Morgunblaðið - 21.01.1983, Qupperneq 13
13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1983
Halldór Blnndal
„Ég hef spurst fyrir um
það, hvernig unga fólkið
fer að til að eignast
samastað. Allir eru sam-
mála um að það sjáist
ekki lengur á hinum
frjálsa markaði bygg-
ingaverktaka, en á hinn
bóginn lengist sá listi
stöðugt, sem er yfir
nöfn þeirra, sem sækj-
ast eftir íbúð í verka-
mannabústöðum. Þá er
áberandi, að ungt fólk
reynir að komast yfir
gamla íbúð, oft illa
farna, sem það getur
lagfært og endurbætt
smám saman.“
Frá mínum bæjardyrum séð getur
Sjálfstæðisflokkurinn ekki átt aðild
að ríkisstjórn, nema húsnæðismálin
séu leyst. Við höfum sýnt fram á að
það er fjárhagslega kleift. Þetta er á
hinn bóginn spurning um það á hvað
við viljum leggja mesta áherslu. Ég
álit, að heimilin eigi að sitja í fyrir-
rúmi. Þau eru hornsteinn þjóðfélags-
ins.
En það er ekki nóg að hækka lánin.
Lánstímann verður að lengja. Ég hef
fest mig við 42 ár, sem ég álít hæfi-
legan tíma til þess að greiðslubyrðin
vegna afborgana og vaxta verði við-
ráðanleg. Og svo er að sjálfsögðu
nauðsynlegt, að lánskjör þeirra verði
betri, sem eru að eignast sína fyrstu
íbúð.
Verkefnaskortur
í byggingariðnaðinum
Þegar einstaklingarnir kippa að sér
hendinni varðandi húsbyggingar, hef-
ur það óhjákvæmilega örlagaríkar af-
leiðingar fyrir byggingariðnaðinn,
einkum úti á landi, þar sem opinberar
framkvæmdir eru hlutfallslega mest-
ar á Reykjavíkursvæðinu. Þessa sjá-
um við glögg merki hér fyrir norðan.
Atvinnuleysið er orðið að veruleika og
fjölmargir hafa við orð að flytja suð-
ur.
Frjáls sparnaður kemur ekki af
sjálfu sér. Á undanförnum áratugum
hefur hann birst okkur í fjölda íbúð-
arhúsa og varðveitist þar. Þetta hefur
skapað mikla vinnu og framtak. Ef öld
verkamannabústaðanna gengur í
garð, fer þessi sparnaður að miklu
leyti fyrir ofan garð og neðan. Hús-
næðisekla verður á næsta leiti og
vaxtabroddurinn er tekinn úr bygg-
ingariðnaðinum.
Tillaga okkar sjálfstæðismanna í
húsnæðismálum kemur í veg fyrir að
þetta ástand skapist. Hún miðar að
því að við íslendingar stöndum aftur
jafnt að vigi varðandi eigið húsnæði.
Lánskjörin
verður að bæta
Við höfum fundið smjörþefinn af
því, hvernig það er að búa við verð-
tryggð lán í 50 til 70% verðbólgu. í
flestum fjölskyldum þekkjum við
dæmin um það, að þetta hefur komið
mönnum í koll, enda eru lífskjörin að
versna og uppgripin minni en áður. Og
mönnum er vorkunn. Við höfðum enga
reynslu á verðtryggðum lánum áður
og því var haldið að þjóðinni, að verð-
bólgan yrði senn að velli lögð.
Nú harðnar á dalnum. Fjölmörg
opinber fyrirtæki hafa fengið að hag-
ræða lánum sínum og í fréttum er
stöðugt sagt frá því, að þessi eða hin
fyrirtækin séu að fá hallærislán.
Sams konar leiðréttingu er nauðsyn-
legt að gefa þeim kost á, sem hafa
steypt sér í skuldir vegna húsbygginga
eða húsakaupa. Ég er ekki að tala um
það, að menn endurgreiði ekki sínar
skuldir, heldur að bönkunum sé gert
kleift að breyta skammtímalánum, oft
til eins eða þriggja ára, í lengri lán,
svo að unnt sé að standa í skilum.
Ríkisstjórnin hefur ekki hikað við að
skerða launin og hækka skattana. Nú
er röðin komin að hinum almenna
borgara. Hann verður líka að lifa.
Morgunblaðið/ Kristján Einarsson
Nýi farkosturinn á Keflavíkurflugvelli, SAAB 99 turbo, sérhannaður bíll til
viðnámsmælinga á flugbrautum.
slíka mælingu eftir að hafa feng-
ið lágmarks takkafræðslu. Áður
fyrr voru þessar mælingar gerð-
ar með útbúnaði sem dreginn var
á eftir bíl, en sá útbúnaður
endurskapaði ekki lendingar-
aðstæður flugvéla og gaf því ekki
eins raunhæfa mælingu, sér-
staklega í snjó og vatni, einmitt
þeim aðstæðum sem okkur skipta
mestu. Auk þess þurfti að hand-
reikna þær upplýsingar sem sá
útbúnaður gaf. Þessi nýi SAAB á
því bæði eftir að auka öryggið í
mælingum og auðveida okkur
vinnuna," sagði Sveinn.
IVIikil vinna viA
umhirðu vallarins
Á Keflavíkurflugvelli vinna 48
manns á 34 tækjum við snjó-
hreinsun og ísvarnir. Sérlega
snjóþungt hefur verið í vetur og
á tímabilinu 1. okt.—10. jan. hef-
ur snjóað 79,5 þumlunga á völl-
inn, en á sama tímabili 1981—’82
var snjómagnið 28,4 þumlungar.
Vinnustundir við notkun tækja
eru 5.379 á umræddu tímabili
núna, en voru á sama tíma árið
áður 3.102. Kostnaður við snjó-
hreinsun og ísvarnir frá 1.
okt.—10. jan. er u.þ.b. $500.000.
Aðeins í
Bókmenntír
Jóhann Hjálmarsson
Valgerður Þóra:
ÁSTARÓÐUR.
Teikningar: Guðrún Berg.
Reykjavík 1982.
Þessi bók Valgerðar Þóru er
einn samfelldur ástaróður. Ást
sinni lýsir hún á þessa leið:
Ást mín á sér engan endi
hún er mýkst í sorg,
mest í gleói
og alltaf til.
Ást deyr aldrei
en kveikir af sér annað líf
sem frjóvgar og gleður,
sem breytir nótt í dag,
Við lifum aðeins í kærleika
ef kærleika sleppir
er lífið þungt, ófrjótt,
dautt án gleði og friðar.
Lífið er ást.
Það er hin undirgefna ást, sú
ást sem fyrirgefur allt sem birtist
í Ástaróði. Konan sættir sig meira
að segja við að vera „ein af mörg-
kærleika
um afþreyingum" mannsins. Hún
ímyndar sér kannski að það sé
henni léttir þegar maðurinn yfir-
gefur hana, en fljótlega fer hún að
þjást í óróa sínum eftir honum.
Hún verður ekki róleg fyrr en hún
veit að hann kemur aftur:
Ég elskaði þig
í alla, alla, alla nótt,
og ég hefi aldrei verið
eins og óskaplega, unaðslega
nálægt þér. Ég er svo róleg
núna.
Ég veit þú kemur aftur,
Ijós lýsi á veg þinn.
Þetta er ekki beinlínis ort í anda
kvennabókmennta samtímans,
vandamálin verða lítilvæg i sam-
anburði við gleði ástarinnar, það
að maðurinn vilji gefa konunni ást
sína. Mestu skiptir að gera hann
hamingjusaman.
Þessi ljóð Valgerðar Þóru hafa
þá kosti að í þeim er lifandi til-
finning, ást og losti haldast í
hendur í ljóðmáli sem stundum er
trúverðugt. En oft verða ljóðin
fremur máttlítil; þótt þau vilji
vera markviss og forðast orða-
Valgerður Þóra
gjálfur falla þau stundum í slíka
freistni. Hér er á ferð skáld í leit
að formi til að tjá hug sinn. Bókin
ber þess merki að vera frumsmíð í
ljóðagerð, skírskotanir eru of al-
mennar, myndbeiting losaraleg.
En stundum verka myndirnar
sannfærandi, einkum þegar kemur
að ímyndunum og óhugnaði,
draumurinn breytist í martröð.
Teikningar Guðrúnar Berg eru
mjög í anda Ijóðanna, fara þeim
vel.
kursus i
HILDUR -
dansk for voksne
Nýstárleg kennslubók í dönsku
HILDUR er samin til notkunar með sjónvarps- og útvarps-
þáttum sem Ríkisútvarpið mun flytja á næstu vikum.
Efnið er ætlað þeim sem hafa einhverja undirstöðu í dönsku máli.
í bókinni eru fjölmargir kaflar úr verkum danskra höfunda um
Danmörku og dönsk málefni. Þá eru í bókinni greinar um málfræði,
æfingar og verkefni um málnotkun og myndar bókin, útvarps- og
sjónvarpsþættimir þannig heild viðfangsefna.
Notið þetta einstæða tækifæri, fylgist með spennandi
framhaldsþáttum í sjónvarpi og útvarpi og hressið um leið
upp á dönskukunnáttuna með skemmtilegu heimanámi.
Bókin HILDUR fæst í bókaverslunum og Skólavörubúð-
inni Laugavegi 166.
Verð kr. 335.-
NÁMSGAGNASTOFNUN
Útsendingartímar Ríkisútvarps:
Sjónvarp - laugardagar kl. 18.00 Útvarp - mánudagar kl. 17.40
miðvikudagar kl. 18.35 fimmtudagar kl. 17.45
1 V WfHTj
Bladid sem þú vaknar við!