Morgunblaðið - 21.01.1983, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 21.01.1983, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1983 11 "Dvi nm, BOfifiRRSnÖRl. hér er ^trrnglegfi bhnnrd HD SNÚH VID" Deilt um nýjar talstöðvar: Nýtt fasteignamat: 75 þúsund eigendur 96 þúsund fasteigna Tilkynningarseðlar um nýtt fasteignamat verða á næstunni bornir til fast- eignaeigenda, eða um leið og framtalseyðublöðum til skatts verður dreift. Samtals verða hornir út 9fi þúsund seðlar til 75 þúsund eigenda, að því er fram kom á blaðamannafundi hjá Fasteignamati ríkisins í gær. l’m er að ræða fjölgun um 3 þúsund frá fyrra ári, er bornir voru út um 93 þúsund seðlar til um 72 þúsund eigenda. Fasteignamatsseðlarnir eru lítt breyttir frá fyrri árum. Þo hefur einni upphæð verið bætt á seðlana, það er endurstofnverð byggingar, en endurstofnverð er mat Fast- eignamatsins á byggingarkosntaði eignarinnar. Það miðast við verðlag 1. október sl. Húsavík: 95,5% bæjargjalda innheimtust 1982 SSB-stöðvar teknar upp vegna alþjóða þróunar „ÁSTÆÐAN fyrir því að ákveðið var að taka upp SSB-stöðvar er að mikill hörgull var orðinn á tíðnum. Árið 1968 kom fram í Alþjóðafjarskiptastofnun- inni hugmynd um að fara úr gömlu tækninni — það er svokölluðu DSB-kerfi yfir í SSB-kerfið. Þetta þýðir einfaldlega að í stað þess að senda út tvö hliðarbönd í hverri sendingu, er sent út eitt hliðarband. Af þessu sparast helmingur af því tíðnisviði, sem hver stöð sendir út. Því geta helmingi fleiri fengið úthlutun innan sama tíðnisviðsins en áður. Þetta gildir ekki bara um bílaþjónustu, heldur einnig skip og flugvélar," sagði Gústaf Arnar, yfir- verkfræðingur hjá Pósti & síma, í samtali við Mbl. vegna gagnrýni sem fram hefur komið að taka svokallaðar SSB-talstöðvar í notkun. „SSB, sem kallað hefur verið einhliðabandssending á íslenzku, skilar oft betri árangri en gamla kerfið, þannig að ekki bara vinnst meira svigrúm, heldur einnig meiri gæði. Þetta eru fyrst og fremst ástæð- ur þess, að Alþjóðafjarskipta- stofnunin tók SSB-kerfið upp árið 1968. Þá var sett upp áætlun um, að breytingin skyldi eiga sér stað á 12 ára tímabili — fram til 1. janúar 1982. Meðal annars var gert ráð fyrir því að frá 1. janúar 1973 væri jafnvel bannað að setja upp gömlu stöðvarnar — það er DSP — en taka hina nýju tækni í staðinn, það er SSB-kerfið. Síðan var gert ráð fyrir því að á næstu 10 árum hefðu þeir, sem voru búnir að kaupa DSB-stöðvar, möguleika á að afskrifa gömlu stöðvarnar. Því var gefin 14 ára frestur til þess að koma þessu í kring. Island skrifaði undir sam- þykktina innan Alþjóðafjar- skiptastofnunarinnar eins og allir aðrir, enda nánast útilokað að vera einir á báti. í ársbyrjun 1973 sendi Póstur & sími út tilkynningu til allra not- enda um þetta mál og kynnti hvaðá reglur hefðu verið settar og hvað menn þyrftu að gera á þessu 10 ára tímabili. Síðan sendum við bréf aftur í lok 1981 til þess að minna menn á, að þessi breyting væri framundan. Ég tel að við höf- um gert það sem við gátum til þess að vekja athygli á þessu. Af einhverjum ástæðum, sem mér eru ekki alveg ljósar, hafa menn verið mjög tregir til þess að taka þetta til greina. Þessar gömlu stöðvar eru ekki lengur til á mark- aðnum — allar þjóðir hafa skipt yfir og framleiðslu DSB-stöðva hefur verið hætt. Þetta er því ekki spurning um hvort við höfum val — við einfaldlega verðum að gera eins og aðrir.“ — Nú hefur komið fram gagn- rýni á þetta nýja fyrirkomulag og á það verið bent að rétt væri að taka upp VHF-metrabylgjukerfið. Er möguleiki að taka það kerfi upp í langferðabíla? „Um það geta verið skiptar skoðanir. Þetta metrabylgjukerfi er þannig uppbyggt að það dregur ekki nema sjóndeildarhringinn. Þannig að stöðvar í Reykjavík draga ekki nema upp á Kjalarnes og kannski Akranes og á heiðarn- ar hér fyrir austan og suður á Reykjanes. Það þarf mjög margar stöðvar til þess að þjóna öllu landinu. Vegna þess hve kostnaður við þessar stöðvar úti á landi er mik- ill, sjáum við ekki fram á að hægt væri að þjóna landinu eins og það leggur sig. Við ákváðum heldur að einbeita okkur að þéttbýlinu og aðalþjóðvegunum. Það þýðir að inni á miðhálendinu verður þessi þjónusta ekki til staðar. Lang- ferðabílar og aðrir sem eru utan þessa þéttbýliskjarna verða að treysta á millibylgjuna eins og þeir hafa gert fram að þessu og hafa SSB-stöðvar.“ — Menn hafa bent á að þessi tæki séu óheyrilega dýr. Á tal- stöðvunum er 35% tollur og 40% vörugjald, samkvæmt ákvæðum bráðabirgðalaganna frá í ágúst síðastliðnum. Ofan á þetta bætist síðan söluskattur. Langferðabíl- stjórar hafa sótt um að tollar og aðflutningsgjöld verði niðurfelld, svipaðar ívilnanir og björgunar- sveitir fengu. „Það er vissulega rétt að stöðv- arnar eru dýrar — allt upp í 100 þúsund krónur. En kostnaðurinn er hlutfallslega lítill ef miðað er við verð langferðabíla. Það er óumdeilt að öryggisatriðið er mik- ið og ekki hægt að horfa í þennan kostnað. Hitt er svo, að Póstur & sími hefur lengi beitt sér fyrir að fá opinberar álögur felldar niður af tækjum til fyrirtækisins. Það hef- ur ekki fengist í gegn, því miður, og sama er farið um langferðabíl- stjórana," sagði Gústaf Arnar. H.Halls. liúsavík. 12. janúar. Á HTSAVÍK innheimtust 95 ,5% bæj- argjalda á sl. ári og mun það vera ein bezta innheimtan á landinu. Hverju þakkar þú það Sverrir Jónsson, inn- heimtustjóri,? spurði ég. — Það eru nú margir samverkandi þættir, fyrst og fremst fylgjumst við vel með því, hvar gjaldendur vinna og gerum kaupkröfur. Fólkið hefur einn- ig góðan skilning á því, að það borgar sig að standa í skilum, því dráttar- vextir eru háir. Innheimtan var sl. ár 96,3% svo eldri vanskil eru hjá fáum. Hvernig er svo þessu fé ráðstafað spyr ég bæjarstjórann Bjarna Aðal- geirsson? — Félagsmálin taka til sín mikinn hluta tekna bæjarfélagsins. í verkleg- ar framkvæmdir fór mest til varan- legrar gatnagerðar og í sambandi við þá framkvæmd endurnýjun holræsa og annarra lagna í göturnar. Saman- lögð lengd gatna bæjarins er nú um 13 km og eru um 54% þeirra komnar með varanlegt slitlag. Stofnæð hitaveitu frá Hveravöllum var tvöfölduð á rúmlega 3 km kafla og er þá búið að tvöfalda um helming stofnæðar og er flutningsgeta um 70 1/sek. og er það svipað magn og við höfum nú handbært á Hveravöllum. Næsta verkefni Hitaveitunnar verður því að bora eftir meira vatni, en í sumar vann Orkustofnun að jarðhita- könnun á Hveravöllum fyrir okkur. Lokið var við fyrsta áfanga drátt- arbrautar við höfnina og var fyrsti báturinn tekin á land í nóvember. Þetta mannvirki er kostað af bæjar- sjóði og hafnarsjóði og nemur hlut- deild þeirra samtals 60% af kostnaði en ríkissjóður greiðir 40%.. Heildar- kostnaður nú er um 5,5 millj. króna. Á næsta ári er stefnt að því að koma upp hliðarfærslu við dráttarbrautina fyrir að minnsta kosti einn bát. Þetta er nú það fjárfrekasta, sem ég hefi nefnt, en svo má nefna að lokið hefur verið við barnaheimilið, unnið að endurbótum á rafveitu, hafnar framkvæmdir við íþróttahús, lagt í nokkurn kostnað við Skrúðgarð- inn og opin svæði í bænum, unnið að skipulagsmálum og svo mætti lengi telja. En að lokum vil ég segja það að atvinnuástand í Húsvík sl. ár telst hafa verið allgott og það er fyrir mestu að fólkið hafi atvinnu, segir Bjarni bæjarstjóri að lokum. FréllariUri. Laganefnd Norðurlandaráðs: Vill aukna samvinnu gegn eiturlyfjavandamálinu „ÞAÐ eru allir sammála um að eit- urlyfjavandamálið er eitt mesta vandamál sem við er að glíma á Norðurlöndum í dag og er meira en menn gera sér almennt grein fyrir. Menn hafa áhuga á mun meiri sam- vinnu á því sviði", sagði Halldór Ás- grímsson fulltrúi Islands í laganefnd Norðurlandaráðs er Mbl. spurði hann í gær hvaða mál væru efst á baugi í undirbúningsvinnu fyrir þing Norðurlandaráðs sem hefst í Osló 21. febrúar, en nefndir ráðsins eru nú allar að störfum í Stokkhólmi. Halldór sagði að fram hefði komið í laganefndinni að eitur- lyfjavandamálið væri orðið gífur- legt og menn lýstu þar áhuga á stóraukinni samvinnu gegn því. Ljóst virtist að mest af eiturlyfj- um bærust frá ákveðnum stöðum, t.d. Kaupmannahöfn, og væri hugm.vnd uppi um að löndin ættu hvert um sig fulltrúa á þeim stöð- um. Lyfjabúðum fjölgað um 10 — þar af ein í Breiöholti III HKILBRIGDIS- og tryggingamálaráðuneytið hefur samkv;emt ákvæði í lög- um um lyfjadreifingu nr. 76/1982, er öðluðust gildi 1. janúar sl„ gefið út reglugerð uni staðsetningu lyfjabúða og lyfjaútibúa. Samkvæmt ákvæðum reglu- gerðarinnar fjölgar lyfjabúðum landsins um 10 þegar reglugerðin er að fullu komin til framkvæmda, þar af um eina í Breiðholtshverfi III í Reykjavík og aðra á Seltjarn- arnesi. Fjölgun lyfjabúða mun komið á í áföngum og þannig er fyrirhugað að fyrst í stað verði einungis 4 lyfsöluleyfi auglýst laus til umsóknar eða Breiðholtshverfi III í Reykjavík, Fáskrúðsfjörður, Olafsvík og Seltjarnarnes. I reglugerðinni er leitast við, að þjór.usta við landsmenn á sviði lyfjadreifingar verði sem jöfnust og enginn landshluti verði útund- an, en öllum má ljóst vera að slíkt er örðugt hér á landi af félagsleg- um ástæðum og vegna þess hvern- ig landshættir eru. Með reglugerð- inni er einnig stefnt að því, að lyfjasala fari úr höndum lækna, en sem kunnugt er hafa læknar að verulegu leyti annast lyfjasölu í strjálbýli en með stofnun lyfjaúti- búa fjölgar verulega þeim dreif- ingarstöðum lyfja, þar sem þjón- usta lyfjafræðings skal vera fyrir hendi. Lyfjaútibúum mun komið á fót eftir því sem aðstæður leyfa og er þá fyrst og fremst miðað við að takist að útvega lyfjafræðinga til starfa í þeim. Hugur og hönd Heimilisiðnaðarfé- lag íslands gefur út rit til kynningar á ís- lenzkum heimilis- og listiðnaði, Hugur og hönd. Nýtt hefti er komið út með for- síðumynd í litum af steindum glugga eft- ir Leif Breiðfjörð. í ritinu er rtiinnst dr. Kristjáns Eldjárns, sem hafði eins og svo oft áður ætlað að rita grein í þetta hefti, og Hulda Stefánsdóttir minnist Halldóru Bjarnadóttur og birt- ar eru myndir af munum úr Halldóru- stofu í Heimilisiðn- aðarsafni hún- vetnskra kvenna á Blönduósi. Að venju eru myndir og prjóna- uppskriftir af margvíslegu tagi í heftinu, útsaumi frá liðnum öldum, Álftafótur útblásinn og þurrkaður notaður fyrir smádót. Mynd úr nýútkomnu hefti af Hugur og hönd. m.vndskreytt grein um hagleiksfólk í sveit. Sérstaklega er fjallað um kirkju- skreytingar, fjallað um lín og línrækt o.fl. Mjög er vandað til alls frágans og nrynda, að venju. Ritnefnd skipa: Auð- ur Sveinsdóttir, Gerður Hjórleifs- dóttir, Fríða Krist- insdóttir, Hallfríður Tryggvadóttir og Vigdís Pálsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.