Morgunblaðið - 21.01.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1983
23
Sjötugur í dag:
Kjartan Guðnason
Sjötugur er í dag Kjartan
Guðnason, Sjafnargötu 7, fyrrver-
andi deildarstjóri hjá Trygg-
ingarstofnun ríkisins. í marg-
þættum lífsstörfum Kjartans er
hann okkur SÍBS-mönnum kunn-
astur sem hinn ágætasti félagi,
allt frá því að hann tengdist sam-
tökum okkar árið 1948 er hann
veiktist af berklum og með veru
sinni á Vífilsstöðum bast SÍBS
þeim böndum sem aldrei hafa
rofnað síðan. Árið 1950 var hann
kjörinn í stjórn Berklavarnar í
Reykjavík, í stjórn Vinnuheimilis-
ins að Reykjalundi átti hann sæti
sem aðalmaður á árunum
1953—1956 og oft síðan sem vara-
maður, stjórnarformaður Múla-
lundar 1957—1962. Hann var kjör-
inn í stjórn SÍBS á 10. þingi þess i
maí 1956 og hefur átt þar sæti síð-
an og stjórnarformaður frá því á
19. þingi samtakanna 1974. Þetta
er lítil upptalning þeirra trúnað-
arstarfa, sem Kjartan hefur innt
af hendi innan samtaka okkar
SÍBS-manna. Það er því ekki að
furða, að skoðaðri þessari upp-
talningu þótt sterk og náin tengsl
hafi ofist milli þeirra manna, sem
innan þessara samtaka hafa starf-
að liðna áratugi. í aprilmánuði
1951 hóf Kjartan starf hjá Trygg-
ingastofnun ríkisins og sinnir því
enn að hluta til. Hann hefur þó
fyrir nokkru stytt starfsdag sinn
verulega bæði fyrir aldurssakir en
þó öllu heldur sökum sjúkleika
sem hann hefur átt við að stríða
nokkur undanfarin ár þótt ekki
beri hann þess merki í augum
þeirra, sem ekki þekkja manninn
því betur. Á þessum vinnustað
hafa málefni öryrkja mikið farið
um hendur Kjartans og margir
leitað hans liðsinnis bæði fyrir þá
reynslu og þekkingu, sem hann
hefir á réttindum þessa stóra
hóps, sem til Tryggingastofnunar-
innar þarf að leita og ekki hvað
síst fyrir lipurð hans við úrlausnir
þeirra mörgu og margvíslegu
mála, sem þarna er oft á tíðum um
að ræða. SIBS hefir marg oft notið
leiðsagnar þessa ágæta félaga
þegar undirbúin hafa verið og
fram borin mál, sem varðað hafa
hagsmuni ýmissa öryrkjahópa.
Það munu fáir einir t.d. vita hvern
þátt Kjartan átti í því að fá sam-
þykktar greiðslur, svokallaða
„vasapeninga" til þeirra sem á
sjúkrahúsum dvelja og hafa engin
fjárráð önnur en þau, sem vinir og
vandamenn láta af hendi rakna til
þessa fólks. Fátt eitt hefir hér ver-
ið drepið á af þeim málum, sem
SÍBS vill þakka Kjartani á þessum
hans heiðursdegi. Allt það
ónefnda geymum við félagar hans
í minni, vitandi að ekki væri það
að skapi afmælisbarnsins að tí-
unduð yrðu mörg hver þau störf,
sem það hefir innt af hendi í þágu
hinna sjúku á leið margra hverra
til sjálfsbjargar. Þeim hjónum
Kjartani og Jónu flytjum við
bestu hamingjuóskir í tilefni
dagsins, en þau munu taka á móti
gestum milli kl. 5 og 7 í dag í fé-
lagsheimili Stangaveiðifélags
Reykjavíkur að Háaleitisbraut 68.
J.B. — O.ÓI.
Hildibrandarnir við doriuna góðu, félagsheimilið, sem útgerðin gerir út.
Hún er máluð í bandarísku fánalitunum, merkt Hildibrandi og dekkin
einnig eins og sjá má.
Við höfum þannig fengið að kenna
á valdi örlaganna, en nú er bíllinn
skráður fyrir fleiri, kvótinn var
hækkaður og á tíma var hann 9
manna og þá fengum við okkur
sparisófa af vönduðustu gerð í
gripinn.
Við rekum þennan bíl þannig að
Hildibrandasöfnun aflar fjár með
því, að þeir sem eiga pening í það
og það skiptið borga benzínið.
Þetta skiptist furðu jafnt á milli
manna eins og náttúruöflin og við
erum heldur ekki að velta fyrir
okkur smámununum, það er alltof
mikið gert af því í þessu landi og
þess vegna er þetta allt í bölvuð-
um hnút. Okkar stíll byggist á
milliliðalausum stórhug.“
l»á er bara að pumpa
„Einu sinni ætluðum við að vera
töff og býsa benzíni á bílinn, en
þegar á reyndi nennti enginn að
standa í þvílíku veseni. Við höfum
hins vegar unnið markvisst að því
að þróa bílinn upp og erum nú
komnir með loftdempara. Ef bíll-
inn er mjög hlaðinn, þá er bara að
pumpa.
Annars er það mjög sjaldgæft
að við séum töff og við gerum
okkur grein fyrir því, að það fer
miklu minna fyrir okkur í bílnum
heldur en var. Þetta fyrirtæki
okkar „Hildibrandur" er því af til-
litssemi við samfélagið, hin mesta
þjóðþrifa útgerð."
Að vera með poka
„Jú, við höfum einnig þróað upp
nokkurn orðaforða til þess að
forða íslenzkunni frá pólitískri
stöðnun og þótt af þessu skapist
nokkur hætta þá er þetta liður í
því að fá fólk til að hugsa og vara
sig á hættunum, yfirstíga þær.
Auk þess að hafa varadekk á
„teppinu" hafa þeir félagar einnig
bjarghring, svona upp á öryggið.
Ljósmynd Mbl. Sijjurgeir
Við rímum við líðandi stund og
til dæmis köllum við Stóra-
Hvamm Texas vegna þess hve
húsið hefur vestrænt útlit. Af ný-
yrðum okkar má nefna að orðið
smörgel þýðir frábært eða gæjó,
prímadonna þýðir sama. Að vella
er að kaupa eitthvað, kæna er
vindlingur, að smegga er að reykja
og að hippa einni smeggu þýðir að
rétta vindling. Að gilja gás er
spurning um það hvort menn hafi
lent með dömu, hulstur þýðir
nærbuxur, þú ert nú meiri pappa-
kassinn þýðir, þú ert nú meiri asn-
inn. Sementspoki þýðir Skaga-
maður og ef Hildibrandur lendir
með Skagapíu þá er hann með
poka.
Það er bezt að fara varlega með
þetta, því nýyrðasafnið er orðið
mílu langt."
„Þá var það búið“
Þeir eru 11 í búskapnum um bíl-
inn og ég spurði þá hvort ekki
hefði gengið á hópinn síðan farið
var af stað.
„Við erum búnir að missa einn
úr grúppunni, það var ein sem
náði honum. Við höfum því tekið
upp þá stefnu að reyna að koma
slíkum samböndum fyrir kattar-
nef ef hættuástand er komið upp.
Við höfum mismunandi aðferðir
til slíks og einnig er þetta gert ef
einhverjir í grúppunni eru
óánægðir með val hinna.
Einn var til dæmis með ágætis
píu, en vald hennar jókst stöðugt
svo við hinir urðum að grípa í
taumana. Við komum því svo
fyrir, að þau voru bæði stödd í
eldhúsi í samkvæmi, hún við
vinnuborðið, hann í borðkróknum
og hélt að hún væri á snyrtiher-
berginu. Einn okkar spurði eld-
gleypinn þá hvað það ætti að þýða
að velja sér ekki betri píu en þetta.
„Ég ætla bara að nota þetta
þangað til ég finn eitthvað betra,"
svaraði gleypirinn umkringdur og
í sömu andrá sást unnustan
sveifla jakka sínum á öxl og
strunza út úr húsinu. Þá var það
búið.“
Herradómurinn og
danska mærin
„Það er svona eitt og annað sem
kemur upp, við framleiddum 120
boli og gáfum brjóstaberum, við
auglýsum þjóðþrifamál í bæjar-
blöðunum, en meginmottóið í
grúppunni er: vestræn samvinna,
skemmtum okkur og náunganum
og svölum skemmtanafýsninni á
tiltölulega hæverskan hátt. Við
höfum þó orðið að grípa til rót-
tækra ráðstafana eins og til dæm-
is þegar danska nektardansmærin
Lady Jane lenti hér innan land-
helgi með læraburð sinn.
Við vildum sýna henni tilhlýði-
lega kurteisi og koma til móts við
þarfir hennar. Við mættum til
leiks sérlega prúðbúnir og frakka-
klæddir að auki. Þegar mærin
danska var búin að vippa af sér
flestu sem tilheyrir hégóma þessa
heims og dillaði sér á sviðinu í
sakleysislegu holdi sínu einu sam-
an, þá komum við herrarnir til
skjalanna, stukkum upp á svið og
sviptum frökkum okkar upp í
hæðir þannig að svæðisbundið
samræmi var milli meyjarinnar
dönsku og peyjanna úr Eyjum. Við
höfum hins vegar ekki gert ráð
fyrir því að herradómur okkar
vekti slíka hrifningu að allur
áhugi á mærinni dönsku ryki út í
veður og vind hjá samkomugest-
um. Þetta var þó vel meint hjá
okkur þótt mærin danska kynni
því illa, enda óvön aflahrotum.
Rauk hún á dyr, en við létum
frakkalöfin falla."
— á.j.
Bambus-stólar Bambus-hillur
Verd frá kr. 1.326.- Á vegg og gólf.
Margar geröir.
Sendum um land allt
Opiö til kl. 8 í kvöld og til hádegis laugardag
Vörumarkaðurinn hf.
Sími 86112
Húsgögn
Vörumarkaösverð
Bambus-sófasett
2ja sæta sófi + 2 stólar + borö.
Verö kr. 7.826.-
Furumatboró 10 geróir.
Borö og 4 stólar frá kr. 4.665.-
Furukojur m/dýnum og rúmfataskúffu.
Verö kr. 4.799.-
Leikfimisrimlar kr. 1.343.-