Morgunblaðið - 21.01.1983, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1983
19
Frá blaðamannafundi El Salvadornelndar, lengst til vinstri Raul Flores
Ayala. Mynd Mbl. KE
Baráttuvika
- til stuðning frelsisbaráttu E1 Salvador
Nýr sendi-
herra Breta
RK'HARD Thomas hefur verið
skipaður sendiherra Bretlands á ís-
landi, að því er fram kemur í til-
kynningu brezka utanríkisráðuneyt-
isins.
I tilkynningunni kemur fram að
Elisabet drottning hafi falið Rich-
ard Thomas að taka við embætt-
inu af W.R. McQuillan, sem nú
hverfur að öðrum störfum í
brezku utanríkisþjónustunni. Ekki
kemur fram hvenær sendiherra-
skiptin verða.
Cheech og Chong
í Stjörnubíói
STJÖRNUBÍÓ hefur frumsýnt
bandarísku grínmyndina „Á fullu
með ('heech og Chong“, með sam-
nefndum leikurum í aðalhlutverk-
um.
Um myndina segir svo m.a. í
kynningu:
„Þeir félagar Cheech og Chong
hafa nú grætt á tá og fingri á „ís-
sölu“. Áhugi þeirra á blómarækt
hefur einnig orðið til þess að þeir
eru orðnir vellauðugir menn. Nú
munu langþráðir draumar þeirra
rætast. Draumaeyjan, brjóstaberu
stúlkurnar og ljúffengir drykkir
eru í sjónmáli. Skyndilega vakna
þeir upp við vondan draum. Pen-
ingarnir þeirra eru horfnir!
Cheech og Chong eru tilbúnir til
að leggja líf sitt i sölurnar fyrir
seðlana. En það eru fleiri en bófar
sem hafa áhuga á þeim félögum.
Lögreglan fylgist með þeim daga
sem nætur."
Leiðrétting
í myndatexta í Morgunblaðinu í
gær misritaðist nafn húsfreyjunn-
ar á Berjanesi undir Austur-
Eyjafjöllum. Hún heitir Freydís
Jónsdóttir. Mbl. biðst velvirðingar
á misrituninni.
EL SALVADOR-nefndin á íslandi
gekkst fyrir blaðamannafundi á mið-
vikudag þar sem kynnt var El Salva-
dor vika. í dag verður útifundur kl.
17.30 og eftir að ávörp hafa verið
flutt verður gengið að bandaríska
sendiráðinu og afhent skjal til að
mótmæla stuðningi Bandaríkja-
stjórnar við herforingjastjórnina í El
Salvador.
Fulltrúi FDR (Byltingasinnuðu
lýðræðisfylkingarinnar) og FLMN
(Þjóðfrelsishreyfingar " samein-
aðra skæruliðasamtaka E1 Salva-
dor) fyrir ísland, Finnland og Sví-
þjóð, Raul Flores Ayala, var á
fundinum og lýsti ástandinu í E1
Salvador. Hann sagði: „Þann 22.
janúar sem við höfum gert að bar-
áttudegi okkar verða mótmælaað-
gerðir við bandarísk sendiráð í
stærstu borgum heims. Þar verður
mótmælt stuðningi Bandaríkj-
anna við stjórnarherinn sem er nú
eina ástæðan fyrir því að ekki
tekst að steypa herforingjastjórn-
inni. FDR/ FMNL hefur á síðasta
ári verið í mikilli sókn og ræður
nú yfir einum þriðja hluta lands-
ins. Almenningur i E1 Salvador
hefur brugðist við með leynilegri
þátttöku í mótmælaaðgerðum og
jafnvel efnt til opinberra verkfalla
í ríkisstofnunum þó Ijóst væri að
líf lægi við. Það hefur sýnt sig að
ekkert getur stöðvað byltinguna.
Stríðið er nú háð allstaðar í land-
inu, og hefur jafnvel borist inn í
höfuðborgina, San Salvador.
FDR/ FMLN hefur virt Genfar
samkomulagið og afhent flesta
fanga sem teknir hafa verið, en
stjórnarherinn hefur umsvifa-
laust skotið alla sína fanga. Þá eru
viðstöðulaus fjöldamorð á al-
mennum borgurum og sýna þau
hræðslu stjórnarinnar við fólkið
og þau áhrif sem stuðningur þess
við byltinguna hefur, því þrátt
fyrir efnahagslegan og hernaðar-
legan stuðning frá Bandaríkjun-
um og fjórum sinnum fleiri her-
menn hefur ekki tekist að stöðva
framgang skæruliða. Við viljum
og trúum því að stórnmálalega
lausn sé að finna á málum E1
Salvador og höfum. lýst því yfir að
við séum tilbúin að hefja viðræður
án skilyrða hvenær sem er, tillög-
um okkar um umræðugrundvöll
sem eru þær að Bandaríkjastjórn,
herforingjastjórnin og FDR/
FMLN ræði saman að viðstöddum
alþjóðlegum áheyrnarfulltrúum,
og að allar niðurstöður verði born-
ar undir í E1 Salvador. Þessu hef-
ur verið alfarið hafnað af hægri
öfgaflokkum í E1 Salvador og virð-
ast þeir aðeins sjá hernaðarlega
lausn. Ef ekki verður af viðræðum
er næsta skref, til að brjóta á bak
aftur frelsishreyfinguna, innrás
erlendra herja í E1 Salvador og þá
er hafið nýtt Víetnamstríð sem
mun ógna heimsfriðnum."
David Plum
sýnir á
Mokkakaffi
FYRSTA myndlistarsýning ársins
1983 var opnuð á Mokkakaffi við
Skólavörðustíg, 4. janúar. Þar sýn-
ir listmálarinn David Plum.
Hann er af dönsku og amer-
ísku foreldri. David stundaði
nám í Bandaríkjunum og við
dönsku kunstakademíuna í
Kaupmannahöfn, aðalkennari
hans þar var prófessor Hjört
Nilsen, sem er íslendingum að
góðu kunnur.
David er kennari við listaka-
demíuna í Kaupmannahöfn.
Hann kennir þar ljósmynda-
tækni og hefur yfirumsjón með
öllum verkstæðum og vinnustof-
um myndhöggvaraskólans.
Prófkjör í Norðurlandskjördæmi eystra:
Tökum afstöðu
eftir Ámunda
Loftsson
Vegna prófkjörs Sjálfstæðis-
flokksins í Norðurlandskjördæmi
eystra, sem fram á að fara nú um
helgina langar mig til að koma
eftirfarandi á framfæri við þá,
sem hugsa sér að taka þátt í um-
ræddu prófkjöri.
Það hefur verið skoðun mín að
sjálfstæðismenn í hinum dreifðari
byggðum þyrftu að marka stefnu
sína skýrar en nú er, marka
sjálfstæða byggðastefnu, ef svo
mætti segja. Stefnu sem byggir á
sjálfstæðum grunni, en er ekki
baggi á öðrum þáttum í efnahags-
iífinu. Stefnu, sem sjálfstæðis-
menn marka hverjir fyrir sitt
kjördæmi eða svæði, en byggir á
grundvallarstefnu Sjálfstæðis-
flokksins.
Það er ánægjulegt fyrir fólk í
Norðurlandskjördæmi eystra með
svipaðar skoðanir, að nú eru í
kjöri tveir afbragðsmenn, sem
hafa yfir mikilli reynslu og þekk-
ingu að ráða, sem getur orðið að
ómetanlegu gagni fyrir kjördæm-
ið, og einnig mikil stoð við mótun
stefnumála okkar í framtíðinni.
Hér á ég við Júlíus Sólnes, bygg-
ingarverkfræðing, sem allir Akur-
eyringar, sem af barnsaldri eru
komnir ættu að þekkja. Allir sem
til þekkja vita að þar fer dugnað-
armaður, sem við hljótum að taka
vel á móti, þegar hann býður fram
krafta sína í þágu flokks og kjör-
dæmis.
Hinn er Björn Dagbjartsson,
matvælaverkfræðingur frá Álfta-
gerði í Mývatnssveit, sem hefur
yfir meiri reynslu og þekkingu að
ráða en flestir aðrir, er varðar
vinnslu sjávarfangs og hefur þar
af leiðandi glögga innsýn í þá
möguleika, sem þar eru til enn
frekari nýtingar. Ekki leikur held-
ur vafi á að landbúnaðurinn mun
njóta góðs af þekkingu hans á
Ámundi Loftsson
sviði matvælaframleiðslu í ríkum
mæli.
Ekki læt ég hér staðar numið,
að ég minnist ekki á Vigfús Jóns-
son á Laxamýri, sem um langan
aldur hefur unnið flokknum vel.
Ég er þess fullviss, að hér eru á
ferðinni menn, sem munu ryðja
með okkur brautina fram á við.
Þessa menn kýs ég.
VORUMARKADURINN
ÁRAAÚLAIA
VORUMARKADURINN
ÁRMÚLAIA