðisfélag á kjörfundi, og
kosningarétt hafa í Alþingiskosn-
ingunum, njóta kosningaréttar.
Auðir seðlar í þessari könnun voru
8 talsins.
Hraöfrystihús Keflavíkur:
Niðurstöðu að
vænta á mánudag
FORSVARSMENN Hraðfrystihúss
Keflavíkur og fulltrúar Byggða-
Öryggislína
bjargaði manni
er tók út af togara
ReyAarfírði í janúar.
SUNNUDAGINN 9. janúar er
skuttogarinn okkar, Snæfugl SU
20, var að veiðum í Rósagarði í
slæmu veðri, fékk hann á sig
hrotsjó er verið var að taka inn
vörpuna. Við óhappið tók einn
skipverja fyrir borð, annar kastað-
ist niður á dekk og sá þriðji fékk
högg á höfuðið.
Tveir hinir síðarnefndu sluppu
ómeiddir, en hjálmurinn bjarg-
aði þeim er höfuðhöggið fékk. Sá
er útbyrðis féll slapp einnig vel,
því skylt er að nota öryggislínu
þegar trollið er dregið inn, og
tókst skipverjum að ná honum
inn þar sem hann hékk í línunni.
Hefði línunni ekki verið til að
dreifa að þessu sinni hefði getað
farið illa, því myrkur var á er
óhappið varð. Maðurinn marðist
illa á fæti og síðu, en hjálmur
hlífði honum við höfuðmeiðslum.
— Gréta.
sjóðs hafa undanfarna dag rætt
fjárhagsvanda fyrirtækisins og leit-
að leiða til að leysa hann. Starf-
semi fyrirtækisins hefur að mestu
legið niðri frá áramótum og líkur
eru á því, fáist ekki fyrirgreiðsla
hjá Byggðasjóði, að selja verði ann-
an togara fyrirtækisins til að rétta
við fjáhaginn.
Samkvæmt upplýsingum Guð-
mundar Maríassonar, fram-
kvæmdastjóra Hraðfrystihúss
Keflavíkur, og Benedikts Boga-
sonar hjá Byggðasjóði hefur
staða fyrirtækisins verið rædd
við viðskiptabanka þess og nú er
verið að leita leiða til úrbóta,
bæði skammtímalausnar og
framtíðarlausnar. Undanfarið
hefur ekki verið hagnaður af
fiskvinnslunni og er nú unnið að
því að Ieita betri leiða í samvinnu
við Framleiðni. Stefnt er að því
að niðurstaða náist á mánudag
og að sögn Guðmundar veltur
mikið á því að lausn finnist og
fyrirgreiðsla fáist hjá Byggða-
sjóði, verði svo ekki, er ekki ólík-
legt að grípa verði til þess að
selja annan togara fyrirtækisins
til að rétta fjárhaginn við.
IJpptökusalurinn nýi.
Aðstaða til kvikmyndagerðar opnuð
AÐSTAÐA hf. heitir nýr upptöku-
salur, sem kvikmyndagerðar- og
auglýsingafyrirtækin Saga Film hf
og Hugmynd hafa opnað að Vatna-
görðum 4.
Þetta er stærsti upptökusalur
hér á landi. Húsnæðið er alls 600
fermetrar, þar af er upptökusal-
urinn 400 fermetrar, lofthæð er
6 metrar og fastur bakgrunnur
6x12 metrar. Er öllum aðilum í
auglýsinga- og kvikmyndagerð
gefinn kostur á að leigja aðstöð-
una og fylgir henni símaher-
bergi, förðunar- og búningaað-
staða, kaffistofa, snyrting, raf-
magn og hiti. Þá er nóg rými til
leikmyndagerðar og undirbún-
ings upptöku og stórar inn-
keyrsludyr. Um ljós og annan
sviðsbúnað er svo hægt að semja
sérstaklega.
Eigendur Aðstöðu hf., eru þeir
sömu og standa að gerð myndar-
innar Trúnaðarmál, sem nú hef-
ur hlotið nafnið Húsið. Klipp-
ingu myndarinnar er nýverið
lokið og hún komin í vinnslu er-
lendis. Þess mun því ekki langt
að bíða að enn ein íslensk mynd
líti dagsins ljós, en æ styttra er
nú milli frumsýninga á afrakstri
þessa unga iðnaðar.
Neyðarástand getur
skapast í Siglufírði
— vegna ónógs hitaveituvatns og hugsanlegra snjóflóða
NEYÐARÁSTAND getur skapast með litlum fyrirvara í Siglufirði vegna
slæmrar stöðu Hitaveitu Siglufjarðar, en vatn er þar af mjög skornum
skammti, að sögn Sverris Sveinssonar veitustjóra. Ekki hefur verið unnt að
bora elleftu holuna sem í undirbúningi hefur verið og vegna tíðarfars hefur
þurft að keyra olíuknúna kyndistöð mikið að undanförnu. Arsnotkun á
svartolíu nálgast 400 tonn.
Snjóflóðahætta er mikil í
Skútudal sem er í 5 kílómetra
fjarlægð frá bænum, þar sem
borholurnar og hitaveitudælurnar
eru, og má einnig lítið út af bera
með veðráttu svo erfiðleikum sé
bundið að komast á staðinn.
Sverrir sagði að vegna kuldanna
að undanförnu hefði verið mikil
vöntun á heitu vatni og gripið
hefði verið til þess ráðs að af-
tengja stórar byggingar í bænum
og hefði nú verið aftengt á um 30
þúsund rúmmetrum húsnæðis.
Hann sagði að úr 10 borholum
kæmu nú 25 sekúndulítrar af 65
gráðu heitu vatni. Það dygði á
meðan hitastigið væri yfir og um
núll gráður, en um leið og frost
nálgaðist 10 gráður og þar fyrir
ofan ykist hitunarþörfin svo að
grípa þyrfti til kyndistöðvarinnar.
Þá hafa Siglfirðingar verið hvattir
til að fara sparlega með heita
vatnið.
Sverrir sagði einnig að skömmu
Framsóknarþingmenn í Norðurlandi vestra deila:
Tek ekki sæti á listanum
skipi Páll fyrsta sætið
— segir Ingólfur Guðnason, sem vill Stefán Guðmundsson í 1. sæti
„ÉG GAF þeim í uppstillning-
arnefndinni það svar, að ef 1‘áll
Pétursson skipaði fyrsta sæti list-
ans myndi ég ekki taka sæti á hon-
um.
Ég tel eðlilegt að Stefán Guð-
mundsson skipi fyrsta sætið að
þessu sinni, þannig tel ég listann
sterkastan," sagði Ingólfur
Guðnason alþingismaður Fram-
sóknarflokksins í Norðurlands-
kjördæmi vestra í viðtali við
Mbl. í gær, en hann hefur lýst
því yfir að hann muni ekki taka
sæti á listanum ef Páll Péturs-
son skipar á ný fyrsta sætið.
Hann sagðist vilja Stefán Guð-
mundsson, sem nú skipar annað
sæti listans, upp í fyrsta, þannig
yrði listinn pólitískt sterkari.
„Út af fyrir sig hef ég lítinn
áhuga á að gefa yfirlýsingar
vegna ummæla Ingólfs. Mér var
að vísu kunnugt um þessa af-
stöðu hans og mér kom hún á
óvart. Okkur hefur aldrei borið
neitt á milli, svoleiðis að ég átti
nú ekki von á þessu, en það er
fjarri því að ég vilji fara í nokk-
urn bardaga við Stefán Guð-
mundsson um eitt eða neitt,"
sagði Páll Pétursson er Mbl.
spuri hann álits á þessari af-
stöðu Ingólfs.
Eins og komið hefur fram í
fréttum fer fram skoðanakönn-
un um röðun á listann meðal
framsóknarmanna í kjördæminu
á kjördæmisþingi í lok mánaðar-
ins. Páll var spurður hvort hann
myndi víkja fyrir Stefáni úr
fyrsta sætinu, ef hann hlyti það í
skoðanakönnuninni, til að halda
Ingólfi inni á listanum. Hann
svaraði: „Ég hef alltaf verið til-
búinn til að lúta dómi framsókn-
armanna og ég hef ekki verið
með nein skilyrði við þá, og kem
ekki til með að vera. Ég bauð
mig fram, þeir koma til með að
dæma mig, en hins vegar er það
flokknum ekki til framdráttar
að vera að flagga með afslátt-
arhross.“
Stefán Guðmundsson sagði í
viðtali við Mbl. í gærkvöldi að
gagnvart sér liti málið þannig
út, að kjördæmisþing það sem
kemur saman í lok mánaðarins
myndi með skoðanakönnun með-
al þingfulltrúa og varamanna
þeirra segja sitt álit um það
hvernig framboðslistinn verður
skipaður. Hann sagðist myndu
hlíta þeirri niðurstöðu flokks-
bræðrá sinna og systra. Að öðru
leyti vildi hann ekki tjá sig um
málið.
eftir að borholurnar og dælurnar,
sem eru tvær, voru teknar í notk-
un, hefði snjóflóð fallið í Skútudal
með þeim afleiðingum að önnur
dælan skemmdist. Tók það nokk-
urn tíma að komast til viðgerða,
en á þeim tíma hefðu flest hús enn
haft fyrri upphitunarbúnað sem
flestir væru aftur á móti búnir að
losa sig við í dag. „Það má því lítið
út af bera, snjóflóðahætta er mikil
og vatnið þegar af skornum
skammti", sagði hann. Um úr-
lausn mála taldi hann elleftu
borholuna geta hjálpað mikið. Allt
væri tilbúið til borunar, en staðið
hefði á því að bor sá sem ætlunin
var að nota væri fastur á Ólafs-
firði og búinn að vera þar til 7—8
mánuði í stað 2, eins og upphaf-
lega var reiknað með. Orkuráð
hefur haft borunarmál Siglfirð-
inga til meðferðar og sagðist
Sverrir reikna með að það af-
greiddi það á fundi sínum i byrjun
febrúarmánaðar, vonandi á þá
lund að þeim yrði heimilið borun á
næsta ári.
Eldur laus í íbúð:
„Allt er í lagi“
hrópaði maðurinn
til lögreglunnar
LAUST fyrir miðnætti aðfararnótt
miðvikudags sá vegfarandi á lcið um
Skólavörðustíg, að eldur var laus i
risíbúð. Hann hringdi umsvifalaust
á slökkvilið og lögreglu. Þegar lög-
reglumenn komu á staðinn, spíg-
sporaði maður um svalirnar og lét
eins og ekkert væri.
Lögreglumenn kölluðu til
mannsins og spurðu hvort rétt
væri að eldur væri laus í ibúðinni.
„Nei — allt er í lagi, allt er í lagi“
hrópaði maðurinn á móti. Slökkvi-
liðsmenn fóru upp í íbúðina og var
þá eidur laus í teppi, bréfarusli og
lampaskerm. Greiðlega gekk að
slökkva eldinn. Um íkveikju var að
ræða og var maðurinn skömmu
síðar fluttur í geðsjúkrahús.