Morgunblaðið - 21.01.1983, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1983
Frakkland og V-Þýskaland:
Tuttugu ára vináttu-
samkomulags minnst
Bonn, 20. janúar. AF.
FRANCOIS Mitterrand, Frakk-
landsforseti sagði i dag er hann
ávarpaði v-þýska þingið, tveimur
dögum fyrir 20. afmælisdag
fransks-þýsks vináttusamkomulags,
að það hefði verið merkur áfangi í
sameiningu Evrópu fyrir tveimur
áratugum. Sagði forsetinn ennfrem-
ur, að undirritun samkomulagsins
mætti þakka þann árangur, sem
náðst hefði með stofnun Efnahags-
bandalagsins.
„An vinskapar Frakka og
V-Þjóðverja hefði stofnun EBE
verið útilokuð," sagði Mitterrand
um leið og hann lofaði samstarf
þjóðanna undanfarna tvo áratugi.
„Það verður að hlúa að friðinum
dag hvern," sagði forsetinn enn-
fremur.
Ræða Mitterrands stóð yfir í um
þrjá stundarfjórðunga og gekk að
mestu út á það, að samvinna og
vináttusáttmáli þessara tveggja
þjóða eftir margra alda styrjald-
Sprengja fannst
í lokuðu umslagi
- rétt fyrir komu
Thatcher í aöalstöövar
íhaldsflokksins í Leeds
liOfds, 20. janúar. AP.
BRESKIR sprengjusérfræðingar
sprengdu í dag sprengju, sem send
var höfuðstöðvum breska íhalds-
flokksins í Leeds, aðeins nokkrum
klukkustundum áður en Margrét
Thatcher forsætisráðherra var vænt-
anleg til stöðvanna.
Thatcher var í Lundúnum þegar
sprengingin var framkvæmd af
sérfræðingum, og enginn mun
hafa slasast.
Kona nokkur hringdi til blaðs-
ins „Manchester Evening News í
morgun og tilkynnti um sprengj-
una, sem hún sagði hafa verið
komið fyrir af litlum stjórnleys-
ingjahópi. Ekki var gefin upp nein
ástæða fyrir sprengjunni, sem
komið hafði verið fyrir í bréfi.
arástand, ætti að vera öðrum
þjóðum heims fordæmi. Hann
undirstrikaði um leið vilja Frakka
til að vera áfram innan NATO.
Svíþjóð:
E.T. bönnuð
yngri en 11
Stokkhólmi, 20. janúar. Ai’.
Kvikmyndaeftirlit Sviþjóðar, Finn-
lands og Noregs hefur komizt að
þeirri niðurstöðu, að kvikmyndin E.T.
sé óhæf til sýninga fyrir börn. Kvik-
myndin hefur engu að síður farið
mikla sigurför um Norðurlönd og
dreifendur myndarinnar þar segjast
efast um, að þetta bann skipti nokkru
máli gagnvart börnum, sem hafi virki-
legan áhuga á að sjá myndina.
Sænska kvikmyndaeftirlitið hef-
ur með stuðningi sálfræðinga
takmarkað aðsókn að myndinni við
fólk 11 ára og eldra, þar sem mynd-
in sýni fullorðna sem óvini barna. í
Finnlandi er aðgangur bannaður
yngri en 8 ára og í Noregi yngri en
12 ára.
Danska kvikmyndaeftirlitið, sem
takmarkar aðgang að mynda-
flokknum „Star Wars“ og flestum
öðrum vísindakvikmyndum við þá,
sem eru 12 ára og eldri, setti engar
aldurstakmarkanir við sýningum á
E.T.
Gunnel Arrback, yfirmaður
sænska kvikmyndaeftirlitsins hef-
ur sagt, að kvikmyndahúsagestir
yngri en 11 ára gætu orðið hræddir
við „það ógnvekjandi og hræðandi
andrúmsloft", sem ríkjandi væri í
myndinni að hennar áliti, þrátt
fyrir það að lögð væri áhersla á að
sýna E.T. sem vingjarnlega geim-
veru, er börn hefðu skotið skjóls-
húsi yfir.
Þetta hefur sætt eindregnum
mótmælum sænskra barna. Nokkur
þeirra tóku sér stöðu við helzta
kvikmyndahús Stokkhólms 10. des-
ember sl., er kvikmyndin var frum-
sýnd. Báru börnin mótmælaspjöld,
þar sem á stóð: „Burt með 11 ára
takmörkin" og „barnamyndir eru
gerðar handa börnum“, og enn „Við
viljum E.T.“
Mynd þcssi sýnir þá Andrei Gromyko, utanríkisráðherra Sovétríkjanna og Erich Honecker, leiðtoga Austur-
Þýskalands, en þeir ræddu saman í Austur-Berlín í dag.
Gromyko er á heimleið eftir að hafa rætt við helstu leiðtoga í Vestur-Þýskalandi og í ræðu sinni í dag hvatti
hann þá til að „endurskoða afstöðu sína einu sinni enn“ áður en þeir leyfðu NATO að koma fyrir nýjum
kjarnorkuvopnum þar í landi.
Sakaður um aðild
að gyðingamorðum
Kordcaux, 19. janúar. AP.
MAURICE Papon, fyrrverandi fjár-
lagaráðherra Frakklands var í dag
ákærður fyrir glæpi gegn mannkyn-
inu vegna handtöku og brottrekstr-
ar franskra gyðinga, á meðan hern-
ám nazista í Frakklandi stóð yfir.
Papon, sem nú er 72 ára, er sakað-
ur um að hafa átt þátt í brottflutn-
ingi á 1.690 gyðingum í suðaust-
urhluta Frakklands á árunum
1942—1944, unz Frakkland var
Nýr sérhannaður
fatlaða frá Nissan
bíll fyrir
I Japan
Tókíó, 20. janúar. AP.
NISSAN-bifreiðaverksmiðjurnar
hafa nú sett á markað í Japan sér-
staka tegund bifreiða, sem fólk
Kvenlegt
útlit
einkenni sumar-
tízkunnar 1983
París, 20. janúar. AP.
SÝNINGAR á vor- og sumartísk-
unni eiga að hefjast í Paris á
sunnudaginn kemur og beinist
athyglin að þessu sinni einkum
að Chanel-tískuhúsinu. flafa lot
þaðan alltaf verið mjög eftirsótt
af mörgum best klæddu konum
heims.
Gert er ráð fyrir, að bæði
Chanel og yfir 20 önnur tísku-
sýningarhús í París sem sýna
vörur sínar á næstunni, eigi
eftir að leggja aðaláherslu á
kvenlegt útlit á þessu ári. Er
líklegt að pilsfaldurinn eigi
eftir að nema við hnéð og að
hælar verði lágir. Tískukóngar
Parísar eru taldir líklegir til
þess nú sem fyrr að ráða
kvenfatatískunni í heiminum á
sumri komanda að verulegu
leyti.
sem misst hefur annan handlegg-
inn eða jafnvel báða getur stjórn-
að. Að sögn talsmanns fyrirtækis-
ins hefur það ekki í hyggju að
flytja þcssa bifreið út. Toyota-
verksmiðjurnar hafa þegar fram-
leitt og selt um 700 bíla, sérhann-
aða fyrir fatlaða.
Þessi nýja bifreið frá Nissan er
búin ýmsum sérhönnuðum bún-
aði, sem auðveldar fötluðum
mjög að stjórna henni. Má t.d.
nefna lyftu til þess að auðvelda
fötluðum að komast inn í hana,
hnapp, sem ýtt er á með vinstri
fæti til þess að gangsetja bifreið-
ina, og stöng, sem nota má með
hægri fæti til þess að opna og
loka bílstjórahurðinni.
Stýrisbúnaðurinn er þannig, að
ökumaður notar til þess fótstig
við vinstri fót. Fótstig þetta snýst
í þá átt, sem ökumaður kýs og
virkar því eins og venjulegt stýri.
Bílinn er að sjálfsögðu sjálfskipt-
ur, til þæginda. Þá má nefna, að
handhemlinum er beitt með
mjöðminni. Þá eru aðalhemlar
bílsins þannig útbúnir, að þeir
eru með öryggislæsingu, sem
opnast ekki er hemlað hefur ver-
ið. Bíllinn rennur því ekki áfram
fyrr en ökumaður kýs.
Stefnuljós eru þannig útbúin,
að ökumaður beitir hnakkanum
við notkun þeirra, en þurrkum og
rúðusprautum er stjórnað með
hægri öxlinni. Þá er flautan í
stórri hringlaga plötu á gólfinu.
Öryggisbelti spennist sjálfkrafa
utan um ökumanninn um leið og
hann hefur sest.
Þá er þessi svo mjög sérstaka
bifreið útbúin hjólbörðum, sem
hafa þann eiginleika, að aka má á
þeim allt að 100 km vegalengd, þó
ekki hraðar en á 60 km hraða,
eftir að sprungið hefur.
frelsað. Papon var þá háttsettur
innan stjórnsýslunnar í Gironde.
Formleg ákæra gegn Papon er
fyrst borin fram nú, en á árunum
1981 og 1982 voru höfðuð 10 einka-
mál á hendur honum. Var Papon
þar gefið að sök, að hafa tekið þátt
í brottflutningi 600 gyðinga á sín-
um tíma. Þessi dómsmál voru að
nokkru leyti byggð á upplýsingum,
sem birtust fyrir tæpum tveimur
árum í vikuritinu Le Canard
Enchaine. Voru þar birt ljósrit af
skjölum, sem gáfu til kynna, að
Papon hefði verið viðriðinn hand-
töku á gyðingum, sem fram fór að
frumkvæði Vichy-stjórnarinnar
svonefndu í stríðinu.
Eitt af þeim skjölum, sem birt-
ust í Le Canard og eiga að vera
undirrituð af Papon, hefur að
geyma fyrirmæli um flutninga á
400 gyðingum frá fangabúðum í
grennd við Bordeaux til Parísar.
Þessir gyðingar voru síðar fluttir í
þýzkar fangabúðir.
Papon hefur lýst því yfir, að hin
ljósrituðu skjöl séu fölsuð og að
hann myndi sjálfur óska eftir
opinberri rannsókn til þess að
hreina sig af áburðinum. Sagði
Papon, að málarekstur gegn sér
hefði verið hafinn í því skyni að
koma Giscard d’Estaing, þáver-
andi forseta Frakklands, í vanda,
Francois Papon sést hér við upphaf
réttarhaldanna yfir honum í borg-
inni Bordeaux í Vestur-Frakklandi,
þar sem hann er ákærður fyrir glæpi
gegn mannkyninu með því að hafa
átt aðild að gyðingamorðum í síðari
heimsstyrjöldinni.
en Papon var ráðherra í stjórn
hans. Þá væri málið vakið upp nú
til þess að koma hægri flokkunum
í Frakklandi í vanda fyrir bæjar-
og sveitarstjórnarkosningar þær,
sem fram eiga að fara í landinu í
marz nk.
Fjaðrafok vegna útskriftar
Fagans af geðsjúkrahúsi
Lundúnum, 20. janúar. AP.
Á SAMA tíma og Michael Fagan
skálaði í kampavíni yfir því að vera
látinn laus af geðsjúkrahúsi, deildu
þingmenn og kröfðust þess að fá
skýringu á því af hverju honum hefði
verið sleppt úr haldi.
Fagan þessi varð heimsfrægur á
einni nóttu, ef svo má segja, er
hann komst alla leið inn á rúm-
stokk Elísabetar drottningar í
Buckingham-höll í sumar. Reynd-
ist honum auðvelt að komast
framhjá bágbornum öryggisút-
búnaði hallarinnar og var við
rúmstokk drottningar að vörmu
spori.
Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra, sagði í dag í ræðu í neðri
deild breska þingsins, að hún
skildi mætavel þær áhyggjur sem
þingmenn hefðu lýst vegna lausn-
ar Fagans af geðsjúkrahúsinu.
Tveir þingmenn Ihaldsflokksins
kröfðust þess að William White-
law, innanríkisráðherra, gæfi
skýringu á útskrift Fagans.
Sérstök nefnd, sem skipuð var
til þess að úrskurða andlegt
ástand Fagans, komst að þeirri
niðurstöðu að hann væri ekki
fyllilega búinn að ná sér, en ekki
væri lengur hætta á að hann gerði
sjálfum sér eða öðrum nokkurt
mein.
Sálfræðingur lýsti því yfir í
október, að enn væri sá möguleiki
fyrir hendi, að Elísabetu drottn-
ingu gæti stafað hætta af Fagan.
Fagan baðaði sig í frægðinni í
dag er honum var sleppt og hafði
þegar selt einu dagblaðanna
einkarétt á lýsingunni af dvöl
sinni á geðsjúkrahúsinu.
„Almenningur er hneykslaður
og undrandi á því að Fagan skuli
hafa verið útskrifaður af geð-
sjúkrahúsinu. Þetta er óskiljanleg
ákvörðun", sagði Keith Stanton,
þingmaður íhaldsflokksins.