Morgunblaðið - 21.01.1983, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1983
Landsliðshópurinn valinn:
Sigurður Gunnarsson
gefur ekki kost á sér
HILMAR Björnsson landsliðs-
þjálfari valdi í gær endanlegan
15 manna hóp til þátttöku í
B-keppninni í Hollandi í febrúar.
Eftirtaldir leikmenn hafa veriö
valdir: Einar Þorvarðarson Val,
Kristján Sigmundsson Víkingi,
Brynjar Kvaran Stjörnunni, Þor-
gils Óttar Mathiesen FH, Jóhann-
es Stefánsson KR, Steindór
Gunnarsson Val, Guðmundur
Guðmundsson Víkingi, Ólafur
Jónsson Víkingi, Bjarni Guö-
mundsson Nettelstedt, Kristján
Arason FH, Siguröur Sveinsson
Nettelstedt, Páll Ólafsson Þrótti,
Þorbjörn Jensson Val, Alfreð
Gíslason KR og Hans Guð-
mundsson FH.
Verði Þorbergur Aðalsteins-
son orðinn góður af meiöslum
verður hann 16. leikmaöurinn i
hópnum, en hann losnar við
gipsiö á mánudag. Hann hefur
æft mjög stíft undanfarið. Fyrstu
varamenn ef einhver fellur úr
vegna meiösla eru þeir Gunnar
Gíslason og Haukur Geir-
mundsson.
Sigurður Gunnarsson Víkingi
gefur ekki kost á sér til þátttöku í
B-keppnina af persónulegum
ástæðum og er það auðvitað
mikil blóðtaka fyrir liðið.
Þá kemur Þorbjörn Jensson
aftur í hópinn eftir smá hlé. Auk
framantaldra verða í hópnum,
sem fer til Hollands, þeir Hilmar
Björnsson og Gunnsteinn Skúla-
son þjálfarar, Halldór Matthías-
son sjúkraþjálfari, Friörik Guð-
mundsson video-maður og aö-
stoðarfararstjóri, en fararstjóri
veröur Jón Erlendsson varafor-
maður HSÍ.
— SH
• „Upp meö hendurnar í vörninni — upp með hendurnar sagöi ég. Já, avona ákveönir i þessu. Né boftanum at þeim, jé svona. Ah, rólegir,
rólegir. Slappiö nú aöeins af — halda boltanum. Nei, hvernig gastu brennt þessu fseri af? Áfram strékar — viö megum ekkert slaka é. Þetta
var laglegt — svona á aö spila körfubolta — gott hjá þér drengur. Fljótir í vörninal — áfram.“ Þeir sem lagt hafa leiö sína á leiki ÍR eöa
landslíösins í körfubolta í vetur hafa með eigin augum séö Jim Dooley, þjálfara tiðanna. Óhætt er að segja aö meðan á leik stendur sé engin
lognmolla yfir kappanum og oft á tíðum heyrist hærra í honum en áhorfendum þó stemmning sé meö ágætum í húsinu. Hann er óspar á
hvatningarorö til sinna manna og nú virðist sem ÍR-liöiö sé að ná sér á strik undir stjórn þessa snjalla þjálfara. Þessar stórskemmtilegu
myndir voru teknar af Dooley á miðvikudagskvöldíð er ÍR vann ÍBK í iþróttahúsi Hagaskóla og ættu þær að geta sagt meira en mörg orö af
kappanum. — SH/ Ljósm. KÖE.
Landsliðsmenn
með liðum sínum
Skýrt var frá því í Englandi í
gær að bæöi enska og skoska
knattspyrnusambandið hefðu
samþykkt að gefa landsliös-
mönnum frí í sumar þannig aö
þeir gætu leikið með liöum sín-
um á ferðum þeirra.
Forráðamenn Manchester
United og Liverpool höföu lýst
yfir aö þeim væri illa vió aó
leikmenn þeirra yröu með í vin-
áttuleikjum landslióanna frekar
en aö þeir tækju þátt í undir-
búningi liðanna. Eina feröin
sem þegar hefur verið ákveöin
hjá Englandi er þriggja leikja
feró til Ástralíu en Skotar hafa
enn ekkert ákveöið í þessu
sambandi.
1. deildin galopnaðist
ÍS sigraði Hauka í 1. deildinni í
körfu í gærkvöldi meö 71 stigi
gegn 70. Leikurinn var æsispenn-
andi og mjög skemmtilegur, og
er deíldin nú mjög opin. Haukar
hafa nú tapað tveimur leikjum í
röö — fyrir Þór og ÍS, og hafa Þór
og Haukar bæði tapaó fjórum
stigum en ÍS sex.
Þegar 20 sek. voru til leiksloka
var staöan 70:68 fyrir Hauka. Gísli
Gíslason skoraöi þá fyrir IS og
fékk aö auki vítaskot sem hann
skoraöi úr. Staðan 70:71. Hauk-
arnir brunuöu upp en leiktíminn
rann út áöur en þeir náöu aö
skora.
Stigin: (iuómundur Jóhannsson skoraói 23
sfig fyrir ÍS, l’at liock 22, (iísli (iíaslason gerði
15. Hjá llaukum var Pálmar Sijjurðsson með 18
stig, Jón llalldór (iarðarson 12, Webster með 10
og Olafur Kafnsson einnig.
—SH/IHÞ.
• Graeme Souneaa og félagar
hans hjé Liverpool mæta Burn-
ley í undanúrslitunum.
Liverpool datt
í lukkupottinn
- mætir Burnley
í bikarnum
„Auðvitaö hefðum vió kosið
aö mæta Burnley en við eigum
fyrri leikinn á útivelli þannig aó
við komum til með aö vita hvaö
viö þurfum aö gera á Old Traff-
ord í síðari leiknum," sagði
Mick Brown, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Manchester Un-
ited, í samtali viö AP í gær, eftir
að dregið hafði verið í undan-
úrslitum Mjólkur/deildar-bik-
arsins.
Manchester United dróst gegn
Arsenal og fer fyrri leikurinn fram
á Highbury. Liverpool datt í
lukkupottinn og fékk 2. deildarliö
Burnley. Burnley hefur staðiö sig
frábærlega vel í keppninni til
þessa — slegið út þrjú 1. deildar
liö, nú síöast Tottenham meö
4:1-sigri í London. Fyrri leikur
Liverpool og Burnley fer fram á
Anfield Road, heimavelli meistar-
anna.
Fyrri leikirnir veröa spilaöir 8.
eöa 9. febrúar og hinir seinni í
vikunni þar á eftir.
KR-ingar fóru
létt meö Fram
Sigurinn var auöveldur. Það fer
ekki á milli mála. KR lagöi Fram í
1. deildinni í handbolta í gær,
26:19, eftir að staöan í hálfleik var
13:8. Sigurinn var auðveldur, já,
en KR-ingarnir virtust samt aldreí
þurfa að leika af þeim krafti sem
þeir geta. Einstaka menn áttu
mjög góðan leik, eins og Gunnar
Gíslason og þá var Alfreö bróðir
hans einnig nokkuð góöur.
Framarar tóku þaö til bragös
þegar í upphafi lelksins aö taka
Anders Dahl úr umferö og var
hann sama og ekkert með í sókn-
arieiknum — hékk bara úti á velli
og þar meö var einum Framaran-
um færra í vörninni. Alfreö gat
skotið nánast þegar hann vildi
enda Fram-vörnin ekki sterk. Gísli
Felix stóö í markinu mestallan tím-
ann og varöi vel, en síöan kom
Jens inn á í lokin og varöi einnig
vel. Hann lét ekki þar viö sitja
heldur kom fram á völllnn í síöustu
sókninni og skoraöi síöasta mark
KR er tvær sek. voru eftir meö lág-
skoti utan af velli.
Þaö var einkennandi fyrir Fram-
ara hve lengi þeir voru aö drattast
i vörnina ef þeir glutruöu boltanum
í sókninni. Oftast voru KR-ingar
búnir aö skora er leikmenn Fram
nálguöust eigin vítateig.
Munurinn í lokin var sjö mörk en
heföi sennilega getaö oröiö enn
stærri. En Framarar geröu þó
einnig góöa hluti og voru Egill og
Siguröur markvöröur Þórarinsson
iönastir viö þaö.
Mörkin: KK: (iunnar (■íslason 9/2, Alfreð
(iíslason 6, (>uðmundur AlbfrUsson 4, Jóhannes
Stofánsson 2, Anders Dahl 2, Slefán Halldórsson
2, Jens Kinarsson 1. Fram: Kgill Jóhannesson
7/2, Krlendur Davíðsson 4/1, Brynjar Stefáns-
son 2, llermann Björnsson 2, Dagur Jónason I,
Jón Arni Kúnarsson 1, Ajfnar Sigurðsson 1 og
llinrik Ólafsson 1.
Sigurður bórarinsson varði víti frá Anders
Dahl, (lísli Felix varði eitt frá Agli Jóhannessyni
og Jens eitt frá Krlendi. Krlendur var rekinn út
af í tvær mín. og einnig þeir Jóhannes Stef. og
Stefán Halldórsson KK-ingar.
— SH.
• Gunnar Gíslason skoraöi níu
mörk gegn Fram í gærkvöldi.