Morgunblaðið - 21.01.1983, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1983
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir GUÐM. HALLDÓRSSON
Reagan og Weinberger varnarmálaráðherra.
alvarlegum áhyggjum ef hópur
öfgasinna virtist vera að taka
við stjórn afvopnunarviðræðn-
anna. Ummæli Rostows um
stefnuna í Miðausturlöndum
bættu ekki úr skák. Nýlega kast-
aðist einnig í kekki, því að Reag-
an lagðist gegn því að Robert
Grey yrði aðalaðstoðarmaður
Rostows, þótt forsetinn hefði í
fyrstu lofað að samþykkja skip-
un hans. Afstaða Reagans til
hans breyttist vegna andstöðu
íhaldssamra þingmanna undir
forystu Jesse Helms, sem Paul
Tsongas öldungadeildarmaður
staðhæfði síðan að réði stefn-
LEIÐTOG AFUNDUR ?
ROSTOW:
milli skers
og báru
ADELMAN:
hlýéir
skipunum
LÍKLEGT þykir að Ronald Reagan og Yuri Andropov haldi fund með sér
einhvern tíma á næstu tveimur árum. Andropov sagði að visu nýlega að
„góðrar undirbúningsvinnu væri þörf“ svo árangur næðist og Reagan
talaði um „skipulagðan" leiðtogafund. En þrátt fyrir efasemdir og ann-
marka, sem eru á slíkum fundum, eru margir áhrifamenn fylgjandi
hugmyndinni, Ld. Zbigniew Brzezinski og Richard Nixon.
Meiriháttar samkomulag
næðist varla ef Reagan
og Andropov hittust á
næstunni, en stuðlað yrði aö
gagnkvæmum kynnum. And-
rúmsloftið yrði líklega stirt, þar
sem Reagan virðist enn óvanur í
utanríkismálum og völd Andro-
povs eru ekki alger í Kreml og
svigrúm hans takmarkað. Trú-
legast er að í hönd fari undir-
búningsfundir undir eftirliti
utanríkisráðherranna George P.
Shultz og Andrei A. Gromyko og
þeir leiði til leiðtogafundar seint
á þessu ári eða snemma árs 1984,
áður en kosningabaráttan hefst í
Bandaríkjunum.
Gagnkvæm tortryggni veldur
því að hvor aðili um sig hafnar
tillögum hins og það stendur í
vegi fyrir leiðtogafundi í bráð.
Þegar Bandaríkjamenn hafa
sýnt áhuga á óformlegum við-
ræðum hafa Rússar hafnað
hugmyndinni og öfugt. Áhugi
Rússa er meiri í svipinn, því þeir
vilja nota ágreining í stjórn
Reagans. Þeir gefa í skyn að ef
leiðtogarnir hittist ekki fljótlega
muni ekkert miða áfram í Genf.
Þá muni Rússar gefa Reagan
upp á bátinn og bíða þess að
stefna Bandaríkjamanna breyt-
ist eða ný stjórn taki við í Wash-
ington.
Staða Reagans hefur veikzt
við ágreininginn í stjórn hans,
en það kann að breytast þar sem
tilgangur brottvikningar Eugene
Rostows, yfirmanns afvopnun-
arstofnunarinnar, var að tryggja
öruggari stjórn forsetans og
Schultz á stefnunni gagnvart
Rússum og gera stefnuna
markvissari í því skyni að
tryg&ja takmörkun kjarnorku-
eldflauga. Á sama tíma hafa
borizt nýjar tillögur frá Rússum,
m.a. tilboð þeirra um að fjar-
lægja helming eldflauga sinna
eða fækka þeim þannig að þær
verði eins margar og Breta og
Frakka til samans.
Rostow var ekki á sömu
bylgjulengd og starfsmenn
Hvíta hússins, sem hafa talið
stefnuna í molum vegna margra
ólíkra hugmynda um ýmsa
möguleika á lausn. Þetta hefur
Reagan ekki líkað og heldur ekki
hægrisinnuðum stuðnings-
mönnum hans á þingi, sem sök-
uðu Rostow um linkind. Þeir
halda fast við stefnuna sem
Reagan mótaði í nóvember 1981,
núll-lausnina", sem gerir ráð
fyrir að Rússar fjarlægi fjölda
eldflauga, sem þeir miða á Evr-
ópu, gegn því að Bandaríkja-
menn komi ekki fyrir Pershing
II-eldflaugum og stýrieldflaug-
um í Vestur-Evrópu.
Með því að skipa Kenneth
Adelman eftirmann Rostows vill
Reagan friðmælast við trygga
hægrimenn, sem Adelman er
handgenginn, og skipa samn-
jngamann, sem framfylgir skip-
unum hans af trúmennsku, svo
að forsetinn og utanríkisráð-
herrann gegni aðalhlutverkun-
um. Samningamálin verða
endurskipulögð og ríkisstjórnin
á að geta fylgzt með þeim í smá-
atriðum. Reagan sagði að breyt-
ingarnar hefðu verið gerðar til
að samstæðari hópur semdi við
Rússa um raunhæfar aðgerðir og
kallaði viðræðurnar „mikilvæg-
asta vandamál þessarar kynslóð-
ar“.
Skipun Adelmans mætti telja
fyrirboða harðari stefnu, en hún
getur líka táknað tilraun til að
grafa undan mótstöðu hægri-
manna gegn sveigjanlegri
stefnu. Lagt hefur verið til innan
stjórnar og utan að meiri sátt-
fýsi komi fram í opinberum yfir-
lýsingum til að hamla gegn yfir-
lýsingunum frá Kreml síðan
Ándropov tók við.
Rostow og aðrir hafa gagnrýnt
forsetann fyrir að einangra sig
frá samstarfsmönnum sínum og
samstarfsmennina fyrir að þora
ekki að andmæla skoðunum
hans. Hvað sem því líður olli
skortur á hollustu því að Reagan
vék einnig úr starfi formanni
sendinefndarinnar í viðræðun-
um í Vín um gagnkvæma fækk-
un herja, Richard Staar, og skip-
aði í hans stað atvinnudiplómat-
inn Morton Abramowitz. En
Paul Nitze, aðalsamningamann-
inum í viðræðunum í Genf um
meðaldrægar eldflaugar, var
ekki vikið frá og heldur ekki
Edward Rowny hershöfðingja,
aðalsamningamanninum í við-
ræðunum um langdrægar flaug-
ar.
Rostow kallaði yfir sig brott-
vikninguna með ummælum um
að það mundi valda Rússum
unni í afvopnunarmálum. Sjálf-
ur sagði Rostow: „Ég reyni að
sigla milli manna, sem vilja
samning við Rússa, og manna,
sem eru andvígir hvers konar
samningum."
Hermt er að Rostow og samn-
ingsmenn Rússa hafi náð sam-
komulagi um að Rússar fjar-
lægðu SS-20-eldflaugar sínar og
Bandaríkjamenn hættu við að
koma Pershing II og stýrield-
flaugum fyrir í V-Evrópu, en
stjórnirnar í Washington og
Moskvu neitað að staðfesta sam-
komulagið. Ef eldflaugunum
verður komið fyrir verða eld-
flaugar Rússa á landi ekki eins
óhultar. Rússar gætu neyðzt til
að endurskipuleggja kjarnorku-
herafla sinn og yrðu að ákveða
hvort þeir ættu að koma upp
eldflaugavörnum, þótt talið væri
með Salt-I að hvorugt risaveldið
þyrfti þess.
Vopnaframleiðsla Rússa er
skipulögð langt fram í tímann og
þeir verða að ákveða innan
tveggja ára hvaða vopnum þeir
vilja tefla fram til næstu alda-
móta. Ef þeim tekst ekki fljót-
lega að hindra áætlanir Banda-
ríkjamanna munu þeir telja
gagnráðstafanir nauðsynlegar,
þótt þeir hafi varla efni á nýju
vígbúnaðarkapphlaupi. Andro-
pov hefur ítrekað þá stefnu-
breytingu að neyzluvörufram-
leiðsla verði aukin á kostnað
iðnaðarframleiðslu og engir
varasjóðir eru til.
Einn mótleikur Rússa er áróð-
ursherferð til að hagnýta ugg
innan Atlantshafsbandalagsins
um stefnu Reagans. Heimsókn
Gromykos til Vestur-Þýzkalands
er síðasta dæmið um baráttu
Rússa fyrir því að fá íbúa V-Evr-
ópu til að snúast gegn stýri- og
Pershing-flaugum. Þeir hafa
einnig reynt að semja við Banda-
ríkjamenn, en við borð liggur að
þeir hafi komizt að þeirri niður-
stöðu að þeir geti ekki samið við
Reagan og telji tillögur hans að-
eins settar fram til að þeir hafni
þeim. Þá virðist gruna að hann
vilji neyða þá út í kapphlaup,
sem þeir muni tapa.
Ef Andropov og Reagan hitt-
ast mun það benda til þess að
Rússar telji sig geta tekið þátt í
viðræðum um kjarnorkueld-
flaugar þar sem samkomulag
byggist á gagnkvæmum tilslök-
unum. Þá teldu Rússar að þeir
gætu aftur komið fram í eftir-
lætishlutverki sínu, risaveldis
sem semur við hitt risaveldið í
heiminum á jafnréttisgrund-
velli. Bæði risaveldin hafa skilið
að góð stjórn verður að vera á
samskiptum þeirra og að þau
geta ekki leyst öll sambúðar-
vandamál sín, sem varða allan
heiminn. En þar sem vafi leikur
á um þetta munu þeir reyna af
fremsta megni að ónýta áform
Reagans með því að nota óviss-
una á Vesturlöndum.
Unga fólkið
á sama rétt
til að byggja
og áður
eftir Halldór
Blöndal alþm.
Það er ógjörningur fyrir mann á
miðjum aldri að setja sig í spor þess
unga fólks sem nú er að hefja lífsbar-
áttuna. Hugsum okkur ung hjón og
foreldra þeirra, kannski 20 árum eldri.
Þeir hófu búskap sinn við þær aðstæð-
ur, að almenningur átti þess kost að
eignast íbúð á mikilla efna. Ófáir
hrósa sér af því að hafa ekki átt eyri,
þegar þeir byrjuðu að byggja, og samt
tekist það. Auðvitað voru það aðstæð-
urnar, sem gerðu þetta kleift. Lána-
möguleikarnir voru meiri þá en nú og
alla vega rýmri. Úrslitum réð þó, að
lánskjörin voru allt önnur og betri. Á
þeim tíma saxaði verðbólgan á Iánin
og gerði greiðslubyrðina léttari. Nú er
þessu öfugt farið. Um leið og lífskjör-
in versna, hækka afborganirnar af
lánunum. Fjöldinn allur af ungu fólki
sér engin ráð til að standa í skilum og
þegar svo er komið, ræðst ekki við
neitt.
Hvers á unga
fólkið að gjalda?
Fram á síðustu ár hafa íbúðir verið
almenningseign hér á landi. Þjóðfélag,
sem getur boðið þegnum sínum slíkt
öryggi er gott þjóðfélag og við eigum
að leggja mikið af mörkum til að það
breytist ekki til frambúðar. Það hefur
siðferðilegt gildi í sjálfu sér og hvetur
til elju og vinnusemi. Jafnaldrar mín-
ir eru stoltir af húsum sínum og ég er
ekki í vafa um, að það sjálfstæði sem
slíku fylgir, stuðlar að hamingju og
hollu fjölskyldulífi.
Ég hef spurst fyrir um það, hvernig
unga fólkið fer að til að eignast sama-
stað. Allir eru sammála um, að það
sjáist ekki lengur á hinum frjálsa
markaði byggingarverktaka, en á hinn
bóginn lengist sá listi stöðugt, sem er
yfir nöfn þeirra sem sækjast eftir íbúð
í verkamannabústöðum. Þá er áber-
andi, að ungt fólk reyni að komast yfir
gamla íbúð, oft illa farna, sem það
getur lagfært og endurbætt smám
saman.
Hér hefur orðið mjög skyndileg
breyting. Og það er ekki unga fólkinu
að kenna. Það vill leggja jafnmikið á
sig og áður til að búa í haginn fyrir
framtiðina, en þjóðfélagið bannar því
að gera það.
Lánin verða að
hækka svo um munar
Ég er í vafa um að lán húsnæðis-
málastjórnar til íbúðabygginga nái
10% af byggingarkostnaði eins og nú
er komið. Þetta jafngildir því í raun,
að öðrum en þeim efnameiri sé bann-
að að byggja. Ég get ekki hugsað þá
hugsun til enda, hvaða afleiðingar
slíkt misræmi milli þegnanna skapaði,
ef því yrði leyft að grafa um sig og
verða viðvarandi. Er þá ekki skammt í
það, að tvær þjóðir búi í þessu landi?
Ekki myndi það auðvelda okkur að
hafa stjórn á eigin málum.
Við sjálfstæðismenn höfum beitt
okkur fyrir því á alþingi að lán hús-
næðismálastjórnar verði í raun 25%
byggingarkostnaðar á þessu ári og
hækki upp í 80% á næstu fimm árum.
Við vildum hafa fyrsta skrefið stærra,
en efnahagsástandið leyfir það ekki.
Við fylgdum þessum tillögum okkar
eftir við 2. umræðu fjárlaga, en ríkis-
stjórnina skorti kjark til að leysa fjár-
lagadæmið á þeim grundvelli. Viljann
vantaði þegar til kastanna kom.
Nýr farkostur á Keflavíkurflugvelli:
Fullkomið tæki til að
mæla viðnám á brautum
„JÆJA drengir mínir, velkomnir í dýrasta fólksbíl á land-
inu,“ sagði Sveinn R. Eiríksson, slökkvisstjóri á Keflavíkur-
flugvelli við biaðamenn sl. mánudag, en Sveinn var þá að
kynna fyrir þeim nýjasta farkost slökkviliðsins: glænýjan
SAAB 99 turbo með „flugvélahjóli“ og flóknum tölvubúnaði
— sérhannaðan bíl til að mæla
„1.280.000 krónur kostar hann
án aðflutningsgjalda," hélt
Sveinn áfram á meðan hann
brenndi út á flugbraut, en mein-
ingin var að gera eina mælingu.
„Eins og þið vitið, strákar, er
Keflavíkurflugvöllur gífurlega
mikilvægur, á 2.000 mílna svæði
er hann næsti flugvöllur og því
má segja að hann sé eins konar
björgunarskip á miðju Atlants-
hafi. Það gefur því augaleið að
hann þarf alltaf að vera í góðu
standi, og það er töluvert í það
lagt að svo sé. Og tíðar og full-
komnar viðnámsmælingar á
flugbrautunum er stór liður í eft-
irliti flugvallarins. Að meðaltali
eru gerðar 16 slíkar mælingar á
dag, en fjöldinn er auðvitað mjög
breytilegur eftir árstímum og
veðurfari almennt.
Þessi SAAB 99 er fullkomn-
asta tæki í heiminum til að mæla
ástand flugbrauta. Það stafar
fyrst og fremst af þvi að fimmta
hjólið undir vagninum er smæð-
viónám á flaugbrautum.
arútgáfa af flugvélarhjóli; er úr
sams konar gúmmí, hefur eins
munstur og sama þrýsting. Bíll-
inn er keyrður eftir flugbraut-
inni og þegar hann hefur náð 100
km hraða heldur hann honum
stöðugum, flugvélarhjólið sprett-
ur sjálfkrafa niður og mæling
hefst.
Viðnám er mælt í einingunni
Mu (grískur bókstafur), en eitt
Mu er fullkomið viðnám, sem
samsvarar því að rekast á stein-
vegg. Viðnámskvarðinn nær frá
núlli upp í eitt Mu. Á þurri
flugbraut er viðnámið um 0.6 Mu
en þá eru lendingaskilyrði ágæt.
Ef viðnámið fer niður fyrir 0.25
Mu er hins vegar ekki á það
hættandi að lenda. Talvan í bíln-
um reiknar út viðnámið á braut-
inni og gefur það upp, bæði jafn-
óðum á mæli og síðan sem línurit
á strimli. Mannshöndin kemur
þar hvergi nærri, og það getur
hvaða viðvaningur sem er gert