Morgunblaðið - 21.01.1983, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1983
Ryðið versti
óvinur bílsins
- er niðurstaða norræns vinnuhóps, sem
samið hefur reglur um ryðvörn fólksbifreiða
Á ÁKINU 1982 starfaði vinnuhópur
á vvgum Norrænu embættismanna-
nefndarinnar, sem fjallaði sérstak-
lega um ryðvörn bifreiða. Komst
hópurinn að þeirri niðurstöðu að
ýmislegt benti til að ryð sé í flestum
tilfellum aðalástæða þess að bif-
reiðir verði ónothæfar á óeðlilega
skömmum tíma. Löggjöf á Norður-
löndum veitir bifreiðaeigendum
ófullna-gjandi vernd ef tjón verður
af ryði, enda koma skemmdirnar yf-
irleitt fyrst í Ijós eftir að ábyrgðar-
tími er útrunninn.
Vinnuhópurinn hefur af þeim
sökum samið reglur um ryðvörn
fólksbifreiða þar sem kveðið er á
um aukna ábyrgð umboðanna á
ryðvörnum. Verður skorað á öll
bifreiðaumboð á Norðurlöndum að
beita sér fyri því að þessar reglur
öðlist gildi, en samkvæmt reglun-
um er ætlast til að umboðsmenn
skuldbindi sig til að veita kaup-
endum þriggja ára ábyrgð á ryð-
og lakkskemmdum á ytra borði
bifreiðar og 6 ára ábyrgð vegna
ryðgunar í gegn.
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
og neytendamáladeild Verðlags-
stofnunar boðuðu í gær til fundar
með blaðamönnum til að kynna
þessar reglur og vekja athygli á
mikilvægi þess að ryðvarnir bif-
reiða komist í betra horf. Kom
fram á fundinum að megin-
markmið þessara reglna væri að
örva framleiðendur til að fram-
leiða betri bifreiðir í framtíðinni
sem síður tærast. Var sérstaklega
minnst á útblásturskerfið í þessu
sambandi, en það virðist vera sá
hluti bifreiða sem hvað verst er úr
garði gerður með tilliti til tær-
ingar. Þá töldu menn að eftirlit
með ryðskemmdum og fyrirbyggj-
andi ryðvarnarráðstafanir myndu
stórbatna ef umboðið bæri
ábyrgðina, en í reglunum er gert
ráð fyrir að sá sem ábyrgðina veit-
ir eigi rétt á því að fá bifreiðina til
skoðunar á ábyrgðartímanum,
eigandanum að kostnaðarlausu.
Meðalendingartími bifreiða hér
á landi er um 8—9 ár, en fundar-
menn töldu að hiklaust mætti
auka hann bíla um 1—3 ár með
bættum ryðvörnum og auknu eft-
irliti með ryðskemmdum. Ef það
er rétt gæti það sparað bifreiða-
eigendum milljónir króna og þjóð-
inni gífurlegan gjaldeyri.
Hugmyndin er að FÍB muni á
árinu standa fyrir námskeiði um
ryðvörn bæði fyrir neytendur og
þá sem við ryðvarnir starfa.
Frá blaðamannafundi FÍB og neytendatnáladeildar Verólagsstofnunar. Frá
vinstri: Jón Krlendsson forstöðumaður upplýsingaþjónustu Kannsóknaráðs,
en hann hefur aflað upplýsinga fyrir FIB, Hafsteinn Vilhelmsson fram-
kvæmdastjóri FÍB, Sigríður Ilaraldsdóttir deijdarstjóri hjá Verðlagsstofnun
og Arinbjörn Kolbeinsson stjórnarformaður FÍB.
Bókasafn Kópavogs:
Sýning á glitvefnaði
Elínbjartar Jónsdóttur
ÞRIÐJUDAGINN 18. janúar sl. var
sett upp í Bókasafni Kópavogs sýn-
ing á glitvefnaði Elínbjargar Jóns-
dóttur og mun sýningin standa til
12. febrúar.
Nýlokið er sýningu á ljósmynd-
um Sigurðar Þorgeirssonar. Er
ætlunin að halda sýningar reglu-
lega yfir vetrarmánuðina á opnun-
artíma safnsins, sem er mánudaga
til föstudaga kl. 11 til 21 og laug-
ardaga kl. 14—17.
Stefnt er að því að efna til ein-
hvers konar uppákomu á hverju
fimmtudagskvöldi milli kl. 20 og
21 og reið Ásgeir Þórhallsson
skáld á vaðið með því að lesa úr
verkum sínum fimmtudaginn 13.
jan. og Matthías S. Magnússon
skáld les úr verkum sínum
fimmtudaginn 20. jan. Þá mun El-
ínbjört halda sýnikennslu í glit-
vefnaði fimmtudaginn 27. jan. nk.
(Fréttatilkynning)
&tZ
Meira en þú geturímyndad þér!
Vetrarríki í Ólafsvík
óiafsvík, i4. januar. Unglingar sækja skóla á skíðum og þau hafa líka
ÞESSAR myndir tók Björn Guðmundsson í Ólafsvik verið farkostur fólks í vinnuna. Þetta ber ekki við á
af vetrarríkinu hér. Síðan þessar myndir voru teknar hverjum degi hér, jafnvel þótt vetur sé, því útnesið
hefir enn bætt við snjóinn. hér er þekktara fyrir rigninguna. Helgi